Morgunblaðið - 03.04.2010, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.04.2010, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „ÁST mín á eiturlyfjum var sterk- ari öllu öðru. Í fyrsta sinn sem ég komst í vímu var sem ég hefði fundið sjálfa mig og það markaði framhaldið. Við tóku erfið ár og þegar ég lít til baka er saga mín býsna sorgleg. Á síðustu árum hefur hins vegar mikið verið að rofa til og þar á ég Kvennasmiðj- unni mikið að þakka,“ segir María Sif Ericsdóttir. Evrópuárið 2010, sem helgað er baráttunni gegn fátækt og fé- lagslegri einangrun, hófst form- lega á dögunum með ráðstefnu á vegum félags- og trygginga- málaráðuneytis. Þar voru kynnt úrræði sem hafa gefist vel til að bæta aðstæður fólks og rjúfa fé- lagslega einangrun. Kvennasmiðj- an er samstarfsverkefni Trygg- ingastofnunar ríkisins og velferðarsviðs Reykjavíkur. Fjöldi ungra kvenna, sem hafa búið við erfiðar félagslegar aðstæður, hef- ur á vettvangi smiðjunnar fengið fræðslu og stuðning og þannig komist á beina braut til að skapa sér og sínum betra líf. María Sif lauk átján mánaða námi í Kvenna- smiðjunni fyrir tæpum tveimur ár- um sem hún segir hafa valdið straumhvörfum í sínu lífi. Kynntist aldrei fjölskyldulífi „Báðir foreldrar mínir voru virkir fíklar og framan af kynntist ég aldrei eðlilegu fjölskyldulífi. Ég hraktist úr einum stað í annan og fann mig hvergi. Tíu ára gamalli var mér komið í fóstur hjá fjöl- skyldu í Mosfellsbæ sem reyndist mér vel. Samt ánetjaðist ég vímu- efnum mjög ung, til að mynda ró- andi lyfjum sem voru læknadóp. Ég átti vissulega stundum mína edrútíma en vantaði samt alla fót- festu í lífinu,“ segir María Sif sem eignaðist stúlku, sitt fyrsta barn, árið 1997. Dóttirin var ekki gömul þegar María missti tök á neyslunni og í framhaldi af því slitnaði upp úr sambandi Maríu og barnsföður hennar. Hann fékk forræðið og María fékk ekki að hitta dótturina nema undir eftirliti. „Stundum var ég í vímu þegar ég hitti dótturina og í annan tíma henti að ég hélt ekki út þann stutta tíma sem við máttum eiga saman. Og samt var þetta barnið mitt; sú manneskja sem ég elskaði öllum öðrum meira,“ segir María Sif sem kveðst á þessum tíma hafa upplifað algjört niðurbrot í sálar- lífinu. Hún eignaðist aðra dóttur í mars 2005 en var á þeim tíma langt leidd í neyslu. Á haustdögum 2005 komst María Sif í sex mánaða vímuefnameðferð í Krýsuvík. Þar kveðst hún hafa fengið stuðning og smám saman fór að sjást til sólar. Innihaldsríkt nám Í Krýsuvík kynntist María Sif sambýlismanni sínum og saman eiga þau son sem núna er eins og hálfs árs. „Áður sá ég varla tilgang í því að fara á fætur; klæða mig og greiða mér. Félagsráðgjafinn hjá Reykjavíkurborg sem ég var í tengslum við hjálpaði mér hins vegar að finna þá möguleika sem voru í stöðunni. Námið í Kvenna- smiðjunni var mér nánast opinber- un og ég gerði mér ljóst að ég gæti lært eins og aðrir,“ segir María sem í dag stundar nám á sjúkraliðabraut Fjölbrautaskólans í Ármúla í Reykjavík en stefnir á hjúkrunarnám í fyllingu tímans. „Mikilvægasta verkefni mitt í dag er að vera börnunum mínum góð og sterk fyrirmynd og búa þeim öruggt heimili. Í því bý ég að mörgu góðu úr innihaldsríku námi í Kvennasmiðjunni.“ Kvennasmiðjan var opinberun Morgunblaðið / Kristinn Mamma María Sif Ericsdóttir ásamt börnum sínum. Hún segir Kvennasmiðjuna hafa verið sér mikils virði. Eftir vímuefnaneyslu komst hún á beina braut og er í dag í sjúkraliðanámi í Fjölbrautaskólanum í Ármúla.  Sorgleg saga varð sigur  Vann sig út úr vímuefnaneyslu  Foreldrarnir voru fíklar  Á Kvennasmiðju mikið að þakka  Er í sjúkraliðanámi og stefnir á hjúkrun  Þriggja barna móðir Í HNOTSKURN » Fíknin í eiturlyf var ölluöðru sterkari og um þau snerist tilvera Maríu Sifjar, sem náði áttum í langtíma- meðferð í Krýsuvík 2005. » Mikilvægast að verabörnunum mínum fyr- irmynd og búa þeim öruggt heimili. » Kvennasmiðjan hjálpaðiMaríu eins og fjölda ann- arra kvenna. 