Morgunblaðið - 03.04.2010, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
HELGINA 20.-21. mars sl. fór fram
Íslandsmeistaramót með 10 dönsum í
samkvæmisdönsum í Smáranum í
Kópavogi. Mótið er þriðja stóra dans-
mótið á þessu ári, og er haldið á veg-
um Dansíþróttasambands Íslands.
Samhliða Íslandsmeistaramótinu
fór fram bikarmót með grunnaðferð
og tvö opin mót, annars vegar DSÍ
latin Open og hins vegar DSÍ ballro-
om Open.
Rúmlega 500 börn og unglingar
voru skráð til keppni og sýninga í
Smáranum að þessu sinni, þau
yngstu í flokki 9 ára og yngri og þau
elstu í flokki fullorðinna, eða 19 ára
og eldri. Þetta er í fyrsta skipti sem
danskeppni er haldin í Smáranum í
Kópavogi, húsið hentaði ágætlega
undir keppnina, gólfið var gott,
stærðin var góð, aðstaða fyrir kepp-
endur einnig, þó vantaði upp á lýs-
ingu til að mynda betri stemningu en
vafalaust er hægt að bæta úr því að
ári. Tónlistin var ágæt, en þó nokkuð
hæg á köflum.
Keppnin hófst með yngstu flokk-
unum sem keppa með grunnaðferð,
formaður DSÍ, Jónas Dalberg ávarp-
aði gesti eftir innmars og kynnti til
bæjarstjórann í Kópavogi, Gunnstein
Sigurðsson, sem setti mótið.
Á 10 dansa mótum er það sam-
anlagður árangur úr öllum sam-
kvæmisdönsunum 10 sem gilda til
sigurs, það eru 5 suðuramerískir
dansar og 5 standarddansar. Þess
vegna eru úrslit á 10 dansa keppnum
oft frábrugðin öðrum keppnum en
það par sem er jafnast í öllum 10
dönsunum stendur sem sigurvegari.
Fimm erlendir dómarar komu til
landsins að dæma mótið: Vilmars
Ivuskans frá Lettlandi, Dorthe S.
Hansen frá Danmörku, Pascal
Proute frá Frakklandi, Alan Ford frá
Bretlandi, og Rolf Pfaff frá Þýska-
landi.
Keppni í samkvæmisdönsum er
skipt niður í mismunandi flokka eftir
aldri og getu til að gefa sem flestum
tækifæri á að spreyta sig. Eftirfar-
andi eru helstu úrslit í Íslandsmeist-
aramótinu í 10 dönsum með frjálsri
aðferð.
Flokkur fullorðinna
F 19 ára og eldri
1. sæti: Sigurður Már Atlason og
Sara Rós Jakobsdóttir frá DÍH.
2. sæti: Christopher John Page og
Ásta Bjarnadóttir frá DÍK.
3. sæti: Björn Ingi Pálsson og
Telma Rut Sigurðardóttir frá DÍH.
Í þessum flokki voru aðeins Sig-
urður og Sara sem voru í úrslitum frá
því í fyrra, þá hlutu þau 2. sætið og
eru því nýtt par í hverju sæti. Gaman
er að sjá hvað þessi flokkur er orðinn
stór.
Flokkur ungmenna F 16-18 ára
1. sæti: Sigurður Már Atlason og
Sara Rós Jakobsdóttir DÍH. Einnig
10 dansa meistarar frá 2009 og sig-
urvegarar í flokki fullorðinna. Frá-
bær árangur.
2. sæti: Björn Halldór Ýmisson og
Hrefna Dís Halldórsdóttir frá DÍH.
3. sæti: Freyþór Össurarson og
Eyrún Stefánsdóttir frá DR.
Til gamans má geta að það var ná-
kvæmlega sama niðurröðun í þessum
flokki í fyrra. Eina breytingin sem
hér hefur orðið er að Björn er kominn
með nýja dansdömu og frábær ár-
angur hjá þeim að ná öðru sætinu.
Flokkur unglingaa II
14-15 ára
1. sæti: Andri Fannar Pétursson
og Helga Sigrún Hermannsdóttir
frá DÍH. Þau urðu einnig 10
dansa meistarar árið 2009.
2. sæti: Birkir Örn Karlsson
og Perla Steingrímsdóttir frá
DÍH. Nýtt efnilegt dans-
par sem gaman verður að
fylgjast með.
3. sæti: Guðjón Berg-
mann Ágústsson og
Berglind Einarsdóttir
frá DÍK.
