Morgunblaðið - 03.04.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út þriðjudaginn 6. apríl en
fréttaþjónusta verður að vanda
á Fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is, páskadagana. Ábend-
ingum um fréttir má koma á
netfangið netfrett@mbl.is.
Andlátstilkynningar er hægt
að bóka alla páskana í gegnum
forsíðu mbl.is.
Símanúmer Morgunblaðsins
er 569-1100 og netfang blaðsins
er ritstjorn@mbl.is.
Fréttaþjón-
usta á mbl.is
„VIÐ lögðum fram sáttatilboð 31. mars en því hef-
ur enn ekki verið svarað af hálfu spítalans,“ segir
Gunnar Thoroddsen, stjórnarmaður í Félagi al-
mennra lækna (FAL) og talsmaður félagsins í
yfirstandandi deilu um nýtt vaktaplan á Landspít-
alanum. Í tilboðinu felst, að sögn Gunnars, að inn-
leiðingu vaktaplansins verði frestað á meðan
nefnd vinni að því að smíða nýtt vaktaplan sem
mæti markmiðum spítalans og standist lög um há-
marksvinnutíma, þ.e. að vinnuvika sé ekki lengri
en 48 klst. en samkvæmt nýju vaktaplani er með-
alvinnutími á viku hátt í 60 klst.
Stjórnendur Landspítalans líta svo á að ráðn-
ingarsamningur spítalans við almenna lækna sé
enn í fullu gildi og því sé vinnustöðvun þeirra ólög-
mæt þvingunaraðgerð. Þessu vísar stjórn FAL á
bug. Gunnar bendir á að félagsmönnum hafi um
síðustu áramót verið gefinn kostur á að mótmæla
nýju vaktaplani skriflega eða hlíta henni og halda
áfram vinnu sinni. „Yfirgnæfandi meirihluti fé-
lagsmanna mótmælti bréflega og 1. apríl var því
hefðbundinn uppsagnarfrestur liðinn,“ segir
Gunnar og bendir á að túlkun FAL sé studd af lög-
fræðingi Læknafélags Íslands.
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, seg-
ist fylgjast með deilunni og vonast eftir að hún
leysist sem fyrst. „Ég hef fregnir af því að menn
séu að tala saman undir forystu formanns lækna-
ráðs spítalans þannig að það hlýtur að vera góðs
viti,“ segir Álfhildur og tekur fram að aðalatriðið
við núverandi aðstæður sé að öryggi sjúklinga sé
tryggt og allar vaktir mannaðar.
Ekki náðist í Þorbjörn Jónsson, formann
læknaráðs Landspítalans, við vinnslu fréttarinnar
í gærkvöldi, en hann er sáttasemjari í deilunni.
silja@mbl.is
Læknadeila enn í hnút
Félag ungra lækna bíður eftir svari við sáttatilboði sínu Landspítalinn telur
ráðningarsamning spítalans við almenna lækna enn í fullu gildi og að efna beri hann
» 65 almennir læknar á LSH létu
af störfum um sl. mánaðamót
» Stjórnendur LSH telja um
ólögmæta aðgerð að ræða
Á SJÖTTA þúsund manns voru í Hlíðarfjalli við
Akureyri í gær, sem er met. Aðstæður til skíða-
iðkunar voru hinar bestu og urðu bílastæði við
skíðastaði snemma full. Margir lögðu bílum sín-
um á Rangárvöllum, ofan við bæinn, þaðan sem
voru rútuferðir í fjallið. Spáð er rysjóttu veðri
nyrðra í dag en góðu á páskadag og býst Guð-
mundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðar-
fjalli, við að margir muni þá bregða sér á skíði.
Morgunblaðið / Skapti Hallgrímsson
METAÐSÓKN Í HLÍÐARFJALLI
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
„ÓRÓI í nágrenni gosstöðvanna er
síst að minnka og mælar í Goðalandi
og undir Eyjafjöllum sýna titring. Á
þessari stundu sést hins vegar lítið
til eldgossins og við getum því lítið
sagt til um framvindu þess en það
gæti haldið svona áfram næstu vik-
urnar,“ sagði Magnús Tumi Guð-
mundsson jarðeðlisfræðingur í sam-
tali við Morgunblaðið.
