Monitor

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Monitor - 06.10.2011, Qupperneq 22

Monitor - 06.10.2011, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2011 SAMI Biggi Veira segir GusGus vera með besta ljósamann á landin u en það mikilvægasta af öllu fyrir bandið segir hann vera gott sá nd. Hvernig upplifir þú Airwaves- hátíðina? Bara vel, það er frábært að hafa eina almennilega tónlistarhátíð í Reykjavík. Ég held að við höfum spilað á flestum og það hefur alltaf heppnast vel. Það var sérstaklega gaman fyrir okkur að hafa verið þátttakendur í því að koma þessu fyrirbrigði á legg. Þegar við gerðum fyrstu Airwaves-hátíðina í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli 1999, ásamt Quarashi og Sigur Rós. Hún átti mikinn þátt í því að ferill þeirra fór á flug. Þannig að mér finnst þessi hátíð mjög mikilvæg fyrir íslenska tónlistarsenu. Hún hefur einnig verið mjög gott „milestone“ fyrir íslensk bönd sem eru að fóta sig. Það að skila almennilegu giggi á Airwaves er ákveðið takmark. Ferð þú að sjá aðra tónlistarmenn troða upp eða einbeitir þú þér bara að ykkar giggi? Maður röltir alltaf eitthvað á milli, en yfirleitt án mikillar skipulagn- ingar. Ég man sérstaklega eftir einu kvöldi þar sem ég tékkaði á íslensku „hardcore-senunni“. Það var frábært kvöld og mikill kraftur. Tók eftir því að það var sami trommuleikarinn í öllum böndunum. Er einhver öðruvísi stemning yfir því að troða upp á Airwaves heldur en öðrum giggum niðri í miðbæ Reykjavíkur? Í rauninni ekki, sama hvar við höldum tónleika þá er aðkoma okkar alltaf sú sama. Vanda sig og vera þokkalega til fara. Leggur bandið mikið upp úr sjónarspili tónleika, svo sem ljósasýningu? Ljósin eru mjög mikilvægur hluti af Gusgus-tónleikum og þá er gott að hafa besta ljósamann á landinu, hann Agga, með sér í liði. Mikil- vægast af öllu er þó að það sé gott sánd. Tónlistin okkar reynir mikið á lágar tíðnir og það er ekki alltaf sem hljóðkerfi eru okkur til hæfis. Við höfum því alltaf lagt mikla áherslu á að ná fram góðu sándi þegar við spilum okkar tónleika heima. Mér skilst einnig að það verði dúndur- kerfi í Listasafninu þannig að við hlökkum til. Þið hafið spilað á ýmsum tónlist- arhátíðum fyrir utan landsteinana. Hvernig er það að spila á Airwaves í samanburði við það að spila úti? Fyrir okkur þá skiptir umgjörðin litlu máli. Um leið og við byrjum þá snýst þetta um performansinn og áhlustendur í sal. Hvaða nafn sem er á viðburðinum skiptir engu þegar við setjum í gang. Það er þó óneitanlega skemmtilegt að spila á stórum hátíðum, sérstaklega þegar við erum á góðum stað í dagskránni. Þið eruð úti í Þýskalandi þessa stundina. Hvað eruð þið að gera þar? Við erum á Þýskalands- og Póllandstúr núna og höfum náð að skila geggjuðum giggum það sem af er og vonandi heldur það áfram. Eftir Airwaves höldum við svo aftur út og eftir áramót verðum við einnig á talsverðum þvælingi. Þegar þið spilið „læv“ verða uppbyggingarkaflar laganna ykkar oft töluvert lengri en á plötunum. Verða söngvararnir ekkert óþolin- móðir uppi á sviði á meðan? Það hefur komið fyrir en yfirleitt rúllar þetta vel. Man þó eftir einu giggi á Nasa þar sem ég og Maggi vorum í baklínunni og Urður ásamt Stebba fremst. Þá vorum við komnir upp í þrjá tíma með tíu lög og ég man að framlínan var aðeins byrjuð að koma með athugasemdir. Núna, með þrjá framúrskarandi söngvara í framlínunni, þá fáum við Stebbi lítið tækifæri til að hanga lengi í instrúmental-köflum. Það er alltaf einhver söngvarinn sem tengir og skellir sér í mixið með okkur. elg Gus Gu s LA U .1 5. OK T. List asafn Reykjavíkur kl.00:00 GERIR LÍF MITT BREYTILEGT OG SKEMMTILEGT Högni, nú er tónlist Hjaltalín og GusGus frekar ólík. Hvernig er að kúpla sig út úr giggi með öðru bandinu til að gíra sig upp fyrir gigg með hinu? Það er lítið mál, þetta er allt saman gert úr sama efninu. Það er afskaplega gaman að vinna og spila með öllum þessum krökkum. Hjaltalín er að vinna í nýju efni og ætlar að frumflytja nýja músík á Airwaves- hátíðinni þannig að það er spennandi. Það er gott að hafa tækifæri á að vinna í hvorutveggja, gerir líf mitt breytilegt og skemmtilegt. TROMMARI Í ÖLLUM BÖNDU M? Skannaðu og sjáðu Högna og President Bongó. Sjáðu GUSGUS-HÓPURINN BAKSVIÐS Í BERLIN

x

Monitor

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.