SunnudagsMogginn - 03.04.2011, Qupperneq 27
3. apríl 2011 27
Úr kvikmynd um samband
Chanel og Igor Stravinsky.
Chanel var ævinlega vel klædd.
Chanel No 5 er eitt frægasta
ilmvatn í heimi.
missti ég allt.“ Þetta var mesta áfall lífs
hennar, atburður sem hún jafnaði sig
aldrei fyllilega á.
Chanel gekk aldrei í hjónaband en átti
fjölskrúðugan hóp elskhuga. Þar á meðal
var Dmitri hetogi, frændi Nikulásar II.
Rússakeisara. Hann hafði tekið þátt í
samsærinu um að myrða Rasputin,
einkavin keisaraynjunnar, og flúði land
eftir morðið. Annar elskhugi var skáldið
Pierre Reverdy og slúðrað var um ástar-
samband milli hennar og tónskáldsins
Igors Stravinskys. Fatahönnun Chanel
hafði vakið mikla athygli, frægð hennar
og velgengni jókst með hverju ári. Hún
varð afar vel fjáð og styrkti bæði ástmann
sinn Dmitri og Stravinsky fjárhagslega.
En svo hitti Chanel ríkasta mann Eng-
lands, og sá þurfti sannarlega ekki á
neinni fjárhagsaðstoð að halda.
Hertoginn af Westminster var enn
einn kvennamaðurinn sem Chanel átti í
sambandi við. Ástarsambandið stóð í tíu
ár og var stormasamt vegna framhjáhalds
hans. Eitt sinn reyndi hann að bæta fyrir
framhjáhald með því að gefa Chanel
stóran gimstein. Hún tók við honum en
lét hann svo renna rólega úr hendi sér og
í sjóinn. Öðru sinni gaf hann henni háls-
men eftir að hafa daðrað við unga konu.
Chanel henti því í hafið. Ég elskaði hann,
eða hélt að ég elskaði hann, sem er nokk-
urn veginn það sama, sagði Chanel á efri
árum. Samband þeirra hefði sennilega
endað með hjónabandi hefði Chanel orð-
ið barnshafandi, en það skipti hertogann
miklu máli að eignast karlkyns erfingja.
Þess má geta að hann lést án þess að hon-
um yrði að ósk sinni. Eftir að ástarsam-
bandi þeirra lauk átti Chanel í nokkurra
ára sambandi við fatahönnuðinn Paul
Iribe sem var náinn samsatarfsmaður
hennar. Hann skildi við eiginkona sína
vegna Chanel en lést skyndilega úr
hjartaáfalli árið 1935, 52 ára gamall.
Chanel og nasistar
Sár vonbrigði og áföll í einkalífi mörkuðu
líf Coco Chanel en hún bjó sannarlega að
miklum starfsframa. Svartur og hvítur
voru hennar uppáhaldslitir, hún sagði að
þeir skiptu öllu máli. Hún hannaði föt
sem hún taldi henta sjálfri sér. Þetta var
einföld, smekkvís en dýr hönnun sem
efnaðar konur um allan heim sóttu í.
Ilmvatnið Chanel nr. 5 varð ekki síst til
að leggja grunn að veldi hennar. Þegar
Marilyn Monroe var eitt sinn spurð í
hverju hún svæfi svaraði leikkonan orð-
heppna: „Chanel nr. 5.“
Chanel bjó við mikinn íburð og safnaði
dýrmætum munum en á heimili hennar
var þó ekkert svefnherbergi. Hún svaf á
hótelherbergi á efstu hæð á Ritz-hótelinu
sem var í námunda við heimili hennar.
Ásakanir um að Chanel hafi átt náið
samstarf við nasista hafa sett svartan
blett á mannorð hennar. Í nýlegri ævi-
sögu Chanel eftir Justine Picardie er gert
lítið úr þessum þætti og talið að um
marklaust slúður sé að ræða. Chanel hafi
einfaldlega látið eins og nasistar væru
ekki til og síst unnið með þeim.
Aðrir fullyrða að Chanel hafi átt
góð samskipti við nasista. Víst
er að þegar lög voru sett um
að gyðingar mættu ekki
eiga fyrirtæki reyndi hún
á grófan hátt að losa sig
frá samningi við gyðinga-
fjölskylduna sem fram-
leiddi ilmvötn hennar. Vel
má vera að hreinir viðskipta-
hagsmunir, og þá heldur
harðsvíraðir, hafi þar
ráðið mestu en ekki
andúð á gyðingum.
