Morgunblaðið - 22.04.2010, Side 32

Morgunblaðið - 22.04.2010, Side 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 Afi Jón var alveg einstaklega gáfaður. Það var öllum ljóst. Ég man til dæmis eftir unga lögfræðingnum, sem var að vinna á Sýsló eitt sumarið og talaði alltaf um að „fletta upp í Jóni“ þegar hann var að leita að upplýsingum. Fyrir tíma Google gátu menn víst bara flett upp í Jóni. Í bílnum á leiðinni til Stykk- ishólms (sem ég hélt lengi vel að væri fjögurra tíma akstur) gerði hann sitt besta til að miðla ein- hverju af visku sinni til okkar barnabarnanna. Hann kenndi okk- ur sléttubandavísur og öfugmæla- vísur og að henda saman einföld- um ferskeytlum. Hann kenndi okkur um landafræði Snæfellsness og allar tröllasögurnar og drauga- sögurnar sem fylgdu með. Geir- hnjúkur heitir þessi toppur, því hann lítur út eins og geirvarta. Helgafell er þarna því að tröllið í Drápuhlíð var að reyna að kasta Jón Magnússon ✝ Jón Magnússon,fv. sýslumaður, fæddist á Eskifirði 30.11. 1926. Hann lést á St. Franciskusspít- alanum í Stykk- ishólmi 30.3. 2010. Útför Jóns fór fram frá Stykkis- hólmskirkju 6. apríl 2010. grjóti í ljósið frá kirkjunni. Kerlingin í Kerlingarfjalli sést ekki á nóttunni, því þá er hún að ráfa um Snæfellsnesið að leita að Karli sínum. Eftir á að hyggja veit maður ekki hvað af þessu hann spann upp til að skemmta okkur krökkunum og hvað voru alvöruþjóðsög- ur. Minningarnar um afa eru margar nokkurs konar svipmyndir. Afi við endann á eld- húsborðinu að raka sig, með rak- burstann, spegilinn og skálina fyrir framan sig. Afi dottandi í stólnum sínum með Arabellu í fanginu. Afi að fara með okkur í ísferð niður í Tehús á gamla bíln- um, þá kom Arabella með og sat í glugganum afturí. Í nýjustu minningunum, frá því nokkrum dögum áður en hann dó, er afi samur við sig, að segja spít- alastarfsmanni að hypja sig burt fyrst hann hefur fengið gesti og að banda mér frá þegar ég ætlaði að hjálpa honum að fá sér vatn – hann gat alveg gert það sjálfur. Þótt líkaminn gæfi sig var viljinn sterkur og hugurinn skarpur og þannig mun ég alltaf muna eftir afa Jóni. Áslaug Högna. Elsku hjartans pabbi minn. Það dó eitthvað inni í mér þegar þú kvaddir þennan heim, en um leið vöknuðu löngu gleymdar minningar. Þú kynntir náttúruna fyrir mér kornungri í allri sinni dýrð, hvort sem það var á litlum árabát við Sundin, við murtuveiðar í Þingvallavatni, í öræfa- og ófæruferðum eða á skyttiríi, en eftir eina slíka ferð eignaðist ég flottu refahúfuna mína. Þú þreyttist aldrei á að segja manni sögur frá barnæsku þinni, ævintýrunum og prakkara- strikunum. Þá var oft mikið hlegið. Það var hláturinn og grínið sem þú gast gert að sjálfum þér og aðstæðum sem breyttu oft sorg í gleði. Þú varst músíkalskur og greipst oft í nikkuna og spilaðir djass og blús á orgelið um leið og þú söngst hástöfum með rödd Louis Armstrong. Þessa tónlist hef ég hlustað á og kunnað að meta alla tíð síðan. Þú hafðir mikla réttlætiskennd og máttir ekkert ljótt sjá og tókst alltaf upp hanskann fyrir minni máttar. En þú varst líka þrjóskur og hafðir sterk- ar og ákveðnar skoðanir sem þú varst ekki tilbúinn að gefa eftir. Við gátum oft karpað lengi um siðferði og póli- tík. Þú kenndir mér að það er ekkert mál að byggja hús. Handlaginn varstu og gast gert við allt smátt og stórt. Þannig kenndir þú okkur að meta hlutina að verðleikum. Ekki henda því sem hægt var að gera við. Pabbi mundi gera við það, þó að biðin yrði stundum löng eftir því. Greiða- góður varstu í vinnu, áttir marga trygga viðskiptavini sem treystu á þig. Þú elskaðir sjóinn, áttir bát með bróður þínum og