Morgunblaðið - 03.04.2010, Page 43
Menning 43FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010
Ég efast um að við
verðum jafn mikið
og lengi fyrir neðan belt-
ið... 44
»
MÖGULEIKHÚSIÐ verður
með aukasýningu á leikritinu
Langafi prakkari í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi í dag
kl. 14. leikritið byggist á bók-
um Sigrúnar Eldjárn um
Langafa prakkara sem hafa
lengi notið vinsælda meðal
yngstu lesendanna. Í þessari
leikgerð er stuðst við bæk-
urnar Langafi drullumallar og
Langafi prakkari. Leikritið
var fyrst sýnt árið 1999, en alls eru sýningar þess
orðnar rúmlega 260 talsins. Pétur Eggerz leikur
Langafa og Aino Freyju Järvelä leikur Önnu.
Leikstjóri er Pétur Eggerz, búninga gerði Katrín
Þorvaldsdóttir og tónlist Vilhjálmur Guðjónsson.
Leiklist
Langafi prakkari
snýr aftur
Sigrún
Eldjárn
SAMNINGAR hafa tekist um
að Gæludýrin, skáldsaga
Braga Ólafssonar, komi út í
Argentínu á næstunni, en það
mun fátítt að suðuramerísk
forlög gefi út bækur íslenskra
höfunda, þó spænskar bóka-
úgtáfur hafi dreift slíkum verk-
um víða í álfunni. Þetta er
fjórða álfan sem Bragi sækir
inn í, en áður hafði hann lagt til
atlögu við Norður-Ameríku,
Evrópu og Eyjaálfu. Skáldsagan Gæludýrin kom
út hér á landi árið 2001 og var meðal annars til-
nefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sama
ár. Þess má geta að leikrit Braga, Hænuungarnir,
er nú sýnt í Þjóðleikhúsinu.
Bókmenntir
Gæludýrin til
Argentínu
Bragi
Ólafsson
Á MORGUN verður efnt til
listadagskrár á Gallerí/Bar 46,
Hverfisgötu 46. Þar stendur nú
yfir umfangsmikil sýning á
verkum Sigurðar Örlygssonar
listmálara þar sem skoða má
málverk frá ýmsum skeiðum á
ferli hans en Sigurður hélt sína
fyrstu einkasýningu árið 1971.
Kl. 15:00 mun Sigurður leiða
gesti um sýninguna og gera
grein fyrir verkunum og hug-
myndunum að baki þeim.
Að því loknu hefst ljóða- og tónlistardagskrá
þar sem Birna Þórðardóttir les eigin ljóð við und-
irleik Magnúsar Einarssonar gítarleikara. Jón
Proppé kynnir dagskrána.
Myndlist & ljóðlist
Listadagskrá á
Gallerí/Bar 46
Sigurður
Örlygsson
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
NÚ á mánudaginn, annan í páskum, mun Kammersveitin
Ísafold skipuð tuttugu hljóðfæraleikurum og Schola can-
torum, kammerkór Hallgrímskirkju skipaður fimmtán
söngvurum, flytja Sinfóníu nr. 4 eftir Alfred Schnittke.
Einsöngvarar verða þau Guðrún Edda Gunnarsdóttir alt
og Bragi Bergþórsson tenór. Sinfónían, sem er samin árið
1983 en frumflutt árið 1984 er mjög trúarleg og sameinar
laglínur frá fjórum kirkjudeildum: Gyðingum, rússnesku
rétttrúnaðarkirkjunni, mótmælendum og kaþólikkum og
er hinn áhrifamikli þáttur söngvaranna fluttur á rúss-
nesku. Textinn er frá 10. öld úr „Book of Lamentations“
eftir armenska ljóðskáldið Gregory of Naser.
Óður til trúarbragðanna
Stjórnandi er Daníel Bjarnason og segir hann
Schnittke hiklaust hafa verið eitt af höfuðtónskáldum 20.
aldarinnar.
