Monitor - 24.03.2011, Page 20
kvikmyndir
Hæð: 185 sentímetrar.
Besta hlutverk: Phil í The
Hangover.
Staðreynd: Bradley Cooper talar
frönsku reiprennandi.
Eitruð tilvitnun: „Ef þig langar
að líða illa með sjálfan þig
skaltu fara á Google.“
1975Fæðist þann 5.janúar í Fíladelfíu
í Pennsylvaníu-fylki Banda-
ríkjanna.
1994Sést í þættinumInside The Actors
Studio sem Steven Spielberg
gerði. Cooper er í áhorfenda-
salnum og sést í augnablik
þegar 15 mínútur eru liðnar af
þættinum.
1997Útskrifaðist meðB.A. í ensku frá
Georgetown-háskóla og hóf
leiklistarnám í New York stuttu
seinna.
1998Lék einn afástmönnum Carrie
Bradshaw í þættinum They
Shoot Single People, Don‘t They?
í 2. þáttaröð Sex & The City.
2001
Fyrsta stóra
kvikmynda-
hlutverkið í
myndinni Wet
Hot American
Summer.
Cooper missti af útskriftinni í
leiklistarskólanum vegna skuld-
bindinga sinna við kvikmynda-
framleiðendur. Fékk hlutverk í
sjónvarpsþáttunum Alias.
2005Lék aðallega ísjónvarpi þangað
til hann lék hinn óþolandi Sack
Lodge í Wedding Crashers.
2006Giftist leikkonunniJennifer Esposito
seint á árinu. Hún sótti um
skilnað í maí árið 2007.
2009Lék í rómantískugamanmyndinni
He‘s Just Not That Into You og
sló í gegn í The Hangover sem
þykir með fyndnustu grínmynd-
um síðari ára. Sama ár byrjaði
Cooper með leikkonunni Renée
Zellweger og varð einn heitasti
karlleikarinn í Hollywood.
2010Spreytti sig semhinn eiturharði Lt.
„Faceman“ Peck í The A-Team
sem þótti hálfgert flopp.
2011Kvenkynsaðdáendur Cooper
gleðjast yfir fréttum þess efnis
að hann og Renée Zellweger séu
hætt saman eftir tveggja ára
samband.
Bradley
Cooper
FERILLINN
20 Monitor FIMMTUDAGUR 24. MARS 2010
Frumsýningar
helgarinnar
Ashton Kutcher leikur í No Strings Attached en fyrir skemmstu var hann gestur í The Gra-
ham Norton Show þar sem Íslendingurinn Ari Ólafsson gerði eftirminnilega gys í honum.
Popp-
korn
Benicio Del Toro hefur
augastað á hlutverki í
nýjustu kvikmynd leikstjórans
Oliver Stone.
Um er að
ræða hlutverk
harðsnúins
eiturlyfjasala
sem kallar ekki
allt ömmu sína.
Síðast þegar
Del Toro lék í
kvikmynd um eiturlyfjaheim-
inn var í Traffic og þá fékk
hann Óskarsverðlaun fyrir leik
sinn svo það verður gaman að
sjá hvernig honum tekst til í
þetta skiptið.
Leikhópurinn fyrir
endurgerð Michael
Hoffman á Gambit verður
bara betri og betri. Nú er hinn
breski Alan Rickman sem
margir þekkja
sem prófessor
Snape úr
Harry Potter
kvikmyndun-
um genginn
til liðs við
hópinn. Aðrir
leikarar sem hafa skrifað
undir samning um að leika í
myndinni eru meðal annars
Óskarsverðlaunahafinn Colin
Firth og Cameron Diaz.
Þrátt fyrir að þriðja
kvikmyndin um
ævintýrin í Narníu hafi ekki
beinlínis slegið
í gegn hafa
framleiðendur
kvikmyndanna
ákveðið að
hefja undir-
búning fjórðu
myndarinnar.
Sú mun fá nafnið The Mag-
ician‘s Nephew og er upp úr
sjöttu bókinni um Narníu en
flestir bjuggust við að næsta
bók C.S. Lewis sem yrði gerð að
mynd yrði The Silver Chair.
Um þessar mundir eru
tökur fyrir rómantísku
gamanmyndina New Year‘s Eve
í fullum gangi
í New York. Nýj-
asti meðlimur
leikhópsins
er rapparinn
Ludacris sem
nældi í hlutverk
í myndinni í
vikunni. Stórskotalið leikara
kemur fram í myndinni sem er
í svipuðu formi og Valentine‘s
Day og ber þar helst að nefna
Halle Berry, Hilary Swank og
Jessica Biel.
Dwayne Johnson sem
flestir þekkja undir
nafninu The
Rock er hvergi
nær hættur í
hasarmyndun-
um. Hann er nú
í samningavið-
ræðum vegna
hlutverks í
kvikmyndinni Snitch þar sem
hann mun líklega fara með
aðalhlutverkið. Myndin segir
frá venjulegum úthverfapabba
sem neyðist til að hjálpa
lögreglunni við að fletta ofan
af eiturlyfjahring til að bjarga
syni sínum.
The Adjust-
ment Bureau
Leikstjóri:
George Nolfi.
Aðalhlutverk:
Matt Damon,
Emily Blunt
og Florence
Kastriner.
Dómar: IMDB:
7,2 / Metacritic:
6,0 / Rotten
Tomatoes: 72%
Aldurstakmark: 10 ára.
Lengd: 106 mínútur.
Kvikmyndahús: Sambíóin
Álfabakka og Kringlunni.
Ástarsamband þingmanns og
ballerínu er óæskilegt samkvæmt
Aðlögunarskrifstofunni og þarf
hann því að velja á milli þess að
fórna ástinni eða öllu öðru.
