SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Blaðsíða 15

SunnudagsMogginn - 03.07.2011, Blaðsíða 15
3. júlí 2011 15 Þetta sumar gerðu Stewart og Salsbury tilboð í leigu Hrútafjarðarár og Síkár og fengu; eftir það veiddi Stewart hér öll sumur til 1957, er hann kvaddi Ísland, ef undan eru skilin heimsstyrjaldarárin síð- ari. Þá gegndi hann stöðu yfirmanns í há- landahersveitunum í Skotlandi. Salsbury sneri ekki aftur eftir stríð. Óðalssetur í skosku hálöndunum En hver var þessi forvitnilegi maður, Stewart hershöfðingi? Ég spurði mig ítrekað þeirrar spurningar þegar ég var að þýða bók hans og smám saman varð myndin fyllri, ekki síst þegar ég komst á slóðir hans í Skotlandi. Þegar ég stóð inni í glæsilegu óðalssetri hans í skosku há- löndunum og horfði í kringum mig, spurði ég Nino Stewart einka- dóttur hans að því hvernig stæði á því að faðir henn- ar hefði kosið að eyða öllum sumr- um í áratugi í einu herbergi í bænum Grænumýrar- tungu í Hrútafirði, í stað þess að njóta lystisemdanna þarna heima hjá sér, og vera hjá fjölskyldu sinni. Nino yppti öxl- um og brosti, hún vissi svarið. „Veiði var hans mikla ástríða,“ sagði hún. Og í Hrútafirðinum hafði hann fundið sér góða veiðiá. Afi Stewarts var umsvifamikill iðju- höldur í Edinborg á seinni hluta 19. aldar; hann framleiddi viskí. Upp úr 1880 festi hann kaup á stórri landareign í hálönd- unum vestanverðum, fékk einn kunnasta arkitekt þess tíma, William Leiper, til að teikna glæsihýsi og reisti það árið 1884, og var ekkert til sparað. Á landareigninni reis líka fjölskyldukirkja, smiðja, ráðs- mannshús og upphitað hús fyrir veiði- hundana, svo eitthvað sé tínt til, en góð hjartarveiði hefur alla tíð verið á land- areigninni. Þá rennur stutt en falleg dragá til hafs skammt frá óðalssetrinu, Kinlochmoidart. Þarna ólst R.N. Stewart upp við veiðar á laxi og sjóbirtingi. Tveir mánuðir á Íslandi hvert sumar Í dag ræður Nino Stewart ríkjum í Kin- lochmoidart, ásamt Duncan eiginmanni sínum. Þau búa í hluta setursins, en það var endurgert á fullkominn hátt fyrir um tveimur áratugum, fyrir tilstuðlan myndarlegs styrks frá hinu opinbera í Skotlandi. Var þetta fyrsta óðalssetrið frá Viktoríutímanum sem fékk slíkan styrk til endurbóta þar í landi. Síðan hefur Nino Stewart rekið þar einskonar hótel; húsinu hefur verið skipt í nokkra hluta sem eru til leigu. Í meginhluta aðalbygg- ingarinnar geta allt að 18 gist í glæsilega búnum sölum, þar sem allt er upp- runalegt; fornar koparstungur á veggj- um, traustleg eikarhúsgögn, uppstoppuð veiðidýr og málverk á veggjum. Er til að mynda vinsælt að halda glæsibrúðkaup og stórafmæli á staðnum, því einnig er hægt að fá gistingu í afhýsum og smærri húsum sem hafa verið gerð upp á landar- eigninni. Yfir arninum í aðalstofunni er málverk af ungum myndarlegum manni. Þetta er Stewart hershöfðingi; móðir hans lét mála myndina árið 1915 er hann hafði særst á vígstöðvunum og kom heim að jafna sig. „Þessi mynd sýnir föður minn mjög vel,“ segir Nino. Hún bætir við að þótt allir sem þekktu hann myndu hafa lýst föður hennar sem lítillátum og vænum manni, þá hafi hann líka verið ævintýramaður og landkönnuður að upplagi. Það má sjá í skrifum hans, en alls sendi Stewart frá sér ellefu bækur um veiðar og útivist. Nokkrar þeirra eru skrifaðar fyrir börn og ungmenni og fjalla um ævintýri við stangveiðar og úti í náttúrunni. Bæk- urnar skrifaði Stewart þó ekki fyrr en leið á ævina; fyrst kannaði hann heiminn. Stewart gekk ungur í breska herinn og notaði stundum leyfin frá hernum í veiðiferðir; það var í slíku orlofi sem hann kom fyrst til Íslands árið 1912. Eftir heimsstyrjöldina fyrri fór hann árlega í þannig leiðangra, til að byrja með eink- um til óbyggða í Kanada vestanverðu og til Alaska. Þar lagði hann stund á stang- veiðar, en þær voru að sögn dóttur hans ævarandi ástríða. „Faðir minn ferðaðist víða á þessum árum,“ segir Nino Stewart, „einkum um Alaska. Á þeim tíma var það langt ferða- lag og ferðirnar tóku langan tíma, marga mánuði; ég held að fyrir honum hafi þetta verið einskonar könnunarleið- angrar frekar en ferðalög. Hann sótti í að fara til kaldra landa – hann var ekki fyrir baðstrandalíf,“ segir hún og hlær. Eins og fyrr segir sneri Stewart aftur til Íslands um miðjan fjórða áratuginn. Nino segir að eftir að faðir hennar hóf aftur að veiða á Íslandi hafi það orðið eini áfanga- staður ferðalaga hans næstu tvo áratug- ina. „Móðir mín fór með honum til Ís- lands í brúðkaupsferðina en mér er ekki kunnugt um að hún hafi farið aftur þang- að með honum,“ segir hún. Sem barn Moidart-áin rennur um landareign fjölskyldunnar í Kinlochmoidart, skammt frá höfuðbólinu. Þetta er Lower Nursery-hylurinn; þarna ólst Stewart upp við veiðar á laxi og sjóbirtingi. Morgunblaðið/Einar Falur Nino Stewart, einkadóttir hershöfingjans, rekur gistiþjónustu í glæsilegu óðalssetrinu sem langafi hennar byggði á níunda áratug 19. aldar. Húsið var gert upp fyrir um tuttugu árum. Í óðalssetri fjölskyldunnar þar sem Stewart ólst upp og bjó framan af ævi. Síðar flutti fjöl- skyldan til Edinborger en sneri í hálöndin á sumrin. Þessi hluti hússins er nú leigður út. Gunnar Þórðarson (1890-1980) bóndi í Grænumýrartungu hóf sláttinn ávallt á því að slá tyrft þakið. Þarna hélt Stewart til þau sumur sem hann var við veiðar í Hrútafirði. Önnur tveggja veiðibóka Stewarts í Kin- lochmoidart. Í þær er skráð ítarlega öll veiði hans og vina hans á Íslandi 1936 til 1957.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.