Monitor - 24.03.2011, Blaðsíða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011
Miðgarðsorminn
hungrar í úrslit
Hlýddi
liðsfélaga
yfir í miðri
keppni
JÓN ÁSKELL
ÞORBJARNARSON
Fæðingardagur: 28.10.’93
Sérþekkingarsvið: Þvottamerkin.
Hver er uppáhaldsspurningin
þín sem liðið hefur fengið í
keppninni? Spurningin í síðustu
keppni um verga þjóðarham-
ingju. Ég hef lengi haft áhuga
á þessu málefni og var viss um
að það kæmi einhvern tímann í
keppninni.
Fylgir því kvenhylli að keppa í
Gettu betur? Ekki hingað til.
Hver er draumaspyrillinn þinn
í Gettu betur? Morgan Freeman.
Hver er lykillinn að velgengni í
Gettu betur? Leikgleði.
STEFÁN KRISTINSSON
Fæðingardagur: 10.1.’92
Sérþekkingarsvið: Latínubeygingar.
Nú ert þú aldursforseti liðsins.
Fylgir því ekki einhver ábyrgð? Að
sjálfsögðu gríðarleg ábyrgð. Maður
verður að hafa hemil á þessum
strákum.
Gefur þátttaka í Gettu betur þér
einhver tækifæri í lífinu sem þú
annars fengir ekki? Mjög takmörk-
uð að mínu mati. Eykur hugsanlega
líkurnar á að maður verði dómari í
Gettu betur einn daginn.
Ef þú mættir velja hvaða stað í
heiminum sem keppnisstað næstu
viðureignar, hver væri sá staður?
Helliririnn, heimavöllur ÍR-inga.
SNÆBJÖRN GAUTI
SNÆBJÖRNSSON
Fæðingardagur: 5.8.’91
Sérþekkingarsvið: Útgáfu-
saga Ornette Colemans.
Hvernig er að vera eini
strákurinn í MH-liðinu?
Það kemur skemmtilega á
óvart hvað það er fínt.
Hvað heldurðu að þú sért
með í greindarvísitölu? Ég
vona að ég sé yfir meðallagi
en ég hef svo sem aldrei
tekið þannig próf.
Fylgir því kvenhylli að
keppa í Gettu betur? Ólýs-
anlega mikil. Pot á Facebook
eru orðin daglegt brauð og
maður getur varla látið sjá
sig í bænum lengur.
Hver er draumaspyrillinn
þinn í Gettu betur? Ég
er mjög ánægður með
hana Eddu, hún er líklega
draumaspyrillinn.
AUÐUR TINNA AÐALBJARNARDÓTTIR
Fæðingardagur: 3.7.’92. Sérþekkingarsvið: Ævi Leníns.
Hver er uppáhaldsspurningin þín sem liðið hefur
fengið í keppninni? Við fengum spurningu í síðustu
keppni um Móses. Ég fattaði ekki þá hvers vegna
fólk hló svona mikið að okkur en þegar ég sá þetta í
sjónvarpinu sá ég að við Elín vorum að gera nákvæm-
lega sömu asnalegu handahreyfingarnar..
Ef þú mættir velja hvaða stað sem er í heiminum
sem keppnisstað næstu viðureignar, hver væri sá
staður? Ég myndi velja Norðurkjallara í MH af því að
það er alltaf svo góð stemning þar.
Hver er lykillinn að velgengni í Gettu betur? Læra,
éta, sofa, endurtaka.
ELÍN ELÍSABET
EINARSDÓTTIR
Fæðingardagur: 10.12.’92
Sérþekkingarsvið: Varplendi
brandandar í Borgarfirði.
Hvort er ánægjulegra að
keppa fyrir MB eða MH í Gettu
betur? Það hafði sinn sjarma
að keppa fyrir MB á fyrsta
starfsári skólans. Það er hins
vegar líka svolítið gaman að
vinna keppnir.
Staðan er 20-20 og keppnin
fer í bráðabana. Hver væri
draumaspurningin? Hún
myndi klárlega tengjast fuglum
á einhvern hátt, eins vand-
ræðalegt og það er nú.
Hver er draumaspyrillinn
þinn? Freddie Mercury.
ÓLAFUR HAFSTEIN PJETURSSON
Fæðingardagur: 7.2.’92
Sérþekkingarsvið: Ættfræði.
Fylgja því einhver fríðindi að vera í Gettu
betur-liðinu? Já, er það ekki? Pizzumiðar, ókeypis
inn á böll Skólafélagsins, frítt í sund, matur á
keppnisdag – listinn er ótæmandi.
Ef þú mættir breyta hverju sem er við Gettu
betur, hvað væri það? Að hafa hraðaspurningar
svona allavega 130 sekúndur.
Staðan er 20-20 gegn MH og keppnin fer
í bráðabana. Hver væri draumaspurningin?
Spurning um Aston Villa.
Gettu betur er… vettvangur fyrir athyglissjúka.
Ríkjandi meistarar í Gettu betur, MR, tryggðu
sér sæti í undanúrslitum er þeir lögðu FSu að
velli, 32-14.
„Þetta var bara svona ,in the moment’,“ segir
Ólafur, miðjumaður liðsins, um það þegar Ól-
afur og Jón Áskell liðsfélagi hans brydduðu
upp á áður óséðu herbragði í síðustu keppni
þegar MR-ingarnir fór snemma á bjölluna
og Ólafur byrjaði að hlýða Jóni yfir í miðri
keppni með ágætisárangri. „Þetta virkaði vel
svo við notum þetta örugglega áfram.“
Sveit MH í Gettu betur í ár tryggði sér sæti í undanúrslit-
um með sannfærandi sigri, 28-19, gegn Verzló og er að
sögn liðsmanna „extra góð stemning“ fyrir keppninni í ár.
„Fólk berst alveg um miðana og kennarar öskra á okkur
á göngunum ,þið verðið að vinna þetta!’“ segir Auður
Tinna, miðjumaður liðsins.„Það hefur verið til siðs að Mið-
garðsormurinn í MH sé tekinn með komist liðið í úrslit,“
segir hún og bætir við að nú hungri orminn í úrslit.
Auður segist hafa verið meðvituð um það öll sín þrjú ár
að stelpa hafi aldrei unnið Gettu betur en segir þær kyn-
systur í liði MH alls ekki of uppteknar af því.
MH – MR
Undanúrslit í Gettu betur
Þegar Elín Elísabet var í 10. bekk
stundaði hún einnig nám við
Menntaskólann í Borgarnesi og
keppti fyrir hönd skólans í Gettu
betur. Þar mætti hún liði MH
og má spyrja sig hvort hún hafi
verið keypt yfir í kjölfarið!
Liðsmenn MR í Gettu betur
halda úti Twitter-síðu þar
sem hægt er að fylgjast með
dagsdaglegu lífi strákanna
þriggja. Slóðin er: http://
twitter.com/gettubeturMR
Myndir/Golli