Morgunblaðið - 03.04.2010, Qupperneq 32
32 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 8284 / 551 3485
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
✝
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma
og systir,
BIRNA ÁRNADÓTTIR,
Hamraborg 32,
Kópavogi,
áður Kópavogsbraut 82,
sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn
24. mars, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 7. apríl kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á blóðlækningadeild 11G,
Landspítala við Hringbraut, í síma 543 1159.
Árni Steingrímsson, Valborg Björgvinsdóttir,
Jóhanna Steingrímsdóttir, Stefán Árni Arngrímsson,
Birna Steingrímsdóttir, Hafþór Freyr Víðisson,
Ásdís Steingrímsdóttir, Gunnar Carl Zebitz,
Sigríður Steingrímsdóttir, Bjarki Þór Sigurðsson,
barnabörn, barnabarnabörn og systkini hinnar látnu.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
MARINÓS SIGURÐSSONAR,
Búrfelli,
Svarfaðardal.
Hjartans þakkir færum við starfsfólki Dalbæjar og
gjörgæsludeild FSA fyrir góða umönnun og ómetanlega aðstoð
og vináttu.
Guð blessi ykkur öll.
Sveinfríður Jónasdóttir
og aðrir ástvinir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GERÐA HERBERTSDÓTTIR,
sem andaðist á Landspítalanum í Fossvogi
föstudaginn 26. mars, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 7. apríl kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en
þeir sem vildu minnast hennar láti góðgerðar-
samtök njóta þess.
Herbert Haraldsson, Hallfríður Ragnheiðardóttir,
Sigríður Haraldsdóttir, Gunnar Þór Ólafsson,
Jón Ingi Herbertsson, Laufey Elísabet Löve,
Gerða Gunnarsdóttir, Guðmundur Arnar Jónsson,
Lára Guðrún Gunnarsdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður, besti vinur, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og tengdasonur,
JÓN INGVI SVEINSSON,
Skarðshlíð 17,
Akureyri,
lést á heimili sínu föstudaginn 26. mars.
Útför hans fer fram frá Hvítasunnukirkjunni
Akureyri þriðjudaginn 6. apríl kl. 14.00.
Jarþrúður Sveinsdóttir,
Pétur Á. Jónsson, Guðrún Kristjánsdóttir,
Margrét S. Jónsdóttir, Arnar Þorbjörnsson,
Sveinn Kr. Jónsson,
Aðalgeir A. Jónsson, Inga S. Arnardóttir,
barnabörn, langafadrengur,
Aðalheiður Björgvinsdóttir.
✝
JÓN MAGNÚSSON,
Bókhlöðustíg 7,
Stykkishólmi,
er látinn.
Katrín Sigurjónsdóttir,
Sigurjón, Sigríður, Ingibjörg,
Katrín, Högni, Rannveig,
Áslaug, Sif.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir,
systir og frænka,
HELGA BOLLADÓTTIR,
Tindaseli 1F,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn
27. mars, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 6. apríl kl. 13.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Daníel Hjaltason, Tinna Vibeka Ómarsdóttir,
Símon Hjaltason, Vánia Cristina Lopes,
Jóel Hjaltason, Snædís Högnadóttir,
Daníela Díana Símonardóttir.
✝ Friðrikka Betúel-ína Þorbjörns-
dóttir fæddist 14. júní
1918 í Kjaransvík,
Grunnavíkurhreppi.
Hún lést á Hraun-
búðum, dvalarheimili
aldraðra, Vest-
mannaeyjum 27. mars
2010.
Foreldrar Frið-
rikku voru Guðrún
Albertína Jensdóttir,
f. 22. nóv. 1880, d. 18.
des. 1920, og Þor-
björn Guðmundsson,
f. 15. okt. 1882, d. 1. des. 1927. Frið-
rikka ólst upp á Hóli í Önundarfirði
frá 3ja ára aldri hjá þeim hjónum
Guðrúnu Jónsdóttur og Jónatani
Magnússyni.
