Morgunblaðið - 03.04.2010, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið laugardaginn 3. apríl kl. 11–14
Listmunauppboð í apríl
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma
551-0400, 896-6511 (Tryggvi),
845-0450 (Jóhann)
Síðustu forvöð að koma verkum inn á næsta
listmunauppboð
VIÐ innritun í framhaldsskóla þetta vorið verður tek-
ið upp það vinnulag að nýnemar úr hverfisgrunn-
skólum fá forgang inn í hverfisframhaldsskólana svo
fremi að þeir uppfylli inntökuskilyrði og pláss er í
skólanum. „Hver framhaldsskóli verður að lágmarki
að ætla fyrir forgangshópinn 45% af þeim plássum
sem hann hefur fyrir nýnemana,“ segir Þórir Ólafs-
son, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu. Að hans sögn hefur ekki verið tekin ákvörð-
un um að breyta fyrirkomulagi námsmats við lok
grunnskólans, þannig að áfram eru það skólaeinkunn-
irnar sem gilda.
Inntökukerfi framhaldsskólanna mætti töluverðri
gagnrýni í fyrra og var á það bent á að grunnskól-
arnir hefðu ekki nægan ramma frá menntamálaráðu-
neytinu um hvernig skólaeinkunn skyldi fundin sem
gæti leitt til þess að skólaeinkunnir milli skóla væru
ekki sambærilegar. Að sögn Þóris hafa starfsmenn
ráðuneytisins skoðað meint misræmi í skóla-
einkunnum. „Okkar niðurstaða leiddi í ljós að það
væri ekki meira flökt á skólaeinkunnum almennt litið
yfir landið á árunum 2008 og 2009 en var á einkunn-
um í samræmdu prófunum t.d. árin 2005 og 2006.“
Að sögn Þóris er nú unnið að setningu nýrrar nám-
skrár sem m.a. hefur að geyma samræmd viðmið eða
leiðbeiningar um uppbyggingu námskráa á grunn- og
framhaldsskólastigi, en ekki er reiknað með að þær
verði komnar til framkvæmda fyrr en haustið 2010.
„Þá verða komin skýrari viðmið um námsmat í
grunnskóla þannig að þau rími betur við kröfur fram-
haldsskólans um undirbúning.“ silja@mbl.is
Fá forgang í hverfisskóla
Áfram verður stuðst við skólaeinkunn þegar kemur að inn-
ritun í framhaldsskóla Forinnritun á netinu 12.-16. apríl
» 4.500 nemendur ljúka 10. bekk
í vor, en þeir voru 4.700 í fyrra
» Aðsóknarhlutfall í framhaldsskóla
2009 var tæp 96%
„MÉR vitanlega er þetta fyrsta útimessan við
Esjurætur, alla vega á þessum stað,“ segir Gunn-
ar Kristjánsson, prófastur á Reynivöllum, sem
messaði við Esjurætur í gær, föstudaginn langa.
Að sögn Gunnars minntist hann þjóðskáldsins
séra Matthíasar Jochumssonar sem bjó undir
vesturhlíðum Esjunnar, en sunginn var eftir
hann sálmur. „Síðan lagði ég út af lokakafla
Heimsljóss eftir Halldór Laxness þar sem Ólafur
Kárason gengur á jökulinn þar sem fegurðin er
lykilhugtak,“ segir Gunnar, en eins og margir
vita þá er Ólafur Kárason í vissum skilningi eft-
irmynd Jesú. „En í þessum lokakafla birtist stef-
ið í textanum: „Bráðum skín sól uppprisudags-
ins“ og ég tengdi þetta hvort tveggja saman, þ.e.
föstudaginn langa og páskadag,“ segir Gunnar.
Aðspurður segir hann frekar fámennt hafa verið
í messunni sem skýrist sennilega af því annars
vegar hversu kalt var í veðri og hins vegar því að
margt göngufólk kaus að fara á gosslóðir um
páskana í stað þess að ganga á Esjuna eins og
venjulega. „En þetta var mjög ánægjuleg stund,
þótt veðrið hefði ekki verið það besta fyrir úti-
messu,“ segir Gunnar.
Morgunblaðið/Kristinn
MESSAÐ VIÐ ESJURÆTUR Á FÖSTUDEGINUM LANGA
JÓN Magnússon, fyrrverandi sýslu-
maður, lést á St. Franciskusspít-
alanum í Stykkishólmi 30. mars síð-
astliðinn. Hann var á 84. aldursári.
Jón fæddist á Eskifirði 30. nóv-
ember 1926. Foreldrar hans voru
Magnús Gíslason, sýslumaður á
Eskifirði, síðar alþingismaður og
skrifstofustjóri í fjármálaráðuneyt-
inu, og Guðrún Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja.
