Morgunblaðið - 03.04.2010, Side 44

Morgunblaðið - 03.04.2010, Side 44
44 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2010  Talandi um ofurtöffara. Singa- pore Sling heldur tónleika á Só- dómu í kvöld ásamt Evil Madness, Bárujárni og Two Step Horror DJ’s. Það eru liðnir heilir átta mán- uðir síðan rokkþyrstir aðdáendur sveitarinnar hafa fengið tækifæri til að berja hana augum á sviði en nú verður úr því bætt. Rokk og ról!!! Singapore Sling með tónleika á Sódómu Fólk Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is FÆREYSKA tónlistarhátíðin G! Festival, sem fram fer í bænum Götu á Austurey ár hvert, er einn helsti fastinn í tónlistarlífi eyjarskeggja. Há- tíðin verður nú haldin dagana 15. til 17. júlí en há- tíðin var fyrst haldin árið 2002 og hefur verið lofuð mikið í alþjóðlegu tónlistarpressunni fyrir ein- stakan anda og sérstæða umgjörð, en Gata, hvar Þrándur gamli bjó, er ekki nema þúsund manna bær. Liggur hann í einkar fallegu fjarðarmynni með tignarlegum, glæstum fjöllum álengdar. Á hverju ári leika um 40 sveitir á þremur sviðum og er helmingur þeirra heimaalinn. Tjaldsvæði er nálægt bænum, þar sem rúmlega 2000 manns kom- ast fyrir. Arch Enemy leika Eðlilega hafa Foo Fighters, U2 eða Kings of Leon ekki verið að troða þarna upp en áhersla er á spennandi skandinavískar sveitir. Einnig hafa sveitir frá öðrum löndum, Bandaríkjunum og frá meginlandi Evrópu komið þarna fram. „Stór“ númer láta þó sjá sig þarna líka og nú hafa hátíð- arhaldarar spilað út fyrsta trompinu af þeirri gerðinni en um er að ræða sænsku þungarokks- sveitina Arch Enemy. Sveitin var stofnuð af gít- arleikaranum Michael Amott er hann hætti í hinni goðsagnakenndu Carcass og nýtur hún mikilla vinsælda og virðingar í þungarokksheimum. Sveitin hefur leikið á öllum helstu þunga- rokkshátíðum heims og túrað með sveitum á borð við Machine Head, Slayer, Megadeth, Cradle Of Filth og Iron Maiden. Söngkona, já ég sagði söng- kona sveitarinnar er Angela Gossow og heyrn er sögu ríkari hvað hennar þátt varðar. Aðrir tónlistarmenn sem mæta eru Eivör okkar Pálsdóttir, Týr, hinn sænski Moto Boy (sem heill- aði áhorfendur á síðustu Airwaves-hátíð), Brand- ur (Enni, fyrrverandi barnastjarna, nú söngva- skáld) og danska „grime“ stjarnan Lucy Love. Frekari upplýsingar má nálgast á www.gfesti- val.fo. Engin grið gefin á G! Festival í Færeyjum Orka Arch Enemy, leidd af Angelu Gossow.  Dazed & Confused, ein helsta tízkubiblía hins vestræna heims á vart til orð til að lýsa snilld Munda en blaðið sótti Hönnunarmarsinn og Reykjavik Fashion Week heim og tók við hann viðtal. Hin mik- ilhæfa og ofurtöffaða Peaches vís- ar af síðu sinni á Dazed-viðtalið en hún var í fötum af Munda er hún lék á lokakvöldi RFF. Hyggst hún einnig klæðast fötum frá þessari rísandi stjörnu íslenskrar fatahönn- unar þegar hún setur upp sína út- gáfu af Jesus Christ Superstar í Berlín. Mun uppsetningin kallast Peaches Christ Super Star, eðli- lega … Peaches fílar hönn- uðinn Munda í botn  Rás 2 heldur áfram að styðja dyggilega við bakið á landsliðinu og leitar nú að nýju stuðningslagi fyrir landsmenn að kyrja á HM 2011. Skilafrestur er til 16. apríl. Sigurvegarar fá svo færi á að full- vinna lagið í Sýrlandi og einnig fá þeir Mediline rúm frá Lystadún Marco í verðlaun, takk fyrir. Er ekki um að gera að gera „sitt, gera sitt, gera sitt, gera sitt besta?“ Rás 2 leitar að lagi fyrir handboltalandsliðið  Í ár er aðeins tekið við lögum með íslenskum texta og er það gert til að hvetja hljómsveitir sem syngja á ensku til að prófa sig áfram á íslensku. Í verðlaun verða stúdíótímar til að fullklára 3 lög sem Þorskur (Cod Music) mun sjá um að markaðssetja, ársbirgðir af þorskalýsi og svo verður sigur- bandinu flogið til Færeyja þar sem það mun koma fram á G Festival 15.