Friðrikka giftist 21. okt. 1945
Sigurbirni Guðlaugi Einarssyni, f. 2.
des. 1919, d. 22. sept. 1966. For-
eldrar Einar Björnsson, f. 15. ágúst
1894, d. 12. jan. 1941, og Sigurlaug
Guðmundsdóttir, f. 11. sept 1895, d.
14. feb. 1980. Þau eignuðust fjögur
börn. 1) Einar, f. 6. maí 1945, maki
Sólrún Elísdóttir. Einar á einn son
Guðlaug Sigurbjörn, f. 27. maí 1971.
2) Guðrún Elsa, f. 27. nóv. 1946, d.
21. mars 2005, maki Þorsteinn Sig-
tryggsson. Börn þeirra eru: a) Snæ-
borg f. 18. nóv. 1965, maki Agnar
Guðnason og eiga þau
þrjú börn, Ragnar,
Kristófer og Guðrúnu
Ósk. b) Guðlaug, f. 2.
nóv. 1968, maki Helga
Björk Einarsdóttir og
á Guðlaug eina dótt-
ur, Sigríði Báru. c)
Þorsteinn Elías, f. 14.
jan. 1978, maki
Hrefna Haraldsdóttir
og eiga þau eina dótt-
ur, Kolfinnu. 3) Guð-
mundur, f. 7. feb.
1950, maki Elsa Val-
geirsdóttir. Börn
þeirra eru: a) Birkir Ívar, f. 14. sept.
1976, maki Kristín Ólafsdóttir og
eiga þau tvö börn, Sögu Hlíf og
Adelu Björt. b) Þórey Friðrikka, f.
14. júní 1982. 4) Friðrik, f. 8. ágúst
1953, maki Árný Skúladóttir. Börn
þeirra eru: a) Ásta, f. 25. feb. 1977.
b) Ólöf, f. 10. ágúst 1981. c) Friðrik
Árni, f. 16. feb. 1989.
Friðrikka bjó öll sín fullorðinsár í
Vestmannaeyjum, lengst af á Eyja-
hólum, Hásteinsvegi 20. Hún starf-
aði mest alla ævina við fiskvinnslu
en síðustu starfsárin vann hún á
Hraunbúðum.
Útför Friðrikku verður gerð frá
Landakirkju, Vestmannaeyjum í
dag, 3. apríl 2010, og hefst athöfnin
kl. 14.
Elsku mamma, mínar fyrstu minn-
ingar eru frá því er við áttum heima á
Skildingaveginum. Þó húsakosturinn
hafi ekki verið stór þá fór vel um okk-
ur öll, þig og pabba og okkur systk-
inin, Einar, Gunnu, mig og Friðrik.
Sigurlaug föðuramma bjó á sama stað
og nutum við góðs af hlýju hennar og
yndislegheitum. Við fluttum að Eyja-
hólum (Hásteinsvegi 20) eftir að það
brann ofan af okkur húsið á Skild-
ingaveginum.
Stundum hvessti verulega á heim-
ilinu eftir vanhugsaða leiki okkar
bræðra og vina, það munaði jú um að
leggja út pening fyrir nýjum rúðum í
glugga eftir golfleik fyrir framan eld-
húsgluggann á Eyjahólum, það var á
sunnudegi og þá var lítið fyrir mann
að gera annað en fara í messu í Betel,
Aðventistakirkjunni og að lokum í
Landakirkju meðan reiðin rann af
þér og Gunnu stóru systur.
Þú hafðir stórt skap en einnig stórt
hjarta og oftast var stutt í húmorinn
hjá þér, þú hafðir gaman af því að
spila vist, kenndir okkur bræðrum að
tefla og oft voru læti og mikið rifist á
heimilinu yfir enska boltanum.
