Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
Tugir þúsunda deyja í umferðar-slysum í Bandaríkjunum. Hlut-
fallið er svipað í öðrum löndum.
Dánartíðni er meiri en í þeim styrj-
öldum sem nú ber hæst í fréttum.
Þessi staðreynd gerir stríð ekki
betri og því síður réttlætir hún þau.
Mörg þessaraslysa koma
til vegna van-
rækslu öku-
manna, stundum
mjög alvarlegrar.
Ölvunarakstur er
dæmi um það.
Ekki verður þess
vart að lögreglu
eða umferðarráði
sé almennt kennt um slík slys.
Slíkar sakbendingar sjást iðulega íöðrum tilvikum.
Andríki vitnar á vef sínum í nýlegtviðtal við nóbelsverðlaunahaf-
ann Gary Becker. Hann er spurður
um hvort hann kenni frjálsu hag-
kerfi um yfirstandandi kreppu.
Hann svarar:
Líttu bara á hina auknu hagsæld íþróuðu löndunum frá seinna
stríði. Jafnvel þótt þú takir hinar
ýmsu kreppur, þar á meðal þessa,
lítur heildarmyndin vel út. Svo jafn-
vel þótt kreppur á borð við þessa
væru gjaldið fyrir frjálsan markað –
sem ég tel ekki rétt þar sem ríkisaf-
skipti eiga svo stóran þátt í þeim
vandræðum sem blasa nú við okkur
– já jafnvel þótt slæm kreppa væri
gjaldið myndu menn engu að síður
telja það réttlætanlegt.
Líttu einnig á þróunarlöndin,
Kína, Indland og Brasilíu. Þar hefur
milljarður manna brotist úr örbirgð
frá 1990 vegna þess að þessi lönd
hafa fært sig í átt að frjálsum mark-
aði. Enginn krefst þess að snúið
verði af þessari braut.“
Augljóst er að það láta ekki allirruglið rugla sig.
Gary Becker
Sakbendingar út úr kú
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
3. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:39 20:25
ÍSAFJÖRÐUR 6:39 20:34
SIGLUFJÖRÐUR 6:21 20:17
DJÚPIVOGUR 6:07 19:55
FRÉTTASKÝRING
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
BRETAR og Hollendingar hafa gef-
ið til kynna að þeir séu reiðubúnir til
þess að falla frá þeim einhliða skil-
málum sem þeir settu Íslendingum,
eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, fyrir
áframhaldandi samningaviðræðum
um lausn Icesave-deilunnar. Líkur
eru taldar á því að samninga-
viðræður hefjist á ný í vikunni eftir
páska, enda eru viðmælendur Morg-
unblaðsins á því að skammur tími sé
til stefnu, þar sem líkur séu á því að
boðað verði til þingkosninga í Bret-
landi alveg á næstunni.
„Mér finnst nú kannski ekki
ástæða til þess að gera of mikið úr
þessum meldingum frá Bretum og
Hollendingum. Það hefur verið sam-
band á milli aðila allan tímann, en
það er enn ekkert fast í hendi,“ sagði
viðmælandi Morgunblaðsins í gær
og bætti við: „Þótt vissulega sé það
jákvætt ef þeir eru reiðubúnir til
þess að ræða áfram við okkur án
þessara einhliða skilmála.“
Skilmálarnir óviðunandi
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins voru skilmálar Breta og
Hollendinga fyrir áframhaldandi
samningaviðræðum óviðunandi í
augum íslensku samninganefnd-
arinnar og óformlegar viðræður og
þreifingar hafa átt sér stað undan-
farnar vikur um þessa skilmála á
milli fulltrúa Breta, Hollendinga og
Íslendinga, auk þess sem Lee Buch-
heit, formaður íslensku samninga-
nefndarinnar, hefur verið í við-
ræðum við Breta og Hollendinga og
reynt að leiða þeim fyrir sjónir
hversu óaðgengilegir skilmálar
þeirra væru.
Meðal þeirra skilmála sem Bretar
og Hollendingar settu eftir þjóðar-
atkvæðagreiðsluna 6. mars sl. var að
Íslendingar féllust á að lánaskjölin
eins og Bretar og Hollendingar út-
bjuggu þau yrðu lögð til grundvall-
ar; að Íslendingar féllust á að falla
frá því að setja lagalega fyrirvara í
samkomulagið, sem ekki voru í fyrri
samningum; og að Íslendingar féllu
frá frekari eftirgjöf Breta og Hol-
lendinga hvað varðar vexti á lán-
unum og upphæð höfuðstóls lán-
anna.
Buchheit harður á móti
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins var Lee Buchheit mjög
harður á því að þessir skilmálar
Breta og Hollendinga væru al-
gjörlega óboðlegir Íslendingum og
ekki kæmi til greina að viðræðunum
yrði haldið áfram á grundvelli ein-
hliða skilyrða Breta og Hollendinga.
Á þeim vikum sem liðnar eru frá
þjóðaratkvæðagreiðslu hafa mál
smámsaman þokast í þá átt, að Bret-
ar og Hollendingar eru sagðir reiðu-
búnir til þess að falla frá þessum ein-
hliða skilmálum og taka upp
viðræður á nýjan leik.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins funduðu samninga-
nefndir Breta og Hollendinga nýver-
ið í Lundúnum, þar sem farið var
yfir stöðuna og sjónarmið samræmd.
Þá kom hollenskur sendifulltrúi
frá sendiráði Hollands í Noregi
hingað til lands til þess að hitta full-
trúa allra íslensku stjórnmálaflokk-
anna og kanna hver viðhorfin væru
til áframhaldandi samninga-
viðræðna.
