Monitor - 12.05.2011, Qupperneq 18
Kvikmynd Ekki nóg með
að American Psycho sé hin
fínasta skemmtun, heldur
sýndi hún mér svart á hvítu
hvað það skiptir miklu
máli að vera flottur við allar aðstæður. Ég er í
þessum töluðu orðum að láta hanna fyrir mig
nafnspjöld.
Sjónvarpsþáttur Archer
fjallar um Sterling Archer,
hæfasta leyniþjónustu-
mann heims, sem þarf að
kljást við eigin æðisleika,
kynlífssjúka og stjórn-
sama móður, erfiðar fyrrverandi
kærustur og bjarga heiminum með
glas af Bloody Mary í hendi.
Bók Að mínu mati er besta
bók í heimi, Ralph Lauren
40th Anniversary Book
eftir Ralph Lauren. 700
handvaldar myndir úr lífi
og starfi Ralphs og texti
sem veitir manni innsýn í huga meistar-
ans, gerist ekki betra.
Plata Ég elska allar
plöturnar með Michael
Bublé en uppáhalds lagið
mitt er Everything og það
er á plötunni Call Me
Irresponsible.
Vefsíða Ég eyði
dágóðum tíma á
Yachtingmagaz-
ine.com sem er
besti staðurinn til
að fylgjast með
öllu sem viðkemur snekkju-
heiminum.
Staður 101
bar. Ég er
alltaf þar.
Alltaf allt
nýþrifið
sem er
ekki algengt á skemmtistöðum
í Reykjavík, frábær þjónusta,
þægileg lounge tónlist, þjónað
til borðs og góður Bloody
Mary.
18 Monitor FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
fílófaxið
föstudag13maí
Síðast en ekki síst
» Kristinn Árni, plebbi sem sér um plebbann.is, fílar:
„Þetta er drungalegt popp í anda Depeche Mode, Skinny Puppy og
Ministry. Gothpopp ef ég má nota það hugtak,“ segir Hrafn Björg-
vinsson, betur þekktur sem Krummi, um tónlist hljómsveitar sinnar,
Legend, sem spilar á Bar 11 á föstudagskvöldið. „Við erum búnir að
spila eina og eina tónleika hér og þar og erum að leggja lokahönd á
plötu sem kemur út í júní,“ segir hann um hljómsveitina sem hefur
fengið góðar viðtökur við lögunum Devil In Me og Sister sem bæði
hafa komist ofarlega á vinsældarlista X-977. „Það hefur verið ótrúlega
góð stemning á tónleikum hjá okkur, mikið dansað og líka headbang-
að,“ segir Krummi spenntur fyrir tónleikunum um helgina og bendir á
að tónlist sveitarinnar sé í dramatískari kantinum. „Tónlistin er dram-
atísk og epísk svo það má búast við dramatískum tónleikum,“ segir
Krummi en vonar að föstudagurinn þrettándi hafi ekki slæm áhrif á
tónleikana. „Í sannleika sagt erum við svolítið stressaðir því við Dóri
sem er með mér í hljómsveitinni vorum saman í hljómsveit fyrir
nokkrum árum og þá hvíldi einhver bölvun á okkur,“ útskýrir hann
og segir græjur hafa bilað ítrekað á þeim tíma en nú hafi bölvuninni
verið aflétt með Legend. „Vonandi dregur föstudagurinn þrettándi
bölvunina ekki aftur fram,“ segir Krummi sem bendir þó á að óhöpp
gætu ýtt undir dramatík tónleikanna sem eru þeir fyrstu í tónleikaröð
Tuborg og Bar 11. Frítt er inn á tónleikana og húsið opnar kl. 21.
Bölvunin endurvakin á
föstudaginn þrettánda?
Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkum koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Eftirtalin sjálfstæð Apótek selja einnig Proactiv Solution:
ReykjavíkuRaPótek, Seljavegi 2 // LyfjaboRg aPótek,
Borgartúni 28 //gaRðSaPótek, Sogavegi 108
uRðaRaPótek, Grafarholti //RIMa aPótek, Grafarvogi
aPótek HafnaRfjaRðaR, Tjarnarvöllum 11
ÁRbæjaRaPótek, Hraunbæ 115 //LyfjaveR Suðurlandsbr. 22
LEGEND
Bar 11
Föstudagur kl. 21
laugardag-14maí
SUMARHREINSUN
KIMI RECORDS
Kolaportið
11:00 Lagerhreinsun Kimi Recordsfyrir sumarið fer fram í
Kolaportinu um helgina og öskrandi tilboð á
geisladiskum, vínylplötum og hljómsveitabol-
um verða fyrir gesti og gangandi.
FATAMARKAÐUR
Á FAKTORÝ
Faktorý
14:00 Fatamarkaðurinnvinsæli heldur áfram og
eru allir velkomnir að koma til að selja af
sér spjarirnar nú eða fjárfesta í
hræódýrum sumarflíkum.
Góð tónlist, drykkir og
frábær félagsskapur.
BLOOD-
GROUP OG
CAPTAIN
FUFANU
Sódóma
22:00
Sveittasta
próflokapartíið
verður á Sódómu
um helgina.
Hljómsveitirnar
Bloodgroup og
Captain Fufanu leiða
saman hesta sína en
samstarf þeirra hefur yfirleitt
verið uppspretta mikillar gleði.
Aðgangseyrir er 1000 krónur.
NEMENDALEIKHÚSIÐ
Gaflaraleikhúsið Hafnarfirði
20:00 Útskriftarnemenduraf samtímadansbraut
Listaháskóla Íslands frumsýna verkin The
Genius Of The Crowd og How Did You Know
Frankie. Sýndar verða fimm sýningar og hægt
er að nálgast miða í gegnum Facebook-síðu
Nemendaleikhússins.
GRAPEVINE GRASSROOTS
Hemmi og Valdi
21:00 Reykjavik Grapevine býðurá ókeypis tónleika þar sem
hljómsveitirnar No Class, Enkídú, ahma og
tónlistarmaðurinn Arnljótur trylla lýðinn.
HELVÍTIS ÓGÆFA!
Café Amsterdam
23:00 Rokktón-leikar
þar sem hljómsveitirnar
Bloodfeud, Swords Of
Chaos, Sleeping Giant
og Norn reyna eftir
sinni bestu getu að
senda ógæfuna til and-
skotans. Aðgangseyrir
er 500 krónur.
SALT
Faktorý
23:00 Hljóm-sveitin XIII
leikur tímamótaverkið SALT í
heild sinni í fyrsta sinn í tilefni
af 18 ára afmæli sveitarinnar.
Sérstakir heiðursgestir á tónleikunum
verða hljómsveitirnar In Memoriam og
Hoffman. Aðgangseyrir er 1000 krónur.