Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 27

Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 Á drottins vegum Bæjarstjórinn Lúðvík Geirsson las úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar í Grafarvogskirkju í gær. Borgar- og sveitarstjórnarfólk á suðvesturhorninu las þá á milli 13-18.30 Kristinn UNDANFARIÐ hef ég heyrt í þjóðfélags- umræðunni að nú sé „tíminn fyrir andann“. Því er ég sammála og vil grípa tækifærið og gefa andanum gaum. Nú er tími ferming- anna. Upprisuhátíð. Páskarnir. Annar tveggja árstíma þar sem virðist vera sam- þykkt að tala um trú, von og kærleika, fara í kirkju og – um páskana – tala um upprisu Krists. Fýsn holdsins og auðæfa-oflæti hef- ur ekki aðeins orsakað fátækt í fjár- málunum því að svo virðist vera sem andleg fátækt blasi við mörgum á Ís- landi í dag. Sú fátækt hefur jafnvel verið fyrir hendi lengur en við viljum viðurkenna. Birtingarform hennar er að í vellystingunum gleymdum við Guði og náunganum. Eins og alkóhól- istinn verður að viðurkenna fíkn sína til að sigrast á henni þá þurfa Íslend- ingar að viðurkenna andlega fátækt sína til ganga út úr henni. Hún þarf ekki að vera endastöð, síður en svo, eins og sagt hefur verið – spyrnan er oft best frá botninum. Fátt virðist gefa manninum meiri kraft í þessa spyrnu en von. Von gef- ur manninum ástæðu til að halda líf- inu áfram og til að líta fram á veginn. En hvað er von? Von er það sem hægt er að vænta, búast við. Von innifelur bæði eftirvæntingu, löngun og ósk. Langvarandi svartnætti á það til að kæfa eftirvæntinguna og skilja eftir sig slóð af óuppfylltum óskum og brostnum vonum. Langvarandi svart- nætti skilur okkur eftir í vonleysi. Andleg augu margra hafa tekið að daprast vegna þess að vonin eftir réttlæti, sanngirni og réttsýni hefur dvínað. Aftur á móti gerir von okkur kleift að hefja augun upp og sjá heið- an himin bakvið dimm og drungaleg ský. Við þurfum að hafa augun af von- leysi kringumstæðna okkar og líta til náungans og kringumstæðna hans. Þannig byrjum við að safna andlegum auði með kærleika og umhyggju í verki. Ég heyrði sögu af konu sem hét María Magdalena. Hún hafði verið við kross Jesú þegar hann dó og varð fyrst að gröf- inni í birtingu á páskadag. Í Jóhann- esarguðspjalli 20. kafla segir að hún hafi staðið og grátið fyrir framan tóma gröfina, því að líkami Jesú var horfinn og hún vissi ekki hvar hann hafði verið lagður. Jesús sjálfur mætti henni og hún sá að hann var uppris- inn. Þú stendur ef til vill í sömu sporum og María þar sem ekkert annað blasir við en gröfin. María hafði um tvennt að velja: Að dvelja við gröfina og ein- blína á óvissuna um líkama Krists eða að horfa á vonina sem fylgdi þessari tómu gröf. Við hvaða gröf dvelur þú í dag? Þú horfir ef til vill á gröf fyllta atvinnuleysi, gjaldþroti, hjónaskilnaði eða einsemd. Án vonar og án andlegs ríkidæmis. Þér vil ég segja að þú hef- ur val: Að dvelja við gröfina og ein- blína á óréttlætið og fyllast vanmætti og reiði eða að horfa á vonina sem 2000 ára gömul gröf gefur þér í dag. Von sem gefur líf þegar þú stendur frammi fyrir dauða og sorg. Von sem gefur meðbyr þegar þú stendur frammi fyrir erfiðleikum og einsemd. Ekki dvelja við gröfina. Veldu von- ina eins og María. Líttu af kring- umstæðunum og sjáðu að von heims- ins er innan seilingar. Frelsarinn er upprisinn. Nú er vorið á næsta leiti þar sem blóm og gróður fara að vaxa úr frjó- um jarðveginum eftir vetrardvala. Mætti andi þinn vera sá frjói jarð- vegur sem vonin þarf til að vakna úr dvala og gefa þér andlegan auð. Eftir Önnu Sigríði Snorradóttur » Svo virðist vera sem andleg fátækt blasi við mörgum á Íslandi í dag. Anna Sigríður Snorradóttir Höfundur er grunnskólakennari. Veldu vonina Í HVERT sinn sem búist er við skýrslu og áliti rannsókn- arnefndar Alþingis, fer í gang spuni í fjöl- miðlum. Sá spuni er einfaldur: „Spuninn er byrjaður“, bergmála fjölmiðlamenn og ákafaálitsgjafar, og bæta því við að greini- legt sé að „áhrifa- menn“ séu „byrjaðir að grafa undan rannsóknarnefnd- inni“. Þessi spuni hefur tvennan tilgang. Fjölmiðlamenn, ákafaálits- gjafar og óðabloggarar vilja ráða opinberri umræðu á Íslandi sem mest. Þeir ætla sjálfum sér að ákveða hvað úr áliti nefndarinnar fái athygli. Þess vegna má ekkert verða til þess fyrirfram að draga úr trú manna á