SunnudagsMogginn - 03.04.2011, Blaðsíða 26
26 3. apríl 2011
T
ískustraumar breytast en Coco
Chanel dettur aldrei úr tísku. Á
síðustu þremur árum hafa tvær
kvikmyndir verið gerðar um
ævi hennar og bækur koma enn út um
viðburðaríka ævi hennar.
Chanel var engin venjuleg kona, enda
valin ein af merkustu einstaklingum 20.
aldar af tímaritinu Time. Konan sem
byggði upp tískuveldi og varð vellauðug
bjó að bakgrunni sem hún talaði ekki oft
um, og ef hún gerði það fór hún venju-
lega rangt með staðreyndir eða laug
hreinlega. Það hversu frjálslega Chanel
fór með sannleikann leiddi til þess að
ævisagnaritarar hennar hafa lent í
nokkrum vandræðum og þurft að leggja
á sig mikla vinnu til að komast að stað-
reyndum um ævintýralega ævi.
„Ég veit ekkert skelfilegra en fjöl-
skylduna,“ sagði Chanel eitt sinn og vart
hægt að álasa henni fyrir þau orð því fjöl-
skyldusaga hennar var dapurleg. Hún
fæddist árið 1883 í Frakklandi, ein af
fimm systkinum, og var skírð Gabrielle.
Foreldrarnir voru farandsölumenn.
Móðir hennar dó þegar hún var ellefu ára
og faðirinn kom henni og systrum henn-
ar tveimur í klaustur og þar var Chanel til
átján ára aldurs en hélt þá út í lífið og
söng í klúbbum. Breyting varð á lífi
hennar þegar hún kynntist auðugum
manni, Etienne Balsan, og gerðist ást-
kona hans. Chanel hafði lært saumaskap í
klaustrinu og sem ástkona forríks manns
hafði hún nógan frítíma sem hún nýtti til
að hanna hatta sem urðu mjög eftirsóttir.
Hún stofnaði verslun í París og tók síðan
Hin viljasterka Chanel varð að þola ýmis áföll.
Hún mótaði tískuna, var harðsnúin í
viðskiptum og ólánsöm í ástum. Coco
Chanel er ein af goðsögnum 20. aldar.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
að hanna föt með svo góðum ár-
angri að hún varð fljótlega fjár-
hagslega sjálfstæð.
Balsan var ekki tryggur elskhugi
og átti í samböndum við aðrar konur en
Chanel, og samband þeirra fjaraði út. Á
þessum tíma tók Chanel að sér sex ára
dreng sem hún sagði vera son látinnar
systur sinnar. Vangaveltur hafa verið
uppi um það að drengurinn hafi verið
sonur Chanel og Balsans, en ekkert hefur
sannast í þeim efnum.
Stóra ástin
Stóra ástin í lífi Chanel var Arthur Capel,
kallaður Boy af vinum sínum, ævin-
týramaður og kvennagull. Orðið tryggð
var ekki til í hans orðabók og Chanel varð
að þola að hann hitti aðrar konur. Sam-
band þeirra stóð í níu ár. Það var Chanel
mikið áfall þegar hann gekk skyndilega í
hjónaband með enskri fegurðardís af að-
alsættum en ástarsamband þeirra hélt
engu að síður áfram. Árið 1919, eftir eins
árs hjónaband, var eiginkona Capels
barnshafandi. Samt var lítil gleði í hjóna-
bandinu. Capel var að mestu hættur að
tala við konu sína, hann sagði að hún
færi í taugarnar á sér og hann þyldi ekki
að hafa hana nálægt sér. Í desem-
bermánuði lést Arthur Capel í bílslysi á
leið frá París til Cannes. Áratugum síðar
sagði Chanel: „Þegar ég missti Capel
Chanel bjó við mikinn íburð.
Coco Chanel.
Konan sem mót-
aði tískuna.
Hin harðsnúna Chanel
C
O
C
O
C H A N E L