vinum og komst oft með í soðið, fékkst þér vinnu í sum- arfríum í vélarrúminu á einum af Viðar Gestsson ✝ Viðar Gestsson,pípulagn- ingameistari í Reykjavík, fæddist í Reykjavík 14. nóv- ember 1933. Hann andaðist á Landspít- alanum við Hring- braut 13. apríl sl. Útför Viðars var gerð frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 20. apríl 2010. Fossunum og biðum við systur spenntar eftir góssinu sem þú kæmir með frá útland- inu. En það toppaði lík- lega allt, skútuferðin sem þú og mamma fór- uð með vinum ykkar í kringum Mallorca. Þú lifðir lengi á þeirri skemmtilegu minn- ingu. Það var gaman þeg- ar þú heimsóttir mig til Kaupmannahafnar þegar ég bjó þar, því þaðan áttir þú skemmtilegar minn- ingar úr skólaferðalagi og fórst með okkur á milli staða sem þú hafðir heimsótt þá og rifjaðir upp með okk- ur það sem þið vinirnir höfðuð gert ykkur til skemmtunar. Það var líka yndislegt að fá þig í heimsókn til mín til Akureyrar og rifja upp með þér ferðirnar þangað með mömmu þegar þið voruð ung. Þú varst ótrúlega þolinmóður, sér- staklega gagnvart veikindum þínum og örlögum. Í 27 ár þurftir þú að berj- ast við hvern sjúkdóminn á fætur öðr- um. Það er ekki nokkur leið að gera sér grein fyrir hversu kvalafullt þetta hefur verið fyrir þig, elsku pabbi minn, að vera kippt svona skyndilega út úr daglegu ríkulegu lífi þínu. Síð- ustu mánuði hef ég fundið svo til með þér að það var óbærilegt á stundum. Það er mér því huggun í harmi að vita til þess að nú hefur þú öðlast ró og frið á góðum stað. Ég kveð þig með bæn sem Guðrún amma, móðir þín, kenndi mér. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Vertu sæll, minn kæri. Þín dóttir, Valdís. Elsku pabbi minn. Þú hefur nú yf- irgefið þennan heim og ert kominn á góðan og fallegan stað. Þér hefur ekki liðið vel síðustu ár sökum veikinda en þrátt fyrir það varstu alltaf glaður og stutt í húmorinn. Glaðastur varst þú þegar öll fjölskyldan kom í heimsókn sem var allar helgar, laugardaga og sunnudaga og þú gantaðist með það að þú þyrftir á hvíldarheimili á eftir. Ef svo vildi til að við komum ekki hringdir þú til að athuga hvort það væri ekki allt í lagi og hvort við vær- um ekki að koma. Þú varst náttúru- unnandi, hafðir gaman af jeppaferð- um og veiðiferðum og þær voru ekki fáar ferðirnar upp á hálendið og í Stykkishólm og komið var við í flest- um sjoppum á leiðinni því þú varst mikill sælkeri líka og í þessum ferð- um lærði ég að meta Fats Domino, Fats Waller og Louis Armstrong sem þú varst með á spólum í bílnum og voru í uppáhaldi hjá þér. Alltaf hafðir þú áhyggjur af börnunum, vildir helst að þau væru með hjálm á höfði fyrstu árin svo þau mundu ekki slasa sig, en svona varst þú, elsku pabbi minn, allt- af að hugsa um aðra. Ég á eftir að sakna þín svo mikið en ég á svo góðar minningar um þig og þær munu hjálpa mér í sorg minni. Ég byrja reisu mín, Jesús, í nafni þín, höndin þín helg mig leiði, úr hættu allri greiði. Jesús mér fylgi í friði með fögru engla liði. Í voða, vanda og þraut vel ég þig förunaut, yfir mér virstu vaka og vara á mér taka. Jesús mér fylgi í friði með fögru engla liði. (Hallgrímur Pétursson) Þín dóttir, Gyða. Elsku afi minn, ég sakna þín svo mikið. Það er allt svo skrítið eftir að þú fórst, enginn afi heima þegar við komum um helgar. Ég veit að þú ert kominn á betri stað en samt vildi ég að þú værir hérna ennþá. Hvíldu í friði, afi minn Afi þú kenndir mér að spila á spil, það var nú samt ekki mikið, en það sem ég veit og skil, að þú yfirgafst okkur í flýti. Þú dáðir vélar og alls kyns dót, enda kallaður afi laga, en ég gleymi ekki þessari nótt, þú kvaddir okkur