Morgunblaðið - 22.04.2010, Page 41

Morgunblaðið - 22.04.2010, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2010 HOLLYWOOD hefur dritað út kvikmyndum hin síðustu ár sem byggðar eru á myndasögum, þökk sé mikilli framþróun í tæknibrellum og tölvuteiknilist, unnendum myndasagna til mik- illar ánægju. Sumar hverjar eru þó öllu nær því að vera teikni- myndir, svo veigamikill er þáttur teiknaranna. Margar slakar myndir hafa litið dagsins ljós en að sama skapi margar afbragðs- góðar. Og hverjar skyldu vera þær bestu? Vefurinn Rotten Tomatoes kannaði málið en sá vefur tekur saman umfjallanir bandarískra kvikmyndagagnrýnenda. Kvik- myndirnar eru 94 í upptalning- unni, teiknimyndir einnig teknar með, og verða hér þær efstu nefndar, fyrstu tíu sætin. Til gamans má geta þess að sú allra versta þykir Son of the Mask. Sú mynd hlaut nær eingöngu slæma dóma, aðeins 4% jákvæða. Hún telst því verulega rotin á mæli- kvarða Rotten Tomatoes. 1. Spider-Man 2 Sérlega vel heppnuð kvikmynd Sam Raimi með Tobey Maguire í hlutverki hetjunnar, meðaltalið 89,6 stig af hundrað mögulegum á vefnum. Myndin fékk jákvæðari dóma en sú fyrsta en sú þótti mik- ið afbragð. Andi hasarblaðanna um Kóngulóarmanninn fangaður af mikilli snilld hjá Raimi. 2. American Splendor Paul Giamatti, sá eðalleikari, fer með hlutverk Harvey Pekar í dásamlegri blöndu raunveruleika og teiknimyndaheims, en myndin byggist á teiknimyndaseríunni American Splendor sem rithöfund- urinn Pekar skrifaði og fjöldi teiknara vann myndasögur upp úr á árunum 1976-1993 en fyrsti teiknarinn var vinur Pekar, Ro- bert Crumb. 3. Ghost World Kvikmynd byggð á myndasögu Daniels Clowe um daglegt líf tán- ingsstúlkna. Myndin þykir sýna þá angist sem fylgir því að vera tán- ingur með afar skemmtilegum hætti. Thora Birch og Scarlett Johansson fóru með aðal- hlutverkin. 4. Spider-Man Fyrsta mynd Sam Raimi um Kóngulóarmanninn hitti beint í mark og greinilegt að leikstjórinn vissi um hvað málið snerist. 5. X2: X-Men United Líkt og með Spider-Man 2 þótti þessi mynd betri en fyrsta myndin um X-mennina. Unnendur X- manna gengu afar sáttir úr bíósöl- um. 6. A History of Violence Hryllingsmeistarinn David Cro- nenberg færði myndasögu Johns Wagner og Vince Locke frá árinu 1997 listilega á hvíta tjaldið. Gagnrýnendum þótti myndin varpa fram áleitnum spurningum um eðli ofbeldis. Ed Harris hefur líklega aldrei verið eins óhuggu- legur. 7. Men in Black Tommy Lee Jones og Will Smith frábærir sem hinir svart- klæddu geimveruveiðimenn. Leik- stjórinn Barry Sonnenfeld færði myndasögur Lowell Cunningham í glæsilegan búning. Töffaraskapur og grín í góðu jafnvægi. 8. Batman Begins Leikstjórinn Cristopher Nolan bjargaði Leðurblökumanninum. Myndin á undan Batman Begins, Batman & Robin, er ein alversta kvikmynd sem gerð hefur verið eftir teiknimyndasögu. Nolan komst að kjarna málsins og Christian Bale hentaði full- komlega í hlutverkið. 9. Superman: The Movie Þessi er í eldri kantinum, frá 1978, og tæknibrellurnar eftir því. Engu að síður fær hún 79,9 stig af 100 mögulegum á Rotten Tom- atoes. Christopher Reeve passaði fullkomlega í hlutverk stálmanns- ins sem og Gene Hackman í hlut- verk erkifjandans Lex Luthors. 10. Metropolis Hér er ekki átt við kvikmynd Fritz Lang heldur teiknimynd sem byggð er á manga, japönskum myndasögum, eftir Osamu Tezuka. Myndin segir af leit vélmennis að foreldrum sínum. Myndin þykir mikið augnakonfekt. Þær bestu byggðar á myndasögum        Í GREIN Gunnars Valgeirssonar um tónleika Jónsa, Jóns Þórs Birg- issonar, á Coachella-hátíðinni í gær var rangt farið með nafn trymbils- ins. Í greininni segir: „Mestu athygli mína vakti frábær trommuleikur Samuli Kosminen, auk fals- etturaddar Jóns Þórs.“ Kosminen þessi trommaði inn á nýja sólóplötu Jónsa, Go, en á tónleikum sér Þor- valdur Þór Þorvaldsson um þann þátt. Leiðréttist það hér með. Leiðrétting vegna grein- ar um Coac- hella í gær Morgunblaðið/Heiddi Trymbill Þorvaldur Þ. Þorvaldsson. