Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 18
18 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is ALLIR stærstu flugvellir Evrópu voru opnaðir að nýju í gær, tæpri viku eftir að gjóskuskýið vegna eld- gossins í Eyjafjallajökli olli mestu röskun á flugumferð í álfunni frá síð- ari heimsstyrjöldinni. Evrópska flugstjórnarstofnunin Eurocontrol sagði að gert væri ráð fyrir því að aðeins um 25% áætlunar- ferðanna hefði verið aflýst í gær. Áætlað var að um 21.000 flugferðir hefðu verið farnar í Evrópu í gær, en þær hafa yfirleitt verið um 28.000. 95.000 flugferðum aflýst Alls var um 95.000 flugferðum af- lýst í álfunni vegna gjóskuskýsins, að sögn fréttavefjar breska ríkis- útvarpsins, BBC. Öskumökkurinn raskaði því ferðaáætlunum milljóna manna og Alþjóðasamtök flugfélaga, IATA, segja að þegar röskunin á flugumferðinni var mest hafi hún kostað félögin 400 milljónir dollara á dag, eða sem svarar rúmum 50 millj- örðum króna. Samtökin áætla að tjón flugfélaganna vegna aflýstra ferða frá því á fimmtudaginn var nemi alls 1,7 milljörðum dollara, jafnvirði nær 220 milljarða króna. Siim Kallas, sem fer með sam- göngumál í framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins, neitaði því að yfir- völd hefðu dregið það of lengi að bregðast við kröfum um að lofthelgi Evrópuríkjanna yrði opnuð á ný. Hann lagði áherslu á að líf flug- farþega væri í húfi. Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) kvaðst ætla að beita sér fyrir nýjum reglum um hvenær banna ætti flug vegna hættunnar sem flugvélum gæti stafað af gjóskuskýjum. Stjórnvöld í einstökum ríkjum myndu þó eftir sem áður ákveða hvenær loka ætti lofthelgi þeirra af öryggisástæðum. Víða voru enn tafir á fluginu í gær en evrópska flugstjórnarstofnunin kvaðst vera vongóð um að flug- umferðin kæmist að mestu í eðlilegt horf í dag. Langar biðraðir mynduðust á nokkrum af helstu flugvöllum Evr- ópu, meðal annars í París, Frankfurt og Madríd. Flugfarþegar fögnuðu ákaft þegar flugið hófst að nýju, enda voru margir þeirra orðnir þreyttir á biðinni eftir að hafa verið stranda- glópar í marga daga. Lofthelgi Bretlands var opnuð að nýju frá klukkan 22 að staðartíma í fyrrakvöld. Öll lofthelgi Þýskalands var opnuð fyrir flugumferð í gær og Lufthansa, sem flytur fleiri farþega en nokkurt annað flugfélag í Evrópu, sagði að áætlunarflug þess kæmist í eðlilegt horf í dag. Air France kvaðst hafa hafið flug á öllum áætl- unarleiðum flugfélagsins. Flugvöllurinn í Helsinki var enn lokaður í gær og lofthelginni yfir Orkneyjum og Hjaltlandi var lokað að nýju vegna gjóskuskýsins. Loft- helgi Noregs, Danmerkur og Sví- þjóðar var hins vegar opnuð fyrir allri flugumferð. SAS sagði að um 25% áætlunarferða flugfélagsins yrði af- lýst í dag en starfsemi þess kæmist í eðlilegt horf á morgun. Flugumferð að komast í eðlilegt horf  Flugvellir í Evrópu opnaðir að nýju  Tjón flugfélaga nam 220 milljörðum Reuters Fögnuður Komufarþegar á alþjóðaflugvelli Manchesterborgar fagna eftir nokkurra daga bið eftir heimflugi. LEIÐTOGAR „Rauðstakkanna“, sem efnt hafa til mótmæla gegn stjórn- völdum í Taílandi, neituðu í gær að hefja samningaviðræður við stjórnina þrátt fyrir viðvaranir um að hervaldi yrði beitt til að binda enda á mótmæl- in. Mótmælendur standa hér á vegartálma í Bangkok. VIÐRÆÐUM HAFNAÐ SKOÐANAKANNANIR benda til þess að Bronislaw Komorowski, forseti pólska þingsins, fái flest atkvæði í forsetakosningum sem fram eiga að fara í Póllandi 20. júní. Komorowski hefur gegnt embætti forseta Pól- lands til bráðabirgða eftir andlát Lech Kaczynski í flugslysi 10. þessa mánaðar. Líklegt er talið að Jar- oslaw Kaczynski, bróðir hins látna forseta, verði forsetaefni íhalds- flokksins PiS en það hefur ekki verið staðfest. Gert er ráð fyrir því að for- setaefni flokksins verði valið á laugardaginn kemur. Pólska dagblaðið Rzeczpospolita birti í gær könnun sem bendir til þess að 49% myndu kjósa Komo- rowski og 26% Kaczynski ef sá síð- arnefndi yrði í framboði í kosningunum. Fyrr í vikunni birti dag- blaðið Fakt könnun sem bendir til þess að þing- forsetinn myndi gjörsigra Kaczynski með 55% at- kvæða gegn 32%. Fái eng- inn meira en 50% atkvæða í kosningunum 20. júní verð- ur kosið á milli tveggja efstu forsetaefnanna 4. júlí. Komorowski er 57 ára og forseta- efni frjálslynda flokksins Borg- aravettvangs (PO). Waldemar Pawlak, efnahags- ráðherra og fyrrverandi forsætis- ráðherra, verður í framboði fyrir bændaflokkinn PSL, en skoð- anakannanir benda til þess að ólík- legt sé að hann fái meira fylgi en Komorowski eða Kaczynski. Forseta pólska þingsins spáð sigri í kosningum Bronislaw Komorowski –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Eins og undanfarin ár gefur Morgunblaðið út blað tileinkað þessari vinsælu íþrótt. Farið verður um víðan völl og fróðlegar upplýsingar um liðin sem leika sumarið 2010. Þetta er blaðið sem íþróttaunn- endur geyma í allt sumar. MEÐAL EFNIS: Umfjöllun um öll 22 liðin í Pepsí-deildum karla og kvenna Allir leikmenn, leikjafjöldi og mörk Sérfræðingar spá í styrkleika liðanna Allir leikdagar sumarsins. Ásamt öðru spennandi efni NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 3. maí. Íslandsmótið í knattspyrnu Pepsí-deildin bæði karla og kvennalið árið 2010

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.