Monitor - 15.09.2011, Síða 13
13FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2011 Monitor
Í badmintoníþróttinni á
Íslandi hefur einn leik-
maður borið höfuð
og herðar yfir alla
en það er að
sjálfsögðu
hún Ragna
Ingólfsdótt-
ir. Þessi
badmin-
tondrottn-
ing æfir
nú og
keppir af
miklum
móð með
það í huga
að tryggja sér
þátttökurétt á
öðrum Ólympíu-
leikunum sínum í
röð. Þegar blaðamaður
settist niður með Rögnu
var hún að undirbúa för
sína til Gvatemala þar sem
hún keppir nú á móti sem er liður
í þessari baráttu hennar um farseðil
til London.
Þú varst tvítug þegar þú vannst þinn fyrsta
Íslandsmeistaratitil í einliðaleik árið 2003. Eftir það
hefur þú ekki tapað leik á Íslandi í átta ár. Er þetta of
létt fyrir þig?
Það má segja það, að minnsta kosti í stelpnaflokknum.
Ég keppi alltaf við strákana á æfingum og við höfum
verið að pæla hvort ég eigi að skrá mig í strákaflokkinn
en það er reyndar ekki hefð fyrir því (hlær). Ég er aðallega
að einbeita mér að alþjóðlegu mótunum núna en ekki
mótunum hérna heima og hef gert það í mörg ár. Ég get
alltaf farið út og keppt við stelpur sem eru jafngóðar,
aðeins lélegri eða aðeins betri. Þó svo að samkeppnin sé
kannski ekki til staðar hér á landi þá get ég alltaf keppt
við strákana.
Ef þér yrði boðið að keppa á Íslandsmótinu í karla-
flokki, myndir þú þiggja boðið?
Ég myndi gera það og ég myndi líka vinna held ég
(hlær). Nei nei, ég segi svona, en ég er alltaf að spila við
þessa stráka og stundum vinnur maður og stundum tap-
ar maður en það væri rosa gaman að prufa að spila við
þá á alvörumóti, því það er dálítið öðruvísi en á æfingu.
Það væri mjög gaman, ég myndi pottþétt þiggja það.
Ert þú með einhverja rútínu sem þú framkvæmir fyrir
alla badmintonleiki?
Já, þegar ég er að keppa vakna ég snemma og fer í
göngutúr til að tæma hugann og liðka mig aðeins til.
Svo mæti ég klukkutíma fyrir leik og byrja að hita upp
með iPod í eyrunum sem kemur mér í gang. Svo teygi
ég aðeins á, slaka á fyrir leikinn og fer svo á fullu inn í
leikinn sjálfan með hundrað prósent einbeitingu. Eftir
svona langan undirbúning þá truflar mann ekkert þegar
maður kemur inn á völlinn.
Hvaða tónlist er það sem peppar þig upp?
Þessa dagana hlusta ég mest á Gusgus, það er tónlist
sem kemur mér í gang.
Af hverju badminton?
Út af því að foreldrar mínir búa mjög nálægt TBR-
húsinu og þegar ég var í Langholtsskóla bauð TBR níu
ára krökkum að spila frítt í eitt ár og bróðir minn, sem
er þremur árum eldri, var byrjaður svo mér fannst þetta
mjög spennandi og sló til. Ég var reyndar einu ári á und-
an í skóla svo ég byrjaði átta ára gömul. Við bróðir minn
erum bestu vinir og höfum alltaf verið saman í þessu. Við
spiluðum saman í tvenndarleik í unglingaflokkunum.
Þú æfðir fimleika í æsku og mér skilst að þú sért líka á
kafi í golfi. Kemst eitthvað að annað en íþróttir?
Já, ég er alveg „chillari“ í eðli mínu. Ég æfi yfirleitt
tvisvar á dag en þess á milli er ég dálítið mikið að slaka
á og mér finnst mjög gott að horfa á eitthvað, lesa bækur
og auðvitað að verja tíma með vinkonunum og kærasta.
Situr þú föst fyrir framan sjónvarpið þegar Eurosport
sýnir frá badmintonmótum?
