SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Qupperneq 12

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Qupperneq 12
12 3. júlí 2011 Mánudagur Bragi Bergþórsson Alveg er heimurinn orðinn snarruglaður. Sit á kaffihúsi í Stral- sund og hlusta á ís- lenskt útvarp og les íslenskt dagblað. Er það ekki dálít- ið skrítið? Miðvikudagur Karen María Jónsdóttir Það er ráðist að dansi á fjölmörgum stöðum í heiminum í dag. 40% nið- urskurður til grein- arinnar á einu bretti í Hollandi er nú á leið í gegnum þingið. Allir danshöfundar landsins samein- uðust uppi á sviði í Muziek Theater í Amsterdam og hneigðu sig hljóð- lega – vonandi verður þögnin ekki framtíðartónlist dansins! Dagur B. Eggertsson hlakkar til að fá þrjá sólbrúna krakka frá mínum frábæru tengdaforeldrum í Svíþjóð á morgun – og bið um að þau taki með sér, þó ekki væri nema ca. 50% af hita og sól. Alsæll og bið ekki um meira. Fésbók vikunnar flett Með tímanum hafa myndvarpar minnkað mjög og kemur varla á óvart að ýmsir noti þá til að horfa á sjónvarp eða til að streyma kvikmyndum úr flakkara eða fartölvu, enda er þá hægt að horfa á risaskjá, þess vegna vel yfir 100 tommur. Eins og fram kemur í umfjölluninni um HP- myndvarpann hér til hliðar, HP Note- book Projection Companion AX325AA, er ljósstyrkur í honum 100 lumen (lumen er mælieining yfir sam- fellda birtu og byggist á birtuskyni augans). Fyrir vikið hentar hann ekki vel til að streyma bíómyndum úr far- tölvu á skjá þótt það sé hægt fræði- lega. Til að ná þokkalegri mynd þarf ljós- styrkur að vera mun meiri, helst ekki minni en 900 lumen í rökkvuðu her- bergi (ca 90 tommu skjár), en því meira því betra. Eitt af því sem menn hafa sett fyrir sig er hitinn frá lamp- anum í myndvörpum, en hann er úr sögunni að mestu með nýrri tækni (LED), en líka fór suð í viftunni fyrir brjóstið á mörgum. Það er best að byrja á að taka fram að skjávarpinn er dvergvaxinn, og þá meina ég meina dvergvaxinn: Hann er ekki nema fjórir sentimetrar á hæð, níu á breidd og ellefu á lengd. Svo er hann líka fisléttur, rúm 400 grömm. Hann er semsé talsvert minni en meðfylgjandi mynd og passar vel í skjala- eða tölvutösku – fyrirtaks ferðagræja. Í pakkanum er þrífót- ur, sem er auðvitað pínulítill, straum- breytir og rekla- diskur. Það var ekki vídeósnúra í pakk- anum sem ég fékk til skoðunar, en ég geri ráð fyrir að hún fylgi jafnan með (30 pinna snúra). Hægt er að skrúfa niður fót að framanverðu, eins og sést á myndinni, en mun hentugra að hafa myndvarpann á þrífætinum. Varpinn er með LED-ljósgjafa sem endast á 10.000 tíma hið minnsta. Grunnupplausn er 800x600 SVGA og myndvarpamyndin getur verið 15-60 tommur. Mesti ljósstyrkur er 100 lumen sem dugir fyrir þokkalega mynd í rökkvuðu herbergi. Eins og sjá má af þess- um tölum hentar hann vel fyrir glærusýn- ingar, hugbúnað- arkynningu og ámóta, en mið- ur fyrir annað. Eins og fram kemur er mynd- varpinn ekki nema um 400 grömm og passar fínt í vasann. Maður þarf þó að hafa straumbreytinn með og straumbreytir plús rafmagnssnúra er þyngri en varpinn. Það hefði líka verið fínt að hafa raf- hlöðupakka til að geta snarað fram fartölvunni og sett upp sýningu hvar sem er. Það væri líka fín við- bót ef hægt væri að stinga minnislykli í samband eða minniskorti og þá fyrst er maður orðinn frjáls. Myndvarpi í vasann Sú var tíðin að skjávarpar voru risahlunkar og geisluðu frá sér svo miklum hita að varla var hægt að hafa þá innan dyra. Með tímanum hafa þeir þó minnkað mikið og komnir í þá stærð að hægt er að stinga þeim í vasann. Græjur Árni Matthíasson arnim@mbl.is Minni myndvarpar Kvikmyndir og sjónvarpið á risaskjáinn

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.