Morgunblaðið - 03.04.2010, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð
Páskadaur 4. apríl
Samkoma kl. 17.00 á ,,Líf með
hinum upprisna”. Ræðumaður
er Hermann Bjarnason.
Lofgjörð, fyrirbæn og barnastarf.
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund páskadag
kl. 14.00.
Samkoma páskadag kl. 08
„Upprisufögnuður“.
Umsjón: Anne M. Reinholdtsen.
Þátttakendur og leiðtogar frá
unglingamótinu (um 40 manns)
taka þátt. Morgunverður á
Gistihúsinu eftir samkomuna.
Gleðilega páskahátíð!
Félagsfundur
hjá Lífssýn verður
haldinn þriðjudags-
kvöldið 6. apríl kl.
20.30 að Bolholti 4, 4.
h. Ari Magnússon og
Kristín Gunnlaugs-
dóttir flytja fyrirlestur
um hinar ýmsu hliðar
stjörnuspekinnar.
Aðgangseyrir 1000.
Léttar veitingar. Allir
velkomnir.
Stjórnin
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Hjólhýsi til sölu
Adria Classica 613 pk Alde hitakerfi,
gólfhiti. Sólarsella og fl. Árg. 2007.
Sem nýtt. S: 696 9503.
Smáauglýsingar
Stigamaðurinn
Stigar og handrið úti sem inni. Járn
og tré. Gerum föst verðtilboð. Uppl. í
s. 898 7779 og 897 1479.
Til sölu
Hæfniskröfur: Stúdentspróf eða sambærileg
menntun.
Almenn tölvufærni, þekking á
Windows, tölvupósti og interneti.
Hæfni í mannlegum samskiptum og
afburða þjónustulund
Nánari upplýsingar um störfin veitir Auður Ingólfsdóttir
starfsmannastjóri í síma 569-1342 eða 669-1342
Umsóknarfrestur er til 10 april nk. Umsóknareyðublað er á mbl.is,
efst á forsíðu er flipi, Morgunblaðið, þar undir fyrirtæki er valið
sækja um starf. Athugið að hægt er að setja ferilskrá og mynd í
viðhengi við umsóknareyðublaðið.
Auglýsingadeild Árvakurs
óskar eftir duglegu sölufólki
til að taka þátt í sölu auglýsinga
í miðla félagsins
Við leitum að röskum, þjónustulunduðum
einstaklinum sem geta hafið störf sem allra fyrst.
Ert þú góður sölumaður?
RÉTTI klæðnaðurinn skiptir öllu máli þegar kemur að farsæl-
um frama. Mismunandi fatnaður þykir við hæfi í mismunandi
störfum, og eins og gengur og gerist ganga yfir minni og stærri
tískubylgjur.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins úr ís-
lenska tískubransanum er nú t.d. orðið algengt að sjá starfs-
menn í fjármálageiranum frjálslegri til fara en áður og jafnvel
sést til þeirra bindislausra. Eru uppi kenningar á þá leið að
bæði endurspegli þetta breyttan anda innan fjármála-
fyrirtækja hér á landi, en einnig sé um smitun að ræða
frá Alþingi sem ekki alls fyrir löngu afnam bind-
isskyldu.
Ekki líst öllum vel á þessa þróun, og þykir missir
að þeim virðulega blæ sem fylgir bindinu. En hvað
er þá til ráða?
Axlaböndin koma þar til bjargar.
Þessi fallegi aukahlutur hefur af einhverjum
ástæðum ekki náð almennilegri útbreiðslu í ís-
lensku viðskiptalífi. Og er það miður, enda má
skipa axlaböndum í flokk með ermahnöppum og
vasaklútum sem aukahlutum sem skerpa á „lúkk-
inu“ og fullkomna fallegan formlegan vinnufatnað.
Búkurinn rammaður inn
Axlaböndin bæta við tveimur lóðréttum línum að
framan, og einni (og stundum tveimur) að aftan, og
geta því verkað grennandi. Ekki er nóg með það held-
ur má segja að axlaböndin „rammi inn“ bindið, en þau
ramma líka inn skyrtuna alla þegar bindið er ekki til
staðar. Bindislaus maður með fráhneppt hálsmálið
getur verkað hálfklæðalítill, satt best að segja, en ef
hann er með falleg axlabönd þá gildir einu þó háls-
málið sé opið og jafnvel rúllað upp á ermarnar,
virðugleikinn er enn til staðar.
Auðvitað eru axlabönd ekki öll sköpuð jöfn og ljót
og ódýr axlabönd geta jafnvel dregið úr fegurð
fallegra jakkafata. Til að vera „alvöru“ eiga
axlaböndin ekki að vera smellt á buxna-
strenginn með málmklemmu. Vel klæddir
menn nota hneppt axlabönd, þar sem leð-
urlykkja er á endanum á böndunum, sem
helst eiga að vera úr silki, og festist á
þar til gerða hnappa sem saumaðir eru
á buxnastrenginn innanverðan.
Svo þarf vitaskuld að gæta að því að
axlaböndin rími vel við klæðið í föt-
unum, bindið og skóna, en axlaböndin
eiga einmitt ekki að vera í sama lit og
aðrar flíkur heldur eiga þau að kallast
á við þær nema hvað leðurparturinn á
að vera í sama lit og skórnir. Einlit
axlabönd fara t.d. betur við teinóttar
skyrtur en teinótt bönd betur við einlitar skyrtur.
Það þykir sérlega hallærislegt að vera bæði með axlabönd og
belti, og raunar líka til marks um lítinn tískuþroska að nota axla-
bönd við buxur sem eru með beltislykkjum.
Axlabönd í Hollywood
Þetta vita menn í fjármálahverfum bæði austan- og vest-
anhafs. Á Wall Street er til dæmis ekki óalgengt að þeir sem
best kunna að klæða sig skarti fallegum axlaböndum. Smekkvísi
af þessum toga má síðan sjá í myndunum frá Hollywood og
muna lesendur eflaust margir eftir reffilegum Michael Douglas
sem arkaði um skrifstofuna sína jakkalaus og með axlabönd í
Wall Street. Sömuleiðis var hann Christian Bale stórglæsilegur
að vanda í American Psycho enda axlaböndin á sínum stað og
raunar morðtólin líka, en það er önnur saga.
Nú síðast sáust axlaböndin í þáttunum Gossip Girl og Mad
Men. Það bendir því allt til að axlaböndin séu að koma aftur í
tísku.
Hvar eru axlaböndin?
Lítið sést af axlaböndum í íslensku viðskiptalífi, eins og stendur
Fallegur aukahlutur, sérstaklega á tímum bindisleysis
Smekkvísi Jared Leto í hlutverki sínu í American Psycho,
grunlaus um yfirvofandi hættu. Axlaböndin ómissandi.
Fauti Michael Douglas sem fjár-
málafanturinn Gordon Gekko. Væri
ekki svipur hjá sjón án axlabandanna.