Nei, ég horfi mjög lítið á badminton. Einu skiptin sem
ég horfi eru kannski bara leikir með mér sjálfri til að læra
af þeim hvað ég get bætt og hverjar eru mínar sterku
hliðar. Þegar ég er að fara á mót hef ég líka stundum
horft á leiki með þeim sem ég er að fara að keppa við.
Annars horfi ég mest á gamanþætti, ég horfi endalaust
á Seinfeld. Ég reyni samt líka að horfa á einhverjar
fræðslumyndir, eins og til dæmis Dalai Lama-fyrirlestra
eða eitthvað. Mér finnst gaman að detta inn í svoleiðis.
Ert þú sleip í golfinu? Ertu með einhverja forgjöf?
Ég byrjaði aðeins að prufa þetta fyrir nokkrum árum en
ég byrjaði að spila eitthvað að ráði í fyrra og gekk þá inn
í klúbb. Sem stendur er ég með 18,4 í forgjöf, markmið
sumarsins var að komast undir 20 svo það gekk upp.
Kærastinn þinn er mikið í golfi. Kann hann eitthvað í
badminton?
Já, ég dríf hann stundum með mér og þá spila ég með
vinstri á móti honum og það eru oft hörkuleikir, það er
algjör snilld. Hann er alveg góður miðað við byrjanda og
eftir að hann kynntist mér hefur hann fengið vini sína til
að koma með sér að spila.
Hvenær varð þér ljóst að þú gætir náð langt í þessari
íþrótt?
Fyrsta árið mitt, þegar ég var átta til níu ára, þá var
ég auðvitað bara svipuð og allir hinir. Ég fór síðan í
tennisskóla sumarið eftir það og var helling í þessu og
þá var ég strax orðin betri en stelpurnar sem voru að æfa
með mér fyrst. Svo horfði maður á Elsu Nielsen fara á
Ólympíuleikana árið ’92 og reyndar líka ’96 og þá sá ég að
þetta var það sem mig langaði að gera.
Þú gekkst í Menntaskólann við Sund. Hvernig týpa
varst þú í menntaskóla?
Fyrstu tvö árin var ég alveg í skólanum og það gekk
mjög vel en eftir að ég fékk Ólympíustyrk var ég
utanskóla næstu tvö ár. Mér fannst menntaskólaárin
mjög skemmtileg en ég tók voða lítinn þátt í félagslífinu,
ég held að ég hafi farið einu sinni á árshátíðina, annars
var ég alltaf úti að keppa. Ég fór kannski á nokkur böll
til viðbótar en var annars lítið í félagslífinu, þótt ég hafi
reynt að gera eins mikið og ég gat. Ég var sem sagt svona
íþróttatýpan.
Nú æfir þú íþrótt þar sem þú slærð flugu í sífellu með
spaða. Ert þú þá betri en meðalmaðurinn í því að drepa
geitunga?
Algjörlega, ef ég er með spaðann, þá tek ég hann í
fyrsta höggi. Annars er ég frekar hrædd við þá og er vön
að flýja en eins og ég segi, ef ég er með spaða þá læt ég
vaða.
Eftir MS fórst þú í heimspeki og sálfræði í háskólanum.
Hvers vegna lagðir þú þessar greinar fyrir þig?
Ég er svolítill pælari og hef mikið pælt í
því hvers vegna heimurinn er eins og hann
er, af hverju sumum gengur vel en öðrum illa
þannig að mér fannst heimspeki mjög áhugaverð og svo
tók ég sálfræði sem aukagrein. Ég væri alveg til í að læra
eitthvað meira í svona heilsuvísindum í framtíðinni og
hef verið að hugsa um að gera það eftir næstu Ólympíu-
leika. Ég hef svolítið pælt í íþróttasálfræði en mér finnst
hún vera að koma mjög sterk inn núna. Mig langar að
taka mastersgráðu í einhverju úti í Bandaríkjunum í
framtíðinni og það verður eitthvað í þessum dúr.
Þarf maður að leggja mikið upp úr heimspekinni og
sálfræði til að ná langt í íþróttum?
