Morgunblaðið - 22.04.2010, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 22.04.2010, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 10 Daglegt líf Sigríður Þóra Hún hefur rekið verslun sína í tæp fimmtíu ár. Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is Í Ólafsvík er að finna Versl- unina Þóru, sem hefur verið í eigu Sigríðar Þóru Eggerts- dóttur frá stofnun árið 1963. Sigríður Þóra nefndi búðina eftir ömmu sinni og opnaði hana á af- mælisdag hennar, 22. nóvember. Þá var Sigríður Þóra þrítug en er nú að verða 77 ára. Sjálf hætti hún að mestu að afgreiða í búðinni árið 2004 og dóttir hennar, Elsa Bergmunds- dóttir, hefur tekið við rekstrinum, en hún var sex mánaða þegar verslunin tók til starfa. Verslunin er opin virka daga frá klukkan tvö til sex. Byrjaði í bílskúr „Allt hófst þetta þannig að ég ætl- aði að bjarga vini mínum sem hafði pantað svo mikið inn af vörum, alls kyns fatnaði, að hann gat ekki selt allt sjálfur svo ég tók hluta af varn- ingnum í umboðssölu,“ segir Sigríður Þóra. „Þetta vatt upp á sig og ég fór í samflot með þessum vini mínum og seldi aðallega barnaföt. Starfsemin byrjaði í bílskúr en svo flutti versl- unin í Mýrarholt og er þar enn.“ Átakalaus sambúð Það vakti nokkra athygli þegar Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins tók árið 1987 á leigu rými við hliðina á barnafataversluninni. Sigríður Þóra segir þessa sambúð hafa gengið vel og átakalaust. „Það gengur eiginlega einstaklega vel að hafa þetta saman því unglingar koma yfirleitt mjög sjaldan inn í búð eins og þessa, það eru þá helst stelpur sem koma með mömmu sinni til að kaupa sæng- urgjafir. Það hafa verið lítil sem engin vandræði í sambandi við unglinga og áfengi á öllum þessum tíma. Það vildi líka svo vel til að í um tuttugu ár var hjá mér í vinnu kona, sem áður hafði verið kennari. Hún vissi nákvæman aldur á flestum börnum í plássinu. Við þurftum ekki annað en að líta á hana þegar eitthvert ungmennið hugðist kaupa áfengi og hún nikkaði eða hristi höfuðið. Ég hef verið ein- staklega heppin með afgreiðslu- stúlkur í búðinni, ein byrjaði 17 ára og er enn að vinna hjá mér. Stúlkur hafa verið lengi hjá mér, það er svo miklu betra að hafa sömu starfs- krafta heldur en að vera alltaf að skipta um fólk.“ Beðið eftir fimmtugsafmæli Fyrir einu og hálfu ári var að mestu hætt að selja barnaföt í búð- inni og nú er þar aðallega til sölu garn og lopi og vörur úr þeim efnum. „Í góðærinu voru allir að fara til útlanda og þar keyptu konur barnaföt en fólk fer ekki til útlanda að kaupa garn, heldur kaupir það á Íslandi. Salan gengur mjög vel,“ segir Sigríður Þóra sem segist stefna að því að reka búð- ina allavega fram að fimmtugsafmæli verslunarinnar árið 2013. Lopi og áfengi í farsælu samkrulli Í Ólafvík geta menn keypt sér lopa og áfengi í sömu verslun. Sigríður Þóra Eggertsdóttir hefur í tæpa fimm áratugi rekið þar Verslunina Þóru. Mæðgur Sigríður Þóra með Elsu, dóttur sinni, en Elsa var sex mánaða þegar verslunin tók til starfa. Á vefsíðunni Babycenter.com má finna mikið af upplýsingum um getn- að, meðgöngu, fæðingu, nýbura og eldri börn. Gaman er fyrir þær sem eru óléttar að skoða á síðunni hvað er að gerast í bumbunni hverja meðgönguviku. Vika er valin og þá er hægt að lesa hvað barnið er líklega orðið stórt á þessari viku og hvernig það stækkar, hvaða líkamlegra breytinga er von á hjá móðurinni á þessu tímabili, stungið er upp á því hverju for- eldranir ættu að huga að á þessum tíma meðgöngunnar og síðan eru tenglar á fullt af greinum um ým- islegt sem gott er að vita tengt þess- ari meðgöngulengd, auk skýring- armynda. Hægt að lesa sér til um börnin frá því þau eru fædd til um níu ára ald- urs. Um hvert aldursskeið er mikið af upplýsingum, bæði um barnið og síð- an hvernig líf foreldra er með barn á þessum aldri. Til dæmis er meðal annars ritað um 24 mánaða börn að þau beri hjartað utan á sér, það þurfi sjaldan að geta sér til um tilfinningar þeirra. En það er heilbrigt að tjá til- finningar sínar hvort sem þær eru neikvæðar eða jákvæðar. Babycenter.com er flott síða og nánast ótæmandi brunnur um allt sem viðkemur börnum. Vefsíðan: www.babycenter.com Morgunblaðið/Ernir Börn Það er stundum gott að geta leitað sér ráða um barnauppeldið. Áttu von á barni, áttu barn? Í dag er sumardagurinn fyrsti og hafa þá sumir þann sið að gefa sínum nánustu gjöf í til- efni sumarkomu. Í bókinni Sögu daganna eftir Árna Björnsson kemur fram að í frásögnum fólks á síðari hluta 19. aldar komi víða fram að sumargjafir hafi ver- ið mun þekktari en jólagjafir. „Svipað var upp á ten- ingnum í könnun þjóðhátta- deildar 1969 og 1975 en þar mátti auk þess greina nokkra svæðaskiptingu. Sumargjafir voru algengastar í Eyjafirði, Skagafirði og á Fljótsdalshér- aði en minnst um þær á norð- vesturhluta landsins. […] Al- gengast var að foreldrar gæfu börnum gjafir og hjón hvort öðru, en stundum gáfu húsbændur líka vinnuhjúum sem þóttu góðs makleg. […] Flestar gjafir voru heimaunnar en nokkuð af þeim var þó keypt í búðum, eink- um í námunda við kaupstaði og bera auglýsingar því vitni. […] Sérstök tegund sumargjafa tíðkaðist allmikið við suður- og vesturströndina og mest þó í Vest- mannaeyjum. Það var svonefndur sumardagsfiskur og fólst í því að sjómenn færðu konum sínum hluta af því sem þeir öfluðu í róðri á sumardaginn fyrsta. Mátti konan síðan gera af þeim hlut sem hún vildi.“ Endilega … … gefið sumargjafir Morgunblaðið/Árni Sæberg Sumardagurinn fyrsti Fagnað í dag. SUMARHÚS OG FERÐALÖG Gas-kæliskápar 100 og 180 lítra Gas-hellur Sólarrafhlöður og fylgihlutir. 10-80w Gas-ofnar Gas-vatnshitarar 5 - 14 l/mín Kælibox gas/12v/230v Gas-eldavélar Sólarrafhlöður fyrir húsbíla og fellihýsi. Þunnar 130w Bíldshöfði 12 •110 Reykjavík • 577 1515 • skorri.is • Opið virka daga frá kl. 8.15 til 17.30 Gas-helluborð Gleðilegt sumar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.