Morgunblaðið - 22.04.2010, Síða 7

Morgunblaðið - 22.04.2010, Síða 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 Á LAUGARDAGINN ætlar Fugla- vernd að taka þátt í barnamenning- arhátíð Reykjavíkurborgar. Milli kl. 13 og 16 verður Fuglavernd með fuglasmiðju í Gerðubergi þar sem krakkarnir fá að föndra fuglagrím- ur innan um fugla og í fuglasöng. Til að ýta undir forvitni barnanna verður hægt að taka þátt í getraun um fugla og búsvæði þeirra og veg- leg verðlaun verða í boði sem hæfa ungum fuglaskoðurum. Til að svala forvitninni verður einnig sérstakt ugluhorn þar sem fræðast má um lífshætti og venjur og einnig verða sýndir skrýtnir fuglar sem oft á tíð- um fjúka eða villast hingað alls staðar frá í vondum veðrum, svo- kallaða flækinga. Morgunblaðið/Ómar Fuglar Margt verður í boði. Fuglaskoðun STOFNFUNDUR félags fólks um frelsi frá rafmengun verður hald- inn á morgun, föstudag, kl. 20 í Danshöllinni, Drafnarfelli 2 í Reykjavík. Félagið hefur hlotið nafnið Geislabjörg og er hagsmuna- félag þeirra sem vilja vinna gegn rafmengun. „Rafmengun er að verða stöðugt meiri í nútímaþjóðfélagi og um leið fjölgar þeim sem þjást vegna henn- ar. Opinber skilningur á eðli og af- leiðingum rafmengunar er lítill og eitt af aðalmarkmiðum félagsins verður að útbreiða fræðslu meðal almennings og opinberra aðila,“ segir í tilkynningu. Allir eru hjart- anlega velkomnir. Stofnfundur félags gegn rafmengun NÝR vefur, handrit.is var opnaður í fyrradag. Á handrit.is er veittur rafrænn aðgangur að handritum sem varðveitt eru í Árnasafni í Kaupmannahöfn, handritadeild Landsbókasafns Íslands, Háskóla- bókasafns og Stofnun Árna Magn- ússonar í íslenskum fræðum. Einn- ig er veittur aðgangur að stafrænum myndum af handritum. Söfnin þrjú sem standa að hand- rit.is varðveita hinn skrifaða menn- ingararf þjóðarinnar. Með opnun vefsins er veittur aðgangur að bæði innihaldi handritanna og að hand- ritunum sjálfum og hafa nú þegar um 200.000 blaðsíður verið mynd- aðar og 851 handrit. Handritavefur MAGNÚS Árni Magnússon, for- stöðumaður Fé- lagsvísindastofn- unar Háskóla Íslands, hefur verið ráðinn rektor Háskólans á Bifröst. Hann tekur við af Ágústi Ein- arssyni. Magnús var aðstoðarrektor Við- skiptaháskólans á Bifröst 2001- 2006. Hann er með BA-próf í heim- speki frá Háskóla Íslands, MA í hagfræði frá University of San Francisco og M.Phil. í Evr- ópufræðum frá University of Cam- bridge. Magnús Árni er 42 ára gam- all. Eiginkona hans er Sigríður Björk Jónsdóttir, byggingalistfræð- ingur og eiga þau 4 börn. Nýr rektor Háskól- ans á Bifröst Magnús Árni Magnússon STUTT Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is STEFNT er að því að Héðinsfjarðargöng og göngin um Óshlíð, milli Hnífsdals og Bolung- arvíkur, verði opnuð fyrir almenna umferð í haust, að öllum líkindum í september. Áður var gert ráð fyrir að göngin um Óshlíðin yrðu opnuð 15. júlí og Héðinsfjarðargöng síð- sumars en þær áætlanir hafa breyst. Gangagröftur reyndist tímafrekur Miklar tafir urðu á Héðinsfjarðargöngum vor- ið 2007 vegna vatnsleka og í Óshlíðinni hefur gangagröftur reynst tímafrekari en búist var við. Að sögn Gísla Eiríkssonar, verkefnisstjóra hjá Vegagerðinni, er mikil innivinna eftir í hvorum tveggju göngum. Eftir er að setja upp vatnsklæðningu og frá- veitukerfi fyrir vatn úr göngunum. Þá á eftir að leggja rafmagns- og símalagnir, setja upp ljós og loks malbika veginn. Íbúar fyrir vestan og norðan bíða óþreyjufullir eftir opnun ganganna enda verða þau mikil samgöngubót. Íbúum bæði Bolungarvíkur og Fjallabyggðar var á sínum tíma boðið að taka forskot á sæluna með hópferðum í gegnum göngin og fjölmenntu þeir í rúturnar. Síðasta sprengjan var sprengd í Óshlíðinni í nóvember í fyrra en í Héðinsfjarðargöngum í apríl fyrir rétt rúmu ári. Göngin verða opnuð í september Morgunblaðið/Halldór Þ. Hall Héðinsfjörður Styttist í að göngin verði opnuð. LANCÔME KYNNING Í SNYRTIVÖRUDEILD LYFJA & HEILSU KRINGLUNNI 22. – 27. APRÍL Hydra Zen næturkrem 15 ml Hydra zen augnkrem 5 ml Genifique æskuvaki 5 ml Nýtt - Slimissime 360 gegn appelsínuhúð 40 ml Bi-Facil augnfarðahreinsir 30 ml Rouge Absolue varalitur Einnig aðrar gerðir kaupauka Verðmæti kaupaukans er 11.300 krónur Kaupaukinn* þinn þegar þú kaupir 2 Lancôme vörur: Vertu velkomin G ild ir á ky nn in gu nn im eð an bi rg ði re nd as t. G ild ir ek ki m eð 2 bl ýö nt um eð a de od or an t. Ei nn ka up au ki á vi ðs ki pt av in . NÝR DÖMUILMUR Kringlunni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.