Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 29
Umræðan 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri,
lögg. fasteignasali
Guðmundur
Sigurjónsson,
lögfræðingur,
lögg. fasteignasali
Þorleifur St.
Guðmundsson,
lögg. fasteignasali
Kjartan Hallgeirsson,
lögg. fasteignasali
Geir Sigurðsson,
lögg. fasteignasali
Hilmar Þór
Hafsteinsson,
lögg. leigumiðlari,
lögg. fasteignasali
Magnús Geir
Pálsson,
sölumaður
Þórarinn M.
Friðgeirsson,
lögg. fasteignasali
Jóhanna
Valdimarsdóttir,
gjaldkeri
Elín Þorleifsdóttir,
ritari
Reykjavík
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s
STIGAHLÍÐ - GLÆSILEG EIGN
Sérstaklega vandað og fallegt 330 fm einbýlishús á
tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Húsið
stendur á einstökum stað efst í Stigahlíðinni og er frið-
sælan suðurgarð og glæsilegt útsýni til norðurs.
V. 96,0 m. 5566
VESTURGATA - 67 ÁRA OG ELDRI
Falleg 4ra herb. þjónustuíbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Mjög falleg aðkoma er að íbúðinni, en
gengið er inn úr n.k. garðskála. Öll sameign er mjög snyrtileg. Heilsugæsla er í húsinu, hárs-
nyrtistofa, fótsnyrting og samkomusalur. V. 28,9 m. 5564
Melabraut - neðri hæð 4ra herbergja
100,9 fm neðri sérhæð ásamt 38,0 fm bílskúr.
Hæðin skiptist í forstofu, gang/hol, stofu, 3
svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Í kjall-
ara fylgir sér geymsla. V. 26,9 m. 5419
Flyðrugrandi - laus fljótlega - jarð-
hæð Falleg vel skipulögð 131,5 fm 4ra her-
bergja íbúð á 2.hæð (jarðhæð inngangsmegin)
í góðu fjölbýli á fínum stað í vesturbæ Reykja-
víkur. Sérinngangur. Húsið er að sjá í góðu
standi. 3. svefnherb. Endurnýjað vandað bað-
herbergi. Stór stofa. Suðursvalir V. 31,5 m.
5542
Drafnarstígur - sjarmerandi íbúð
Falleg mjög vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á
3.hæð í vel staðsettu fallegu húsi í Vesturbæn-
um. 2 svefnherbergi og tvær stofur. Nýl. park-
et. Flísalagðar svalir. Fallegt útsýni. V. 21,9 m.
5529
Sumarhús - Öndvarðarnes Vel stað-
sett og fallegt 45 fm sumarhúsvið Arnarhóls-
braut í Öndverðanesi. Landið er 5.000 fm
leiguland við Múrarafélag Reykjavíkur, lóðar-
leiga er ótímabundin. V. 8,9m 5540
Byggingar sem nú er ver-
ið að reisa á horni Lækj-
argötu og Austurstrætis
eru alls tæplega 2.500
m² að flatarmáli og rúm-
lega 9.000 m³ eða um
tvisvar sinnum stærri en
þær byggingar sem
þarna stóðu fyrir brun-
ann. Þar af er kjallari um
800 m², Lækjargata 2 of-
an kjallara um 756 m²,
bakhús (Lækjargata 2b,
Nýja bíó) ofan kjallara og
með aðalstigakjarna um
724 m² og loks er húsið
Austurstræti 22 ofan
kjallara með útbyggingu
um 220 m².
Allar nánari upplýsingar
veita Magnús, Kjartan
eða Sverrir á skrifstofu
Eignamiðlunar. 5560
ENDURBYGGING Í TAKT VIÐ SÖGUNA
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Óskum eftir nýlegri íbúð
Traustur kaupandi óskar eftir 120-150 fm íbúð í nýlegu fjölbýlishúsi miðsvæðis í
Reykjavík. Íbúð við Sóltún eða Mánatún kæmi vel til greina. Íbúðin þarf að hafa lág-
mark 3 svefnherbergi og helst gestasnyrtingu. Íbúðin má kosta allt að 45 milljónir
og yrði um staðgreiðslu að ræða.
Óskast til leigu
Fjársterkur aðili óskar eftir fasteign til leigu í vesturbæ Reykjavíkur eða á Seltjarnar-
nesi. Um er að ræða leigu til eins árs frá júlí næstkomandi. Óskað er eftir hæð eða
sérbýli. Upplýsingar gefur Hilmar löggiltur leigumiðlari í síma 824-9098.
