Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 26

Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fyrstisunnudag-ur eftir fyrsta fulla tungl eftir jafndægur. Páskar. Vorhá- tíð. Trúarhátíð. Minningarhátíð mikilla at- burða. Önnur helsta trúarhátíð kristinna manna. Kannski sú mesta. Jesús frá Nasaret, Kristur Drott- inn lokar kaflanum sem hófst á jólum. Jarðvist- ardögum hans er að ljúka. Ef marka má ritninguna vissi Kristur út í hörgul hvað biði hans í Jerúsalem. Hinn erfiði aðdragandi, kvalir á krossinum og enda- lokin. Lærisveinar hans máttu einnig vita hvers var von. Þeir áttu sitt hlutverk og frelsarinn hafði farið yf- ir handritið, en samt vissu þeir ekki. Og honum var jafnljóst líka að endalokin voru í raun upphaf en ekki endir. Heimildin, sem fyr- irvarinn var settur við, ritningin, orð guðspjalla- mannanna, snýr að okkur öllum. Þeim sem trúir og þeim sem efast. Þeir standa frammi fyrir sömu spurn- ingunni og annar þeirra, sá sem trúir, er líkast til lengra kominn. Hann er nær svarinu. Sigurbjörn Einarsson biskup sagði: „Páska- viðburðurinn er einsdæmi. Hann er og verður um allan aldur einstæður. Því er ekki að undra að hann sé dreginn í efa. En það eru ekki aðeins fornar heimildir sem skýra frá honum. Til- vera kristinnar kirkju vitn- ar um hann. Hann hefur hrundið af stað stór- fenglegustu hreyfingu sög- unnar. Miðað við áhrif og afleiðingar er upprisa Krists áþreifanlegri stað- reynd en nokkuð annað, sem um getur í annálum mannkyns. Hún er ekki vé- fengd sakir þess, að heim- ildir séu ekki fullgóðar, heldur af því, að menn telja sig vita það mikið um veru- leikann, að þeim sé ekki fært að trúa slíku eða þeir megi fullyrða, að slíkt eigi sér alls ekki stað. Stað- reynd dauðans er óvéfengj- anleg, því hún er dags- dagleg. Boðskapur páskanna um sigur lífsins er of stórbrotinn, of und- ursamlegur til þess að geta verið sannur.“ Velta má upp hvort páskaboðskapurinn og af- staðan til hans sé deila um hindurvitni ann- ars vegar og vís- indi hins vegar. Spurningin standi um heil- agan vitnisburð ellegar um há- væran hvell. Biskupinn ástsæli, sem fyrr var vitn- að til, segir: „Hér stendur trú gegn trú. Kristnir menn játa trú sína á hið einstæða og óskiljanlega í þakklátri auðmýkt, síst af öllu með neinu yfirlæti. Trú þeirra er svo sem ekki annað en blaktandi neisti á skari. En hún er samt upp- risa nýs lífs í sálu þeirra. Guði séu þakkir. Hans hulda hönd vermdi hið kalda skar og vakti lífs- neista af dauða.“ Hann var ekki fjölmenn- ur hópurinn í kringum krossinn á föstudaginn langa forðum tíð. En það hefur fjölgað í hópnum síð- an. Þær fóru fáar og hljóð- lega að gröfinni konurnar sem ætluðu að veita hinum krossfesta sakamanni það eina sem þær máttu, úr því sem komið var. En gröfin var tóm. Aldrei hefur tóm talað svo skýrt til fólks í annan tíma. Þjóðskáldið Matthías Jochumsson, sem marga fjöru saup á langri æfi, tókst löngum á við efann. Hann sat þó að lokum á Sigurhæðum í fleiri skiln- ingi en einum. Í lok merkr- ar æfisögu hans segir: „Skömmu fyrir dauðann orti Matthías hálfblindur og sáttur, ljóðið „Gleym mér ei“.“ Í einu erindi ljóðsins, sem þarna er nefnt segir: „Drottins dýrð er ei dulspeki, ekki mannvit, ekki vísindi, hún er „gleym mér ei“ þeirra guðsbarna er bana dauðans blindandi sjá“. Og æfisöguritarinn segir: „Matthías kemur því hér til skila að bana dauðans (eilíft líf) megi lesa úr líf- inu sjálfu – eilífðarsmá- blóminu.