Jón var skipaður sýslumaður í
Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu
með aðsetur í Stykkishólmi og bæj-
arfógeti í Ólafsvík árið 1989. Hann
gegndi því embætti til ársins 1992.
Eftirlifandi eiginkona Jóns er
Katrín Sigurjónsdóttir og eignuðust
þau átta börn. Útför Jóns verður
gerð frá Stykkishólmskirkju 6. apríl
og hefst klukkan 14.00.
Andlát
Jón
Magnússon
„OKKAR ráðgjöf frá því í fyrra
stendur algjörlega þangað til við
höfum farið yfir nýjar upplýsingar
sem úttekt á þessu vori byggist á.
Þannig að við gerum ekki ráð fyrir
að endurskoða okkar ráðgjöf núna á
þessu stigi,“ segir Jóhann Sig-
urjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunarinnar.
Í grein eftir Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra, sem birtist
í Fréttablaðinu á skírdag, segir hún
skort á aflaheimildum í sumar vera
áhyggjuefni og að skoða ætti hvort
hægt væri að auka aflaheimildir
tímabundið til að kljást við þann
vanda innan forsvaranlegra marka.
Eins og fram hefur komið er kvóti
víða í byggðum að klárast en þá tek-
ur við nokkurra mánaða atvinnuleysi
hjá mörgu fiskverkafólki.
Að sögn Jóhanns hefst senn árleg
úttekt Hafró á
ástandi fiski-
stofnanna, en hún
byggist m.a. á ný-
legum stofnmæl-
ingum botnfiska,
svokölluðu tog-
araralli, netaralli
á hrygningaslóð
sem fram fer eftir
páska sem og
greiningu á gögn-
um um aflabrögð á þessu og síðasta
ári. Ný úttekt og ráðgjöf Hafró verð-
ur síðan kynnt innan tveggja mán-
aða. „Og mun þá miðast við það fisk-
veiðiár sem hefst 1. september nk.“
Aðspurður hvort Hafró muni þá
ekki tjá sig um hugsanlegar auknar
aflaheimildir í sumar segir Jóhann
að slíkt væri úr fasa þess sem venja
er, auk þess sem í gildi sé aflaregla
sem miðað er við að fylgt sé. „Auð-
vitað vonumst við til þess að þær að-
gerðir sem stjórnvöld hafa efnt til og
stofnunin lagt til á undanförnum
misserum leiði til styrkingar stofns-
ins og á síðasta ári er ýmislegt sem
við höfum séð sem bendir til þess að
svo sé. Þannig að það eitt og sér gæti
leitt til þess að einhverjir mögu-
leikar væru á aukningu á næsta fisk-
veiðiári,“ segir Jóhann. Leggur
hann áherslu á að mikilvægt sé að
hafa í huga að þeir árgangar sem séu
að vaxa upp nú um stundir og bera
muni uppi veiðina séu slakir. „Af
þeim sökum höfum við talið svona
mikilvægt að takmarka veiðarnar.
Það er árgangur 2008 sem við bind-
um vonir við og ef það koma fleiri
slíkir þá verður eftir nokkur ár hægt
að auka heimildirnar verulega. Það
er ekki að tilefnislausu sem við höf-
um verið að mæla með niðurskurði.
Það er einfaldlega vegna þess að við
töldum annað ekki vera forsvar-
anlegt til framtíðar litið.“
Ekki reyndist unnt að fá viðbrögð
Jóns Bjarnasonar, sjávar- og land-
búnaðarráðherra, við hugmyndum
forsætisráðherra. silja@mbl.is
Ráðgjöf Hafró stendur
Forsætisráðherra hefur áhyggjur af skorti á aflaheimildum í sumar og úti-
lokar ekki að auka kvóta Úttekt Hafró fyrir næsta fiskveiðiár kynnt í vor
Í HNOTSKURN
»Hafró veitti í júní í fyrrafiskveiðiráðgjöf fyrir fisk-
veiðiárið sem lýkur 1. sept-
ember nk.
»Víða í byggðum landsinser kvóti að klárast og þá
tekur við nokkurra mánaða
atvinnuleysi hjá mörgu fisk-
verkafólki.
Jóhann
Sigurjónsson
ENN er óljóst hvað olli flugslysinu
við Flúðir á fimmtudag þar sem lítil
einkaflugvél brotlenti eftir hringsól
yfir sumarhúsahverfi þar sem vélin
missti afl. Flugmaður og farþegarnir
þrír voru fluttir á Landspítalann í
Reykjavík. Þrír voru lagðir inn á
gjörgæslu en tveir voru útskrifaðir í
gær. Líðan þess þriðja var stöðug,
að sögn læknis.
Starfsmenn Rannsóknarnefndar
flugslysa luku starfi á vettvangi
samdægurs. Frekari rannsókn fer
fram eftir hátíðir. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Guðmundur Karl
Brotlenti Cessnan er mikið skemmd.
Flugslysið
í rannsókn