óskeikulleika nefndarmanna. Þess vegna er reynt að bregðast fyrirfram við því ef nefndin, vinna hennar eða nið- urstöður, verða gagnrýnd. Það verður þá bara „spuni“ vondra manna. Á dögunum birti meira að segja fréttaþátturinn Spegillinn sérstakt ávarp fréttaritara Ríkisútvarpsins í Lundúnum þessa efnis, og bætt- ist það í röð fleiri ávarpa þess fréttaritara til þjóðarinnar. Einn þáttastjórnandi Ríkisútvarpsins hefur mánuðum saman bloggað ut- an vinnutíma að niðurstöður nefndarinnar megi ekki verða „hvítþvottur“, og felst í því að þáttastjórnandinn hafi þegar ákveðið hvað rétt sé og rangt, og skuli nefndarmenn eiga hann á fæti ef þeir standi ekki undir kröf- um hans. Skilaboðin eru skýr: Ef nefndarmenn áfellast þá sem þáttastjórnandinn hatast við, þá verða þeir lofsungnir fyrir „merki- legt verk“. Annars verða þeir út- hrópaðir fyrir hvítþvott. Þegar slíkur söngur hefur verið sunginn mánuðum saman, bæði hjá þessum álitsgjafa og svipuðum, þá er spurning hversu sterk bein nefndarmanna eru, það er að segja þeirra tveggja sem ekki skýrðu frá því opinberlega í upphafi rannsóknar hverjar niðurstöðurnar yrðu, eins og einn nefnd- armanna gerði og fréttamenn og álits- gjafar létu sér vel líka – eitt er þó ljóst, eftir opinber skrif þátt- arstjórnandans um það hvernig skýrslan eigi að vera er ljóst að útilokað er að hann stýri umræðu um efni hennar á vegum Rík- isútvarpsins. „Áætluð“ skil Af og til birtast fréttamenn og skýra frá því að birting skýrslu nefndarinnar muni enn dragast um svo og svo margar vikur. Er þá gjarnan nefnt í framhjáhlaupi að birtingin hafi verið „áætluð“ fyrsta febrúar. Það er villandi orðalag, sem þó hefur verið notað í mörg- um fréttatímum. Birting skýrsl- unnar var ekkert „áætluð“ um það leyti. Í lögum um nefndina eru ein- faldlega skýr fyrirmæli þess efnis að skýrslan skuli birt fyrir lok jan- úar 2010. Nefndarmenn sjálfir ákváðu hins vegar að fara ekki eft- ir þeim lagafyrirmælum, án þess að heyrst hafi að sú staðreynd hafi gefið þeim tilefni til að efast um eigið ágæti til að meta störf ann- arra. En þetta nefna álitsgjafarnir og fréttamennirnir sjaldan. Á þeim bæjum er heitt vonast eftir að nefndarmenn vegi að einhverjum þeirra sem álitsgjafarnir eru á móti, hafa jafnvel rægt árum sam- an, og meðan sú von lifir, má ekk- ert verða til þess að draga úr trú- verðugleika nefndarmanna. En ef þeir bregðast vonunum, þá verður nú annað uppi á teningnum. Þá verður bloggað fram á nótt: Hvít- þvottur, hvítþvottur! Skyldu draumarnir rætast? Ekki veit ég hvort draumar ákafra álitsgjafa rætast. Flestir venjulegir menn myndu auðvitað telja augljóst að gjaldþrot einka- fyrirtækja væru á ábyrgð stjórn- enda eða eigenda einkafyrirtækja en ekki ríkisins. En hvað veit mað- ur. Einn nefndarmanna kenndi starfsmönnum eftirlitsstofnana op- inberlega um bankahrunið um leið og hún settist í nefndina til að rannsaka orsakir bankahrunsins. (Fréttamenn og álitsgjafar virtust ekki telja þetta valda vanhæfi hennar, og hefði verið gaman að velta fyrir sér hvort þeir hefðu verið sömu skoðunar ef hún hefði lýst gagnstæðum viðhorfum.) Hin- ir nefndarmennirnir tveir hafa svo sérhæft sig í að leita að mistökum stjórnsýslunnar. Kannski hefur hér fundist nefnd sem gæti látið drauma álitsgjafanna rætast, en því verður ekki trúað fyrirfram. Á síðasta ári skrifaði þáverandi formaður Viðskiptaráðs merkilega blaðagrein. Þar sagði hann að skýrslunnar væri nú skammt að bíða og væri „mikilvægt að þeir aðilar sem gagnrýni hljóta taki hana til sín og nýti til upp- byggilegra umbóta. Þar gildir einu hvort gagnrýnin snúi að stjórn- málamönnum, embættismönnum, fjölmiðlum, hagsmunasamtökum atvinnulífs eða forystumönnum í viðskiptalífinu.“ Þetta voru óvænt en um leið ánægjuleg viðhorf úr viðskiptalíf- inu, þar sem álitum opinberra nefnda er yfirleitt mætt af fyllsta mætti og rannsakendum er yf- irleitt mætt með lögfræðingaher. Kannski er þetta til marks um ný viðhorf í viðskiptalífinu. En kannski er þetta traust á nefndinni til marks um eitthvað annað. Eftir Bergþór Ólason » ... eftir opinber skrif þáttarstjórnandans um það hvernig skýrsl- an eigi að vera er ljóst að útilokað er að hann stýri umræðu um efni hennar á vegum Rík- isútvarpsins. Bergþór Ólason Höfundur er fjármálastjóri. Skýrsluspuninn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.