Ef maður ætlar að ná langt þá held ég að maður þurfi
mikið að pæla í andlega þættinum, eins og allir segja
sem eru orðnir eitthvað góðir í íþróttum. Þú getur verið
eitthvað ákveðið góður líkamlega en þegar öllu er á
botninn hvolft skiptir andlegi þátturinn svo miklu máli.
Ef einhverjir tveir eru jafngóðir líkamlega þá nær sá sem
er sterkari andlega yfirburðum að lokum.
Í ár voru settar reglur í badmintonheiminum sem
kveða á um að konur verði að spila í pilsum. Hvað
finnst þér um þessar reglur?
Það eru svo margar af bestu stelpunum sem eru frekar
strákalegar, sérstaklega þær asísku, sumar þeirra gætu
bara verið strákar þegar maður horfir á þær. Þessar
stelpur myndu til að mynda aldrei spila í pilsum og
þær eru bestu badmintonkonur í heimi og þess vegna
finnst mér það alveg fáránlegt að skikka þær til að spila
í pilsum. Þeir sem settu reglurnar segja reyndar að þetta
sé ekki í gildi á öllum mótum heldur eru tíu mót á ári
sem eru kölluð „Super Series“, þar keppa þrjátíu og tvær
bestu í heiminum, og tillagan er sú að þetta gildi á þeim
mótum. Eins og ég segi fannst mér þetta fáránlegt fyrst
en svo fékk þetta svo mikla umfjöllun að ég fór að pæla
hvort þetta hafi bara verið sett til þess að vekja meiri
athygli á íþróttinni. Ef það er tilfellið, þá var þetta bara
sniðug markaðssetning.
Sem stendur ert þú í 64. sæti á heimslista kvenna
í badminton. Átt þú þér eitthvað sérstakt markmið
varðandi heimslistann?
Mér hefur alltaf fundist mjög kúl að vera á topp 50.
Ég náði best 37. sæti fyrir síðustu Ólympíuleika svo ég
hugsa oft að það væri gaman að slá því við. Akkúrat
núna finnst mér þægilegt að stefna á topp 50 og ef ég næ
því fer ég kannski að reyna að bæta hitt.
Ári fyrir ÓL 2008, sleist þú krossband en lést það ekki
á þig fá og komst þér samt til Kína Hvernig fórst þú að
því?
Ég reyndi á sínum tíma að komast á Ólympíuleikana
2004, byrjaði að keppa og æfa alveg á fullu árið 2002
og komst ekki inn. Það munaði bara tveimur stelpum
og það var þvílíkt áfall en ég byrjaði strax að æfa fyrir
næstu. Föstudaginn 13. apríl 2007, á
síðasta mótinu fyrir Ólympíuárið, þá
sleit ég krossbandið og allir læknar sem
Texti: Einar Lövdahl Gunnlaugsson einar@monitor.is
Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is HRAÐASPURNINGAR
Fyrstu sex: 220283.
Uppáhaldsmatur: Indverskur kjúklingarétt-
ur og sushi.
Uppáhaldsstaður í heiminum: Mér líður
best á Íslandi.
Uppáhaldsbadmintonspilari: Camilla
Martin þegar hún var ennþá að spila.
Uppáhaldsíþrótt fyrir utan badminton:
Golf.
Sætasti sigurinn: Þegar ég vann Íslands-
mótið í fyrsta skiptið og líka þegar við í
landsliðinu unnum Evrópukeppni B-landsliða í janúar 2007.
Æskudraumurinn: Að fara að spila á Ólympíuleikunum,
það er eitthvað sem ég ætlaði mér alltaf að gera.
Ég ætlaði að labba yfir
til vina minna sem sátu
á öðrum stað og þá var bókstaf-
lega gelt á mig svo ég varð að
hundskast út í horn aftur.
Ragna Ingólfsdóttir er aðalbadmintonspaði landsins sem hefur nú þegar upplifað æsku-
drauminn og stefnir hraðbyri að því að gera það aftur næsta sumar í London. Hún sagði
Monitor frá heimsflakki sínu, hnémeiðslunum og badmintoneinvígunum við kærastann.
Ef ég er með spaða
þá læt ég vaða