2010 er Evr- ópuár helgað baráttu gegn fátækt og félagslegri ein- angrun. Kvennasmiðjan er samstarfsverk- efni Tryggingastofnunar ríkisins og velferðarsviðs Reykjavíkur. Alls hafa 13 hópar hafið starfsemi frá því í apríl 2001 þegar þetta úrræði var sett á laggirnar. Frá byrjun hafa 190 konur komið í smiðjuna og 111 þeirra útskrifast eftir fulla dvöl. Í dag eru tveir hópar starf- andi með 30 konum. Nám í Kvennasmiðjunni er átján mánuðir. Nemar fá greidda endur- hæfingarörorku frá TR á námstím- anum en Reykjavíkurborg greiðir námskostnað. Markmið Kvenna- smiðjunnar er að auka lífsgæði einstæðra mæðra sem búa við fé- lagslega erfiðleika og styðja þær til sjálfshjálpar. Gert er ráð fyrir því að þátttak- endur Kvennasmiðjunnar taki virk- an þátt og mæti stundvíslega í alla tíma. Nemendur fá dagbækur og er stöðugt unnið að betra skipu- lagi og stundvísi. Áhugi nemenda er kannaður reglulega og síðan er leitast við að koma til móts við óskir þeirra. Reglulega er gert mat á starfseminni. Vonir þeirra sem stjórna Kvennasmiðjunni eru þær að lífsgæði nema aukist við þátt- tökuna, að þeir komist út á vinnu- markað, í áframhaldandi nám eða í frekari endurhæfingu. Markmið að auka lífsgæði kvennanna Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „ÞAÐ er fínt að vera sveitarstjóri ef maður hefur ekkert annað að gera,“ segir Elvar Eyvindsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra. Hann er bóndi á Skíðbakka í Aust- ur-Landeyjum og bætti við sig starfi sveit- arstjóra þegar Unnur Brá Konráðsdóttir fór í fæðingarorlof og síðan á þing. Mikið hefur mætt á forystumönnum Rangárþings eystra síðustu dagana, vegna eldgossins á Fimmvörðuhálsi. Elvar er ekki að vísa til þess þegar hann ræðir um annir í starfi, heldur til þess að hann er jafn- framt með stórt kúabú. Hann segir að þótt starf sveitarstjóra sé áhugavert taki hann búskapinn framyfir, komi til þess eftir næstu kosningar að hann verði í aðstöðu til þess að velja. Hann leysir málin með því að ráða vinnu- mann en gengur sjálfur í verkin eftir því sem aðstæður leyfa. Átthagafjötrar „Búskapurinn er lífsstíll. Mér þykir vænt um staðinn sem hefur gengið mann fram af manni í fjölskyldu minni í næstum hundrað ár. Það má kannski segja að þetta séu átt- hagafjötrar en ég nýt þessa starfs,“ segir Elvar. Hann tekur undir það að þótt starf sveit- arstjóra sé með óöruggustu störfum sem hægt er að finna sé ekki sérlega bjart yfir búskapnum heldur. „Það er í raun og veru ekki glóra í því að stunda búrekstur og hefur sennilega aldrei verið. En í þessu starfi fæ ég lífsfyllingu.“ Þarf að vernda ræktanlegt land Bakgrunnur Elvars kemur meðal annars fram í áherslum hans og áhuga í sveit- arstjórn. Hann vill til dæmis reyna að finna leiðir til þess að tryggja að besta rækt- unarlandinu verði ekki spillt með því að taka það undir aðra starfsemi til fram- búðar. Það verði hæft til matvælafram- leiðslu þegar á þurfi að halda. „Það hefur nýlega komið fram að enn er óráðstafað góðu ræktanlegu landi, um 40 þúsund hekturum. Ég gæti trúað því að þriðjungur þess eða jafnvel helmingur væri í Rangárþingi eystra. Landeyjarnar og Eyjafjöllin eru frjósamt land og vel fallið til ræktunar. Við verðum að reyna að vernda það,“ segir Elvar. Hann sér ógnina í því að jarðirnar skipt- ist smám saman upp og komist í eigu margra. Einnig að skipulögð verði sum- arhúsabyggð á landi sem henti betur til ræktunar. „Við eigum mikið af góðu landi fyrir sumarhúsabyggðar, við eigum að beina þeim þangað,“ segir sveitarstjórinn. Sveitarfélögin hafa skipulagsvaldið en Elvar gerir sér grein fyrir því að það geti verið erfitt gagnvart núverandi eigendum landsins að setja kvaðir á það í skipulagi og stýra þannig þróuninni. Tekur hann fram að gæta þurfi hófs og reyna að sætta sjónarmið eins og mögulegt er. Það sé hins vegar nauðsynlegt að marka stefnuna, ef þessi markmið eigi að nást. Sveitarfélagið verði að hugsa um heildarhagsmuni. „Ég lít á ræktanlegt land sem auðlind, ekki síð- ur en vatnið, sem beri að vernda,“ segir Elvar. Búskapurinn er lífsstíll  Sveitarstjórinn í Rangárþingi eystra hefur haft í nógu að snúast vegna eldgossins  Tekur bú- skapinn fram yfir pólitíkina  Segir að gott ræktanlegt land sé auðlind sem vernda ber til framtíðar Morgunblaðið/RAX Bóndi og sveitarstjóri Elvar Eyvindsson sveitarstjóri í Rangárþingi eystra metur starf bónd- ans mikils, segir að það gefi sér lífsfyllingu, þótt hann telji ekki glóru í því að stunda búrekstur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.