Elsku mamma, lífsbaráttan var þér
efalaust oft erfið, vinnudagurinn
langur og strangur og heimilisverkin
tóku við þegar heim var komið, þú
gafst þér þó ávallt tíma til að hlusta á
okkur og allir hlutir voru betri og ljós-
ið bjartara þegar þú varst nálæg. Þú
barst hitann og þungann af uppeldi
okkar systkinanna, þú varst klettur-
inn í lífi okkar allra. Pabbi var sjó-
maður og oft fjarverandi, ég minnist
ferða ykkar til Alla frænda og Syttu
þar sem spiluð var vist fram eftir
nóttu.
Þegar eldgos kom upp á Heimaey
1973 fluttir þú til Hafnarfjarðar og
bjóst þar í ein 2 ár. Þú fluttir aftur til
Eyja, og bjóst áfram að Eyjahólum,
nú varst þú orðin ein og farin að láta
meira eftir sjálfri þér, þú hafðir gam-
an af utanlandsferðunum með Guð-
nýju og Ásu og öðrum vinkonum. Líf-
ið var loks farið að leika við þig, þú
hafðir það gott og kunnir svo sann-
arlega að njóta lífsins á hógværum
nótum. Seint gleymast partíin hjá
Guðnýju, þið ásamt Ásu voruð hrókar
alls fagnaðar.
Elsku Friðrikka, þú varst mjög
stolt og hreinskilin. Þegar við héldum
upp eitt afmælið hans Gumma og
buðum upp á mat og bollu þá var mik-
ið fjör og gaman, oft var skálað og er
líða tók á kvöldið þá stóð mín upp og
kallaði yfir stofuna „Guðmundur, ég
skála ekki lengur í þessu glundri“.
Auðvitað var bollan bara löguð fyrir
hana Friðrikku. Þú hafðir mikið dá-
læti á gardínum og þitt heimili skart-
aði oft nýjum gluggatjöldum, öfugt
við okkar heimili. Í stað þess að hafa
orð á því þá komst þú bara með nýjar
til okkar.
Árið 2005 dó hún Gunna okkar sem
var þín eina dóttir, þín besta vinkona
og trúnaðarvinur. Það var eins og
eitthvað hefði slokknað innra með
þér, gleðin og lífsviljinn var að hluta
slokknaður.
Elsku mamma og tengdó, við þökk-
um þér yndislegar stundir og þá góð-
mennsku og ást sem þú gafst okkur.
Við kveðjum að sinni í fullvissu
þess að þú sért nú með henni Gunnu
þinni og pabba og öðrum ástvinum.
Guðmundur og Elsa.
Elsku amma.
Eitt er víst að ekki var líf þitt alltaf
auðvelt, þú þurftir svo sannarlega að
hafa fyrir hlutunum. Sem ungabarn
misstir þú móður þína, varðst ekkja
fyrir fimmtugt en þú varst svo ótrú-
lega þver og mikill dugnaðarforkur
að uppgjöf var ekki til í þínu lífi. En
svo gerðist það fyrir fimm árum að
mamma dó, við misstum klettinn okk-
ar og þú varst aldrei söm eftir það.
Við erum sannfærð um að þú fékkst
hlýjar móttökur á nýja staðnum og
tekur gleði þína á ný.
Elsku amma okkar, við erum svo
lánsöm að eiga helling af minningum
um þig. Við brosum í gegnum tárin og
kveðjum þig í bili.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Takk fyrir allt og allt. Þín barna-
börn,
Snæborg, Guðlaug og Þorsteinn.
Við systkinin viljum minnast elsku-
legrar ömmu okkar sem lést laugar-
daginn 27. mars. Þær eru ófáar minn-
ingarnar sem ylja okkur á þessari
stundu enda um einstaka konu að
ræða. Fyrir nokkrum árum áttum við
amma spjall um minningargreinar og
lofuðum við henni því að við myndum
ekki birta lofræðu um hana í Morg-
unblaðinu þegar hún félli frá. Ef það
var eitthvað sem fór í taugarnar á
henni ömmu þá var það endalaus upp-
talning um hjúskap, störf og uppeldi.
Við ættum heldur að minnast hennar
sem persónu eða skvísu og við það
Friðrikka Betúelína
Þorbjörnsdóttir