Morgunblaðið - 22.04.2010, Side 6

Morgunblaðið - 22.04.2010, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is ENGAR vísbendingar eru um að eldgosinu í Eyjafjallajökli sé að ljúka, segir Magnús Tumi Guð- mundsson jarðeðlisfræðingur. Sam- kvæmt athugunum í gær var kraftur gossins svipaður milli daga. Veru- lega hefur samt dregið úr mætti gossins og er hann nú á að giska að- eins um tíundi hluti þess sem var í upphafi og þrjá til fjóra fyrstu dag- ana, en gosið hófst á miðvikudag í síðustu viku. Óróinn er miklu meiri Órói undir fjallinu er miklu meiri nú en þegar eldsumbrotin voru í há- marki. Hvers vegna svo er hefur jarðvísindamönnum ekki tekist að skýra að fullu. Ekkert einfalt sam- hengi er milli óróans og svo flæðis kviku til yfirborðsins í þessu gosi. Merki um að eldgosinu væri að ljúka væru minna kvikustreymi og minni gosórói. Einnig að fjallið myndi síga, sem sést á GPS-mælum en þeir eru staðsettir umhverfis Eyjafjallajökul. „Við sjáum ekki neinar svona vísbendingar ennþá og getum því ekkert sagt um til gos- lok,“ segir Magnús Tumi. Mesta törnin síðan í Eyjagosi Mjög hefur reynt á björgunar- sveitir vegna eldgossins og hefur mikill fjöldi liðsmanna sveita Slysa- varnafélagsins Landsbjargar sinnt verkefnum á áhrifasvæði eldgossins. „Okkar menn hafa staðið í eldlínunni alveg frá því gosið á Fimmvörðu- hálsi hófst. Mér er nær að halda að þessi langa törn sé eitt stærsta verk- efni sem björgunarsveitirnar í land- inu hafa sinnt síðan í Eyjagosinu ár- ið 1973,“ sagði Sigurgeir Guðmunds- son á Hellu sem er formaður félagsins. Mest hefur mætt á björgunar- sveitum á Suðurlandi í aðgerðum og hjálparstörfum vegna eldgossins. Mun fleiri hafa þó verið kallaðir til og raunar hefur aðstoð borist víðast hvar að af landinu. Eyjamenn hafa til dæmis komið nágrönnum sínum á fastalandinu til aðstoðar, enda þaul- vanir björgunarstörfum við eldgos „Bændur undir Eyjafjöllum þurftu hjálp við að koma skepnum á hús og því verkefni sinntu bændur sem eru björgunarsveitarmenn úr Borgarfirði. Slíkt kom vel út og starfið gekk vel fyrir sig því menn töluðu sama tungumál. En oft hefur starfið tekið á, til dæmis fyrir björg- unarsveitarmenn héðan af svæðinu sem eiga vini og ættingja undir Eyjafjöllum. Í návígi milli manna taka svona verkefni alltaf á,“ segir Sigurgeir. Í dag er von á mannskap úr björg- unarsveitum meðal annars af Suð- urnesjum og austan frá Hornafirði til að sinna aðkallandi verkefnum undir Eyjafjöllum, svo sem hreins- unarstarfi og að aðstoða bændur með búpening. Í gær voru um 25 björgunarsveitarmenn að störfum á svæðinu en Ólöf Snæhólm Bald- ursdóttir, upplýsingafulltrúi Slysa- varnafélagsins Landsbjargar, bjóst við að þeir yrðu fleiri um helgina. Morgunblaðið/RAX Á jökli Vísindamenn fóru með þyrlu á Eyjafjallajökul í gær til rannsókna þar sem heitir Innri-Skolti. Sýni voru tekin en vænst er að með þeim megi bregða ljósi á eðli gossins og hugsanlega framvindu þess. Engin merki sjást um goslok  Kraftur er svipaður milli daga  Ekki samhengi milli óróa og kviku  Fjöldi björgunarfólks að störfum undir Eyjafjöllum  Stærsta verkefni björgunarsveitanna síðan í Eyjagosinu 1973 Magnús Tumi Guðmundsson Sigurgeir Guðmundsson ÖSKUSKÝ í háloftunum frá Eyjafjallajökli hefur færst vestur til Grænlands síðustu daga og röskun orðið á flugi þangað. Um tíma leit út fyrir að flug Flugfélags Íslands til Kulusuk félli niður í gær en af því varð ekki. Félagið fylgist vel með þróun öskuskýs- ins næstu daga. Að sögn Árna Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands, hafði gosaskan áhrif á flug til Nu- uk á vesturströndinni í fyrradag. Öskuskýið færðist síðan norðar og um tíma var hætta á að flug félagsins til Kulusuk á austurströndinni félli niður. Flugfélag Íslands á næst flug til Kulusuk á laugardag og segir Árni að vel verði fylgst með þróuninni næstu daga. Litlar líkur á að Reykjavíkurflugvöllur lokist Árni segir lágmarksröskun hafa orðið á innanlands- flugi félagsins síðustu daga vegna eldgossins. Þó hafi orðið að fella niður nokkrar ferðir til Vestmannaeyja og Egilsstaða og lítilsháttar tafir orðið á áætlun. Félagið fylgist einnig vel með því hvort öskufall færist nær suðvesturhorni landsins, með þeirri hættu að Reykjavíkurflugvöllur lokist. Árni segir ekki mikl- ar líkur á því, sem sakir standa, en ef loka þurfi vell- inum sé hætt við að innanlandsflugið leggist alveg af um tíma þar sem langflestar leiðir liggi til og frá Reykjavík. Mögulegt sé að halda uppi flugi áfram til Grænlands og þá frá Akureyri. bjb@mbl.is Gosið hafði áhrif á Grænlandsflug  Lágmarksröskun varð á innanlandsfluginu  Flugfélag Íslands felldi nokkrar ferðir niður til Eyja og Egilsstaða Morgunblaðið/Ómar Í háloftum Lágmarksröskun varð á innanlandsflugi. Mýrdalsjökull Spá um öskufall Vík Spá fyrir fimmtudag Vestmannaeyjar Heimild: vedur.is Hvolsvöllur Eldstöðin í Eyjafjallajökli Spá fyrir laugardag og sunnudag Spá fyrir föstudag Torfajökull Hella Grunnkort: Landmælingar Íslands Flúðir Laugarás Hekla Eldgosið í Eyjafjallajökli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.