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Gauragangur (Stóra svið) Fim 22/4 kl. 20:00 K.9. Sun 9/5 kl. 20:00 Ný auka Fös 4/6 kl. 20:00 Fös 23/4 kl. 20:00 Mið 12/5 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00 Fim 29/4 kl. 20:00 K.10 Fös 21/5 kl. 20:00 Fös 11/6 kl. 20:00 Fös 30/4 kl. 20:00 K.11 Lau 22/5 kl. 20:00 Lau 12/6 kl. 20:00 Fös 7/5 kl. 20:00 Fös 28/5 kl. 20:00 Lau 8/5 kl. 20:00 Sun 30/5 kl. 20:00 Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk Faust (Stóra svið) Lau 24/4 kl. 20:00 Ný auka Sun 2/5 kl. 20:00 Ný auka Sun 25/4 kl. 20:00 Ný auka Fim 6/5 kl. 20:00 Ný auka í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Fim 22/4 kl. 12:00 Lau 24/4 kl. 12:00 Sun 25/4 kl. 12:00 Fim 22/4 kl. 14:00 Lau 24/4 kl. 14:00 Sun 25/4 kl. 14:00 Dúfurnar (Nýja sviðið) Fim 22/4 kl. 20:00 K.6. Fös 30/4 kl. 22:00 aukas. Fim 13/5 kl. 20:00 k.15. Fös 23/4 kl. 19:00 K.7. Fös 7/5 kl. 19:00 k.11. Fös 14/5 kl. 19:00 k.16. Fös 23/4 kl. 22:00 aukas Fös 7/5 kl. 22:00 Fös 14/5 kl. 22:00 Mið 28/4 kl. 20:00 k.8. Lau 8/5 kl. 19:00 k.12. Lau 15/5 kl. 19:00 k.17. Fim 29/4 kl. 20:00 k.9. Sun 9/5 kl. 20:00 k.13. Lau 15/5 kl. 22:00 Fös 30/4 kl. 19:00 k.10 Mið 12/5 kl. 20:00 k.14. frumsýnt 10. apríl Rómeó og Júlía í leikstjórn Oskaras Korsunovas (Stóra svið) Fös 14/5 kl. 20:00 Lau 15/5 kl. 20:00 Í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík Eilíf óhamingja (Litli salur) Fim 22/4 kl. 20:00 Sun 25/4 kl. 20:00 Fös 23/4 kl. 20:00 Fös 30/4 kl. 20:00 Fyrir þá sem þora að horfa í spegil. Snarpur sýningartími Villidýr / Pólitík eftir Ricky Gervais (Litla svið) Lau 24/4 kl. 20:00 Frums Sun 2/5 kl. 20:00 Lau 1/5 kl. 19:00 Fös 7/5 kl. 20:00 Uppsetning Bravó - aðeins 4 sýningar. Athugið: Óheflað orðbragð Skoppa og Skrítla fagna sumri í dag ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Oliver! (Stóra sviðið) Sun 25/4 kl. 15:00 Sun 25/4 kl. 19:00 Sun 2/5 kl. 15:00 Síð.sýn. Allra síðasta aukasýning 2. maí komin í sölu! Gerpla (Stóra sviðið) Lau 24/4 kl. 20:00 Fim 6/5 kl. 20:00 Fim 29/4 kl. 20:00 Lau 15/5 kl. 20:00 Sýningin sem allir eru að tala um - tryggðu þér miða! Fíasól (Kúlan) Fim 22/4 kl. 13:00 Aukas. Sun 2/5 kl. 13:00 Sun 16/5 kl. 15:00 Fim 22/4 kl. 15:00 Aukas. Sun 2/5 kl. 15:00 Lau 22/5 kl. 13:00 Lau 24/4 kl. 14:00 Lau 8/5 kl. 13:00 Lau 22/5 kl. 15:00 Lau 24/4 kl. 16:00 Lau 8/5 kl. 15:00 Lau 12/6 kl. 13:00 Sun 25/4 kl. 13:00 Sun 9/5 kl. 13:00 Lau 12/6 kl. 15:00 Sun 25/4 kl. 15:00 Sun 9/5 kl. 15:00 Sun 13/6 kl. 13:00 Mið 28/4 kl. 17:00 Aukas. Lau 15/5 kl. 13:00 Sun 13/6 kl. 15:00 Lau 1/5 kl. 13:00 Lau 15/5 kl. 15:00 Lau 1/5 kl. 15:00 Sun 16/5 kl. 13:00 Spilaðu lagið, hér er slóðin; http://www.youtube.com/watch?v=MxghyCNAYAI Hænuungarnir (Kassinn) Fim 22/4 kl. 20:00 Aukas. Þri 27/4 kl. 20:00 Aukas. Fös 30/4 kl. 20:00 Aukas. Fös 23/4 kl. 20:00 Mið 28/4 kl. 20:00 Aukas. Lau 1/5 kl. 20:00 Lau 24/4 kl. 20:00 Fim 29/4 kl. 20:00 Aukas. Sun 2/5 kl. 20:00 Aukas. Uppselt út leikárið - haustsýningar væntanlegar í sölu! Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Fim 22/4 kl. 19:00 Frums. Lau 1/5 kl. 19:00 4.k Fös 21/5 kl. 19:00 Fös 23/4 kl. 19:00 2.k Fös 7/5 kl. 19:00 5.k Lau 22/5 kl. 19:00 Þri 27/4 kl. 13:00 Aukas. Lau 8/5 kl. 19:00 6.k Sun 30/5 kl. 19:00 Mið 28/4 kl. 13:00 Aukas. Mið 12/5 kl. 19:00 7.k Fös 30/4 kl. 19:00 3.k Fös 14/5 kl. 19:00 8.k Ath. sýningarnar hefjast kl. 19:00 Af ástum manns og hrærivélar (Kassinn) Fim 20/5 kl. 20:00 Frums. Fim 27/5 kl. 20:00 Fös 4/6 kl. 20:00 Fös 21/5 kl. 20:00 Fös 28/5 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00 Lau 22/5 kl. 20:00 Fim 3/6 kl. 20:00 Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Listahátíðar í Reykjavík Bræður (Stóra sviðið) Fim 27/5 kl. 20:00 Fös 28/5 kl. 20:00 Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.