Morgunblaðið - 22.04.2010, Síða 37

Morgunblaðið - 22.04.2010, Síða 37
Dagbók 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 Sudoku Frumstig 6 5 8 4 3 4 6 1 9 1 4 9 2 8 3 2 8 1 9 4 2 8 5 6 1 8 1 8 2 5 4 8 3 4 1 6 9 9 2 3 6 9 2 5 1 8 3 4 8 6 3 4 5 6 4 6 5 3 8 9 2 5 4 7 6 2 7 4 2 8 6 5 4 8 7 3 8 9 5 3 7 2 1 4 6 2 3 6 9 1 4 5 8 7 4 7 1 6 5 8 2 3 9 7 2 8 1 6 5 4 9 3 1 6 9 4 8 3 7 5 2 3 5 4 2 9 7 6 1 8 5 8 3 7 2 1 9 6 4 6 4 7 5 3 9 8 2 1 9 1 2 8 4 6 3 7 5 5 2 8 1 9 6 7 3 4 7 3 6 2 4 8 1 9 5 4 9 1 3 5 7 8 2 6 8 6 3 4 2 1 5 7 9 2 5 7 6 8 9 4 1 3 9 1 4 7 3 5 6 8 2 6 4 9 8 1 3 2 5 7 3 8 2 5 7 4 9 6 1 1 7 5 9 6 2 3 4 8 4 2 9 8 7 5 1 6 3 8 3 7 6 1 2 9 4 5 5 1 6 9 3 4 7 2 8 2 7 4 3 5 8 6 1 9 1 9 5 7 2 6 8 3 4 3 6 8 1 4 9 2 5 7 6 4 2 5 9 7 3 8 1 9 5 3 2 8 1 4 7 6 7 8 1 4 6 3 5 9 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 22. apríl, 112. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef- ast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.) Fyrr í þessum mánuði, nánar til-tekið 12. apríl, varð djasspíanó- leikarinn Herbie Hancock sjötugur. Hancock var undrabarn í tónlistinni og þegar hann var fimm ára lék hann einleik þegar sinfóníuhljóm- sveit Chicago flutti 5. píanókonsert Mozarts. Hancock sló hins vegar í gegn með laginu Watermelon Man þegar hann var 22 ára. Í laginu líkti hann eftir göngulagi sölumannsins sem fór um hverfið þar sem hann ólst upp í Chicago með vatnsmel- ónur. Sagt hefur verið að það lag hafi verið aðgöngumiði Hancocks að hljómsveit Miles Davis. x x x Hancock hefur kom fram áListahátíð í Reykjavík 1986 er hann hélt órafmagnaða einleiks- tónleika í Broadway. Eftir tón- leikana leit Hancock inn á Borginni og tók reyndar nokkur aukalög með rafmögnuðu húsbandi þar sem Vík- verji fékk reyndar að leggja hendur á nótnaborðið örskotsstund ásamt meistaranum. x x x Víkverji heillaðist fyrst af Han-cock þegar platan Head Hun- ters kom út árið 1973. Þar blandaði Hancock saman djassi og fönki og útkoman var snilld, þótt bókstafs- trúarmenn í djassi hafi froðufellt og haldið fram að með plötunni hafi Hancock selt sálu sína og fórnað listgyðjunni á altari sölumennsk- unnar. Hancock var reyndar sjálfur tals- maður hins hreina djass þar til hann kynntist Davis, sannkallaður djass- snobbari, svo vitnað sé til orða Han- cocks sjálfs. Davis hafi hlustað á tónlist úr öllum áttum, Jimi Hend- rix, Cream og Rolling Stones og auðvitað vildi Hancock vera „jafn svalur og Miles“. Markmið Han- cocks hefur verið að vinna nýjar lendur í tónlistinni í stað þess að gera það sem er auðvelt og þægi- legt. Í sumar er væntanleg ný plata frá honum, The Imagine Project, þar sem koma við sögu Seal, Pink, Chaka Khan og Oumou Sangare. Öldungurinn hefur ekki sagt sitt síð- asta. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 dramb, 8 boli, 9 heyið, 10 verkfæri, 11 gaffla, 13 ákveð, 15 lúr, 18 bjargbúar, 21 ótta, 22 báran, 23 gerjunin, 24 bíllinn. Lóðrétt | 2 bál, 3 agn, 4 planta, 5 örlagagyðja, 6 snáða, 7 flanið, 12 ráð- snjöll, 14 illmenni, 15 íþróttagrein, 16 furðu, 17 glymur, 18 arður, 19 fallegi, 20 skoða vand- lega. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fersk, 4 horfa, 7 sekks, 8 ræðan, 9 tef, 11 asna, 13 frúr, 14 saggi, 15 fisk, 17 skær, 20 hal, 22 Ítali, 23 undin, 24 kotið, 25 deiga. Lóðrétt: 1 festa, 2 ríkan, 3 kost, 4 horf, 5 ruður, 6 annar, 10 eigra, 12 ask, 13 fis, 15 frísk, 16 skaut, 18 koddi, 19 renna, 20 hirð, 21 lund. