Morgunblaðið - 22.04.2010, Page 1

Morgunblaðið - 22.04.2010, Page 1
F I M M T U D A G U R 2 2. A P R Í L 2 0 1 0 STOFNAÐ 1913 92. tölublað 98. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is –– Meira fyrir lesendur fylgir m eð Morgun blaðinu í dag E N N E M M / S ÍA / N M 2 9 7 7 4 af sérmerk tum umbú ›um ÍÞRÓTTIR»3 MAGNÚS BEIÐ LENGI EFTIR TÆKIFÆRINU FÓLKIл41 ÞÆR BESTU BYGGÐ- AR Á MYNDASÖGUM 6 Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynurorri@mbl.is ATVINNUREKENDUR sem bjóða einstaklingum á atvinnuleysisskrá vinnu lenda reglulega í því að fá þau svör frá viðkomandi að hann sé nú þegar í vinnu. Gissur Pétursson, for- stjóri Vinnumálastofnunar, segir að vikulega fái stofnunin tilkynningar um slíkt frá atvinnurekendum. Stofnunin býður þeim, sem vilja ráða fólk í vinnu, lista yfir fólk á at- vinnuleysisskrá sem fellur að þeim hæfniskröfum sem leitað er að. Á móti biður stofnunin atvinnurekend- ur um að upplýsa stofnunina um hver viðrögðin verða. Gissur segir þónokkur dæmi um að einstaklingar sem atvinnurekend- ur leita til viðurkenni að þeir vinni svart þrátt fyrir að vera á atvinnu- leysisskrá. Hann segir það sérstak- lega algengt í iðn- og þjónustugrein- um, og nefnir sem dæmi hárgreiðslu og sjálfstætt starfandi iðnaðarmenn. Að jafnaði berast á milli 60 og 70 tilkynningar til Vinnumálastofnunar á mánuði þar sem grunur er um bótasvik, segir Gissur. Slíkum til- kynningum fjölgaði mjög eftir að stofnunin opnaði fyrir að fólk sendi nafnlausar tilkynningar gegnum heimasíðu stofnunarinnar. Tólf eftirlitsferðir voru farnar á vegum stofnunarinnar til fyrirtækja, verslana og á byggingasvæði víðs- vegar um landið, frá síðasta sumri og fram að áramótum. Á tíu af þeim tólf vinnustöðum sem farið var í reyndist einhver starfa sem einnig var á at- vinnuleysisskrá.  Á bótum en vinna svart | 4 Stöðugar fréttir um svik  Vinnumálastofnun fær vikulegar tilkynningar frá atvinnurekendum um bóta- þega sem eru í launaðri vinnu  Sérstaklega algengt í iðn- og þjónustugreinum ÞRÁTT fyrir eldgos og þungar búsifjar sem hafa fylgt heldur lífið áfram austur í Rangárþingi. Sauðburður, sem er traustur vorboði, er hafinn í Ár- bæjarhjáleigu í Holtum hjá Kristni Guðnasyni bónda þar. Þessi mynd var tekin í fjárhúsum hans í gær, en á myndinni eru afabörn Kristins, systkinin á Minni-Völlum á Landi, þau Kristinn Ásgeir, sem er lengst til vinstri á myndinni, þá Steindór Orri og Karen systir þeirra. KÁTIR KRAKKAR OG LÍTIL LÖMB Á KÖLDU VORI Morgunblaðið/RAX Gleðilegt sumar  Gylfi Magn- ússon efnahags- og viðskiptaráð- herra segir sam- dráttinn í lands- framleiðslu hafa verið talsvert minni en gert hefði verið ráð fyrir. Góður af- gangur sé á utanríkisviðskiptum, sveiflur á gengi krónunnar hafi minnkað mjög og allt sé þetta mjög jákvætt. Ráðherrann vonar að spá Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, AGS, um 8,6% at- vinnuleysi á næsta ári sé um of mörkuð svartsýni. Stærsti óvissu- þátturinn sé hvort fjárfestingar komist almennilega af stað. »8 Áætlunin að skila þeim árangri sem menn vonuðu  Landspítal- anum er gert að spara 3,4 millj- arða króna í rekstri á árinu og hyggjast stjórnendur tryggja að stofn- unin fari ekki fram úr fjár- heimildum, að sögn Björns Zoëga forstjóra. Hugmyndum um sparnað var m.a. safnað á starfsmanna- fundum forstjórans með stjórn- endum og starfsfólki. Einnig var unnið með sjúklingasamtökum og ytri hagsmunaaðilum. Sem dæmi um góða ábendingu verða sparaðar árlega þrjár milljónir króna með því að kaupa ódýra, einnota hanska. »12 Starfsfólk fann leiðir til að spara á Landspítalanum Eyjafjallajökull hefur sett sitt mark á alþjóðlega hlutabréfamarkaði. Ef Katla tekur við sér gætu afleiðing- arnar hins vegar orðið meiri og af- drifaríkari. VIÐSKIPTI Áhrif eldgosa á markaðina Samkvæmt minnisblaði Seðlabanka Íslands er neikvæð erlend staða þjóðarbúsins 91% af VLF. Stjórn- völd segja hins vegar opinberlega að hún sé neikvæð um 28%. Misræmi í mati á erlendri stöðu  Mjög hefur reynt á björgunar- sveitir vegna eldgossins í Eyja- fjallajökli. „Okkar menn hafa staðið í eldlínunni alveg frá því gosið á Fimmvörðuhálsi hófst. Mér er nær að halda að þessi langa törn sé eitt stærsta verkefni sem björgunar- sveitirnar í landinu hafa sinnt síðan í Eyjagosinu árið 1973,“ segir for- maður Landsbjargar. »6, 16 og 17 Mesta törn björgunarsveita síðan í gosinu í Eyjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.