Morgunblaðið - 03.04.2010, Side 20

Morgunblaðið - 03.04.2010, Side 20
20 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is ADOLF Guðmundsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, segir að trúnaðarbrestur hafi orðið milli stjórnvalda og út- vegsmanna þegar sjávarútvegs- ráðherra lagði fram frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fisk- veiða sem meðal annars heimilar sölu á auknum kvóta í skötusel. Það hafi verið gert þrátt fyrir loforð for- ystumanna ríkisstjórnarinnar um að þetta mál yrði tekið til umræðu í endurskoðunarnefnd fulltrúa stjórn- málaflokka og hagsmunasamtaka í sjávarútvegi. Formaður og framkvæmdastjóri LÍÚ tóku þátt í starfi endurskoð- unarnefndarinnar í upphafi starfs hennar á síðasta ári. „Það lá fyrir að við vorum á móti svokallaðri innköll- unar- og fyrningarleið og áður en við tókum sæti í nefndinni fengum við loforð um að skötuselsfrumvarpið yrði rætt þar.“ - Hver lofaði því? „Jón Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra gerði það. Áður en erind- isbréf nefndarinnar var sent út fóru fram samskipti um efni þess sem að lokum var samþykkt af forsætis- og fjármálaráðherra. Við fengum loforð um að þessi mál yrðu rædd í nefndinni sem falið var það hlutverk að fara yfir fisk- veiðistjórnarkerfið í heild og að reynt yrði að leiða það til lykta þar. Það var ekki gert. Með framlagn- ingu frumvarps um breytingar á stjórn fiskveiða, skötuselsfrumvarp- inu, varð trúnaðarbrestur á milli okkar og stjórnvalda. Það gengur ekki að gefa út yfirlýsingar um að ræða eigi málið í nefndinni en leggja síðan fram frumvarp um breytingar á því.“ Skötuselsfrumvarpið ekki rætt Formaður og framkvæmdastjóri LÍÚ sátu fyrstu þrjá fundi nefnd- arinnar og segir Adolf að þeir hafi tekið þátt í starfinu af heilindum. Þeir hafi lagt skýrslu endurskoð- unarfyrirtækisins Deloitte fram á fyrsta fundi nefndarinnar og talið sig sýna fram á það að fyrning- arleiðin væri ekki fær. Segir hann að þá hafi komið fram að tíu fulltrúar í nefndinni voru andvígir innköllunar- og fyrningarleiðinni. Síðan hafi raunar fækkað um einn því afstaða fulltrúa Landssambands smábáta- eigenda hafi breyst. „Það hefur komið í ljós að líklega hefur verið gert samkomulag á milli Lands- sambands smábátaeigenda og rík- isvaldsins um að landssambandið myndi styðja svokallað skötusels- frumvarp ef strandveiðar yrðu heimilaðar.“ Adolf segir að ekki hafi fengist nein umræða í nefndinni um skýrslu Deloitte eða skötuselsfrumvarpið. Hann bendir á að Háskólanum á Ak- ureyri hafi verið falið að skoða ýmis atriði en engin gögn verið lögð fram um þá vinnu. Fulltrúar útvegsmanna hættu að sækja fundi nefndarinnar í nóv- ember eftir að sjávarútvegsráðherra lagði fram frumvarp til breytinga á fiskveiðistjórnuninni, til þess að laga ýmsa smærri ágalla á löggjöfinni, eins og hann orðaði það. Þessi ljóti fiskur, skötuselurinn, hefur haft víð- tækari áhrif því í síðustu viku, þegar frumvarpið varð að lögum, sögðu Samtök atvinnulífsins sig frá sam- vinnu við ríkisvaldið um svokallaðan stöðugleikasáttamála en tiltóku fleiri vanefndir af hálfu ríkisins. Adolf tekur fram að gerðar hafi verið margar tilraunir til að koma málinu í sáttafarveg og nefnir meðal annars fundi með forystumönnum ríkisstjórnarinnar um það efni. Forsendur aflamarkskerfisins - Getur þú ekki fallist á þau rök sjávarútvegsráðherra að breyta þurfi úthlutun skötuselskvóta vegna þess að fiskurinn hafi numið ný lönd við vesturströnd landsins? „Þetta mál snýst ekki um nokkur tonn af