Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 41
Dagbók 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GRETTIR, ÉG OG LÍSA
VILJUM VERA EIN
ÉG SKIL ÞAÐ
FULLKOMLEGA
ÉG MYNDI LÍKA SKAMMAST MÍN
AÐ LÁTA SJÁ MIG MEÐ HONUM
ÉG SÝNDI PABBA EINKUNNA-
SPJALDIÐ MITT OG HANN
SPURÐI AF HVERJU ÉG VÆRI
SÁ EINI SEM FÉKK EKKI „A“
ÞÁ SPURÐI ÉG HANN,
„HVORT HONUM ÞÆTTI EKKI
FRÁBÆRT AÐ VIÐ VÆRUM
ÖLL SKÖPUÐ ÓLÍK?“
ÞÁ HÓFUST TRÚARLEGAR
DEILUR OKKAR Á MILLI
ÉG ÁTTI Í
TRÚARLEGUM
DEILUM VIÐ
PABBA Í GÆR
HÆTTU NÚ
ÞESSU VÆLI!
ALLIR DREKAR
ERU ANDFÚLIR!
ÞETTA ER
NÝJASTA
UPPFINNINGIN
MÍN... NÚNA
GETUR ÞÚ LÍKA
ÞRIFIÐ HELLINN
OKKAR Á
NÓTTUNNI
NÆST TEKUR RÉTTURINN
FYRIR MÁL NÚMER 5578XT
NÚNA
BYRJAR
BALLIÐ
HVAÐ HEFUR
ÞÚ AÐ SEGJA ÞÉR
TIL MÁLSBÓTA
ÉG ER
SAKLAUS,
SAMANBER
121. GREIN
UMFERÐARLAGA
ENN EIN
MANNESKJA
SEM LAS,
„HVERNIG Á AÐ
LOSNA UNDAN
HRAÐASEKT“
ÁÐUR EN VIÐ DÆMUM KÓNGULÓARMANNINN
ÆTTUM VIÐ AÐ HEYRA HVAÐ HANN HEFUR AÐ SEGJA
MARÍA LOPEZ
HELDUR AÐ PADDAN
SÉ SAKLAUS
MÉR
HEYRIST
ÞAÐ
BÍDDU ÞAR TIL
HÚN SÉR FORSÍÐUNA
Á MORGUN
GÓ
MA
ÐI K
ÓNG
ULÓ
AR-
MA
ÐUR
INN
VUL
TUR
E
TIL
AÐ
SIT
JA
EIN
N
AÐ
AUÐ
ÆF
UM
BOR
GAR
INN
AR?
ISbook – ný
tengslanetsíða
ISbook er ný tengsla-
netsíða sem var hönn-
uð á Íslandi og er
mjög skemmtileg og
býður upp á til dæmis
vídeóspjall og venju-
legt spjall. Einnig eru
nokkrir MMROPG-
leikir (Multiplayer
games) og fleiri leikir
líkt og Mafia wars og
nýjasti Fishville-
leikurinn og margt
fleira eins og Minic-
lip-gagnagrunnur
sem er uppfærður
reglulega og tryggir að allir nýjustu
leikirnir séu á síðunni. ISbook er
mjög öruggur að mati netfræðinga
SAFT.
Slóðin er: htt://www.isbook.-
webs.com.
Sigþór.
Læða týndist
í Norðurmýrinni
SVÖRT og hvít læða
hvarf frá heimili sínu í
Auðarstræti 19 í Norð-
urmýrinni á dögunum.
Hún er ómerkt. Hennar
er sárt saknað. Þeir sem
geta veitt upplýsingar
eru beðnir að hafa sam-
band í síma 551 6337 eða
669 1237.
Bakpoki fannst
í Skógum
BAKPOKI fannst á
borði við salernis-
aðstöðuna í Skógum
sunnudaginn 28. mars síðastliðinn.
Eigandi er beðinn að hafa samband
við Unu í síma 864-3238.
