Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 15
ÚR BÆJARLÍFINU MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Andrés önd er maður vikunnar á Akureyri. Eða er hægt að tala um hann sem mann? Skíðaleikarnir sem við Andrés eru kenndir fara nú að minnsta kosti fram í 35. skipti.    Hinn maður vikunnar er vænt- anlega sá sem hlýtur starfslaun listamanns frá bænum næsta árið. Það kemur í ljós á Vorkomu Ak- ureyrastofu í Ketilhúsinu í dag hver það verður.    Á Vorkomunni, sem hefst kl. 16, verða veittar verða þrjár viðurkenn- ingar úr Menningarsjóði en með því móti er fólki þakkað fyrir framlag sitt til menningarmála. Tvær viður- kenningar verða veittar fyrir bygg- ingarlist og tvær í nýjum flokki sem nefnist nýsköpunar- og athafnaverð- laun.    Grænjaxlar, leikrit Péturs Gunn- arssonar rithöfundar, er svo ógleym- anlegt að ég man ekkert eftir því! Man bara að það var gaman í Sam- komuhúsinu hér í höfuðstað Norður- lands fyrir margt löngu þegar það var sýnt. Þar var Spilverk þjóðanna á ferð ef ég man rétt. Leikfélag Menntaskólans hefur æft verkið undanfarið og það verður frumsýnt í Rýminu annað kvöld.    Ekki hefur farið á milli mála hér í bænum síðustu daga að Andrésar andar-leikarnir væru að nálgast. Bærinn er fullur af Andrésar-fánum. Keppendur eru um 730. Þeir fóru í skrúðgöngu í gærkvöldi frá KA- heimilinu að íþróttahöllinni, þar sem leikarnir voru settir við hátíðlega at- höfn.    Að þessu sinni koma á annað hundrað manns að framkvæmd leik- anna. Í þeim hópi eru tveir þeirra kappa sem áttu sæti í fyrstu Andrés- ar-nefndinni; Gísli Kristinn Lór- enzsson og Ívar Sigmundsson.    Það voru Leifur heitinn Tómasson, Kristinn Steinsson og Hermann Sig- tryggsson sem ákváðu, ásamt Gísla Kristni og Ívari, að gera tilraun með leikana árið 1976 með jafn glæsi- legum árangri og raun ber vitni.    Hrefna Torfadóttir var kjörin for- maður Knattspyrnufélags Akureyr- ar á aukaaðalfundi á dögunum. Hún tekur við embættinu af Stefáni Gunnlaugssoni sem verið hefur for- maður síðustu misseri.    Dúndurfréttir, sem sumir telja bestu Pink Floyd-eftirhermu- hljómsveit í heimi, verður með tón- leika á Græna hattinum annað kvöld. Auk laga með Pink Floyd verður fleira í Dúndurfréttum að þessu sinni; helstu stórvirki Deep Purple, Led Zeppelin og Uriah Heap hljóma einnig.    Einn hlýtur starfslaun listamanna frá Akureyrarbæ að þessu sinni og mótmælir stjórn Myndlistarfélags- ins 50% niðurskurði launanna. „Á erfiðum tímum sem þessum er menningin mikilvægur þáttur í upp- byggingu þess samfélags sem við viljum skapa. Hún er tæki sem við getum notað til breytinga og vaxt- ar,“ segir í ályktun stjórnar.    „Fyrir 20 árum fór hópur áhuga- fólks um menningu af stað með framsæknar hugmyndir og nýja sókn. Listagilið varð til. Þar var áður mikill iðnrekstur á vegum Kaup- félags Eyfirðinga sem hafði flutt starfsemi sína. Sennilega er þetta eitt mesta framfaraskref í menning- armálum Akureyrarbæjar. Hug- myndir spruttu úr grasrótinni og urðu að veruleika með dyggri aðstoð bæjaryfirvalda,“ segir m.a. í ályktun stjórnar Myndlistarfélagsins.    Stjórn félagsins bendir á marg- víslegt gildi lista og rifjar upp nokk- ur atriði um sáttmála sem meiri- hlutaflokkarnir í bæjarstjórn gerðu í upphafi kjörtímabils sem hún segir að ekki hafi gengið eftir.    Síðan segir stjórnin: „Samt og þrátt fyrir þetta hefur komið til skerðingar á starfslaunum lista- manna og öðrum styrkjum til mynd- listar og listaverkakaupa. Starfslaun listamanna Akureyrarbæjar eru 190.000 þús. á mánuði í formi verk- takagreiðslna og hafa verið hingað til greiddir 12 mánuðir til tveggja listamanna. Til samanburðar eru listamannalaun sem eru greidd af ríkinu 266.737 kr. Nú á að skera þetta niður í sex mánuði og aðeins einn listamaður hlýtur launin.“    Stjórn Myndlistarfélagsins segir alla sér meðvitandi um stöðu mála og skiljanlegt sé að skera þurfi nið- ur. „En við verðum að passa okkur á því að drepa ekki niður frumkvæði og viljann til framkvæmda. Akur- eyrarbær hefur unnið sér nafnið menningarbær og við viljum öll tryggja að svo verði áfram. En þetta eru því miður skýr skilaboð til þeirra listamanna sem búa á Akureyri.“    Fjör verður við Minjasafnið á dag. Þar verður barnaskemmtun kl. 14- 16 og margt í boði fyrir börnin. Full- orðna fólkið getur svo hlegið að frambjóðendum þeirra lista sem bjóða fram í bæjarstjórnarkosning- unum í vor; flokkarnir senda allir fulltrúa til keppni í pokahlaupi. Endur, Grænjaxlar og aðrir listamenn AKUREYRI Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fjöldi Fulltrúar Fjarðabyggðar galvaskir í Andrésar andar skrúðgöngunni. ÞÚ GETUR STYRKT BLÁTT ÁFRAM MEÐ ÞVÍ AÐ KAUPA VASALJÓSIÐ Ljósin verða seld dagana 23.–25. apríl er stoltur stuðningsaðili Blátt áfram Verndum börnin okkar, veitum þeim öryggi og tölum blátt áfram um málaflokkinn. Hvernig tölum við um líkama, mörk og samskipti við börnin okkar? Kynntu þér málið nánar á vefnum okkar www.blattafram.is 17% BARNA Á ÍSLANDI VERÐA FYRIR KYNFERÐISLEGU OFBELDI FYRIR 18 ÁRA ALDUR A N T O N & B E R G U R

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.