Monitor - 06.10.2011, Blaðsíða 17
„Ertu frá Íslandi? Er ekki Björk frá Íslandi?“. Þessar
spurningar eru mjög dæmigerðar í upphafi samtals
milli útlendings og Íslendings. Það virðist varla skipta
máli hvert maður fer, alltaf er Björk Guðmundsdóttir
helsti fánaberi þessarar litlu eyju í Norður-Atlants-
hafi enda stórbrotinn tónlistarmaður og einn sá
frumlegasti sem um getur í samtímatónlist. Nýjasta
plata Bjarkar, Bíófílía, kemur út í næstu viku en eins
og flestum er kunnugt verður verkið flutt í Hörpu
níu sinnum á næsta mánuði sem þó hefur selst upp
á fyrir löngu. Platan er sjöunda breiðskífa sólóferils
hennar á erlendum vettvangi en aðspurð segir hún
það koma fyrir að hún hugsi aftur til þess þegar hún
gaf út sína fyrstu plötu aðeins ellefu ára að aldri og
þegar heimsfrægðin hófst með Sykurmolunum enda
dýrmætar minningar.
Þú ert án efa sá Íslendingur sem hefur skapað sér
stærsta nafnið á alheimsvísu innan tónlistar. Hefur
það að þú komir frá Íslandi hjálpað þér í tónlistar-
bransanum í gegnum tíðina?
Það hefur bæði hjálpað til og hindrað. Það má segja
að þetta svona jafni hvort annað út.
Þú kemur til með að flytja nýjasta verkið þitt,
Bíófílía, í Hörpu níu sinnum á næsta mánuðinum.
Hvernig leggst í þig að koma fram í þessu nýja
tónlistarhúsi Íslendinga?
Það leggst bara mjög vel í mig. Fyrst var ég reyndar
kannski með svolitla útrásarvíkingafordóma á húsinu
en ég er búin að jafna mig á því núna. Maður verður
náttúrlega að taka þátt í því að láta þetta allt saman
virka.
Tvennir af tónleikunum verða liðir á Iceland
Airwaves. Fylgist þú með því sem er að gerast í
íslenskri tónlist um þessar mundir?
Já og nei, mér finnst margt frábært að gerast en get
ekki sagt að ég fylgist óvenjulega mikið með. Ætli ég
fylgist ekki bara svona meðalmikið með.
Í verkinu er notast við hljóðfæri sem voru sérstak-
lega smíðuð af vísindamönnum úr einum virtasta
háskóla heims, MIT. Hver voru fyrstu viðbrögð
fólks í kringum þig þegar þú fékkst hugmyndina að
þessum hljóðfærum?
Þetta óx nú svona hægt og rólega, þeir frá MIT
bjuggu til eitt hljóðfæri, það er pendúlaharpan.
Síðan var það hann Björgvin Tómasson sem byggði
tvö önnur hljóðfæri, pípuorgel sem skilur tölrænar
upplýsingar og „gamelestu“. Gamelestan er unnin
úr gamalli selestu sem ég keypti af sinfóníunni. Við
rifum síðan allar nóturnar úr og settum bronsnótur
eins og eru í „gamelan“ í staðinn. Það var þess vegna
sem hljóðfærið fékk nafnið „gamelesta“. Hvað varðar
það þegar ég fékk hugmyndina fyrst þá man ég nú
svo sem ekkert sérstaklega eftir neinum viðbrögðum,
þetta eru náttúrlega allt vanir menn sem eru alltaf að
vinna við svona lagað.
Verkið Bíófílía verður gefið út sem „application“
fyrir iPad og sambærilegar græjur. Hvernig kom sú
hugmynd til og hver er pælingin á bak við það að
gefa tónlist út á þessu formi?
Á Voltu-tónleikunum sem fóru fram frá 2006 til 2008
notaði ég snertiskjá en reyndar bara til þess að spila
lög sem voru þá þegar samin. Þegar ég kom heim í ág-
úst 2008 var ég rosa spennt að ekki bara spila tónlist
með snertiskjám heldur semja líka tónlist með þeim.
Fyrir vikið settist ég niður og fór að velta því fyrir mér
hvernig ég gæti framkvæmt það, hvernig ég myndi
kortleggja tónlist á svona tæki. Það minnti mig strax
mikið á tónfræðitímana mína sem ég var í sem barn.
Þá fór ég í mikið ferðalag og endaði síðan með að
skrifa tíu mismunandi prógrömm fyrir tíu mismun-
andi lög. Hvert þessara prógramma er tileinkað einu
elementi úr náttúrunni og einu atriði úr tónfræði, til
dæmis er lag um eldingar sem kennir „arpeggios“ og
lag um DNA sem kennir „riþma“. Að sama skapi er
svo lag með útsetningu sem fjölgar sér eins og vírus,
lag með strúktúr eins og kristall og svo framvegis.
