Monitor - 06.10.2011, Side 18
Á unglingsárunum tókst þú þátt í pönkinu og
nýbylgjunni. Hvað heillaði þig við þá senu?
Mér fannst svona þessi DIY-andi („do it yourself“)
mest spennandi.
Hvenær varð þér ljóst að þú hygðist leggja tónlistina
algjörlega fyrir þig?
Það markast ekkert við eitthvað eitt svona sérstakt
móment, þetta þróaðist bara. Mig var nú samt
snemma farið að gruna að ég myndi gera eitthvað
sem væri að minnsta kosti tengt tónlist, til dæmis
útvarpsþátt eða vinna með eða í tónlistarskóla, sem
ég er nú eiginlega að gera núna.
Þú hefur ávallt lagt mikið upp úr flottum tónlist-
armyndböndum og þar á meðal hefur þú gefið út
sjö myndbönd í samvinnu við leikstjórann Michel
Gondry. Er samstarf ykkar tveggja sérstakara en
samstarfið við aðra leikstjóra?
Michel er mjög góður vinur minn sem ég held
ennþá sambandi við en ég á nú líka mjög sérstakt
samband við Chris Cunningham og Spike Jonze, til
dæmis, og samstarf mitt við þá hefur verið mjög gott.
Þú komst fram á stærsta íþróttaviðburði heims,
Ólympíuleikunum, í Aþenu árið 2004. Hvernig kom
það til? Hefur þú áhuga á íþróttum?
Þetta var eitthvað sem ég var beðin um og mér
fannst rosa skemmtilegt að gera. Pælingin á bak við
kjólinn sem ég klæddist var að hann var eins og hafið
sem tengir allar þjóðir. Ég hef sjálf ekki mikinn áhuga
íþróttum, nei.
Hlustar þú mikið á tónlist í frístundum heima hjá
þér?
Já, ég hlusta á allavega tónlist. Ég hlusta á „soul“-
tónlist frá Tælandi, klassíska tónlist, elektróníska
„experimental“, „R ‘n‘ B“, popptónlist, „folk“.
Átt þú þér einhver áhugamál utan tónlistarinnar
sem þú sinnir í frístundum þínum?
Ég þarf alltaf að vera mikið úti við, eins og að fara
í göngutúra, hjóla, fara í sund og allt þess lags. Það
hjálpar mér mikið.
Heimildir herma að þú hafir selt eitthvað um fimmt-
án milljónir platna um allan heim. Hvað hyggst þú
halda áfram að gefa út tónlist lengi?
Ég hef engin svoleiðis plön, maður bara impróvis-
erar svona jafnt og þétt.
Þegar þú dvelur erlendis eða ert á heimsflakki,
saknar þú þá Íslands?
Já, og þá helst vina minna og Vesturbæjarlaugarinn-
ar og líka skafrennings og útilegu, ekki bæði í einu
samt.
18
FIMMTUDAGUR
6. OKTÓBER
2011
900 FERMETRA KJÓLL
Árið 2004 kom Björk fram á setningarathöfn Ólympíu-
leikanna í Aþenu. Atriðið var stórbrotið en þar flutti hún
lagið Oceania sem var samið sérstaklega fyrir þetta tilefni
en texta lagsins samdi skáldið Sjón. Á meðan á flutningi
lagsins stóð flæddi 900 fermetra framlenging af kjólnum
sem hún klæddist yfir endilangan íþróttavöllinn og huldi
skarann af íþróttamönnum sem stóð á vellinum. Í lokin var
heimskorti varpað á efnið og varð útkoman mikið sjónarspil.
GOÐ Í AUGUM
ANNARRA
GOÐA
Hljómsveitin Radiohead hefur getið
sér gott orð í tónlistarheiminum
og vilja margir jafnvel nefna hana
til leiks sem bestu hljómsveit
samtímans. Í augum hörðustu
aðdáenda sveitarinnar er forsprakkinn Thom Yorke algjört
goð. Þess má þó til gamans geta að sá hefur sjálfur látið
út úr sér opinberlega að lagið Unravel úr smiðju Bjarkar
sé uppáhaldslag hans í heiminum. Árið 2007 „coveraði“
Radiohead jafnframt lagið sem finna má á YouTube. Björk
og Yorke hafa sungið saman inn á upptökur, meðal annars
í laginu I‘ve Seen It All úr Dancer in the Dark.
Skannaðu og sjáðu
hvað Arnar Eggert
og Beneditk
segja um
Biophilia
Sjáðu
Annars þoli
ég reyndar
ekki hrós, þau fara
rosalega illa í mig.