Ást er…
… þegar lag í útvarpinu
snertir í þér streng.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Páskarnir eru tími hugvekju,þar sem fólki gefst tími til að
leita inn á við, en jafnframt leggja
rækt við fjölskylduna. Ástin
blómstrar og Pétur Stefánsson
tekur eftir að þá yrkja sumir um
hunda og ketti. Honum kemur
annað í hug:
Þreytan öll frá limum líður,
lúin beinin hressast fljótt.
Angur hugans úr mér skríður,
í örmum þínum dag og nótt.
Hjá þér æ mun hugró veitast,
hamingjunnar straum ég finn.
Faðmlag þitt ég þrái heitast,
þú ert Lazy Boyinn minn.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir var
ekki alveg sátt við boðskap Pét-
urs:
Er nú Pétur orðinn breyttur
ekkert vín né ferð á bar.
Láréttur hann liggur sveittur
og langar ekki á kvennafar.
Bryndís H. Bjartmarsdóttir tel-
ur að karlmenn eigi að finna sér
önnur og verðugri yrkisefni:
Alveg er nóg að etja kappi
við yngri konur um mannsins hylli
þó stólræfill fáı́ ekki að hrósa happi
og hverja hans þrá og löngun stilli.
Símon Dalaskáld orti til Þór-
eyjar Bjarnadóttur, bónda á Hofi,
að því er segir í Ljóðmælum með
völdum vísum eftir hann:
Man ég fríð í Dölum drós
dugði smíða bögur.
Hennar blíðu brúnaljós
brunnu íðilfögur.
Við í næði ljóða leik
létum fæða gaman,
ég og klæða inndæl eik
ortum kvæði saman.
Nam sú gæða-mjúklynd mær
meinin græða hörðu;
saman æðar ásta tvær
okkar blæða gjörðu.
Vísur Vatnsenda Rósu eru
kunnustu ástarvísur á íslenskri
tungu, en þær orti hún til Páls
Þórðarsonar frá Melstað. Sagnir
um kynni Páls Melsteð og Skáld-
Rósu eru gamlar. Þau byrjuðu á
Möðruvöllum þegar Rósa var
kornung, en hversu náið samband
þeirra var veit nú enginn.
Augað mitt og augað þitt,
og þá fögru steina
mitt er þitt, og þitt er mitt,
þú veist, hvað eg meina.
Trega eg þig manna mest
mædd af tára flóði,
ó, að við hefðum aldrei sést,
elsku vinurinn góði.
Langt er síðan sá ég hann,
sannlega fríður var hann,
allt, sem prýða mátti einn mann,
mest af lýðum bar hann.
Engan leit eg eins og þann
álma hreyti bjarta.
Einn guð veit eg elskaði hann
af öllum reit míns hjarta.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali og jökull ber,
steinar tali og allt, hvað er,
aldrei skal eg gleyma þér.
Verði sjórinn vellandi,
víða foldin talandi,
hellubjörgin hrynjandi,
hugsa ég til þín stynjandi.
Augað snart er tárum tært,
tryggð í partast mola,
mitt er hjartað sárum sært,
svik er hart að þola.
Beztan veit eg blóma þinn,
blíðu innst í reitum.
Far vel Eyjafjörður minn,
fegri öllum sveitum.
Sagnir herma að hún hafi fund-
ið Pál Melsteð á förnum vegi og
ort til hans:
Man ég okkar fyrri fund,
forn þó ástin réni.
Nú er eins og hundur hund
hitti á tófugreni.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af ástarljóðum til stóls,
karla og kvenna
Að skrifa
minningagrein
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu
minningagreina. Þær eru einnig birtar á
www.mbl.is/minningar.
Skilafrestur minningagreina er
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrir útfarardag, en á föstudegi
vegna greina til birtingar á mánu-
dag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfara-
rdag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að
birta allar greinar svo fljótt sem
auðið er. Hámarkslengd minn-
ingagreina er 3.000 tölvuslög
með bilum. Lengri greinar eru
vistaðar á vefnum, þar sem þær
eru öllum opnar.