Monitor - 15.09.2011, Blaðsíða 6
6 Monitor FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2011
Hljómsveitin Ourlives gefur
í dag út sína aðra breið-
skífu og ber hún nafnið,
Den of Lions. Flestir hafa
heyrt lög sveitarinnar óma
í útvarpinu en enn í dag
er fólk að átta sig á því að
hér sé um íslenska hljóm-
sveit að ræða. Monitor
spjallaði við Leif
og Bjössa í gegnum handfrjálst
bílsímakerfi þess síðarnefnda þeg-
ar þeir voru nýkomnir af æfingu.talið
Hvernig lýsið þið hljómsveitinni í 13 orðum?
B Það er góð spurning, hún er ekki svo slæm
og gæti verið verri.
Þið eruð að senda frá ykkur plötu númer tvö.
Eruð þið ekki reynslunni ríkari?
B Jú, klárlega.
L Þetta var samt svona eins og að byrja ferlið
upp á nýtt. Þetta var allt öðruvísi en fyrri
platan.
B Við komum inn í þetta fullir sjálfstrausts og
vorum alveg með hvað við ætluðum að gera
en svo fórum við einhvern veginn á byrjunar-
reit. Á síðustu plötu sömdum við til dæmis tíu
lög og níu enduðu á plötunni en fyrir þessa þá
sömdum við eitthvað um þrjátíu...
L Þrjátíu og tvö, þrjú.
B Já og tíu enduðu á plötunni. Við erum
svolítið grimmir með okkar eigin lög og erum
dómharðir á þau. Við vorum búnir að skera
þetta niður í fimm lög á einhverjum tíma-
punkti og þá þurftum við bara að gjöra svo vel
að semja meira. Við lentum í sjálfum okkur.
En gerist það þá aldrei að þið takið góðu
bútana úr mismunandi lögum sem þið ætlið
ekki að nota og setjið saman í eitt lag?
B Við höfum reynt það en það hefur ekki
verið að virka.
L Það er einhvern veginn þannig að ef þau
virka ekki strax þá hendum við því frá okkur
og förum yfir í næsta lag.
B Við eigum fullt af góðum bútum.
L Gjörið þið svo vel, hér er svakalega góður
þriggja sekúndna kafli.
Á fyrstu plötunni fenguð þið Barða Jóhanns-
son, Barða Bang Gang, til að taka upp og
útsetja með ykkur en núna eru fjórir aðilar
sem taka þátt í þessu ferli með ykkur. Finnið
þið mikinn mun á ferlinu?
B Já, við vorum að læra þetta upp á nýtt í
rauninni.
L Við erum að gera þetta meira sjálfir sem er
eitthvað sem við gerðum ekki á fyrri plötunni.
B Við vorum samt sem áður með algjöra
keppnismenn með okkur í ferlinu, höfðum
Barða í nokkrum lögum og Axel Flex í sumum.
Og það er þannig að ef maður er að vinna með
toppfólki þá lærir maður toppvinnubrögð.
Fyrstu plötunni var oft lýst sem óhefðbund-
inni blöndu af poppi og tilraunarokki. Haldið
þið ykkur á svipuðum slóðum eða takið þið
hlustendur í nýjar áttir?
B Klárlega nýjar áttir.
L En þú heyrir samt alltaf að þetta er
Ourlives.
Er hún bjartari eða er hún þyngri?
L Hún er kannski ekki beint þyngri en það er
aðeins dimmara yfir henni.
B Jú, jú. Hún er þyngri (hlær).
L (hlær). Maður er ekki dómbær á sitt eigið
efni.
B Ef þú ert að tala um grömm þá er þetta
núna komið í plast en áður var hún í pappa
svo að hún er þyngri að því leytinu til og svo
er aðeins stærri bæklingur, þannig að jú, hún
er þyngri.
B Til að útskýra þetta bara í stuttu máli þá
er platan gerð á styttri tíma þannig að hún er
meiri heild heldur en fyrri platan.
Í myndbandinu við lagið We Lost the Race
sýnið þið myndefni frá mótmælunum við
Austurvöll. Eruð þið svona pólitískir?
B Flestir tónlistarmenn sem segjast vera
pólitískir eru orðnir gamlir og hafa ekki um
mikið annað að tala þannig að mig langar ekki
að segja að við séum pólitískir en ... hins vegar
... já. Það er alltaf svolítil pólitík í okkur.
Og má lesa það út úr textunum eða hvað?
L Það má alveg lesa það út úr þeim kannski?
I‘m Ron Burgundy?
B Já, einmitt. Það er alltaf svo kjánalegt að
svara svona spurningum. Við getum sagt að
þeir séu pólitískir en svo getur það verið lygi
hjá okkur.
Lagið ykkar Out of Place var gríðarlega vin-
Þyngri
í grömmum