Morgunblaðið - 22.04.2010, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
LEIÐTOGAR þriggja stærstu
flokka Bretlands takast á um utan-
ríkismál í kvöld þegar sjónvarpað
verður annarri lotu af þremur í
kappræðum þeirra vegna þingkosn-
inganna eftir tvær vikur.
Athyglin beinist þá einkum að
Nick Clegg, leiðtoga Frjálslyndra
demókrata, sem þótti bera af í fyrstu
kappræðunum fyrir viku og kom
Gordon Brown forsætisráðherra og
David Cameron, leiðtoga Íhalds-
flokksins, í opna skjöldu. Sigur
Cleggs varð til þess að fylgi Frjáls-
lyndra demókrata jókst um rúm 10
prósentustig í skoðanakönnunum.
Innanríkismál voru í brennidepli í
fyrstu viðureigninni en líklegt er
Brown og Cameron leiti höggstaðar
á Clegg í utanríkismálum í kappræð-
unum í kvöld og gagnrýni meðal
annars stefnu hans í Evrópumálum.
Af flokkunum þremur eru Frjáls-
lyndir demókratar eindregnustu
stuðningsmenn Evrópusamrunans
en kannanir benda til þess að mikil
andstaða sé meðal bresks almenn-
ings við aukinn samruna ESB.
Frjálslyndir demókratar vilja að
Bretar taki upp evruna eftir þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Skammgóður vermir
Victoria Honeyman, lektor í
stjórnmálafræði við Leeds-háskóla,
segir að viðureignin um utanríkis-
málin verði miklu erfiðari fyrir
Clegg en kappræðurnar um innan-
ríkismálin. „Breska þjóðin hefur
ekki áhuga. Hún vill ekki ganga í
evrusvæðið.“
Honeyman telur því líklegt að
Cameron blási til stórsóknar gegn
Clegg í kvöld og gagnrýni harðlega
stefnu hans í Evrópumálum. Came-
ron þurfi þó að fara varlega til að ýfa
ekki upp gamlar deilur um Evrópu-
stefnuna innan Íhaldsflokksins.
Honeyman telur að Cameron gagn-
rýni Evrópusamrunann án þess að
styggja kjósendur á miðjunni sem
hann þurfi að fá á sitt band til að
komast til valda í kosningunum eftir
þrettán ára valdatíma Verkamanna-
flokksins.
Er fylgisaukning Frjálslyndra
demókrata eftir sigur Cleggs fyrir
viku aðeins skammgóður vermir eða
tekst þeim að halda henni í kosning-
unum? Líklegt er að svarið við þeirri
spurningu ráðist að miklu leyti af
frammistöðu Cleggs í kappræðunum
í kvöld.
Reuters
Miðdepill athyglinnar Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata, svarar spurningum blaðamanna í Lundúnum.
Tekist á um Evrópumálin í
annarri lotu kappræðnanna
Líklegt að Cameron blási til sóknar með því að gagnrýna
Evrópustefnu Cleggs í viðureign bresku leiðtoganna í kvöld
TVEGGJA ára barn, sem slasaðist í jarðskjálftanum í
Kína, er hér með móður sinni við athöfn til minningar
um þá sem fórust í skjálftanum sem reið yfir Qinghai-
hérað fyrir viku. Lýst var yfir þjóðarsorg í Kína í gær
vegna hamfaranna sem kostuðu að minnsta kosti 2.064
lífið. 175 til viðbótar er enn saknað og yfir 12.000
manns slösuðust, auk þess sem tugir þúsunda manna
misstu heimili sitt.
ÞJÓÐARSORG Í KÍNA
Reuters
ÓDÝRT
15%
AFSLÁT
TUR
Dekk
á frábæru verði!
Öllverð
eru
birtm
eð
fyrirvara
um
prentvillurog/eða
m
yndabrengl.
betri
kaup
Gerðu verð
samanburð
Fyrstir kom
a
– fyrstir fá
af umfelgu
n hjá
Hjólkó með
öllum
dekkjum fr
á BYKO
FÓLKSBÍLADEKK:
14” 175/65R14Vnr. 49980404
14” 185/65R14Vnr. 49980406
14” 185/70 R14Vnr. 49980407
15” 185/60R15Vnr. 49980405
15” 195/65R15Vnr. 49980409
17” 225/65R17Vnr. 49980431
JEPPADEKK:
17” 265/65 R17Vnr. 49980432
6.990
7.990
7.990
9.900
8.990
19.900
27.900