Eins og áður hefur komið fram
fóru fulltrúar utanríkismálanefndar
Alþingis til Lundúna og hittu að máli
fulltrúa fjárlaga- og utanríkismála-
nefnda breska þingsins.
Tímaramminn þröngur
Bretar og Hollendingar hafa nú
sent þau boð til Íslands, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, að þeir
séu nú reiðubúnir til þess að setjast
að samningaborðinu á nýjan leik og
taka upp þráðinn þar sem frá var
horfið.
Talið er að ekki sé mikill tími til
stefnu, því líklegt er talið að innan
fárra daga verði boðað til þingkosn-
inga í Bretlandi og er jafnvel búist
við að þær kosningar fari fram í maí-
byrjun. Því verði sá tímarammi sem
menn hafa, verði sest að samningum
á ný nú eftir páska, mjög þröngur,
vika eða svo, eigi samningur að
liggja fyrir áður en kosningar verða
í Bretlandi.
Falla frá skilmálum
Bretar og Hollendingar eru reiðubúnir til frekari viðræðna við Íslendinga um Ice-
save Líkur eru taldar á því að samningaviðræður hefjist á ný stuttu eftir páska
Bjarni Bene-
diktsson, for-
maður Sjálf-
stæðisflokksins,
var í gær spurð-
ur hvort hann
teldi að einhver
vending væri að
verða í afstöðu
Breta og Hol-
lendinga. „Það
er sjálfsagt og
eðlilegt að styðja viðræðuferlið
áfram, enda séu engin einhliða skil-
yrði uppi af hálfu viðsemjenda okk-
ar. Við komum til þessara viðræðna
á endurnýjuðum forsendum í upp-
hafi og þetta viðræðuferli hefur
dregist, ekki vegna óbilgirni af okk-
ar hálfu, heldur vegna þess að
Bretar og Hollendingar hafa verið
að setja ýmis óaðgengileg skilyrði
fyrir því að viðræðurnar geti átt sér
stað. Ég er sáttur við það, að þeir
falli frá slíkum skilyrðum, enda
kom aldrei til greina að viðræð-
urnar færu fram undir einhverjum
afarkostum.“
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar, sagði í gær: „Ef
Bretar og Hollendingar hafa sent
skilaboð um að
þeir séu reiðu-
búnir til frekari
viðræðna, án
einhliða skil-
mála, er það
mjög jákvætt.
Við í utanríkis-
málanefnd, sem
fórum til fundar
við Breta, náð-
um að mínu
mati, að koma þeim skilaboðum
mjög skýrt á framfæri, þegar við
hittum hluta af fjárlaga- og utan-
ríkismálanefndum breska þingsins,
að það gengi aldrei upp í tvíhliða
samningaviðræðum að annar að-
ilinn væri búinn að setja skilmála,
sem beinlínis lokuðu fyrir ein-
hverjar sættir. Það væri þá ekki
lengur um samningaviðræður að
ræða. Við fundum fyrir miklum vel-
vilja hjá bresku utanríkismála-
nefndinni og það getur vel verið að
sá fundur sé nú að skila einhverjum
árangri.“
Ekki náðist í Steingrím J. Sigfús-
son fjármálaráðherra og Sigmund
Davíð Gunnlaugsson, formann
Framsóknarflokksins, í gær.
Nú sjálfsagt að styðja viðræðurnar
FÁTT minnir meira á árstíðina sem fer senn í hönd, sjálft vorið, en sá við-
burður er bændur fara að dreifa áburði á tún sín. Húsdýraáburður reynist
þá oft vel enda virkar hann eins og vítamínsprauta á grassprettuna.
Á bænum Akri við Hvolsvöll var í vikunni verið að dreifa vænum skammti
af húsdýraáburði á túnin. Fljótlega má búast við að grænir toppar teygi sig
upp úr sverðinum. Þótt jarðeldar logi milli jökla ekki svo ýkja langt í burtu
kippa bændur í nágrenninu sér lítt upp við það og sinna vorverkunum af
natni. sunna@mbl.is
VORVERKIN HAFIN Í SVEITUM LANDSINS
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðmælendur Morgunblaðsins
telja að skammur tími sé til
stefnu til að semja um Icesave
þar sem bráðlega verði boðað til
þingkosninga í Bretlandi.
Veður víða um heim 1.4., kl. 18.00
Reykjavík -1 léttskýjað
Bolungarvík -4 skýjað
Akureyri -6 alskýjað
Egilsstaðir -6 skýjað
Kirkjubæjarkl. 1 léttskýjað
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn 4 skúrir
Ósló 3 skýjað
Kaupmannahöfn 6 léttskýjað
Stokkhólmur 8 léttskýjað
Helsinki 7 skýjað
Lúxemborg 6 léttskýjað
Brussel 8 heiðskírt
Dublin 7 skúrir
Glasgow 7 léttskýjað
London 6 léttskýjað
París 12 heiðskírt
Amsterdam 8 léttskýjað
Hamborg 5 skýjað
Berlín 10 heiðskírt
Vín 16 skýjað
Moskva 10 heiðskírt
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 14 léttskýjað
Mallorca 15 skúrir
Róm 15 léttskýjað
Aþena 18 heiðskírt
Winnipeg 9 alskýjað
Montreal 6 alskýjað
New York 13 heiðskírt
Chicago 21 léttskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Birgitta
Jónsdóttir
Bjarni
Benediktsson.