-17. júlí 2010. Opið verður fyrir innsendingar á efni til 24. apríl. Þorskastríðið er hafið í þriðja sinn! Eftir Hólmfríði Gísladóttur holmfridur@mbl.is ÞAÐ eru orðin þó nokkur ár síðan Radíusbræður hristu saman upp í landanum með útvarps- og sjón- varpsþáttum sínum. Sketsar þeirra lifa þó góðu lífi á vídeóvefnum You- Tube, en þar má sjá nokkrar flugur frá frægðardögum þeirra. Nú snúa bræðurnir aftur, en í þetta sinn með sína eigin útfærslu á tveimur uppi- stöndum eftir breska grínistann Ricky Gervais, Animals og Politics. Verður frumsýnt á litla sviði Borg- arleikhússins 24. apríl næstkom- andi. Vísir að endurkomu „Það var komið að máli við mig, hvort ég væri til í að þýða þessi tvö uppistönd með Ricky yfir á íslensku og hvort ég sæi einhvern flöt á því að staðfæra og heimfæra yfir á ís- lensku það sem er mjög breskt,“ segir Davíð Þór. „Svo fæddist sú hugmynd að fá okkur Stein til að setja þetta upp, að þetta yrði ein- hver svona vísir að comeback-i fyrir Radíusbræður, fyrir þá sem ekki hafa séð okkur eða eru farnir að sakna okkar. Þannig að við ákváðum bara að slá til, það er langt síðan við höfum unnið og gert eitt- hvað skemmtilegt saman, ég tala nú ekki um þegar við erum að gera þetta öðruvísi en við erum vanir, við erum með leikstjóra og vinnum þetta eins og leiksýningu,“ segir hann og lýsir mikilli ánægju með samstarfið við Gunnar Björn Guð- mundsson, leikstjóra sýningarinnar. Þessi uppistönd Gervais hafa ver- ið gríðarlega vinsæl en þar sem þau hafa verið þýdd er óhjákvæmilegt að grínið sé aðlagað íslenskum að- stæðum. „Þetta er í raun og veru okkar útfærsla á því sem hann er að gera grín að þarna sjálfur. Auðvitað er kannski meginuppistaðan textinn hans Rickys, en ef hann sæi þessa þýðingu á íslensku er ég ekkert endilega viss um að hann myndi kannast við nema helminginn af því, hann myndi kannski meira kannast við andann og stemninguna heldur en beinlínis brandarana sjálfa.“ Davíð mun sjálfur sjá um þann hluta sem unninn er úr Politics en Steinn Ármann mun túlka Villidýr- in. „Við í grunninn skiptum þeim á milli okkar þannig að Steinn tekur annað og ég tek hitt. En við gerum þetta ekkert alveg eins og hann og við munum væntanlega hjálpa hvor öðrum og skemma hvor fyrir öðrum eins og við getum,“ segir Davíð og hlær, en hann reiknar með því að hvor hluti verði um 45 mínútur með hléi á milli. Hvað varanlega endurkomu varð- ar segir hann allt vera opið en að það verði að gerast á þeirra for- sendum; harkið í bransanum sé langt frá því að vera eins spennandi og margur haldi og þeir séu búnir með þann pakka að reka sjálfa sig eins og fyrirtæki. Pólitík Davíð Þór segir að skiptingin hafi allt að því ráðist af sjálfu sér. Radíusbræður snúa aftur  Radíusbræðurnir Davíð Þór Jónsson og Steinn Ármann Magnússon setja Villidýr og Pólitík eftir grínistann Ricky Gervais (og þá sjálfa) á svið Villidýr Steinn Ármann valdi sér villidýrin að kljást við. Davíð Þór segist hafa orðið aðdá- andi Rickys Gervais um leið og hann vandist honum. „Ég verð að játa það að ég þurfti að horfa á nokkra þætti af Office áður en mér fannst þessi húmor þægilegur.“ Þar á Davíð þó ekki við víð- frægan neðanbeltishúmor Rickys því hann segir Gervais vera kett- ling miðað við þá Radíusbræður. „Ég efast um að við verðum jafn mikið og lengi fyrir neðan beltið og við vorum á okkar blómaskeiði en við verðum alls ekkert penni en Ricky,“ segir hann um túlkun þeirra félaga á verkum grínistans viðkunnanlega. Ekkert hræddir við að fara neðan beltis Ófeiminn Gervais er ögrandi grófur á köflum og hlífir engum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.