No Strings
Attached
Leikstjóri: Ivan
Reitman.
Aðalhlutverk:
Natalie Port-
man, Ashton
Kutcher og
Kevin Kline.
Dómar: IMDB:
6,3 / Metacritic:
5,0 / Rotten
Tomatoes: 49%
Aldurstakmark: 12 ára.
Lengd: 108 mínútur.
Kvikmyndahús: Laugarásbíó.
Þegar vinir með meiru reyna að
halda sambandi sínu einungis
líkamlegu fara ýmis vandamál
að koma upp. Eitthvað meira
liggur að baki og bæði vilja færa
sambandið upp á næsta stig.
Limitless
Leikstjóri: Neil Burger.
Aðalhlutverk: Bradley Cooper, Anna Friel,
Abbie Cornish og Robert De Niro.
Dómar: IMDB: 7,3 / Metacritic: 5,8 / Rotten
Tomatoes: 64%
Aldurstakmark: 14 ára.
Lengd: 105 mínútur.
Kvikmyndahús: Smárabíó, Háskólabíó,
Egilshöll og Borgarbíó Akureyri.
Rithöfundurinn og ónytjungurinn Eddia Morra vinnur
sem textahöfundur og hefur gert samning um að skrifa
bók en er í basli með að byrja á henni. Tilviljun
veldur því að einn daginn situr hann á kaffihúsi
með dularfullum manni sem býður honum að
prófa nýtt lyf sem á að opna skilningarvitin og
auka heilastarfsemi. Eddie afræður að prófa eina
töflu og kemst að því að hann verður umsvifa-
laust gáfaðri, sneggri og skarpari að öllu leyti.
Hann klárar bókina á örskotsstundu, lærir nýtt
tungumál á nokkrum tímum og sér fjármála-
mynstur með svo mikilli nákvæmni að hann
græðir milljónir dollara á örfáum dögum. Lyfið
ótrúlega hefur þó aukaverkanir og fyrr en varir byrjar
Eddie að taka eftir undarlegum hlutum í kringum sig.
Hæstráðandi Norður-Kóreu, Kim Jong-Il, er látinn og
sonur hans Kim Jong-Un er tekinn við. Hann sameinar
Kóreu og býr til heimsveldi sem nær að yfirtaka stóran
hluta heimsins og þar á meðal Bandaríkin. Svona
hljómar söguþráðurinn í leiknum Homefront en
handritið er skrifað af John Milius sem meðal annars tók
þátt í að semja handritið fyrir kvikmyndirnar Apocalypse
Now og Red Dawn.
Leikurinn Homefront hefst árið 2027 og fara leikmenn
í hlutverk hermannsins Robert Jacobs sem gengur til
liðs við andspyrnuhreyfingu en markmiðið er að berjast
gegn yfirráðum Kóreumanna og ná aftur hinum ástkæru
Bandaríkjum.
Homefront er fyrstu persónu skotleikur í anda leikja
á borð við Call of Duty og Battlefield og stenst hann
samanburðinn ágætlega en leikurinn er þó nánast laus
við að gera eitthvað frumlegt og nýtt. Borð leiksins eru
staðsett víðsvegar um Bandaríkin og hafa framleiðendur
leiksins sett þekkt vörumerki inn í umhverfið til að
maður fái ríkari tilfinningu fyrir staðsetningunni. Sem
dæmi um það lendir maður í logandi bardögum við
Kóreumenn inni á matsölustaðnum Hooters sem að öllu
jöfnu er þekktari fyrir öðruvísi bombur en menn kynnast
í leiknum.
Söguþráðurinn í Homefront er mjög stuttur eða
einungis 5-6 klukkutímar en sagan er frekar einföld og
inniheldur atriði
sem eru mjög
gróf og ekki fyrir
viðkvæma. Þegar
söguþráðurinn er
á enda tekur við
netspilun sem
er ágætlega vel
útfærð og skartar nýju kerfi þar sem leikmenn þurfa
að safna saman punktum sem þeir geta svo notað til
að kaupa allskyns vopn og farartæki. Það er í raun í
netspiluninni sem Homefront skín hvað skærast og klárt
að þar hefur þunginn legið í framleiðslu leiksins.
Grafíkin í Homefront er ágæt, ekki sú besta og ekki sú
versta sem sést hefur í slíkum leikjum en í góðu meðal-
lagi. Varðandi tónlist og talsetningu þá er enginn að fara
að fá Óskarinn fyrir leik í sínum hlutverkum
en hlutirnir eru engu að síður ágætlega vel
gerðir.
Þegar öllu er á botninn hvolft er Home-
front ágætis skotleikur fyrir þá sem eru
búnir að fá leið á COD og Battlefield
og vilja upplifa ný borð, nokkuð ferska
netspilun og blóðuga bardaga á Hooters.
Ekki fyrir viðkvæma!
Ólafur Þór Jóelsson
Tegund: Skotleikur
PEGI merking: 18+
Útgefandi: THQ
Dómar: Gamespot: 7 / IGN: 7 /
Eurogamer: 6
HomefrontAllt logandi á Hooters
TÖ LV U L E I K U R
NÖRDAMESSA
Í BÍÓ PARADÍS
Bíó Paradís byrjar um helgina með
Sci-Fi klúbbinn Zardos sem verður með
mánaðarlegar sýningar í Bíó Paradís á
Sci-Fi myndum frá ýmsum tímabilum.
Klassísk stórvirki verða á dagskránni sem
og minna þekktar B-myndir. Fyrsta sýning
klúbbsins verður föstudaginn 25. mars kl.
20 og er um að ræða svokallað double-
feature kvöld þar sem sýndar verða
saman myndirnar Terminator og RoboCop.