SunnudagsMogginn - 03.04.2011, Blaðsíða 24
24 3. apríl 2011
Þ
eir brostu glaðlega við okkur og sólinni sem var
að skríða fram úr skýjunum. Við vorum á flugi á
Snæfellsnesi að horfðum á landið vakna. Að
fljúga á lítillri flugvél í góðu veðri og sjá fegurð
landsins er ólýsanleg upplifun, eitthvað sem lyftir lífinu og
andanum í aðrar hæðir og varir yfirleitt í nokkra daga á
eftir. Það er öllum flugmönnum nauðsynlegt að fljúga
reglulega til að halda sér við, það eykur öryggi í flugi, bæði
fyrir flugmenn og farþega þeirra. Eins er það með hlaupara
sem hleypur langhlaup, æfi hann sig ekki vinnur hann
ekki ólympíugullið.
Þessir vindbörðu tröllkarlar, sem hafa verið íbúar Snæ-
fellsjökuls í þúsundir ára, hafa lifað tímana tvenna. Lesa
má út úr hrjúfu ísstálinu veðurfarssögu landsins. Kannski
brosa þeir af því að nú er þeim að hlýna og jökullinn
minnkar með hverju árinu sem líður. Getur verið að þeir
séu eftirlitsmenn að vakta innganginn að miðju jarðar,
eins og segir í sögu Jules Vernes um Snæfellsjökul. Þeir
gæta inngangsins með brosi á vör og hrekja engan frá.
Hvað sem því líður boðar bros tröllanna að vorið er í nánd
og vonandi gott sumar. Vonandi verður hægt að stunda
flug á Íslandi í framtíðinni þó að blikur séu á lofti og heim-
sækja broskarlana.
„Maður á að hafa vit á því að vera alltaf í góðu skapi,“
sagði góður vinur minn mér um daginn að stæði á legsteini
afa síns. Afi hans var einmitt þekktur fyrir það að vera
alltaf í góðu skapi. Það er alltaf ánægjulegra að hitta
skemmtilegt fólk en leiðinlegt. Stundum er það erfitt þeg-
ar andrúmsloftið er þungt eins og í samfélaginu í dag og
getur tekið verulega á fyrir fólk að halda sönsum. Það er
eins og bannað sé að vera glaður og það eru allir á einhvern
hátt tortryggðir. Kannnski verður einhvern tíma tekin
upp Binna- og Pinna-aðferðin á Íslandi sem gengur út á
það að rassskella börnin sín til öryggis á morgnana ef þau
skyldu brjóta rúðu seinna um daginn. Það er ekkert að því
að hafa eftirlit og reglur, en það verður að vera vit í þeim
og sanngirni.
Ísland byggðist upp af duglegu fólki úr öllum stéttum,
fólk barðist við náttúruöflin og óblíð veður til þess að gera
lífið betra fyrir alla, hrjúf andlit ískarlanna bera þess merki
í sögu landsins. Fáar þjóðir hafa misst jafn marga í sjóinn
við Íslandsstrendur við það að draga björg í bú og halda lífi
í þjóðinni. Það sama má segja um bændur. Það verður að
hlúa að þessum stéttum sem öðrum, stundum má lífið
halda áfram án þess að menn séu alltaf að finna upp hjólið.
Það þarf ekki allt að ganga út á það að íþyngja fólki, lífið á
að vera skemmtilegt.
Flugið kom okkur á heimskortið og gerði okkur kleift að
ferðast á milli landa. Frumkvöðlarnir í fluginu eiga mikið
þakklæti og heiður skilinn. Er virkilega engin leið að gera
sér grein fyrir því hvað flugið hefur gert mikið fyrir Ísland?
Agnar Kofoed Hansen, fyrrverandi flugmálastjóri, gerði
sér grein fyrir mikilvægi flugsins og grasrótarinnar í flug-
inu og byggði það upp með aga og festu. Það voru oft ljón á
veginum, þröngsýnir menn sem höfðu ekki trú á fluginu
og reyndu að tortryggja það sem framtíðarferðamáta.
Agnar varði flugið og hlúði að því ásamt Pétri Einarssyni
aðstoðarmanni sínum og síðar arftaka. Þau voru ófá skipt-
in sem Agnar kom röltandi í rólegheitum að spjalla við
okkur strákana sem vorum að læra að fljúga á þeim tíma.
Virðing fyrir Agnari á meðal flugnema var mikil, fram-
koma hans og kurteisi í okkar garð er mér minnisstæð og
óendanlegur flugáhugi. Agnar ávann sér þá virðingu með
framkomu sinni og vináttu. Reglur voru strangar og það
var allt í lagi, menn reyndu að fara eftir þeim. Agnar vildi
að menn kæmu heilir heim úr hverri flugferð og að menn
æfðu sig og og menntuðu til að vita hvað þeir væru að gera.
Það er söknuður í mönnum eins og Agnari og Pétri,
flugmenntuðum mönnum sem voru félagar allra sem að
fluginu komu og vörðu flugið. Fyrir kom að maður var
tekinn á teppið, meðan menn voru ungir að fljúga af sér
hornin, en málin voru leyst í bróðerni og sköðuðu engan.
Framkoman ein gerði það að verkum að enginn vildi
Bros
tröllanna
Hefur eitthvað breyst sem rétt-
lætir allar þær reglur sem ganga
yfir flugið í seinni tíð? Þarf virki-
lega að flækja lífið svona mikið?
Sagan bak
við myndina
Ragnar Axelsson
rax@mbl.is
Bros tröllanna boðar að vorið er í nánd og vonandi gott sumar.
Fáir hafa lagt meira á sig fyrir þjóðina en sjómenn. Flug hefur komið Íslandi á kortið. Það er brý