Monitor - 24.03.2011, Side 4
4 Monitor FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011
Stefán Karl vinnur eins og lúsiðin býfluga í Los Angeles og virðist stefna á topp-
inn. Monitor ræddi við hann um Ameríkuna, Latabæ, bransann og Kurteist fólk.
Enginn
dagur eins
„Það er 17 stiga hiti hérna núna, sem sagt frekar
kalt,“ sagði Stefán Karl Stefánsson, leikari, þegar
Monitor hringdi í hann til að spjalla um allt og
ekkert. Hann hefur búið í Los Angeles ásamt
eiginkonu sinni, Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur,
í rúm sex ár. „Þetta er orðið okkar heimili,“ segir
Stefán sem á með Steinunni fjögur börn svo það
er nóg að gera á heimilinu. „Dagarnir eru mjög
misjafnir og sem betur fer er enginn þeirra eins,“
segir hann en bendir á að dagarnir byrji og endi
eins. „Ég byrja hvern dag á að rífa alla fram úr
rúminu og koma genginu í skólann. Á hverju
kvöldi sofna ég,“ útskýrir Stefán sem hefur í nógu
að snúast.
Stórt verkefni á teikniborðinu
„Við Steinunn eigum okkar eigið fyrirtæki
hérna úti ásamt fullt af öðru fólki. Við vinnum
að framleiðslu á ýmsum sviðum,“ segir Stefán
hæstánægður með fjölbreytnina sem fylgir
starfinu. „Ég funda heilmikið, fer í prufur og
plana næstu verkefni,“ segir hann og bendir á að
í Bandaríkjunum taki allt lengri tíma en heima
á Íslandi. „Þegar maður tekur að sér verkefni í
þessum hluta heimsins tekur það marga mánuði
í undirbúningi. Þetta er ekki eins og heima þar
sem allt er tiltölulega auðvelt í framkvæmd.“
Stefán getur þó ekki sagt ítarlega frá neinum
verkefnum eins og stendur. „Þegar maður er að
vinna og þróa verkefni með öðrum fyrirtækjum
skrifar maður undir algjöran trúnað. Það er
gert vegna þess að samkeppnin á markaðnum
er gríðarlega mikil,“ útskýrir Stefán sem segir
þetta hafa verið pínulítið erfitt fyrir Íslending
að venjast. „Komandi frá Íslandi þar sem maður
segir fólki frá því sem er að gerast í lífi manns er
þetta pínu skrítið en ég skil þetta þegar ég lít á
stóra samhengið,“ segir hann og viðurkennir að á
teikniborðinu sé eitt mjög stórt verkefni. „Það eru
6-9 mánuðir og nokkrar skrifstofuhæðir þar til ég
get tjáð mig meira um það,“ útskýrir Stefán sem
gefur ekkert meira upp um verkefnið. „Það borgar
sig ekki að tala um hlutina fyrr en þeir eru orðnir
skotheldir.“
Svartur húmor og spilling
Stefán leikur aðalhlutverkið í nýrri íslenskri
kvikmynd sem ber nafnið Kurteist fólk. „Þetta
er gamanmynd með raunverulegu ívafi sem er
byggð lauslega á sönnum atburðum,“ útskýrir
Stefán sem er virkilega ánægður með útkomuna.
„Myndin fjallar um raunveruleika sem við öll
þekkjum og mér finnst Ólafi leikstjóra hafa tekist
frábærlega vel að lýsa íslenskum smáplássum
á húmorískan hátt,“ segir hann og bætir við
að húmorinn í myndinni sé oft og tíðum mjög
svartur.
„Þetta er svolítið háð á alla spillinguna og teng-
ist mikið því sem hefur verið að gerast á Íslandi
undanfarin ár,“ segir Stefán sem leikur frekar
hlutlausan karakter í Kurteisu fólki. „Hann er
mjög alvarlegur,“ útskýrir Stefán sem hefur verið
þekktur fyrir grín og glens í gegnum tíðina. „Fólk
hefur ekki séð mig leika svona áður, ég er ekki
einu sinni með grettur í myndinni,“ segir Stefán
sem var rosalega ánægður með samleikara sína
í myndinni og þá sérstaklega Eggert Þorleifsson
sem fer með hlutverk bæjarstjórans. „Stundum
ætlaði ég varla að geta leikið á móti honum því
ég hló svo mikið,“ segir Stefán og bætir við að
honum hafi fundist virkilega gaman að koma til
Íslands og vinna.
„Mér finnst algjörlega frábært að koma til
Íslands að vinna,“ segir Stefán sem hefur unnið
að mestu leyti í Bandaríkjunum undanfarin ár.
Hann segir muninn í kvikmyndabransanum
meiri en í leikhúsunum milli heimsálfanna.