Tveimur árum síðar, nánar tiltekið árið 2010, var þetta
allt tilbúið. Þá gerðist það að iPad-inn kom út og þá
fannst manni einhvern veginn að fyrst að platan var
samin á snertiskjá ætti hún að koma út á snertiskjá.
Fyrir skemmstu stóðst þú fyrir „Biophilia Music
School“ þar sem enskir skólakrakkar söfnuðust
saman og lærðu að búa til tónlist í gegnum „app-ið“.
Hvernig gekk það fyrir þig og hvernig tókst til?
Það gekk bara virkilega vel. Stefnan er einmitt sett
á svipað verkefni fyrir íslenska krakka sem við erum
byrjuð að undirbúa.
Ásamt þessum skóla hefur þú í gegnum tíðina
verið dugleg að gefa ungum tónlistarmönnum úr
hinum og þessum áttum færi á að starfa með þér að
verkefnum þínum. Ert þú kennari í þér?
Já, ætli það ekki bara? Sjálf er ég vön að læra af
vinum mínum og þá kannski deila dóti í staðinn. Ég
var í hljómsveitum í þrettán ár og það var nú besti
skólinn sem ég fór í. Við kenndum öll hverju öðru.
Ef ungur íslenskur tónlistarmaður kæmi upp að þér
og spyrði þig einfaldlega hvað hann þyrfti að gera til
að ná langt í tónlist, hverju myndir þú svara?
Það „að ná langt“ getur náttúrlega þýtt ýmislegt en
ætli það sé ekki öruggt að mæla með því að rækta
frumleika og eigin eðlishvöt. Síðan er það oft ekki
alveg undir manni sjálfum komið hvað annað gerist,
hvað gerist næst, heppni og tilviljanir og annað slíkt
getur spilað mikið inn í. Það er hins vegar nokkuð
öruggt að það gerist ekki neitt ef maður hefur ekki
eigin rödd, og þá er ég ekki bara að tala um söngrödd.
Það er sjálfur David Attenborough sem les inn á
Bíófílíu-„appið“. Hvernig kom það til? Þekkist þið
Attenborough?
Ég hef hitt hann en við þekkjumst ekkert rosalega
vel, hann hefur bara verið svo mikil innspýting í gegn-
um tíðina og þetta verkefni er svo tengt honum. Þá á
ég við náttúruna og svo menntunarþáttinn í verkinu.
Þú hefur verið þekkt fyrir að koma fram með
ýmislegt frumlegt, meðal annars þegar þú bjóst til
plötuna Medúlla þar sem lagt var upp með að notast
einungis við raddir. Eyðir þú heilu mánuðunum með
höfuð í bleyti til að fá svona hugmyndir eða fæðast
þær sjálfkrafa?
Það er þannig að flestar hugmyndirnar fæðast hægt
og rólega en oft fer þetta samt eftir hvar maður er
staddur eftir plötuna á undan. Síðan kemur næsta
hugmynd eins og svona „reaksjón“ við þeirri fyrri, þá
er maður oft orðinn drulluleiður á sumum hlutum og
í skorti með aðra. Svo eltir maður þetta viðbragð.
Þú hefur komið fram á stærstu tónlistarhátíðum
heims og jafnframt haldið tónleika undir eigin
formerkjum með tugþúsundum gesta. Hvernig er
tilfinningin að stíga á stokk fyrir framan slíkan
fjölda fólks?
Það getur verið alla veganna. Oftast er þetta
skemmtileg blanda af deginum, skapinu sem maður
er í, staðnum sem maður er á, fólkinu í kringum
mann og sem er mætt á tónleikana og hvar maður
er staddur tilfinningalega. Það er kannski svona
það skemmtilegasta við að halda tónleika að þetta
er svolítið svona úr höndunum á manni og maður
verður bara að impróvisera og vinna með
það sem maður hefur.
Þegar þú hefur sungið fyrir álíka fjölda, finnst þér þá
lítið mál að syngja á tónleikum fyrir hundrað gesti?
Nei, ég get ekki sagt það því það er ekkert endilega
einfaldara.
Í gegnum tíðina hefur þú hlotið Gullpálmann, verið
tilnefnd til Grammy-verðlauna sautján sinnum sem
og nefnd til sögunnar á listum MTV og VH1 yfir
bestu söngkonur heims. Hvert er mesta hrósið eða
viðurkenningin sem þér hefur hlotnast?
