Morgunblaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 3. A P R Í L 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
77. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
DAGLEGT LÍF»10
LÆKNAR
FRAMTÍÐARINNAR
MENNING»46
MYNDIR FRÁ
SIRKUS ÍSLANDS
6
Sunnudags Mogginn
er borinn út með laugardags
Morgunblaðinu
ERFITT getur verið að bíða eftir hátíðum eins og páskum og
jólum. Systurnar Kristrún og Hrafnhildur Guðmundsdætur
styttu sér biðina, máluðu egg og skreyttu heimili sitt fyrir há-
tíðardagana sem framundan eru. Hefðir fjölskyldna eru mis-
jafnar þessa frídaga en búast má við að fjölmörg börn eyði
fyrriparti sunnudags í að leita að súkkulaðieggjunum sínum.
Morgunblaðið/Kristinn
Gleðilega hátíð
ENGIN lausn hefur enn fundist í
deilu félagsmanna Félags almennra
lækna og stjórnenda Landspítalans
um nýtt vaktaplan spítalans sem
tók gildi 1. apríl. Formaður lækna-
ráðs spítalans hefur reynt að miðla
málum, en án árangurs. Heilbrigð-
isráðherra fylgist með málinu, en
útilokar að ráðuneytið grípi inn í
deiluna. Segir hún aðalatriðið að
öryggi sjúklinga sé ekki ógnað og
að allar vaktir séu mannaðar. »2
Deila almennra lækna og
Landspítalans enn óleyst
Eftir Agnesi Bragadóttur
og Silju Björk Huldudóttur
BRETAR og Hollendingar hafa gefið til kynna að þeir séu
reiðubúnir til þess að falla frá þeim einhliða skilmálum
sem þeir settu Íslendingum, eftir þjóðaratkvæðagreiðslu,
fyrir áframhaldandi samningaviðræðum um lausn Ice-
save-deilunnar. Líkur eru taldar á því að samningavið-
ræður hefjist á ný í vikunni eftir páska, enda eru viðmæl-
endur Morgunblaðsins á því að skammur tími sé til stefnu,
þar sem væntanlega verði boðað til þingkosninga í Bret-
landi alveg á næstunni.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, baðst und-
an því að fara ofan í einstök atriði samningaviðræðnanna
þegar leitað var upplýsinga hjá honum í gærkvöldi. Sagði
hann vonir manna standa til þess að fundað yrði í málinu
fljótlega eftir páska en tók fram að ekki væri enn búið að
tímasetja slíkan fund. Aðspurður sagði hann ljóst að erf-
iðlegar hefði gengið að fá menn að samningaborðinu eftir
þjóðaratkvæðagreiðsluna og tók fram að það skýrðist af
ýmsum þáttum en vildi ekki fara nánar út í þá.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins,
segir sjálfsagt og eðlilegt að styðja viðræðuferlið áfram,
„enda séu engin einhliða skilyrði uppi af hálfu viðsemj-
enda okkar. Ég er sáttur við það, að þeir falli frá slíkum
skilyrðum, enda kom aldrei til greina að viðræðurnar
færu fram undir einhverjum afarkostum.“
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði
í gær að það væri mjög jákvætt ef Bretar og Hollendingar
hefðu sent skilaboð um að þeir væru reiðubúnir til frekari
viðræðna, án einhliða skilmála. Hún telur ekki óhugsandi
að fundur utanríkismálanefndar Alþingis með hluta af
fjárlaga- og utanríkismálanefndum breska þingsins, hafi
skilað árangri. „Við fundum fyrir miklum velvilja hjá
bresku utanríkismálanefndinni,“ segir Birgitta.
Falla frá skilmálum | 8
Falla frá einhliða
Icesave-skilmálum
Fjármálaráðherra segir ekki búið að tímasetja næsta fund
Stjórnarandstaðan fagnar nýjustu skilaboðunum að utan
» Samningstímaramminn er þröngur
» Vilja semja fyrir kosningar 6. maí
» Óformlegar viðræður og þreifingar
» Sögðu skilmálana óaðgengilega
ELDGOSIÐ á
Fimmvörðuhálsi
er síst í rénun og
jarðskjálftamæl-
ar sýna tals-
verðan titring.
Gæti gosið allt
eins haldið áfram
næstu vikur, að
sögn jarðvísinda-
manna. Mikill
fjöldi fólks var á
ferðinni eystra í gær, þar sem veð-
ur var rysjótt. Enginn lenti í telj-
andi óhöppum, svo vitað sé. » 2
Talsverður titringur og
margir á gosstöðvunum
Eldgosið er sagt
vera síst í rénun.
BÚIST er við
því að árið í ár
verði metár í
ferðaþjónustu
hér á landi. Er-
lendir ferða-
menn halda
áfram að
streyma til lands-
ins og Íslend-
ingar virðast
vera að búa sig
undir að fara oftar til útlanda.
Sonja Magnúsdóttir, sölu- og
markaðsstjóri Ferðaskrifstofu Guð-
mundar Jónassonar, óttast að
skortur verði á gistingu við Skafta-
fell og Mývatn. »26
Allt stefnir í metár í
ferðaþjónustu hér á landi
Á ferð Ferðamönn-
um fjölgar í ár.