Slæmt veður var á Fimmvörðu-
hálsi í gær, snjókoma og hvassviðri
og gekk á með dimmum éljum. Ekki
var þó vitað til þess að fólk hefði lent
alvarlegum í vandræðum vegna
þessa, skv. upplýsingum frá lögregl-
unni á Hvolsvelli. Björgunarsveit-
armenn voru á Fimmvörðuhálsi í
gær og voru vaktaskipti hjá þeim
síðdegis í gær. Eitthvað var um að
fólk fengi far með þeim til byggða en
margir gengu á hálsinn upp frá
Skógum og vélsleðamenn hafa
gjarnan lagt upp af Sólheimajökli í
Mýrdal.
Slysavarnafélagið Landsbjörg sá í
gær ástæðu til þess að vara við
sprungum á Mýrdalsjökli þar sem
þeir sem eru á ferð um jökulinn voru
hvattir til að nýta sér upplýsingar
um skráða GPS-ferla. Jöklafarar
hafa verið að færa sig sífellt utar í þá
slóð sem þar hefur myndast. Þetta
þýðir að slóðin er komin nærri
sprungusvæði og segir Landsbjörg
að þegar hafi komið tilvik þar sem
farartæki hafa lent í sprungum.
Mikil þátttaka
Mikil þátttaka hefur verið í leið-
öngrum ferðafélaganna að gosstöðv-
unum. Á skírdag fóru 150 manns
með Ferðafélagi Íslands austur á
bóginn, þar sem byrjað var með
göngu á Þríhyrning þar sem sést vel
til Fimmvörðuháls. Eftir það fór
hluti hópsins í Þórsmörk þar sem
gengið var upp á Morinsheiði, sem
er rétt við eldsprungurnar. Úr þeirri
ferð kom fólk um miðja nótt. Stór
hópur fór með FÍ austur í gær og
margir ætla með félaginu á sömu
slóðir um páskadagana.
Gosið síst á undanhaldi
Mælar sýna óróa Hugsanlega eldgos næstu vikurnar Slæmt veður á
gosstöðvum í gær Engin óhöpp sem vitað er um Margir með ferðafélögunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á gosstöðvum Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að gosinu um bænadagana.
Sprungan sem myndaðist á miðvikudagskvöld hefur mikið aðdráttarafl.
FARIÐ var með
um 140 tonn af
langreyðarkjöti í
land í Rotterdam
eftir að hópur hol-
lenskra grænfrið-
unga hlekkjaði
sig við landfestar
flutningaskips í
höfninni. Kristján
Loftsson, forstjóri
Hvals, er afar ósáttur við lélegt eftir-
lit hafnaryfirvalda og telur um mik-
inn álitshnekki fyrir höfnina að ræða
en hún er ein sú stærsta í Evrópu. Að
hans sögn létu eigendur skipsins und-
an hótunum grænfriðunga um að
flytja kjötið til hafnar, en öll tilskilin
leyfi fylgdu kjötinu.
Aðspurður segist hann ekki hafa
áhyggjur af kjötinu enda sé það
geymt við góðar aðstæður í sjö kæli-
geymslum. Segir hann að kjötið verði
annaðhvort flutt til Japans eins og
upphaflega stóð til eða til Íslands,
verði töf í Hollandi.
Langreyðarkjöt-
ið strandaglóp-
ur í Hollandi
Kristján
Loftsson
HÓPUR fólks
tók yfir hús á
Vesturgötu 51 í
Reykjavík í gær.
Umrætt hús hef-
ur verið í niður-
níðslu og hefur
útigangsfólk
gert sig þar
heimakomið.
Hústökufólkið
ætlar að gera húsið að félagsrými
og vera þar með róttækt starf
gegn auðvaldi, elda mat saman og
fleira skv. tilkynningu. Lögreglan
fylgist með framvindunni en hafði
í gærkvöld ekki farið í neinar að-
gerðir.
Róttækir
tóku yfir hús
á Vesturgötu
Hústaka við Vatns-
stíg fyrir nokkru.
MARGIR létu glepjast af gabbfrétt
Morgunblaðsins á skírdag, 1. apríl,
þar sem sagt var frá því að keppt
yrði í kattasmölun í höfuðstöðvum
Kattavinafélagsins. Sigríður Heið-
berg, formaður Kattavinafélagsins,
segir marga hafa hringt í Kattholt
til að kanna hvort þetta væri ekki
örugglega gabbfrétt en hún segist
hafa neitað því.
Þá var frétt í Morgunblaðinu um
gjörning nemenda í LHÍ, það er
nakin kona í búri og á hlaupahjóli
að auki, með jakkafataklædda
menn á hælunum, hreinn hugar-
burður blaðamanna.
Kattasmölun og
nakin kona voru
gabbfréttir