„Þetta var maður sem fór eigin leiðir og hann er einn af
þeim sem varð svolítið útundan í sögubókunum. Hann var
mikið í því að stefna saman gamla og nýja tímanum í tón-
list sinni og hann var djarfur og tilraunaglaður.“
Daníel segir verkið óð Schnittke til trúarbragðanna, en
hann tekur fjögur þeirra og bræðir þau saman og bland-
ar.
„Hann var að velta því fyrir sér að þó að trúarbrögð
væru mörg og ólíkrar gerðar hefðu þau líklega sömu
merkingu fyrir fólk, sameiginlegan tilgang. Verkið var
nýstárlegt, mætti segja að það væri þverkirkjulegt (bros-
ir). Þvertrúarlegt eiginlega.“
Andstæður
Daníel segir verkið einkennast af andstæðum; kaflar
með miklum látum skiptist á við innhverfari stemmur.
„Hann var sjálfur efasemdamaður í trúnni, þó að hann
væri mjög trúaður. Hann var efins um hvert skyldi leita
og það endurspeglast sumpart í verkinu.“
Af Daníel sjálfum er það annars að frétta að plata hans,
Processions, kemur út í Bretlandi í byrjun apríl og verkið
verður frumflutt þar á hljómleikum í maí. Mun Víkingur
Heiðar m.a. leika og BBC ætlar að taka upp.
„Þverkirkjulegt“ verk
Kammersveitin Ísafold og Schola cantorum flytja trúarlegt verk eftir Alfred
Schnittke á Kirkjulistahátíð Stjórnandi er Daníel Bjarnason
Hersingin Kammersveitin Ísafold í öllu sínu veldi. Daníel Bjarnason er þriðji frá vinstri.
LISTAVAKA ungs listafólks verð-
ur haldin í Hallgrímskirkju laug-
ardaginn 3. maí og er hluti Kirkju-
listahátíðar í ár. Fjölbreytt og
forvitnileg dagskrá verður í kirkj-
unni þennan dag, en hún hefst kl.
15 og stendur til kl. 23.
Klukkan 21.15 er á dagskrá við-
burður sem hefur hlotið nafnið
Spuni í myrkri kirkju, en þar mun
dans og tónlist fléttast saman á
skemmtilegan hátt. Að sögn Mel-
korku Ólafsdóttur flautuleikara,
sem er umsjónarmaður listavök-
unnar, verður þarna unnið með
þema Kirkjulistahátíðar, sem í ár
er „Frá myrkri til ljóss.“
Spuninn hefst kl. 21.15 nákvæm-
lega, en samkvæmt almannaki
byrjar þá að dimma í Reykjavík.
Myrkrið mun ríkja í kirkjunni en
danshópurinn HNOÐ mun leika
listir sínar í skugganum undir
hljóðfæraleik ungra tónlista-
manna.
Undir lok spunans mun svo tón-
listarkonan Ólöf Arnalds stíga
fram og birtan kljúfa rökkrið á
meðan tónlist Ólafar ómar um
kirkjuna.
Aðrir tónlistarmenn sem koma
fram eru Borgar Magnason
kontrabassi, Katie Buckley harpa,
Ingrid Karlsdóttir fiðla, Margrét
Árnadóttir selló, Grímur Helgason
klarinett og Jesper Petersen
blokkflauta.
Ókeypis er á alla viðburði Lista-
vöku ungs listafólks og dagskrána
má finna á www.kirkjulistahatid.is.
Myrkur og ljós
Ungir listamenn framkvæma
gjörninga á Listavöku ungs listafólks
Ólöf Arnalds Kemur með ljósið.
METVERÐ
fékkst fyrir mál-
verk úr Ned
Kelly-röð ástr-
alska málarans
Sidneys Nolans á
uppboði í Melbo-
urne, en alls seld-
ist verkið fyrir
um 600 milljónir
króna. Kaupandi
var stofnun sem kennd er við mál-
arann James Timothy Gleeson og
Frank O’Keefe sambýlismann hans,
en daginn eftir uppboðið færði stofn-
unin listasafni Nýja Suður-Wales
verkið að gjöf.