Óskum eftir 300-400 fm einbýli í Þingholtunum.
Verð mætti vera á bilinu 80-150 milljónir. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir
Kristinsson.
Einbýlishús í Vesturborginni óskast - staðgreiðsla
Óskum eftir 250-350 fm einbýli í Vesturborginni. Verð mætti vera á bilinu 90-150
milljónir. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Sérhæð óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 140-170 fm sérhæð. Þessir staðir koma til greina:
Vesturbær, Hlíðar og nágrenni Miklatúns. Allar nánari uppllýsingar veita Sverrir
Kristinsson og Hilmar Þór Hafsteinsson.
Sumarbústaður við Þingvallavatn óskast
Óskum eftir sumarbústað við Þingvallavatn (við vatnið). Bústaðurinn má kosta á
bilinu 30-70 milljónir. Staðgreiðsla í boði. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir
Kristinsson.
Sumarbústaður óskast
Sumarbústaður innan 30 mín. aksturs frá Reykjavík óskast. Óskum eftir sumarbú-
stað á framangreindu svæði. Bústaðurinn mætti kosta 10-15 milljónir.
Allar nánari uppl. veita Sverrir Kristinsson og Magnús Geir Pálsson.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Traustur aðili óskar eftir 2000 – 2500 fm skrifstofuhúsnæði til kaups eða leigu.
Bankatrygging ef óskað er. Æskileg staðsetning: Austurborgin. Allar nánari
upplýsingar veita Sverrir Kristinsson.
Falleg og mjög vel skipulögð
íbúð á 2.hæð í fallegu fjórbýli
ásamt góðum bílskúr. 3 góð
svefnherbergi og tvær stofur.
Mjög björt og góð íbúð. Frá-
bær staðsetning steinsnar
frá miðborginni. Bílskúrinn er
mjög rúmgóður. V. 29,7 m.
5557
ESKIHLÍÐ - FJÓRBÝLI MJÖG GÓÐUR BÍLSKÚR
SAMKVÆMT ís-
lenskum lögum verð-
ur við andlát ein-
staklings til
sjálfstæður lögaðili,
dánarbú, sem tekur
tímabundið við öllum
réttindum og skyld-
um hins látna. Ekki
er um varanlega ráð-
stöfun að ræða og
þarf í kjölfarið að
skipta dánarbúinu.
Tryggingastofnun greiðir út lífeyri og
bætur á grundvelli tekjuáætlunar
sem lífeyrisþegar bera ábyrgð á að sé
rétt. Þessar greiðslur ber stofnuninni
að gera upp þegar endanlegar upp-
lýsingar um tekjur liggja fyrir við
álagningu skattayfirvalda. Sú skylda
helst þó lífeyrisþegi falli frá og þá
þarf stofnunin að grípa til sérstakra
ráðstafana.
Þegar Tryggingastofnun berast
upplýsingar um andlát lífeyrisþega er
sent bréf til dánarbúsins þar sem erf-
ingjum er tilkynnt um ýmis réttindi
þeirra og skyldur gagnvart stofn-
uninni. Í bréfinu kemur fram að
stofnunin muni endurreikna tekju-
tengdar bætur andlátsársins þegar
skattframtal og álagn-
ing hins látna liggur fyr-
ir.
Við endurreikning
getur myndast krafa
eða inneign sé misræmi
á milli tekjuáætlunar og
skattframtals viðkom-
andi bótaárs. Trygg-
ingastofnun er skylt að
innheimta kröfur og
greiða út inneignir. Mis-
munandi er eftir tegund
dánarbúa hvernig út-
greiðsla inneigna og
innheimta krafna er
framkvæmd.
Langflestum dánarbúum lýkur
með einkaskiptum. Erfingjar sækja
um leyfi til einkaskipta hjá sýslu-
manni í umdæmi dánarbúsins. Ef
sýslumaður veitir leyfið fara erfingj-
arnir með forræði búsins. Þar til
skiptum lýkur mega einungis erfingj-
arnir ráðstafa eignum og verðmætum
búsins og svara fyrir skyldur þess.
Mikilvægt er að erfingjar átti sig á
þeim mun sem er á einkaskiptum og
opinberum skiptum. Munurinn felst
m.a. í því að við einkaskipti gangast
erfingjar undir óskipta ábyrgð á
skuldbindingum búsins og sú ábyrgð
helst eftir að skiptum er lokið.