“ Mannkynið hefur nú í tæp tvö þúsund ár horft um páska inn í opna, kalda og tóma gröf. Og því leng- ur sem horft er því ljósari verður myndin. Hún sýnir þeim sem trúa upprisu og eilíft líf. Og það er rétt hjá séra Matthíasi að svo skýr er myndin að hana má blindandi sjá. Páskar. Önnur mesta trúarhátíð kristinna manna. Kannski sú mesta } Gröfin var tóm E infaldleikinn á landsbyggðinni hentar vel einföldum manni eins og mér. Þar er því sem næst ekk- ert við að vera annað en sitja í ruggustólnum og hlusta á þögn- ina. Aldrei neitt um að vera. Ung stúlka; það gæti verið dóttir mín en þar sem þær eru ekki ýkja hrifnar af því að vera sí- fellt nefndar á prenti þá þarf það ekki endilega að vera ein þeirra; ónefnd ung stúlka spurði mig sem sagt á dögunum hvað ég myndi gera ef ég ynni stóra vinninginn í Víkingalottóinu. Við heyrðum auglýst að hann gæti orðið allt að 2,4 milljörðum króna. „Ætli ég myndi ekki byrja á því að setjast nið- ur og hugsa,“ sagði ég, enda búsettur á lands- byggðinni. Að hugsa og hlusta á þögnina þjóta hjá, það er okkar fag. Hún var ekki spennt fyrir því. Fannst ég yrði að gera eitthvað. „Þú meinar það. Ætli ég myndi þá ekki byrja á því að fara í langan göngutúr.“ - Til hvers? Það kostar heldur ekki neitt. Hvað myndirðu gera við peninginn? „Þú átt við það. Ég yrði flottur á því og byði ykkur í helgarferð til Akureyrar.“ - Come on. Við búum þar. Hvað myndirðu gera í alvör- unni? Hvað myndirðu kaupa? Hvert myndirðu fara? „Eftir göngutúrinn myndi ég leggja mig í góða stund og reyna að sofna; góðar hugmyndir byrja oft sem draumur. Kannski myndi mig dreyma ferð til Liverpool, á völlinn og í búðirnar, jafnvel ferð til Barcelona til að fara á völlinn og svo til Madridar á úrslita- leikinn í Meistaradeildinni í maí.“ Ég sá á svip stúlkunnar, sem skyndilega líkt- ist eiginkonu minni, að þetta var í áttina. Það góða við drauma er að þeir geta ræst og að stundum rætast þeir ekki. Ég var, þrátt fyrir allt, ákveðinn í því að fengi ég stóra vinninginn byði ég fjölskyldunni til Akureyrar. Helst um páska því þar þyrfti ég ekki að gera neitt annað en hugsa. Aldrei neitt í boði úti á landi. Á fimmtudaginn voru að vísu Sinfóníu- tónleikar hér í höfuðstað Norðurlands, og boðið er upp á tvenna eða þrenna annars konar tón- leika á hverjum degi alla páskadagana og böll um kvöldið. Fjölskyldan myndi sjálfsagt draga mig á sýningu á verk- um Tryggva Ólafssonar á Listasafninu, á Flugsafnið, Smá- munasafn Sverris í Sólgarði og í Jólahúsið. Svo myndu döm- urnar heimta það að fara í bíó og í leikhús – Leikfélag Akureyrar er að vísu bara með þrjár sýningar á fjölunum um páskana og ég vona að gestir bæjarins fyrirgefi það. Svo myndi ég fara á skíði í sól og blíðu, síðan í sund í sól og blíðu, svo myndi ég fara á kaffihús, fá mér svo ís, loks út að borða og síðan í bíó. Daginn eftir færi ég aftur á skíði í sól og blíðu, svo á hestabak í sól og blíðu, aftur á kaffihús og út að borða. Svo myndi ég kaupa mér ruggustól til að hugsa í. Verst ég gleymdi að kaupa miða. skapti@mbl.is Skapti Hallgrímsson Pistill Stóri vinningurinn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is V ið teljum að þetta verði metár,“ sagði Sonja Magnúsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Ferða- skrifstofu Guðmundar Jónassonar. Sömu sögu er að heyra frá öðrum talsmönnun fyrirtækja í ferðaþjónustu. Á síðasta ári fækkaði farþegum um Keflavíkurflugvöll um 17%. Ferðum Íslendinga fækkaði hins vegar mun