Sidney Nolan málaði 27 myndir af
skálkinum Ned Kelly, en 26 mynd-
anna hafa verið í eigu Listasafns
Ástralíu og er mál manna að hátt
verð á myndinni, sem kölluð hefur
verið „týnda“ Ned Kelly-myndin,
ráðist af því að hún var sú eina í
einkaeigu.
Metverð fyr-
ir Ned Kelly
600 milljónir fyrir
„týnda“ mynd
Sjálfsmynd Sidneys
Nolans
TÓNLISTARÁHUGAMENN á Vest-
urlöndum urðu varir við Rússann Alfred
Schnittke upp úr 1980 og varð hann mjög
umtalaður og að sama skapi áhrifaríkur.
Hann fæddist í Sovétríkjunum en foreldrar
hans voru þýskir. Framan af skipti hann
tíma sínum á milli Moskvu og Hamborgar
og hafði framfærslu af því að semja kvik-
myndatónlist. Árið 1985 fékk hann hjarta-
slag, nokkur reyndar, en við það brast á
með frjósamasta skeiði hans sem lista-
manns. Hann dó árið 1998 í Hamborg.
Trúarleg, jafnt sem heimspekileg stef, ein-
kenndu tónlist hans og hann leit á tón-
skáldið sem nokkurs konar miðil hin guð-
dómlega, en tónlist væri af slíkum meiði
fremur en mannlegum. Þess má geta að
tveimur tímum fyrir tónleika, kl. 18, mun
Helgi Jónsson tónlistarfræðingur flytja
fyrirlestur um Alfred Schnittke – líf hans
og verk og ástæður þess að hann samdi
trúarlega tónlist. Fer fyrirlesturinn fram í
Listasafni Einars Jónssonar. Að fyrirlestr-
inum loknum býður Kaffi Loki upp á
Kirkjulistahátíðardisk áður en gengið er
til kirkjunnar til að upplifa Schnittke-
tónleikana. Aðgangur ókeypis – allir vel-
komnir.
Hver var Alfred Schnittke?
Í DAG
Kl. 15.00 Fagnaðargjörningur í
klukkuturninum. Flutt verða
verk fyrir kirkjuklukkur og lúðra
eftir Viktor Orra Árnason og
Hjört Ingva Jóhannesson úr
hljómsveitinni Hjaltalín og Guð-
mund Stein Gunnarsson og Inga
Garðar Erlendsson úr Sam-
tökum listrænt ágengra tón-
smiða umhverfis Reykjavík
(S.L.Á.T.U.R.).
Kl. 16:30 Kammertónleikar
Hljóðfæraleikara úr Kamm-
ersveitinni Ísafold og Kamm-
erhópnum Elektru í suðurvæng
kirkjunnar.
Kl. 21:15 Spuni í myrkri kirkju –
tónlistar- og dansspuni. Dans-
hópurinn HNOÐ, Borgar Magna-
son, Katie Buckley, Ingrid Karls-
dóttir, Margrét Árnadóttir,
Grímur Helgason, Jesper Pet-
ersen og Ólöf Arnalds.
Á MÁNUDAG
Kl. 18:00 Fyrirlestur um Alfred
Schnittke og trúarlega tónlist á
tuttugustu öld.
Kl. 20:00 Kammersveitin Ísafold
og Schola cantorum flytja Sin-
fóníu nr. 4 eftir Alfred Schnittke.
Kirkjulistahátíð
MINNINGARSJÓÐUR
Magnúsar Ólafssonar ljósmyndara (1862–1937)
Minningarsjóðurinn er eini sjóður
sinnar tegundar hér á landi og er
tilgangur hans að styrkja ljósmyndun
á Íslandi sem listgrein.
Veittur er einn styrkur úr sjóðnum
upp á 700 þúsund kr. Er þetta í fyrsta
sinn sem úthlutað er úr sjóðnum.
Umsóknir skulu berast
Minningarsjóði Magnúsar Ólafssonar,
Ljósmyndasafni Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík
eða á netfangið:
ljosmyndasafn@reykjavik.is
eigi síðar en 28. apríl nk.
auglýsir eftir umsóknum um styrki til ljósmyndaverkefna.