Það er erfitt að segja en það er náttúrlega verðmæt-
ara þegar vinir eða ættingjar kunna að meta mann
og það sem maður er að gera. Annars þoli ég reyndar
ekki hrós, þau fara rosalega illa í mig. Ég verð alltaf
hálfgrunsamleg þegar byrjað er að hrósa. Ég er mjög
íslensk hvað þetta varðar, það er að segja mér finnst
mikilvægara að finna að fólki líki við mann heldur en
að það þurfi að segja það.
Þú vannst Gullpálmann þegar þú sýndir á þér nýjar
hliðar í aðalhlutverki myndarinnar Dancer in the
Dark. Hefðir þú áhuga á að taka að þér fleiri verkefni
á sviði leiklistar?
Nei, ég er nokkuð ánægð í tónlistinni.
Platan þín, Gling-Gló, hefur setið í topp þrjátíu sæt-
unum á íslenska Tónlistanum í yfir 203 vikur. Hvers
vegna heldur þú að þessi plata sé svona langlíf?
Ég hef kallað þetta svona hluta af hrikalegum
djassálögum sem liggja á mér. Ég bara skil þetta ekki.
Á sínum tíma tók það okkur ekki nema tvo daga að
velja þessi lög, einn að æfa þau, einn að taka þau upp
og einn að hljóðblanda. Ég hef oft reynt að láta hætta
að gefa þessa plötu út en þá rísa upp allir sjóræn-
ingjarnir og margfalda hana. Hinn hluti þessara
ógurlegu djassálaga á mér er lagið „It´s Oh So Quiet“.
Það er lag sem ég „coveraði“ fyrir fimmtán árum og
þetta er til dæmis eina lagið með mér sem margir
Bretar þekkja. Kannski er þetta einhver refsing fyrir
að vera svona nýjungagjörn eða þá
að fólk er bara latt og vill bara heyra
eitthvað gamalt og kunnuglegt.
Texti: Einar Lövdahl Gunnlaugsson
Myndir: Inez & Vinoodh HRAÐASPURNINGAR
Syngur Björk Guðmundsdóttir í
sturtu? Mér finnst óþægilegt í sturtu.
Hvort kannt þú betur við þig í New
York eða Reykjavík? Reykjavík.
Hvert er ánægjulegasta samstarfið
sem þú hefur tekið þátt í á þínum
farsæla ferli? Það er ekki hægt að
velja neitt eitt.
Hver er mest framandi staður sem
þú hefur komið fram á? Verðlaunaaf-
hendingahátíðir.
Ég hef oft reynt að
láta hætta að gefa
þessa plötu út en þá rísa
upp allir sjóræningjarnir
og margfalda hana.
Björk Guðmundsdóttir er trúlega frægasti núlifandi Íslendingurinn og ein besta
landkynning sem íslenska þjóðin hefur átt. Hún stendur í ströngu fyrir útgáfu
síns nýjasta verks, Bíófílíu, sem verður meðal annars flutt á Airwaves. Hún
sagði Monitor frá þessu tímamótamargmiðlunarverki og óbeitinni á hrósum.
17
FIMMTUDAGUR
6. OKTÓBER
2011
SVANA-
KJÓLLINN
Það verður sennilega
helstu tískuspekúlöntum
lengi minnisstætt þegar
Björk mætti á Óskars-
verðlaunahátíðina árið
2001 íklædd hinum fræga
svanakjól. Kjóllinn var
seinna seldur á uppboði til
góðgerðamála á eBay. Björk
klæddist kjólnum einnig á
plötuumslagi Vespertine
auk þess að koma fram á
ýmsum tónleikum í kringum
þá plötu í kjólnum.
MARGMIÐLUNAR-
MEISTARASTYKKI
Verkið Bíófílía er tímamót að mörgu leyti en að undirbúningi
þessa flókna stykkis komu forritarar, vísindamenn, rithöf-
undar, uppfinningamenn, tónlistarmenn og hljóðfærasmiðir
til að skapa verk sem á sér enga hliðstæðu. Verkið er
fimmþætt en ásamt því að gefa út plötu kemur verkið út
sem „app“ eða snerti-virkni-smáforrit, verkið er flutt sem
tónleikasýning þar sem Björk spilar meðal annars á iPad,
vefsíðan bjork.com er tileinkuð verkinu ásamt því að Pulse
Films vinnur að heimildarmynd um Bíófílíu. Sennilega er
eina leiðin til að átta sig á hvað verkið er magnað að sjá
og upplifa það á tónleikum en fyrir tónleikana voru smíðuð
ýmis hljóðfæri, svo sem fjórar þriggja metra háar pendúl-
hörpur, tölvustýrt pípuorgel og tvöfaldur eldingahermir.