meira. Erlendir ferða- menn halda áfram að streyma til landsins og Íslendingar virðast vera að búa sig undir að fara í auknum mæli til útlanda. Sonja er bjartsýn á sumarið en sagði að sitt helsta áhyggjuefni væri skortur á gistingu á landsbyggðinni, sérstaklega við Skaftafell og Mývatn. Sonja sagði að Ísland væri búið að vera mikið í fjölmiðlum erlendis og það hefði greinilega haft jákvæð áhrif á ferðamannastraum til lands- ins. Eldgosið á Fimmvörðuhálsi hefði vakið áhuga erlendra ferðamanna á að koma til Íslands. „Reyndar höfum við líka lent í því að hópar hafa af- bókað ferðir vegna hræðslu við gosið. Þeir eru þó fleiri sem eru spenntir fyrir að koma vegna gossins.“ Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, segir að árið í ár líti mjög vel út. Félagið hafi í mars flutt tæplega 90 þúsund farþega sem sé 25% aukning miðað við sama mán- uð í fyrra. Bókanir í vor og sumar séu einnig mjög góðar. Hann segir að fé- lagið hafi brugðist við þessu með því að bæta við flugferðum. Framboð á flugsætum hafi aukist um 13% frá síðasta ári. „Það hefur gengið vel að nýta um- fjöllun um Ísland og hagstæða stöðu krónunnar,“ segir Guðjón. „Það er tugaprósenta aukning milli ára,“ segir Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Iceland Express, þegar hann er spurður um horfurnar í ár. Ástæðan fyrir þessu sé góð markaðssetning og umfjöllun um Ís- land erlendis. Matthías segir að bókanir séu mun betri en í fyrra, en þá varð mik- ill samdráttur í ferðum Íslendinga til útlanda. Framboð á ferðum hafi þá verið dregið mikið saman sem hafi leitt til þess að nýting í vélunum batnaði. Núna séu Íslendingar að bóka sig í ferðir í mun meira mæli en í fyrra. Matthías segir að í fyrra hafi borið á skorti á bílaleigubílum yfir hásum- arið og mjög mikilvægt sé að úr því verði bætt í ár annars fari erlendir ferðamenn annað. Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, segist hafa trú á að nægt framboð verði á bílaleigubílum í sumar. Samkomulag hafi verið gert við stjórnvöld um að bílaleigur geti keypt notaða bíla og fengið virðis- aukaskattinn endurgreiddan. Erna segir að meginverkefni ferðaþjón- ustunnar síðustu ár hafi verið að bæta nýtingu utan háannatímans. Þetta sé mjög mikilvægt því nauð- synlegt sé að bæta nýtingu á dýrri fjárfestingu eins og hótelum. Það sé hins vegar rétt að það geti verið skortur á hótelherbergjum í þær sex vikur þegar mest er að gera yfir sumarið. Morgunblaðið/Kristinn Ferðamenn Erlendum ferðamönnum fjölgaði hér á landi í fyrra og allt útlit er góða fjölgun í ár. Íslendingar virðast líka vera farnir að ferðast meira. Stefnir í metár í ferðaþjónustu Mikil aukning er í bókunum í ferðaþjónustu hér á landi. Mikil umfjöllun um Ísland erlendis og hagstætt gengi skilar sér í fjölg- un ferðamanna. Íslendingar eru líka farnir að ferðast meira. Alls heimsóttu um 566.000 ferða- menn Ísland í fyrra. Þetta er fjölg- un á milli ára sem nemur 0,7%, en árið 2008 sóttu 562.000 ferðmenn Ísland heim. Að mati Ferða- málastofu má gera ráð fyrir að um sé að ræða stærsta ferðamannaárið á Íslandi frá upphafi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Samkvæmt bráðabirgðatölum eru horfur á að gjaldeyristekjur vegna ferðaþjónustunnar hafi verið um 155 milljarðar í fyrra, en þær voru 109 milljarðar árið 2008. Að teknu tilliti til gengis- og verðlagsáhrifa samsvarar þessi breyting liðlega 20% raunaukningu. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.