Monitor - 17.02.2011, Blaðsíða 6

Monitor - 17.02.2011, Blaðsíða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2011 Monitor fór á stúfana og forvitnaðist um námið, félagslífið og fólkið í nokkrum deildum Háskóla Íslands. Hvað ætlar þú að verða? Hvernig myndir þú lýsa náminu í fimm orðum? Skemmtilegt, krefjandi, spennandi, ævintýralegt og kannski svolítið öðruvísi. Af hverju þjóðfræði? Ég kynntist þjóðfræðinni í gegnum vinkonu sem var í náminu. Mér fannst þau alltaf vera að gera eitthvað skemmtilegt og spennandi. Smátt og smátt varð ég forvitnari um námið svo ég ákvað að prófa að mæta í einn tíma og þá var ekki aftur snúið. Ég heillaðist af kaffiþyrsta fólkinu í lopapeysunum. Það besta við námið? Tilhlökkunin við að mæta í tíma á hverjum morgni. Áfangarnir eru spennandi hvort sem þeir fjalla um hversdagslega hluti í okkar lífi eða greftrunarsiði í Evrópu á bronsöld. Fjölbreytnin í náminu er mikil og félagslífið er frábært. Það versta við námið? Það versta við að vera þjóðfræðinemi er að þurfa að svara spurningunni: „Hvað ætlarðu eiginlega að gera þegar þú ert orðinn þjóðfræðingur?“ Satt að segja veit ég ekki svarið við þeirri spurningu enn því það er aldrei að vita hvaða tækifæri bjóðast manni. Ég lifi í núinu. Hvað gera þjóðfræðingar? Starfssvið þjóðfræðinga er mjög fjölbreytt. Þeir þjóðfræðingar sem ég þekki til starfa sem blaðamenn, landverðir, leiðsögumenn, kennarar, rithöfundar, prestar eða bændur. Hvað er það mikilvægasta sem þú hefur í þjóðfræðinni? Samskiptin eru persónuleg og nemendur og kennarar eru samrýnd heild. Auk þess gerir námið mann mjög opinhuga um lífið, tilveruna og hversdagslega hluti. Kaffiþyrst og lopaklætt fólk KJARTAN TÓK ALMENNUNA BARA EINU SINNI Kjartan Ottóson Fæddur: 1989 Stúdent frá: Verzló Líffræðibraut GREFTRUNARSIÐIR ERU DAGLEGT BRAUÐ HJÁ ÖNNU Anna Gunnarsdóttir Fædd: 1989 Stúdent frá: MA Félagsfræðibraut Félagslífið stundum of gott Hvernig myndir þú lýsa náminu í fimm orðum? Krefjandi, fjölbreytt, áhugavert, skemmtilegt og alls-ekki- þurrt. Af hverju lögfræði? Þegar ég útskrifaðist úr Verzló árið 2009 langaði mig hrikalega mikið til að fara í heimsreisu en þá var kostnaðurinn við það kominn upp úr öllu valdi. Í Verzló taka allir einn lögfræðiáfanga og þar hafði ég fengið smjörþefinn af því út á hvað námið snerist. Ekkert annað nám heillaði mig svo ég sló bara til. Hvað tókst þú almennuna oft? Hana tók ég einu sinni. Hvernig er félagslífið? Félagslífið er mjög gott, stundum of gott ef út í það er farið. Á föstudögum eru eins og í flestum deildum háskólans kokteilar þar sem fyrirtæki bjóða okkur til sín og kynna starfsemi sína. Haldnir eru ýmsir viðburðir svo sem árshátíð, norrænar vikur, ræðukeppni, Oratur vs. Mágus sem er félag viðskiptafræðinema og svo mætti lengi telja. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur lært í lögfræðinni? Ef maður tekur í óleyfi skelfisk í netlögum annars manns varðar það sekt og borga skal hann allan svo upp tekinn skelfisk tvöföldu gangverði. Mynd/Sigurgeir Mynd/Sigurgeir Mynd/Sigurgeir Þjóðf ræði Lögfræði

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.