Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 38

Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010 Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð Páskadaur 4. apríl Samkoma kl. 17.00 á ,,Líf með hinum upprisna”. Ræðumaður er Hermann Bjarnason. Lofgjörð, fyrirbæn og barnastarf. Félagslíf Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund páskadag kl. 14.00. Samkoma páskadag kl. 08 „Upprisufögnuður“. Umsjón: Anne M. Reinholdtsen. Þátttakendur og leiðtogar frá unglingamótinu (um 40 manns) taka þátt. Morgunverður á Gistihúsinu eftir samkomuna. Gleðilega páskahátíð! Félagsfundur hjá Lífssýn verður haldinn þriðjudags- kvöldið 6. apríl kl. 20.30 að Bolholti 4, 4. h. Ari Magnússon og Kristín Gunnlaugs- dóttir flytja fyrirlestur um hinar ýmsu hliðar stjörnuspekinnar. Aðgangseyrir 1000. Léttar veitingar. Allir velkomnir. Stjórnin Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, 4WD. Öruggur í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Hjólhýsi til sölu Adria Classica 613 pk Alde hitakerfi, gólfhiti. Sólarsella og fl. Árg. 2007. Sem nýtt. S: 696 9503. Smáauglýsingar Stigamaðurinn Stigar og handrið úti sem inni. Járn og tré. Gerum föst verðtilboð. Uppl. í s. 898 7779 og 897 1479. Til sölu Hæfniskröfur: Stúdentspróf eða sambærileg menntun. Almenn tölvufærni, þekking á Windows, tölvupósti og interneti. Hæfni í mannlegum samskiptum og afburða þjónustulund Nánari upplýsingar um störfin veitir Auður Ingólfsdóttir starfsmannastjóri í síma 569-1342 eða 669-1342 Umsóknarfrestur er til 10 april nk. Umsóknareyðublað er á mbl.is, efst á forsíðu er flipi, Morgunblaðið, þar undir fyrirtæki er valið sækja um starf. Athugið að hægt er að setja ferilskrá og mynd í viðhengi við umsóknareyðublaðið. Auglýsingadeild Árvakurs óskar eftir duglegu sölufólki til að taka þátt í sölu auglýsinga í miðla félagsins Við leitum að röskum, þjónustulunduðum einstaklinum sem geta hafið störf sem allra fyrst. Ert þú góður sölumaður? RÉTTI klæðnaðurinn skiptir öllu máli þegar kemur að farsæl- um frama. Mismunandi fatnaður þykir við hæfi í mismunandi störfum, og eins og gengur og gerist ganga yfir minni og stærri tískubylgjur. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins úr ís- lenska tískubransanum er nú t.d. orðið algengt að sjá starfs- menn í fjármálageiranum frjálslegri til fara en áður og jafnvel sést til þeirra bindislausra. Eru uppi kenningar á þá leið að bæði endurspegli þetta breyttan anda innan fjármála- fyrirtækja hér á landi, en einnig sé um smitun að ræða frá Alþingi sem ekki alls fyrir löngu afnam bind- isskyldu. Ekki líst öllum vel á þessa þróun, og þykir missir að þeim virðulega blæ sem fylgir bindinu. En hvað er þá til ráða? Axlaböndin koma þar til bjargar. Þessi fallegi aukahlutur hefur af einhverjum ástæðum ekki náð almennilegri útbreiðslu í ís- lensku viðskiptalífi. Og er það miður, enda má skipa axlaböndum í flokk með ermahnöppum og vasaklútum sem aukahlutum sem skerpa á „lúkk- inu“ og fullkomna fallegan formlegan vinnufatnað. Búkurinn rammaður inn Axlaböndin bæta við tveimur lóðréttum línum að framan, og einni (og stundum tveimur) að aftan, og geta því verkað grennandi. Ekki er nóg með það held- ur má segja að axlaböndin „rammi inn“ bindið, en þau ramma líka inn skyrtuna alla þegar bindið er ekki til staðar. Bindislaus maður með fráhneppt hálsmálið getur verkað hálfklæðalítill, satt best að segja, en ef hann er með falleg axlabönd þá gildir einu þó háls- málið sé opið og jafnvel rúllað upp á ermarnar, virðugleikinn er enn til staðar. Auðvitað eru axlabönd ekki öll sköpuð jöfn og ljót og ódýr axlabönd geta jafnvel dregið úr fegurð fallegra jakkafata. Til að vera „alvöru“ eiga axlaböndin ekki að vera smellt á buxna- strenginn með málmklemmu. Vel klæddir menn nota hneppt axlabönd, þar sem leð- urlykkja er á endanum á böndunum, sem helst eiga að vera úr silki, og festist á þar til gerða hnappa sem saumaðir eru á buxnastrenginn innanverðan. Svo þarf vitaskuld að gæta að því að axlaböndin rími vel við klæðið í föt- unum, bindið og skóna, en axlaböndin eiga einmitt ekki að vera í sama lit og aðrar flíkur heldur eiga þau að kallast á við þær nema hvað leðurparturinn á að vera í sama lit og skórnir. Einlit axlabönd fara t.d. betur við teinóttar skyrtur en teinótt bönd betur við einlitar skyrtur. Það þykir sérlega hallærislegt að vera bæði með axlabönd og belti, og raunar líka til marks um lítinn tískuþroska að nota axla- bönd við buxur sem eru með beltislykkjum. Axlabönd í Hollywood Þetta vita menn í fjármálahverfum bæði austan- og vest- anhafs. Á Wall Street er til dæmis ekki óalgengt að þeir sem best kunna að klæða sig skarti fallegum axlaböndum. Smekkvísi af þessum toga má síðan sjá í myndunum frá Hollywood og muna lesendur eflaust margir eftir reffilegum Michael Douglas sem arkaði um skrifstofuna sína jakkalaus og með axlabönd í Wall Street. Sömuleiðis var hann Christian Bale stórglæsilegur að vanda í American Psycho enda axlaböndin á sínum stað og raunar morðtólin líka, en það er önnur saga. Nú síðast sáust axlaböndin í þáttunum Gossip Girl og Mad Men. Það bendir því allt til að axlaböndin séu að koma aftur í tísku. Hvar eru axlaböndin?  Lítið sést af axlaböndum í íslensku viðskiptalífi, eins og stendur  Fallegur aukahlutur, sérstaklega á tímum bindisleysis Smekkvísi Jared Leto í hlutverki sínu í American Psycho, grunlaus um yfirvofandi hættu. Axlaböndin ómissandi. Fauti Michael Douglas sem fjár- málafanturinn Gordon Gekko. Væri ekki svipur hjá sjón án axlabandanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.