Morgunblaðið - 03.04.2010, Side 11
Atvinnuhúsnæði til útleigu
Fasteignaþróunarfélagið Klasi auglýsir
eftirfarandi eignir í Reykjavík til útleigu:
Eldshöfði 6:
Um 680 fm iðnaðar- og verslunarhúsnæði
ásamt um 1.500 fm malbikaðri og afgirtri
lóð. Mikil lofthæð og fjölbreyttir nýtingar-
möguleikar. Laust strax.
Eldshöfði 9:
Um 1.500 fm iðnaðar- og verslunarhús-
næði. Góð lofthæð og ástand hússins
gott. Getur mögulega leigst í minni ein-
ingum. Laust strax.
Síðumúli 28:
Um 70 fm skrifstofurými í mjög góðu hús-
næði. Frábær staðsetning og gott að-
gengi. Getur losnað í febrúar.
Síðumúli 28:
Um 215 fm fullbúin tannlæknastofa. Rým-
ið er mjög smekklega innréttað með
þremur stofum auk tannsmíðaverkstæðis.
Losnar í mars.
Allar nánari upplýsingar gefur Halldór í
síma 578 7000 eða halldor@klasihf.is
Klasi ehf - Bíldshöfða 9 - 110 Reykjavík - Sími 578 7000 - Fax 578 7001 - www.klasihf.is
Eldshöfði 6 - iðnaðarhúsnæði - 680 fm auk
lóðar
Eldshöfði 9 - iðnaðarhúsnæði - 1.500 fm
Síðumúli 28 - skrifstofuhúsnæði - 70 fm Síðumúli 28 - tannlæknastofa - 215 fm
Daglegt líf 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
Morgunblaðið/Ásdís
Tæki og tól Það er margt og mikið sem læknar þurfa að kunna.
því og Hlynur segist hafa mestan
áhuga á að fara í sérnám í skurð-
lækningum. Önnu Mjöll finnst aftur
á móti heillandi að verða fæðing-
arlæknir.
Engin skömm að ná ekki
Þau hafa að sjálfsögðu skoðað
sýnishorn af inntökuprófi á netinu
til að vita hverju þau eigi von á, en
þau segjast ekki ætla að undirbúa
sig neitt sérstaklega nema þá helst
með því að rifja upp efnafræðina
sem þau tóku stúdentspróf í í fyrra.
En fyrst og fremst ætla þau að
slappa vel af eftir stúdentsprófin.
„Það skiptir miklu máli að vera vel
hvíld og í góðu formi, því þetta er
tveggja daga stíft próf, í sex tíma
samfellt hvorn daginn.“
Þau segjast ekki finna fyrir mik-
illi pressu um að þau verði að ná
prófinu. „Mér finnst engin skömm
að því að komast ekki inn og heim-
urinn hrynur ekki ef svo fer. Þótt
maður sé ekki meðal þeirra sem
ná, þá er ekki þar með sagt að
maður hafi staðið sig illa, því það
getur munað mjög litlu á þeim sem
komast inn og þeim sem komast
ekki,“ segir Anna Mjöll sem er með
plan B ef hún nær ekki prófinu.
„Þá ætla ég að fara í eitt ár í
hjúkrunarfræði og reyna svo
kannski að sækja um í læknisfræði
í útlöndum á næsta ári.“ Hlynur
hefur aftur á móti ekki ákveðið
hvað hann gerir ef hann kemst ekki
í gegnum nálaraugað. „Ég vona
bara það besta og tek svo ákvörðun
um framhaldið þegar ég fæ að vita
hvort ég hafi náð. Það er sann-
arlega ekki sjálfgefið að komast
inn, samkeppnin er gríðarlega hörð
í þessu prófi.“
Anna Mjöll og Hlynur kveðja
sinn framhaldsskóla í lok maí með
söknuði. „MR er góður skóli og við
kunnum vel við okkur hér. Bekkj-
arkerfið hentar okkur vel og hér er
góð heild og allir þekkjast vel.“
Skurðaðgerð Um þrjúhundruð reyna við læknisfræðina ár hvert.
Ert þú ein/n af þeim sem nota MSN
til að koma stuttum, praktískum
skilaboðum á milli vinnufélaganna?
En ert svo með Gmail þar sem aðrir
vinir og kunningjar poppa upp í tíma
og ótíma á spjallmöguleikanum þar?
Svo er fólk alltaf að reyna að ná í
þig í gegnum Fésbókarspjallið en þú
varst ekki með það uppi við! Og
hvað með myspace-reikninginn sem
þú varst hálfpartinn búinn að
gleyma. Óttastu eigi, kæri vin, til er
lausn. Hana finnurðu á www.meebo-
.com. Meebo framkvæmir einfaldan
en einkar tímasparandi og prakt-
ískan hlut, það er ef þú ert ein/n af
þeim sem vilja eða hreinlega þurfa
að vera ínáanlegir öllum stundum
þegar þeir eru tengdir. Öllum þeim
spjallsvæðum sem þú notar er ein-
faldlega stefnt saman á einn stað;
þannig að þegar Lúlli frændi reynir
að ná í þig í gegnum gamla MSN-ið
eða Stína frænka reynir að hafa
samband í gegnum Fésbókina sérðu
það á sama stað. Meebo keyrir í
gegnum vefinn, þannig að þú þarft
að hafa þá síðu uppi við. Svo er
hægt að hlaða niður litlu kvikindi
sem lætur þig vita í tólastikunni
(„taskbar“) um leið og einhver hefur
samband. „Þú missir aldrei af skila-
boðunum með Meebo“ segir í slag-
orði vefsíðunnar. Það hefur reynst
satt og rétt í tilfelli þess sem hér
ritar. arnart@mbl.is
Vefsíðan www.meebo.com
Ergelsi Þér er óhætt að slappa af, vinan. Meebo reddar þessu!
Allt spjallið á einn stað