„Leikhús er alþjóðlegur vinnustaður. Leikarar,
leikstjórar, ljósamenn og sviðstjórar eru eins alls
staðar,“ útskýrir Stefán. „Það liggur við að þessir
ættbálkar eigi sömu áhugamál,“ segir hann og
bendir á að helsti munurinn felist í stéttarfélög-
unum á Íslandi og úti.
Hárkollan stórt vandamál
„Þegar ég mæti til dæmis á sýningu fyrir Grinch
get ég ekki farið í búninginn minn og úr honum
nema að því komi fjórar deildir og fjögur mis-
munandi stéttarfélög,“ útskýrir Stefán sem hefur
leikið sjálfan Trölla um árabil í stórri uppfærslu
vestanhafs. „Ég fer inn í búningsherbergi og þá
taka hljóð- og búningadeild á móti mér. Það þarf
að þræða hljóðnema inn í búninginn og á mig en
búningadeildin má ekki snerta hljóðnemana og
hljóðdeildin ekki búninginn,“ útskýrir hann og
bendir á atvik sem átti sér stað í Kanada sem er
gott dæmi um vesenið sem getur fylgt stéttarfé-
lögunum.
„Við vorum að fara að skemmta í beinni fyrir
NBC-sjónvarpsstöðina og gleymdum hárkoll-
unni minni í leikhúsinu,“ segir Stefán. „Ein úr
hárkolludeildinni þurfti þá að fara í leikhúsið,
opna það, kveikja ljósin og ná í hárkolluna,“
útskýrir hann og segir að einfalt atvik sem þetta
hafi orðið að stóru máli. „Eftir þetta var hún kærð
því ljósadeildin á að sjá um að kveikja ljósin í
leikhúsinu. Sektin hljóðaði upp á fimmþúsund
dollara,“ segir Stefán sem er orðinn öllu vanur
eftir nokkur ár í bransanum þarna úti.
„Fyrst fannst mér svona lagað skrítið en núna
kippi ég mér ekki upp við þetta. Yfirleitt gengur
allt líka eins og smurð vél,“ segir Stefán sem er
orðinn mjög heimakær í Los Angeles þó heimþrá-
in segi vissulega stundum til sín.
Saknar helst sveitarinnar
„Ég fæ miklu oftar heimþrá en konan, hún hefur
ekki komið til Íslands í rúm fjögur ár,“ útskýrir
Stefán sem segir heimþrána þó hafa aukist til
muna í upptökunum á Kurteisu fólki í Búðardal.
„Ég saknaði Íslands eiginlega ekkert fyrr en eftir
að ég var í Búðardal,“ segir Stefán sem naut sín í
sveitinni. „Þar var allt svo tært. Að sitja á verönd-
inni, borða kleinur og hlusta á lóuna syngja eru
hlutir sem maður fær ekki hérna úti þó hér sé
allt stútfullt af fallegri náttúru,“ segir
Stefán sem kann vel við sig í Los
Angeles og virðist stefna á toppinn.
„Við erum ekkert á leiðinni heim á
næstunni.“
LATABÆJARÆVINTÝRIÐ
Stefán Karl sló eftirminnilega í gegn sem
Glanni glæpur og seinna Robbie
Rotten í Latabæ. „Ég segi
það í hreinskilni að ég
verð aldrei þreyttur á
að leika Glanna. Hann er
karakter sem ég skapaði
frá grunni og á þó ég eigi hann kannski
ekki á pappírunum,“ segir Stefán sem lék
Glanna fyrst í Þjóðleikhúsinu og síðan í
60 sjónvarpsþáttum. „Hann er hluti af
mér,“ segir Stefán og þakkar velgengni
sína að mörgu leyti Latabæjarævintýr-
inu. „Þetta var frábær tími og þættirnir
vöktu heimsathygli á mér og því sem
ég hef fram að færa,“ segir Stefán en
þættirnir voru sýndir í 140 löndum þegar
mest var. „Ég finn þetta mjög sterkt hvar
sem ég kem,“ segir Stefán. „Allir sem eiga
börn þekkja Latabæ.“
w w w . k u r t e i s t f o l k . i s
LÍKT VIÐ JIM CARREY
„Jim Carrey er náttúrulega Stefán Karl Ameríku,“
segir Stefán í gríni en honum hefur oft verið líkt
við bandaríska grínleikarann Jim Carrey. „Á Íslandi
þykir svona samlíking voða hallærisleg en ég skil
svo sem af hverju Bandaríkjamenn tala alltaf um
þetta við mig í viðtölum,“ segir hann
og bendir á þörf Bandaríkjamanna
fyrir að flokka fólk. „Þeir þurfa að
setja mann í hólf og líkja manni við
einhvern annars ná þeir ekki utan
um þetta,“ segir Stefán sem er
ánægður með samlíkinguna
enda sé Jim Carrey einn af
hans uppáhaldsleikurum.