SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Blaðsíða 41

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Blaðsíða 41
3. júlí 2011 41 LÁRÉTT 4. Tek und úr hindúismanum út af stefnu. (9) 7. Helgráan má nota í jólaskraut. (8) 8. Leikur um Rúbíkon? (11) 10. Kantur á disk rennur saman út af yfirrödd. (9) 11. Kjark skal mýksti öðru hvoru sýna með feiti. (10) 13. Ná með fleygiferð að klára tímabil. (8) 14. Úr orðræðu má lesa það sem lýsir kjarkleysi. (7) 15. Flenna með net. (5) 18. Ekki nátta þar sem vindur er úr einni átt. (7) 20. Skipast pílan hjá plöntunni. (10) 23. Set hitamæli upp í einhvern að sögn. (8) 24. Nokkrar í árstíð. (5) 26. Sjá kæra frú með æði fyrir fræðigrein. (9) 28. Fyllirí og morð út af því sem er nauðsynlegt í hefðbundnum kveðskap. (6) 31. Ungmennafélag er meðal annars að færa á milli. (7) 32. Tunguliprar gefa fimmtíu fyrir skepnu. (10) 34. Ás ók inn einhvern veginn vegna árásarinnar. (7) 35. Stutt að finna úthlutað. (8) 36. Anar með fund sinn til skapvondra. (8) LÓÐRÉTT 1. Kaupa sár á lágu verði. (10) 2. Bil masters í berlega hálfu námi veldur verk. (8) 3. Hvellt eins og einn sem sýnir hegðun. (8) 4. Er hann ekki enn dofinn út af fléttuðum? (9) 5. Man enn glatt hross sem var lífshættulegt. (9) 6. Fyrri hluti Mein Kampf móðgi í svikum. (8) 9. Blanda ragú fyrir Ara til að fá mikið. (7) 12. Vætt með flautu. (6) 16. Diskarnir fyrir sorp. (5) 17. Fæ trúð til að blanda saman til að fá hannaða. (6) 19. Huldumaður í heimshlutum. (5) 20. Stór hryssa er fiskur. (6) 21. Fluttur ógreiddur. (7) 22. Deila bára um að auka (8) 24. Ó ansi fínn lendir einhvern veginn í hljómsveit- inni. (9) 25. Greni við Menntaskólann á Ísafirði veldur haus- verk. (7) 27. Gapandi áður við svikulum. (8) 29. O, blés hreyfing til ýkts (7) 30. Skóflur í spilum. (6) 33. Sjá fugla í gríska stafrófinu. (5) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðilinn ásamt úr- lausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykja- vík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 3. júlí rennur út 7. júlí. Nafn vinningshafans birtist í blaðinu 10. júlí. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinnings- hafi krossgátunnar 26. júní er Sigrún Sighvatsdóttir, Fífuseli 15, Reykjavík. Hún hlýtur í verðlaun bókina Bollakökur Rikku eftir Friðriku H. Geirsdóttur. Vaka- Helgafell gefur út. Krossgátuverðlaun Bobby hló. Erkifjandi hans Efim Geller sem hafði unnið þrjár síð- ustu skákir sem þeir höfðu teflt bauð nú jafntefli eftir sjö leiki þó hann hefði hvítt. Eins og kaupin gerðust á eyrinni í þá daga, hentaði jafntefli þeim ágætlega þannig séð þarna á millisvæða- mótinu í Palma í desember 1970. Sex efstu kæmust áfram og þeir yrðu áfram í fararbroddi. En Bobby Fischer gaf andstæðingi ótvírætt til kynna að seint myndi hann skríða inn í hræðslubandalag með „Rúss- unum“: „Ég sem aldrei um jafn- tefli í innan við 40 leikjum, “ sagði hann við Geller sem setti dreyrrauðan. „Jæja karlinn, svo þú telur þig vera snilling“ – svipurinn hvarf. Og örlaga- nornirnar hófu nýjan spuna; samanrekni stórmeistarinn frá Odessa lagði niður vopnin eftir 72 leiki. Og Fischer vann mótið með fáheyrðum yfirburðum. Allir frægustu skákmeistarar sögunnar hafa átt sinn erki- fjanda sem af undarlegum ástæðum reyndist þeim erfiðari viðfangs en aðrir. Á uppgangsárum sínum mátti Garrí Kasparov hvað eftir annað lúta í lægra haldi fyrir skák- manni sem var aðallega þekktur sem andófsmaður í Sovétríkj- unum, Boris Gulko. Mikhael Tal átti sér „erfkifjanda“ sem fáir kannast við í dag en þegar hann lést árið 1963 skrifaði „töfra- maðurinn“ falleg eftirmæli um Ratmir Nezhmetdinov sem vann Tal þrisvar á árunum 1957-61. Erkifjandi Boris Spasskís er betur þekkt stærð. Spasskí gat ekki teflt við Anatolí Karpov, í kappskákum er staðan þar 12:1 ásamt fjölmörgum jafnteflum. Fyrsti stórmeistari Íslendinga, Friðrik Ólafsson, komst aldrei upp með neinn moðreyk gegn Vasilí Smyslov; þar er staðan 5:0 með sex jafnteflum. Wisvanathan Anand vakti verulega athygli þegar hann vann óvæntan sigur á stór- mótinu í Reggio Emila um ára- mótin 1991-́92. Þar vann hann Kasparov með svörtu og bjugg- ust margir við því að hann yrði heimsmeistaranum erfiður á komandi árum. Reyndin varð önnur. Kasparov hafði á honum slíkt heljartak að þegar hann dró sig í hlé árið 2005 hafði hann unnið Indverjann 16 sinnum og einungis tapað þrisvar auk jafntefla. Í HM-einvígi þeirra í New York 1995 komst Anand yfir eftir níu skákir. Í tíundu skákinni var Kasparov eins og ljón í búri og náði að skjóta á Anand nokkkrum leikjum sem voru vandlega undirbúnir með hjálp tölvuforrita. Fyrr á því ári hafði hann leitað í smiðju til 19. aldar skákmeist- arans Evans skipstjóra: Minningarmót um Tal, Riga 1995: Garrí Kasparov – Wisvanat- han Anand Ítalskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. b4 Bxb4 5. c3 Be7 6. d4 Ra5 7. Be2!?Þetta var nýr snúningur á sínum tíma. 7. … exd4 8. Dxd4 Rf6 Annar möguleiki er 8. … d6 9. Dxg7 Bf6 9. e5 Rc6 10. Dh4 Rd5 11. Dg3 g6 12. O-O Rb6 13. c4 d6 14. Hd1 Rd7 15. Bh6! Rcxe5 16. Rxe5 Rxe5 17. Rc3! Öll áhersla á frumkvæðið og mun sterkara en 17. Bg7 Bf6! 17. … f6 18. c5! Rf7 19. cxd6 cxd6 Betra virðist 19. … Bxd6 en eftir 20. De3+ De7 21. Dxe7+ Bxe7 22. Bg7!er svarta staðan erfið. 20. De3 Rxh6 21. Dxh6 Bf8 22. De3+ Kf7 22. … De7 er svarað með 23. Re4 o.s.frv. 23. Rd5 Be6 24. Rf4 De7? Tapar, 24. … Bc8 var eini varnarleikurinn. 25. He1! - Dálítinn tíma tekur að átta sig á því að svartur er varnarlaus eftir þennan rólega leik og An- and gafst upp. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Erfiður andstæðingur Skák Nafn Heimilisfang Póstfang Krossgáta

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.