Morgunblaðið - 03.04.2010, Side 30

Morgunblaðið - 03.04.2010, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 HELGINA 20.-21. mars sl. fór fram Íslandsmeistaramót með 10 dönsum í samkvæmisdönsum í Smáranum í Kópavogi. Mótið er þriðja stóra dans- mótið á þessu ári, og er haldið á veg- um Dansíþróttasambands Íslands. Samhliða Íslandsmeistaramótinu fór fram bikarmót með grunnaðferð og tvö opin mót, annars vegar DSÍ latin Open og hins vegar DSÍ ballro- om Open. Rúmlega 500 börn og unglingar voru skráð til keppni og sýninga í Smáranum að þessu sinni, þau yngstu í flokki 9 ára og yngri og þau elstu í flokki fullorðinna, eða 19 ára og eldri. Þetta er í fyrsta skipti sem danskeppni er haldin í Smáranum í Kópavogi, húsið hentaði ágætlega undir keppnina, gólfið var gott, stærðin var góð, aðstaða fyrir kepp- endur einnig, þó vantaði upp á lýs- ingu til að mynda betri stemningu en vafalaust er hægt að bæta úr því að ári. Tónlistin var ágæt, en þó nokkuð hæg á köflum. Keppnin hófst með yngstu flokk- unum sem keppa með grunnaðferð, formaður DSÍ, Jónas Dalberg ávarp- aði gesti eftir innmars og kynnti til bæjarstjórann í Kópavogi, Gunnstein Sigurðsson, sem setti mótið. Á 10 dansa mótum er það sam- anlagður árangur úr öllum sam- kvæmisdönsunum 10 sem gilda til sigurs, það eru 5 suðuramerískir dansar og 5 standarddansar. Þess vegna eru úrslit á 10 dansa keppnum oft frábrugðin öðrum keppnum en það par sem er jafnast í öllum 10 dönsunum stendur sem sigurvegari. Fimm erlendir dómarar komu til landsins að dæma mótið: Vilmars Ivuskans frá Lettlandi, Dorthe S. Hansen frá Danmörku, Pascal Proute frá Frakklandi, Alan Ford frá Bretlandi, og Rolf Pfaff frá Þýska- landi. Keppni í samkvæmisdönsum er skipt niður í mismunandi flokka eftir aldri og getu til að gefa sem flestum tækifæri á að spreyta sig. Eftirfar- andi eru helstu úrslit í Íslandsmeist- aramótinu í 10 dönsum með frjálsri aðferð. Flokkur fullorðinna F 19 ára og eldri 1. sæti: Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir frá DÍH. 2. sæti: Christopher John Page og Ásta Bjarnadóttir frá DÍK. 3. sæti: Björn Ingi Pálsson og Telma Rut Sigurðardóttir frá DÍH. Í þessum flokki voru aðeins Sig- urður og Sara sem voru í úrslitum frá því í fyrra, þá hlutu þau 2. sætið og eru því nýtt par í hverju sæti. Gaman er að sjá hvað þessi flokkur er orðinn stór. Flokkur ungmenna F 16-18 ára 1. sæti: Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir DÍH. Einnig 10 dansa meistarar frá 2009 og sig- urvegarar í flokki fullorðinna. Frá- bær árangur. 2. sæti: Björn Halldór Ýmisson og Hrefna Dís Halldórsdóttir frá DÍH. 3. sæti: Freyþór Össurarson og Eyrún Stefánsdóttir frá DR. Til gamans má geta að það var ná- kvæmlega sama niðurröðun í þessum flokki í fyrra. Eina breytingin sem hér hefur orðið er að Björn er kominn með nýja dansdömu og frábær ár- angur hjá þeim að ná öðru sætinu. Flokkur unglingaa II 14-15 ára 1. sæti: Andri Fannar Pétursson og Helga Sigrún Hermannsdóttir frá DÍH. Þau urðu einnig 10 dansa meistarar árið 2009. 