skötusel. Það snýst um for- sendur aflamarkskerfisins sem hef- ur verið notað frá 1983. Við teljum að ef hægt er að auka kvótann þá eigi að úthluta honum til þeirra skipa sem hafa aflahlutdeild. Það er ekkert sem kallar á breytta úthlutun kvóta þótt skötu- selurinn hafi fært sig til. Við höfum séð slíkar breytingar á síld, ýsu, gulllaxi, humri og fleiri tegundum án þess að úthlutun kvóta væri breytt. Grásleppukarlar við Breiðafjörð hafa verið að fá skötusel. Á öðrum veiðum þurfa menn að eiga kvóta fyrir þeim fiski sem kemur í veið- arfærin eða geta útvegað sér hann. Annars geta þeir ekki veitt. Það sama á að gilda um grásleppukarla við Breiðafjörð. Ég fæ ekki séð að það sé brýn ástæða til að breyta lög- unum vegna þess. Þá hefði verið hægt að koma til móts við þá með öðrum hætti, til dæmis með því að heimila þeim að landa skötuselnum út á svokallaðan Hafró-kvóta. Þá væri ekki hvati til að stunda skötu- selsveiðar en sjómennirnir fengju upp í kostnað.“ Adolf bætir því við að lögin heimili sjávarútvegsráðherra að úthluta allt að 2.000 tonnum til viðbótar 2.500 tonna kvóta sem úthlutað var fyrir yfirstandandi fiskveiðiár samkvæmt veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofn- unarinnar. „Það hafa engar nýjar upplýsingar komið frá Hafró um að þetta sé mögulegt. Svo miklar veið- ar umfram ráðgjöf vísindamanna eru slæmar fyrir orðspor Íslend- inga, þótt skötuselurinn sé ekki stór í þeirri mynd. Við erum að vinna að umhverfismerkingum og vottun um sjálfbærni veiða. Þetta er ekki gott innlegg í þá umræðu á alþjóðlegum mörkuðum.“ Við erum ekki til sölu - Því hefur verið haldið fram að forystumenn útvegsmanna hafi sleg- ið á útrétta sáttahönd stjórnvalda. Hver var þessi sáttahönd? „Það var orðað á fundi með sjáv- arútvegsráðherra að útvegsfyr- irtæki með aflahlutdeild fengju 500 tonna viðbót við skötuselskvóta og aðeins yrðu boðin upp 500 tonn til viðbótar. Við svöruðum því þannig að þetta væri grundvallaratriði í okkar huga og við værum ekki til sölu.“ - Þetta er heimildarákvæði og ráðherra hefur lýst því yfir að það verði nýtt hóflega. Treystið þið því ekki? „Við höfum enga vissu fyrir því að stjórnmálamenn standi við það sem þeir segja. Við erum með skriflegar yfirlýsingar um að þessi mál eigi að vera í allt öðrum farvegi. Þær undir- skriftir halda ekki. Hvers vegna ættu þá ummæli ráðherra eða ein- hverra þingmanna frekar að halda?“ Vísar Adolf einnig til ályktunar flokksstjórnar Samfylkingarinnar frá því í nóvember, um að bjóða eigi upp alla aukningu aflaheimilda og ummæli varaformanns sjáv- arútvegsnefndar Alþingis sama efn- is. „Þetta er vísbending um það sem koma skal. Þingmenn hafa lýst þeirri skoðun sinni að með skötu- selslögunum sé komið gat á kvóta- kerfið og þannig sé hægt að brjóta það innan frá.“ Framsal verði heft „Við höfðum engin loforð um nið- urstöðu nefndarinnar enda ekki til slíks ætlast. Við gerðum okkur líka grein fyrir því að við yrðum að sætta okkur við það hvernig ráðherrarnir færu með niðurstöðuna. Við höfum smám saman fengið það meira á til- finninguna að það eigi ekkert að gera með þetta nefndarstarf. Að nið- urstaðan sé fyrirfram fengin.