er fór að daga. (Linda Rós Jónsdóttir.) Linda Rós. Það þarf ekki orðum um það að fara að það markar ávallt djúp spor í hjarta hvers manns sem kveður þann sem er hon- um kær og það á við í þessu tilfelli þegar ég kveð minn elskulega afa. Það var eitt af mínum fyrstu verk- um að heimsækja þig á Landakot eftir að ég kom heim til Íslands og á ég ekki til næg þakkaorð um að þú hafir beðið eftir mér þar til ég kom svo að ég gæti kvatt þig, elsku afi minn. Það er mér mikilvægt að hafa feng- ið að eiga með þér þær stundir sem þú hefur gefið mér í gegnum árin. Það er Ingvar Einar Bjarnason ✝ Ingvar EinarBjarnason fæddist 2. mars 1922 í Reykja- vík. Hann lést aðfara- nótt föstudagsins langa sl., 2. apríl 2010. Útför Ingvars Ein- ars fór fram frá Kópavogskirkju 9. apríl 2010. nú bara þannig að mað- ur áttar sig ekki fyrr en eftir á hvað þessar stundir eru manni dýr- mætar og hugsa ég um þær með hlýju og þakklæti í hjarta. Þegar er margs er að minnast og af mörgu er að taka er erfitt að velja úr því mig langar að skrifa og segja svo margt. Síðustu dagana sem þú dvaldir á Landakoti áttum við stundir sem eru mér ómetanlegar þar sem við ræddum um allt sem okkur lá á hjarta. Við ræddum hvað lífsins dans hafi skilið eftir og hvað hefði betur mátt fara. Niðurstaða var merkileg og mér mikið umhugsunarefni, því það var svo rétt sem þú sagðir. Þú sagðir að öllum skrikaði fótur á lífsins braut og sérhver stígur hefði sína polla og margt hefði mátt betur fara ef hægt væri að bakka til baka. Við ræddum það sem þér fannst að betur hefði mátt fara í þínu lífi. Þú sagðir mér að ef þér hefði aldrei skrikað fót- ur hefðir þú ekki upplifað þá ham- ingju sem þú upplifðir sem á eftir mis- tökunum hefði komið. Þannig að mistökin voru kannski ekki svo slæm þrátt fyrir allt. Svo hlóstu prakkara- lega og sagðir, þú veist hvað ég er að fara, er það ekki? Við ræddum um hvað biði handan móðunnar miklu og þú talaðir um að þú værir forvitinn að vita hvort í raun væri eitthvað sem biði þar og þú værir sáttur við lífs- göngu þína. Ég reyndi að gera við afa samkomulag um að hann myndi láta mig vita hvað þar biði og birtast mér í draumi til að ljóstra upp um leynd- ardóm þann sem þar væri að finna. Hann brosti prakkarabrosi og sagði að slíkt samkomulag hefði hann reynt að gera við aðra og það samkomulag hefði ekki skilað árangri. En afi hvorki útlokaði né lofaði að láta mig vita hvað fyrir handan væri og sagðist sjá hvað hann gæti gert. Það var und- arlegt að vera að ræða þetta og gera að þessu grín þar sem stutt var í kveðjustundina. Þetta lýsir afa og hversu jákvæður hann var alltaf. Hann sá aldrei hlutina í myrkri, hann sá alltaf heiðan himin í öllum málum. Elsku afi minn, ég er þess fullviss að vel hafi verið tekið á móti þér á þeim stað sem þú ert núna á og munt þú alla tíð eiga stað í hjarta mér sem mun ylja mér um ókomin ár. Það var myrkur úti og það var rign- ing. Þetta var himinninn að gráta. Þetta var himinninn að gráta því hann hafði týnt sinni fegurstu stjörnu. Elsku afi, þessi fegursta stjarna varst þú. Ingvar Þór Guðjónsson. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Minningargreinar Allar minningar á einum stað. ÍS L E N S K A S IA .I S M O R 48 70 7 01 /1 0 –– Meira fyrir lesendur Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, AGNARS URBAN, Heiðarvegi 4, Selfossi. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RAGNHEIÐAR PÁLSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ. Inga Hafsteinsdóttir, Jón Garðar Hafsteinsson, Dagný María Sigurðardóttir, ömmubörn og langömmubarn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.