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 e6 4. 0-0 Rge7 5. b3 a6 6. Be2 d5 7. exd5 Rxd5 8. Bb2 Be7 9. Bxg7 Hg8 10. Bh6 Bf6 11. Rc3 Bxc3 12. dxc3 Df6 13. Dd2 Rxc3 14. Be3 b6 15. Kh1 Bb7 16. Hg1 Rxe2 17. Dxe2 Staðan kom upp í Skákþingi Íslands, landsliðsflokki, sem lauk fyrir skömmu í Mosfellsbæ. Björn Þorfinnsson (2.376) hafði svart gegn Sverri Þor- geirssyni (2.177). 17. … Hxg2! 18. Kxg2 Re5 19. Kf1 Rxf3 svartur hefur nú léttunnið tafl. 20. Hd1 Rxh2+ 21. Ke1 Rf3+ 22. Kf1 Rxg1 23. Dd3 Bc6 24. Kxg1 Df3 25. Kf1 Dh1+ og hvítur gafst upp. Björn lenti í öðru sæti á mótinu með átta vinninga af tíu mögu- legum og virðist kominn aftur á flug í taflmennskunni eftir að hafa stundað lágflug á meðan hann gegndi stöðu for- seta Skáksambands Íslands 2008-2009. Svartur á leik. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Breyttir tímar. Norður ♠10642 ♥Á4 ♦G97 ♣ÁG104 Vestur Austur ♠K987 ♠53 ♥10975 ♥D863 ♦ÁD4 ♦K653 ♣K6 ♣732 Suður ♠ÁDG ♥KG2 ♦1082 ♣D985 Suður spilar 3G. Sú var tíðin að sjálfsagt þótti að opna á spaða með 4-4 í hálitunum. Þetta spil er frá þeim tíma. Vestur vakti á 1♠ og sú sögn var pössuð til suðurs, sem „ball- anseraði“ með 1G. Norður oftúlkaði innákomuna og hækkaði í 3G. Hjartatía út. Spaðann þarf að fría, en vandinn er að fæla vörnina frá tíglinum. Ein hug- mynd er að spila litnum sjálfur, önnur að læða út lúmskum ♠G í öðrum slag. En vakandi spilari í vestur sér í gegn- um slíkar kúnstir. Hinn raunverulegi sagnhafi gerði betur. Hann leyfði austri að eiga fyrsta slaginn á ♥D! Gosinn féll undir ♥Á í öðrum slag, spaða var svínað til vesturs, sem var ekki höndum seinni það þruma hjarta til baka. Sagnir hafa batnað með tímanum, en spilamennskan var ekki síðri í gamla daga. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er upplagt að eyða smátíma í það að sýna sig og sjá aðra. Þér tekst að takast á við lífið af fullum krafti með því að láta vera að finna til samviskubits. (20. apríl - 20. maí)  Naut Ágæt aðferð til að eyða umfram orku er að búa til lista yfir allt sem þig langar til að afreka. Þú þarfnast meiri hvatningar og stuðnings – ekki meiri gagnrýni. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Fæstar tilfinninganna sem ást- vinir þínir tjá þér eru í orðum. Hama- gangur kallar á óvönduð vinnubrögð. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú verður að ganga í það að hreinsa til jafnvel þótt þú hafir ekki valdið glundroðanum. Vertu miskunnarlaus í mati þínu á því hvað hentar þér best. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Reyndu að hitta systkini þín, ætt- ingja eða nágranna í dag. Þú vilt hafa eitt- hvað spennandi og nýstárlegt fyrir stafni og helst vera á ferðalagi á ókunnum slóð- um. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þótt þú kunnir að meta einhvern mikils er það ekki það sama og að elska. Líttu á það sem tækifæri að hitta vin sem þú hefur ekki hitt lengi. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú gætir átt yndisleg samskipti við börn í dag. Já, það er einhver skotin/n í þér. Hvernig væri að heimsækja einhvern fjölskyldumeðlim í dag? (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Yfirleitt er það svo að gæska þín og gjafmildi falla í góðan jarðveg. Reyndar lifir sjálfsblekkingin bestu lífi í málefnum hjartans, svo mikið er víst. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú vilt alltaf segja sannleikann og því er alltaf allt á hreinu í þínum sam- böndum. Vertu sjálfum/sjálfri þér sam- kvæmur/samkvæm og þú öðlast aftur stjórn á þínu lífi. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Ef þú heldur rétt á spilunum mun þér ganga allt í haginn jafnt á vinnu- stað sem heima fyrir. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Gættu vel að heilsu þinni jafnt andlegri sem líkamlegri. Ekki vanmeta reynslu annarra. Næmi þitt á líðan ann- arra mun koma sér vel um þessar mundir. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það hefur ekkert upp á sig að vera með einhver látalæti. Vertu með þeim sem þú treystir best, það kallar fram hæfileika þína. Stjörnuspá 22. apríl 1924 Barnavinafélagið Sumargjöf var stofnað að tilhlutan reyk- vískra kvenna. Félagið gerði sumardaginn fyrsta að hátíð- isdegi barna, sá um rekstur dagheimila í Reykjavík í ára- tugi og beitti sér fyrir stofnun Fósturskólans. 22. apríl 1935 Fossavatnsgangan var haldin á Ísafirði í fyrsta sinn. Kepp- endurnir voru sjö og gengu 18 kílómetra. 22. apríl 1944 Bresk flugvél hrapaði til jarð- ar um fimmtíu metra frá nýja Stúdentagarðinum í Reykja- vík. Eldur kom upp í henni og áhöfnin fórst. 22. apríl 1947 Bókin „Matur og drykkur“ eft- ir Helgu Sigurðardóttur skólastjóra kom út. Hún var auglýst sem „fullkomin mat- reiðslubók, sniðin eftir þörfum íslenskra húsmæðra og fyllstu kröfum nútímans“. Bókin var 500 síður og hefur oft verið endurútgefin. 22. apríl 1950 Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness í leikstjórn Lárusar Pálssonar var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu. Þetta var fyrsta frumuppfærslan í hús- inu. 22. apríl 1992 Íslenskur hjúkrunarfræðingur lést í Afganistan við hjálp- arstörf á vegum Rauða kross- ins. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … „ÉG ætla að fara í víðavangshlaup ÍR í dag og hlaupa fimm kílómetrana ásamt systur minni. Fæ mér svo eitthvað gott að borða á eftir og ætla síðan að eiga menningardag í borginni með manninum mínum,“ segir Elín Gunnlaugsdóttir, tónskáld og bóksali á Selfossi, sem fagnar 45 ára afmæli í dag, sumardaginn fyrsta. Í kvöld reiknar hún svo með að halda frekar upp á daginn í faðmi fjölskyldu og vina á heimili þeirra hjóna á Selfossi, Bjarna Harð- arsonar, bóksala og fv. þingmanns. Saman eiga þau tvo stráka en fyrir átti Bjarni tvö börn. Sumardagurinn fyrsti á ríkan sess í lífi Elínar, hún er fædd á þeim degi sem síðan hefur borið upp á 22. apríl sjötta hvert ár. Hún hélt upp á fertugsafmælið sum- ardaginn fyrsta en á sjálfan afmælisdaginn söng Kór Vallaskóla, sem hún stjórnaði, með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum á Flúðum. Við það tækifæri lék hljómsveitin afmælissönginn fyrir hana. „Það er ekki oft sem heill kór syngur fyrir mann afmælissönginn og Sinfónían leikur undir,“ segir hún. Elín hefur stundað víðavangshlaup sér til ánægju og yndisauka nokkur undanfarin ár. Hún segist fá góðar hug- myndir í skokkinu en spurð hvort eiginmaðurinn hlaupi með segir hún það af og frá. „Hann er algjör antisportisti.“ bjb@mbl.is Elín Gunnlaugsdóttir tónskáld 45 ára Víðavangshlaup og menning Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.