“ - Eru útvegsmenn ekki tilbúnir að ræða neinar breytingar á kvótakerf- inu? „Jú, við höfum alltaf sagt að ým- islegt mætti laga og koma til móts við gagnrýni sem að því hefur beinst. Mest hefur verið rætt um frjálst framsal aflaheimilda. LÍÚ og þrenn samtök sjómanna lögðu á sín- um tíma fram tillögur um verulega heft framsal aflaheimilda. Þær felast í því að gert verði að skyldu að veiða að minnsta kosti 80% úthlutaðra aflaheimilda hvers skips á ári. Það þýðir að útgerðarmenn verða sjálfir að nýta þær heimildir sem þeir hafa. Ramminn má þó ekki vera of þröngur. Við teljum nauðsynlegt að menn hafi heimildir til að framselja aflaheimildir og leigja. Ekki er alltaf hægt að leigja á jöfnum ígildum, stundum þarf útgerð að leigja frá sér fyrir peninga og kaupa í staðinn af öðrum fyrir peninga. Stjórnmálamenn hafa ekki léð máls á þessum breytingum.“ Athygli dregin frá mikilvægari málum ríkisstjórnarinnar - Hver er staða og framtíðar- horfur útgerðarfyrirtækjanna nú þegar stjórnvöld stefna að innköllun aflaheimilda? „Umræðan um fyrningarleiðina hefur sett alla framþróun í biðstöðu. Það hefur verið reiknað út að með- alfyrirtækið verði komið í þrot eftir fjögur eða fimm ár.“ Adolf segir að uppbygging upp- sjávarvinnslu HB Granda á Vopna- firði sé eina stóra fjárfestingin sem hann viti um auk smíði skipa fyrir Ísfélag Vestmannaeyja í Chile. Fram hefur komið hjá útgerð- arstjóra Ísfélagsins að til skoðunar hefur verið að selja annað skipið eða bæði vegna umræðu um fyrningu aflaheimilda og óvissu í sjávar- útvegi. „Ef sjávarútvegurinn á að hjálpa okkur að komast út úr þeirri stöðu sem þjóðin er komin í verður að vera hægt að horfa fram á veg- inn,“ segir Adolf. - Er ekki rétt að leysa deilumálin með þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótakerfið, eins og forsætisráð- herra hefur nefnt? „Það er ekki óeðlilegt að þjóðin fái að greiða atkvæði um fisk- veiðistjórnunarkerfið. Það er þó lág- marks krafa að skýrir kostir séu uppi á borðinu, að fólk viti hvað eigi að kjósa um, hvaða afleiðingar það hafi fyrir samfélagið og hvað eigi að taka við. Mér finnst það lýsa mál- efnafátækt að slá þessu fram á þann hátt sem Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, gerði í útvarpsviðtali um síðustu helgi, að annaðhvort færu útvegs- menn í endurskoðunarnefndina eða kosið yrði um fiskveiðistjórn- unarkerfið. Það er ekki vænlegt til árangurs að setja mönnum af- arkosti. Mér finnst þetta lýsa því að menn séu að skapa óánægju og eitt stríðið í viðbót til að draga athyglina frá þeim málum sem brenna á rík- isstjórninni. Hún þarf að fást við miklu mikilvægari mál, það er að koma atvinnulífinu og heimilunum aftur í gang,“ segir Adolf. Morgunblaðið/Árni Sæberg Formaður Adolf Guðmundsson, útgerðarmaður á Seyðisfirði, hefur ekki átt náðuga daga í embætti formanns útvegsmanna. Trúnaðarbrestur vegna frumvarps um skötusel  Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, segir að skötuselsmálið snúist um forsendur aflamarkskerfisins  Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafi svikið loforð um meðferð málsins  Engin framþróun vegna umræðu um innköllun aflaheimilda  Ríkisstjórnin að draga athyglina frá vandræðum vegna mikilvægari mála 10.05.2009 Ný ríkisstjórn ákveður að gera áætlun um innköllun og end- urráðstöfun kvóta í áföngum, frá og með hausti 2010. 2.7.2009 Skipaður starfshópur um endurskoðun á stjórn fiskveiða. 2.10.2009 Endurskoðunarnefndin kemur saman til fyrsta fundar. 10.11.2009 Sjávarútvegsráðherra leggur fram „skötuselsfrumvarp“. 13.11.2009 Fulltrúar LÍÚ hætta að mæta á fundum nefndarinnar. 22.3.2010 „Skötuselslög“ samþykkt sem lög frá Alþingi. 22.3.2010 Samtök atvinnulífsins segja sig frá stöðugleikasáttamála. 31.3.2010 Gefin út reglugerð um úthlutun viðbótarkvóta í skötusel. Skötuselur og fyrning

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.