Miklar breytingar
hafa verið í þessum
flokki, pör að skipta
um dansfélaga og
önnur pör að fær-
ast upp. Virkilega
skemmtilegur
flokkur að fylgjast
með.
Flokkur ung-
linga I 12-13
ára
1. sæti:
Pétur Fann-
ar Gunn-
arsson og
Aníta Lóa
Hauksdóttir
frá HK.
2. sæti: Davíð
Bjarni Chiorlanzo og
Rakel Matthíasdóttir frá
DÍH.
3. sæti: Brynjar Björns-
son og Helga Guðrún Jó-
mundsdóttir frá Dansf.
Ragnari.
Ný pör eru einnig í öllum sætum í
þessu flokki, stóðu sig öll með prýði.
DSÍ Open latín danskeppnin
Á laugardagskvöldið var haldin
Open latín danskeppnin, var það
auglýst sem gala kvöld. Í þessari
keppni var aðeins keppt í suður-
amerískum dönsum, eða latín döns-
um eins og þeir eru kallaðir.
Í efstu þremur sætunum voru:
1. sæti: Sigurður Þór Sigurðsson
og Hanna Rún Óladóttir frá DÍH. 2.
sæti voru Sigurður Már Atlason og
Sara Rós Jakobsdóttir frá DÍH, 3.
sæti voru Björn Ingi Pálsson og
Telma Rut Sigurðardóttir frá DÍH.
Seinnipartinn á sunnudag var
haldin samskonar keppni í ballroom
dönsunum eða standard dönsum,
helstu úrslit þeirrar keppni voru:
DSÍ standard Open
1. sæti: Sigurður Már Atlason og
Sandra Rós Jakobsdóttir frá DÍH, í
2. sæti voru Christopher John Page
og Ásta Bjarnadóttir frá DÍK, í 3.
sæti voru Björn Ingi Pálsson og
Telma Rut Sigurðardóttir frá DÍH.
Unga fólkið stóð sig vel
Dansinn dunaði alla helgina í
Smáranum, sýningar yngri
barnanna tókust með eindæmum
vel. Tæplega 200 börn voru mætt til
sýninga til að taka sín fyrstu spor, og
sýnir það okkur hvað mikil og góð
uppbygging er í dansinum á Íslandi.
Sýningarpör fá öll verðlaun fyrir að
mæta á svæðið og fara út á gólf og
finnst mér það frábært framlag frá
DSÍ.
Fyrir keppendur sem tóku þátt í
öllum 3 mótum helgarinnar, reyndi
heldur betur á þrek og þol, en þeir
dansarar dönsuðu yfir 50 dansa um
helgina sem sýnir í hversu góðu
formi þeir þurfa að vera.
Til gamans má geta þess að næsta
Íslandsmeistaramót sem haldið
verður er ætlað þeim sem dansa með
grunnaðferð, og verður það haldið
hinn 1. og 2. maí í Laugardalshöll-
inni. Sömu helgi verður Íslands-
meistaramót í línudönsum og bik-
arkeppni með frjálsri aðferð.
Helgin var í heildina öll hin
skemmtilegasta, og ég vil óska kepp-
endum bæði til hamingju með að
taka þátt, og þeim sem komust í úr-
slit með árangurinn. Einnig vil ég
þakka mótanefnd og DSÍ fyrir góða
helgi. danshusid@islandia.is
Unglingar 10 dansa meistarar í flokki Unglinga II F, Andri
Fannar Pétursson og Helga Sigrún Hermannsdóttir.
Sigurvegarar 10 dansa meistarar í flokki fullorðinna og ung-
menna F, Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir.
2. sæti Christopher John Page og Ásta
Bjarnadóttir unnu til 2. sætis í Full-
orðnum 10d og DSI Open ballroom.
Íslandsmeistaramót í 10 dönsum
Meistarar DSÍ Open Latin meistarar, Sigurður Þór Sigurðsson og
Hanna Rún Óladóttir.
DANS
Smárinn, Kópavogi
Bikarmót með grunnaðferð, DSÍ
Open latin og Standard
20. og 21. mars 2010
Fullorðnir Björn Ingi Pálsson og
Telma Rut Sigurðardóttir, 3. sæti í
flokki Fullorðinna 10d, DSI Open lat-
in og ball 3. sæti.
Morgunblaðið/Örvar Möller
Lipur 10 dansa meistarar í flokki Ung-
linga I F, Pétur Fannar Gunnarsson og
Aníta Lóa Hauksdóttir.
Börn Sýningarpar í flokki 9 ára
og yngri, Magni Ófeigsson og
Rakel Birta Ásgeirsdóttir.
Hildur Ýr Arnarsdóttir