2. sæti: Birkir Örn Karlsson og Perla Steingrímsdóttir frá DÍH. Nýtt efnilegt dans- par sem gaman verður að fylgjast með. 3. sæti: Guðjón Berg- mann Ágústsson og Berglind Einarsdóttir frá DÍK. Miklar breytingar hafa verið í þessum flokki, pör að skipta um dansfélaga og önnur pör að fær- ast upp. Virkilega skemmtilegur flokkur að fylgjast með. Flokkur ung- linga I 12-13 ára 1. sæti: Pétur Fann- ar Gunn- arsson og Aníta Lóa Hauksdóttir frá HK. 2. sæti: Davíð Bjarni Chiorlanzo og Rakel Matthíasdóttir frá DÍH. 3. sæti: Brynjar Björns- son og Helga Guðrún Jó- mundsdóttir frá Dansf. Ragnari. Ný pör eru einnig í öllum sætum í þessu flokki, stóðu sig öll með prýði. DSÍ Open latín danskeppnin Á laugardagskvöldið var haldin Open latín danskeppnin, var það auglýst sem gala kvöld. Í þessari keppni var aðeins keppt í suður- amerískum dönsum, eða latín döns- um eins og þeir eru kallaðir. Í efstu þremur sætunum voru: 1. sæti: Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Óladóttir frá DÍH. 2. sæti voru Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir frá DÍH, 3. sæti voru Björn Ingi Pálsson og Telma Rut Sigurðardóttir frá DÍH. Seinnipartinn á sunnudag var haldin samskonar keppni í ballroom dönsunum eða standard dönsum, helstu úrslit þeirrar keppni voru: DSÍ standard Open 1. sæti: Sigurður Már Atlason og Sandra Rós Jakobsdóttir frá DÍH, í 2. sæti voru Christopher John Page og Ásta Bjarnadóttir frá DÍK, í 3. sæti voru Björn Ingi Pálsson og Telma Rut Sigurðardóttir frá DÍH. Unga fólkið stóð sig vel Dansinn dunaði alla helgina í Smáranum, sýningar yngri barnanna tókust með eindæmum vel. Tæplega 200 börn voru mætt til sýninga til að taka sín fyrstu spor, og sýnir það okkur hvað mikil og góð uppbygging er í dansinum á Íslandi. Sýningarpör fá öll verðlaun fyrir að mæta á svæðið og fara út á gólf og finnst mér það frábært framlag frá DSÍ. Fyrir keppendur sem tóku þátt í öllum 3 mótum helgarinnar, reyndi heldur betur á þrek og þol, en þeir dansarar dönsuðu yfir 50 dansa um helgina sem sýnir í hversu góðu formi þeir þurfa að vera. Til gamans má geta þess að næsta Íslandsmeistaramót sem haldið verður er ætlað þeim sem dansa með grunnaðferð, og verður það haldið hinn 1. og 2. maí í Laugardalshöll- inni. Sömu helgi verður Íslands- meistaramót í línudönsum og bik- arkeppni með frjálsri aðferð. Helgin var í heildina öll hin skemmtilegasta, og ég vil óska kepp- endum bæði til hamingju með að taka þátt, og þeim sem komust í úr- slit með árangurinn. Einnig vil ég þakka mótanefnd og DSÍ fyrir góða helgi. danshusid@islandia.is Unglingar 10 dansa meistarar í flokki Unglinga II F, Andri Fannar Pétursson og Helga Sigrún Hermannsdóttir. Sigurvegarar 10 dansa meistarar í flokki fullorðinna og ung- menna F, Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir. 2. sæti Christopher John Page og Ásta Bjarnadóttir unnu til 2. sætis í Full- orðnum 10d og DSI Open ballroom. Íslandsmeistaramót í 10 dönsum Meistarar DSÍ Open Latin meistarar, Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Óladóttir. DANS Smárinn, Kópavogi Bikarmót með grunnaðferð, DSÍ Open latin og Standard 20. og 21. mars 2010 Fullorðnir Björn Ingi Pálsson og Telma Rut Sigurðardóttir, 3. sæti í flokki Fullorðinna 10d, DSI Open lat- in og ball 3. sæti. Morgunblaðið/Örvar Möller Lipur 10 dansa meistarar í flokki Ung- linga I F, Pétur Fannar Gunnarsson og Aníta Lóa Hauksdóttir. Börn Sýningarpar í flokki 9 ára og yngri, Magni Ófeigsson og Rakel Birta Ásgeirsdóttir. Hildur Ýr Arnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.