Hún átti í margra
ára ástarsambandi
við þýskan mann,
Hans Günther von
Dincklage. Hún var
58 ára gömul þeg-
ar ástarsamband
þeirra hófst, hann
var 13 árum yngri.
Seinna þegar Chanel
var spurð að því
hvort hún hefði sofið
hjá óvininum sagði hún:
„Það er ekki hægt að
ætlast til þess að kona á
mínum aldri líti í vegabréf
manns sem hún getur
hugsanlega átt ástarsam-
band við.“
Chanel sömuleiðis. Sambandi þeirra lauk
einhverjum árum seinna og Chanel hélt
aftur til Frakklands árið 1956. Landar
hennar tóku henni margir fálega en í
Bandaríkjunum voru menn stórhrifnir af
hönnun hennar, sérstaklega svörtu, ein-
földu kjólunum. Hönnun Chanel komst
svo rækilega í heimsfréttirnar þegar for-
setafrúin Jacqueline Kennedy klæddist
bleikri dragt í ferðinni til Dallas þar sem
eiginmaður hennar var skotinn. Blóð úr
honum skvettist á dragtina og for-
setafrúin harðneitaði að láta hreinsa
dragtina, sem varð að áhrifaríku mynd-
efni um allan heim.
Einmanaleg elli
„Maður á ekki að búa einn, það eru mis-
tök,“ sagði Chanel á efri árum. Hún þótti
oft hörð í horn að taka, nokkuð sjálfs-
elsk og gat verið hin mesta eit-
urtunga. Leikritaskáldið Noel Cow-
ard skrifaði í dagbók sína árið 1948:
„Borðaði hádegismat með Coco
Chanel. Hún talaði ekki vel
um neinn en var mjög
skemmtileg.“ Chanel átti til að
falla í sjálfsvorkunn og á þeim
stundum sagði hún að líf sitt væri
misheppnað, hún hefði misst þá
sem hún hefði dýrkað, ekkert
væri eins slæmt og að vera einn
og það eina sem hún ætti eftir
væru kjólar og kápur. „Kona sem
er ekki elskuð er ekki kona, sama
á hvaða aldri hún er,“ sagði hún.
Sjálf sagðist hún hafa gefist upp á
ástinni: „Að elska? Hvern? Gamlan
mann? En hræðilegt. Ungan mann?
En skammarlegt.“
Hún sagði líka: „Þegar maður er
hættur að gráta er það vegna þess að
maður trúir ekki lengur á ham-
ingju.“ Síðustu árin sem hún lifði
fékk hún iðulega martraðir.
Stundum gekk hún í svefni, tók
þá skæri, gekk að spegli og fór að
klippa náttföt sín í tætlur. Þegar
hún vaknaði með skæri í hendi og
sá hvað hún hafði gert varð hún
skelfingu lostin.
Coco Chanel lést árið 1971, 87
ára gömul.
’
Chanel átti til að falla í
sjálfsvorkunn og á þeim
stundum sagði hún að
líf sitt væri misheppnað, hún
hefði misst þá sem hún hefði
dýrkað, ekkert væri eins
slæmt og að vera einn og það
eina sem hún ætti eftir væru
kjólar og kápur.
Líf Chanel hefur oftar en
einu sinni ratað á hvíta
tjaldið.
Chanel með einni
af tískusýning-
arstúlkum sínum.
Hans Günther von Dincklage vann sem
sendiráðsritari við þýska sendiráðið í
París. Einhverjir grunuðu hann um
njósnir, aðrir litu á hann sem meinlausan
embættismann. Í vinahópi lýstu bæði
Chanel og hinn þýski ástmaður hennar
yfir andúð sinni á stríðinu. Eftir frelsun
Parísar var Chanel kölluð í yfirheyrslu
þar sem kanna átti tengsl hennar við
nasista. Menn börðu að dyrum á heimili
hennar og sögðu henni að koma með sér.
Hún sagði við þjónustustúlku sína áður
en hún fór að ef hún kæmi ekki fljótlega
aftur heim skyldi haft samband við Win-
ston Churchill, sem var náinn vinur fyrr-
verandi elskhuga hennar, hertogans af
Westminster. Chanel var sleppt eftir yf-
irheyrslu og engin eftirmál urðu. Þýski
elskhuginn flutti til Sviss og það gerði