Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.04.2010, Blaðsíða 40
NÆSTKOMANDI sunnudag, 25. apríl, verður haldin færeysk barna- og menningarhátíð á Kjarvals- stöðum. Hátíðin er samstarfsverk- efni Listasafns Reykjavíkur, Vest- norræna ráðsins, færeysku ræðismannaskrifstofunnar, Fær- eyingafélags Reykjavíkur og ým- issa fyrirtækja. Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Hátíðin verður sett kl. 14 og þá verður opn- uð vatnslita- og póstkortasmiðja en þar verður hægt að mála og skrifa á póstkort sem verða svo send til barna í Færeyjum. Kl. 14.30 flytur Ólafur Hall- dórsson erindi um Færeyinga sögu og kl. 15 mun tríó skipað söng- stjörnunni Joannu Johansen, gít- arsnillingnum Leiv Thomsen og töfrabassaleikaranum Bjarka Meit- il, koma fram. Kl. 16 ætlar hinn ógnvekjandi en hjartahlýi Trölla Pétur að kíkja í heimsókn, en hann er ein ástsæl- asta hetja færeyskra barna. Trölla Pétur kemur með ömmu sína með sér og eru þau ansi skrautlegt og skemmtilegt par. Eftir að Trölla Pétur hefur heils- að upp á börnin munu færeyskir dansar duna og gestir eiga kost á því að læra að stíga réttu sporin. Undir lok hátíðarinnar, eða kl. 17.15, verða reiddar fram fær- eyskar krásir og viðstöddum boðið að smakka, en hátíðinni verður slit- ið að því loknu, kl. 18. Nánari upplýsingar má nálgast á slóðinni www.listasafnreykjavik- ur.is. Grín Allt að gerast. Trölla Pétur og amma hans kíkja í heimsókn  Færeysk hátíð haldin á Kjarvalsstöðum 40 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010  Kammerpoppsveitin Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveit Íslands leiða saman hesta sína á stórtónleikum í Háskólabíói miðvikudagskvöldið 16. júní kl.20:00. Þetta er í fyrsta sinn sem Hjaltal- ín leikur með Sinfóníuhljómsveit- inni og eru liðsmenn hennar nú í óða önn að útsetja lögin fyrir stóra sinfóníuhljómsveit með öllu tilheyr- andi. Útsetningarnar gera þeir Högni og Hrafnkell Egilssynir og Viktor Orri Árnason, en stjórnandi á tónleikunum verður Daníel Bjarnason. Hjaltalín og Sinfón- íuhljómsveitin munu leika lög af plötum sveitarinnar, Terminal og Sleepdrunk Seasons, en einnig verður frumflutt nýtt efni sem Hjal- talín hefur samið sérstaklega fyrir þessa tónleika. Hjaltalín hefur mikið unnið með sinfóníska tóna í tónlist sinni og notað sinfónískar hljómsveitir í upptökum og á tónleikum. En nú verður þetta tekið alla leið og mun fullskipuð Sinfóníuhljómsveit Ís- lands leika með þeim og verða því hátt í 100 manns sem stíga á svið í Háskólabíó og flytja magnaða tón- list Hjaltalín. Óhætt er að lofa kraftmiklum og litríkum tón- leikum. Miðasala er hafin. Hjaltalín og Sinfóníu- hljómsveit Íslands Fólk FJÖLLISTSÝNINGIN Apassionata með tónlist Arndísar Höllu Ágeirsdóttur óperusöngkonu vann nýverið til hinna virtu PRG LEA- verðlauna í Þýskalandi og þýskumælandi lönd- um fyrir bestu sýninguna á árinu 2009. Ásamt því að vinna til gullverðlauna í fimm öðrum flokkum. Sýningin er mikið sjónarspil þar sem hestar frá öllum heimshornum eru í aðalhlutverki og leika listir sínar ásamt knöpum, dönsurum og tónlistarfólki. Tónlist spilar stórt hlutverk í sýningunni og þar er Arndís Halla í aðal- hlutverki sem rödd sýningarinnar og hefur hún hlotið mikið lof fyrir söng og frumsamda tón- list sína á síðum erlendra fjölmiðla. Hefur sýningin farið sigurför um Evrópu síð- astliðið ár og er hún ein sú fjölsóttasta sinnar tegundar þar. Mörg þúsund áhorfendur fylla sæti stórleikvanga víðsvegar um Evrópu á hverri uppsetningu og upplýsti Arndís Halla í Morgunblaðinu fyrr á árinu að til stæði að fara með sýninguna til Bandaríkjanna og Kína. Alþjóðlegar sýningar á borð við Labbað með risaeðlum og Sheketak voru einnig tilnefndar í flokki þeirra bestu á PRG LEA-verðlaunahátíð- inni í ár, en að þessu sinni fór Apassionata með sigur af hólmi. Þetta var þó ekki eina við- urkenningin sem sýningin fékk að þessu sinni, því sama kvöld var aðstandendum hennar af- hent gullplata fyrir mynddiskinn Charm of Freedom með útgefnu efni sýningarinnar. matthiasarni@mbl.is Sýning með tónlist Arndísar Höllu sú besta í ár  Það er ekki einleikið með þessi blessuð eldgos. Ólöf Arnalds var bókuð á tónleika á Ítalíu síðastlið- inn sunnudag þar sem hún átti að spila við rætur Etnu-fjalls. Til stóð að Ólöf myndi ganga upp á þetta fornfræga eldfjall og leika þar fyrir gesti. Hún komst hins vegar ekki á staðinn sökum eldgossins sem er í gangi hér á Íslandi! Ólöf hefur sannfært ítalska aðdáendur um að hún muni mæta til Etnu þegar ferðafært verður. Krossum fingur um að Etna gamla taki ekki upp á því að gjósa til að sýna samstöðu með systurfjöllum sínum hér á landi. Það væri nú eftir öðru. Eldgos á alla kanta stoppa Ólöfu! Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is UNDANFARIN ár hefur Ólafur Jósepsson dvalið langdvölum er- lendis og meðal annars haldið úti aukasjálfi sínu sem hann kallar Stafrænan Hákon. Stafrænn Há- kon hefur gefið út fjölmargar plöt- ur, stórar og litlar, ýmist einn eða í samstarfi við aðra. Sólóskífurnar eru Eignast jeppa, Gummi, Vent- ill/Poki, Skvettir edik á ref og Í ástandi rjúpunnar og í vikunni slóst ein til í hópinn: Sanitas. Það kemur ekki á óvart í sjálfu sér að Ólafur segir plötuna nýju sína langbestu plötu hingað til og ekki ástæða til annars en að taka hann alvarlega þó að hann skelli upp úr að orðinu slepptu. Ólafur segist hafa byrjað að semja lög á nýja plötu svo að segja um leið og upptökum lauk fyrir Gumma, sem kom út fyrir þremur árum og þá ákveðið að breyta út af í hljóðheiminum, snúa honum við, eins og hann orðar þar, hafa hann harðari og rokkaðri. „Mig langað að færa mig úr ambient gítarsulli og í aðeins meiri bjög- un,“ segir hann, „meira dauða- rokk,“ en rétt er þó að taka fram að á Sanitas er ekkert dauðarokk – hér mun Ólafur vera að vísa í bjagaða og skælda gítarhljóma sem eru dauðarokkssveitum svo kærir en ekki 250 takta á mínútu og raddir úr því neðra. Langaði ekki að gera sömu plötuna aftur „Mig langaði ekki að gera sömu plötuna aftur, en Sanitas er þó ekkert stökk frá Gumma, hún var stórt skref og Sanitas rökrétt framhald af því. Mig langaði að fara með þetta lengra, meira popp, meira rokk. Öll demóin voru rosa- lega þung og mikil björgun á gít- arnum, Sólstafastemning. Þegar við svo fórum að taka hana upp fórum við aðeins til baka aftur og þegar ég fór með hana í hljóðverið hjá Daniel Lovegrove, sem spilar trommur á henni og stýrði upp- tökum með mér, kom hann líka með fullt af hugmyndum. Ég vildi líka að hún hljómaði dálítið eins og 90’s indí sem ég hef fílað í gegnum árin, Sebadoh, Teenage Fanclub og svoleiðis og með smá shoegaze- áhrifum.“ Sanitas var tekin upp frá 2008 til 2009 og Ólafur segist hafa tekið hana upp heima að mestu leyti og síðan farið með lögin í hljóðverið hjá Lovegrove til að vinna lögin áfram og þá tekið megnið af þeim upp á nýtt. Það komu líka góðir menn inn í lögin að því er hann segir, Samuel White semur fjögur lög og Magnús Freyr Gíslason samdi texta í tveimur lögum sem hann syngur og Minco Eggersman sömuleiðis, en fleiri koma við sögu á skífunni þó að þeirra sé ekki get- ið hér. Stafrænn Hákon orðinn samheiti Undanfarin ár hefur Stafrænn Hákon verið sólóverkefni og Ólaf- ur því yfirleitt einn að iðja, semja, taka upp og spila á flest ef ekki öll hljóðfæri. Nú er aftur svo komið að hann er farinn að vinna með öðrum tónlistarmönnum og tróð meðal annars upp á tónleikum í Havaríi og Sódómu fyrir stuttu með sex manna hljómsveit. Það ætti ekki að koma á óvart því hann segist einmitt stefna að því að vinna meira með öðrum tónlist- armönnum og í raun megi segja að Stafrænn Hákon sé nánast að breytast í hljómsveit en ekki bara aukasjálf. „Ég upplifi þetta eig- inlega sem samstarfsverkefni og kannski hefði ég ekki átt að skrifa Sanitas á Stafrænan Hákon, en það má segja að Stafrænn Hákon sé orðinn samheiti yfir verkefni og það er hver sem er velkominn í það.“ Plöturnar sem Stafrænn Hákon hefur gefið út hafa allar komið út ytra og í raun hefur hann frekar starfað erlendis en hér heima. Svo verður og með Sanitas; Kimi gefur hana út hér heima, Darla í Banda- ríkjunum og önnur fyrirtæki víða um heim. „Ég veit svo sem ekki hvað er um það að segja, plöt- urnar hafa komið út og það þekkja mig margir þó að það þekki mig eiginlega enginn hér heima. Nú ætla ég að breyta því, er fluttur heim og ætla að spila mikið og kynna mig.“ Leitandi Stafrænn Hákon gægist eftir innblæstri á ólíklegustu stöðum. Aukasjálf allra  Stafrænn Hákon, Ólafur Jósepsson, gefur út plötuna Sanitas

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.