Skiptum margra þeirra dánarbúa
sem koma á borð Tryggingastofnunar
lýkur með því að maki hins látna fær
heimild til setu í óskiptu búi. Þá fær
makinn eignarráð yfir fjármunum
búsins en hann ber einnig ábyrgð á
skuldum hins látna líkt og um hans
eigin skuldir væri að ræða.
Einnig er algengt að dánarbú séu
eignalaus. Í þeim tilvikum er mikil-
vægt að aðstandendur komi staðfest-
um upplýsingum til Tryggingastofn-
unar um eignaleysi dánarbúsins en þá
er ekki gengið á erfingja vegna
skulda.
Ef inneign myndast hjá lífeyrisþega
í uppgjöri að honum látnum þá eiga
erfingjarnir lögmæta kröfu til hennar
ef ekki liggur fyrir eldri krafa stofn-
unarinnar á hendur hinum látna.
Inneignin er lögð á bankareikning
hins látna hafi honum ekki þegar verið
lokað. Hafi reikningnum hins vegar
verið lokað þá þurfa erfingjar að koma
upplýsingum um nýjan bankareikn-
ing til Tryggingastofnunar.
Ef skuld myndast í uppgjöri lífeyr-
isþegans að honum látnum þá á
Tryggingastofnun lögmæta kröfu til
hennar hjá dánarbúinu eða erfingjum
hans eftir atvikum. Eins og áður hef-
ur komið fram þá bera erfingjar, í
einkaskiptum, óskipta ábyrgð á
skuldbindingum þess.
Hvert tilkynning um kröfuna er
send hverju sinni fer eftir því hversu
miklar upplýsingar Tryggingastofn-
un hefur um stöðu dánarbúsins. Hafi
Tryggingastofnun upplýsingar um
umsjónarmann dánarbúsins eru upp-
lýsingar um kröfuna sendar til hans.
Sé umsjónarmaður ekki skráður þá
er krafan send á elsta erfingja hins
látna. Liggi engar upplýsingar um
hverjir séu erfingjar fyrir þá er kraf-
an send á dánarbúið sjálft á síðasta
heimilisfang hins látna.
Þar sem nokkur tími getur liðið frá
andláti lífeyrisþega og þar til unnt er
að vinna lokauppgjör vegna andláts-
ársins þá býður Tryggingastofnun
erfingjum að framkvæma bráða-
birgðauppgjör vegna bótaréttar.
Ekki er um endanlegt uppgjör að
ræða en tilgangur bráðabirgðaupp-
gjörs er að erfingjar geti gert sér
grein fyrir hugsanlegri stöðu hins
látna hjá Tryggingastofnun og verið
meðvitaðir um hvort von sé á kröfu
eða inneign við framkvæmd uppgjörs.
Uppgjör bóta felur í sér að tekju-
áætlun uppgjörsárs er borin saman
við upplýsingar í skattframtali við-
komandi árs. Til að Tryggingastofnun
geti framkvæmt bráðabirgðauppgjör
þurfa þessar upplýsingar um tekjur
greiðsluþega að berast stofnuninni.
Upplýsingar sem um getur verið að
ræða eru eftir atvikum m.a.:
Staðfest afrit skattframtals vegna
viðkomandi uppgjörsárs.
Staðfesting frá launagreiðendum á
greiddum launum á því ári.
Staðfesting frá lífeyrissjóðum á
greiddum lífeyri á því ári.
Upplýsingar frá fjármálastofn-
unum um fjármagnstekjur á
árinu.
Upplýsingar úr staðgreiðsluskrá
skattyfirvalda.
Tryggingastofnun getur ekki
ábyrgst að niðurstaða bráðabirgða-
uppgjörs sé rétt en í flestum tilfellum
ætti hún að gefa hugmynd um hver
niðurstaðan verður. Veltur það í raun
allt á því hvort Tryggingastofnun fái
réttar upplýsingar um allar tekjur
greiðsluþega.
Uppgjör dánarbúa hjá Tryggingastofnun
Eftir Þóri H.
Gunnarsson
Eftir Þórir H.
Gunnarsson
» Tilgangur bráða-
birgðauppgjörs
dánarbúa er að erf-
ingjar geti gert sér
grein fyrir skulda-
stöðu hins látna hjá
Tryggingastofnun.
Höfundur er lögfræðingur
á alþjóða- og stjórnsýslusviði
Tryggingastofnunar.