Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 25

Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 25
Fréttir 25ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 Páskar í Bláa lóninu 2 fyrir 1 Gildir gegn framvísun afrifunnar dagana 1. apríl – 25. maí 2010. Frítt fyrir börn, 13 ára og yngri, í fylgd með forráðamönnum Lykill 1561 Tilboð: Páskabrunch á LAVA á páskadag og annan í páskum, kl. 11.00 -15.00. Verð: 2.900 fyrir fullorðna, 1.500 fyrir börn 12-15 ára og frítt fyrir börn 11 ára og yngri. 15% afsláttur af silica mud mask og algae & mineral body lotion í Blue Lagoon verslun. Glæsilegir vinningar í boði fyrir þá sem skrá sig í Blue Lagoon klúbbinn Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is MÓÐIRIN sagði að strákurinn hennar hefði brotið rúðuna í skól- anum vegna þess að steinn hefði verið á stað þar sem ekki ætti að vera neinn steinn. Hún krafðist líka miskabóta vegna launataps er hún varð fyrir þegar henni var gert að mæta á staðinn vegna rúðubrotsins. Önnur krafðist þess að árbók skólans yrði endurgerð vegna þess að barnið hennar sást ekki á nógu mörgum myndum í bókinni. Foreldrar nemenda í japönskum grunn- og leikskólum eru margir hverjir svo kröfuharðir í garð kennaranna að hinir síðarnefndu eru á barmi taugaáfalls, sumir hafa fyrirfarið sér. Skýrt hefur verið frá því að fjarvistir kennara vegna andlegs álags hafi þrefald- ast á einum áratug. Um 63% af öll- um veikindadögum kennara eru vegna slíkra erfiðleika, segir í grein AFP-fréttastofunnar. Naoki Ogi, sem gagnrýnt hefur skipulag skólakerfisins, hefur með aðstoð kennara safnað um 700 dæmum um framferði hinna svo- nefndu Hryllingsforeldra, eins og fjölmiðlar landsins kalla fyrir- bærið. Lýsingarnar minna stund- um á fjarstæðuleikrit; eitt for- eldrið heimtar að kennarinn sæki barnið á morgnana, annað krefst þess að kennarinn klippi neglurnar á barninu og það þriðja að kenn- arinn kanni veðurspána og segi nemendum hvort þeir þurfi að taka með sér regnhlíf daginn eftir. Kröfur eru uppi um að útbúinn sé morgunverður á leikskólum handa foreldrum sem koma með börnin og íþróttaföt barnanna séu þvegin í skólanum. „Móðir hringir í okkur klukkan hálfátta að morgni og nöldrar stanslaust í tvær klukkustundir … Einn morguninn spurði hún: Af hverju léstu barnið mitt tala á undan öllum hinum börnunum? Barninu mínu finnst ekki gott að flytja ræðu.“ Borgarstjórinn í Tókýó hyggst nú senda um 60.000 grunn- skólakennurum handbók með ráð- leggingum varðandi rétt viðbrögð þegar fást þarf við hryllingsfor- eldra. Þessi varnaraðgerð borg- arinnar mun kosta um 10 milljón jen eða sem svarar rösklega 14 milljónum króna. Kennurunum er ráðlagt að hlusta kurteislega á kvartanir og sýna samúð án þess að segja ávallt að kvörtunin eigi rétt á sér. Sér- fræðingar í menntamálum segja að oft séu umræddir foreldrar fólk sem lifi einangruðu lífi og ráðfæri sig við fáa um barnauppeldi. Kvartanaflóð geti líka verið aðferð foreldra sem þjáist af streitu og þurfi að fá útrás einhvers staðar. Hryllileg óþekkt foreldranna  Heimtufrekja margra foreldra í Japan gagnvart kennurum barnanna virðist vera takmarkalaus  Veikindadagar kennara vegna andlegs álags sagðir hafa þrefaldast á aðeins einum áratug Svo lítið er um börn í Japan að foreldrarnir, sem mega velja milli grunnskóla, ganga á lagið og gera ýmsar fáránlegar kröfur til kennara og skólastjórnenda. Prúð Ekkert bendir til þess að nemendurnir á myndinni valdi kennurum sínum miklum erfiðleikum. En foreldarnir gætu verið úr óskammfeilnu fylkingunni sem fjölmiðlar í Japan hafa gefið heitið Hryllingsforeldrar. En af hverju er þessi staða kom- in upp í Japan, þessari háborg siðfágunar? Viðkoman er ein- hver sú minnsta í heimi og skól- arnir keppa ákaft um nemendur. Árið 2000 var gerð sú breyting að foreldrum var leyft að velja skóla en áður urðu börnin ein- faldlega að fara í þann skóla sem næstur var. Foreldrarnir geta nú valið og hafnað. Bent er á að þetta ýti undir að skólarnir sinni öllum duttlungum þeirra til að halda börnunum. Neytandinn er Guð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.