Morgunblaðið - 22.04.2010, Side 48
Snæfell frá Stykkishólmi hefur samið
við bandaríska leikstjórnandann Jeb
Ivey um að leysa Sean Burton af
hólmi. Snæfell er í miðjum klíðum að
berjast við Keflvíkinga um Íslands-
meistaratitilinn í körfuknattleik.
Keflavík er 1:0 yfir í rimmunni en
annar leikurinn fer fram í Stykkis-
hólmi í kvöld. Vinna þarf þrjá leiki til
að landa titlinum. »2
Jeb Ivey blandar sér í
slaginn með Snæfelli
FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 112. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Nýtt eldgosaskeið að hefjast?
2. Gerir hlé á ræktun og búskap
3. Ísland alræmt og þjóðin í sjálfsleit
4. Bestu og verstu eldfjalla …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Gæðarokksveitin Ensími leggur í
sína fjórðu plötu um helgina. Sam-
kvæmt Franz Gunnarssyni gítarleik-
ara munu meðlimir planta sér í Sund-
laugina um helgina þar sem grunnar
verða teknir upp „lifandi“.
Morgunblaðið/Golli
Ensími tekur upp
nýja plötu
Samningar
hafa náðst um
leikferð Borg-
arleikhússins og
Vesturports
með leikritið
Faust í leik-
stjórn Gísla Arn-
ar Garðarssonar
til hins virta
leikhúss Young Vic í London kom-
andi haust. Frumsýnt verður 1. októ-
ber og verður sýnt í sex vikur sam-
fleytt.
Faust sýnt í hinu virta
Young Vic-leikhúsi
Endless Dark
sigraði fyrr á árinu
í undankeppni
GBOB á Íslandi og
mun því keppa fyr-
ir hönd Íslands í
úrslitunum sem
fara fram í London
27. apríl næstkom-
andi. Hljómsveitin
hitar upp á Sódómu í kvöld ásamt ný-
krýndri sigursveit Músíktilrauna, Of
Monsters & Men, In Memoriam og Cliff
Clavin.
Endless Dark hitar
upp fyrir GBOB
Á föstudag Hæg suðaustlæg átt, en 8-10 m/s sunnan- og vestantil síðdegis. Slydda
með köflum sunnan- og vestanlands og hiti 0- 5 stig. Annars bjart og vægt frost.
Á laugardag Austlæg átt, 8-15 m/s. Dálítil slydda sunnantil, en annars úrkomulítið. Hiti
breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg breytileg átt, bjartviðri vestanlands, stöku él um NA-land en
austan 3-8 m/s sunnantil og snjókoma með köflum. Hiti 0 til 5 stig sunnan- og vestantil.
VEÐUR
Arjen Robben tryggði Bay-
ern München 1:0-sigur gegn
Lyon í fyrri viðureign lið-
anna í undanúrslitum
Meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu en liðin
áttust við í Münch-
en í gærkvöldi.
Þetta var 20.
mark Hollend-
ingsins fyrir lið
Bæjara á leiktíð-
inni. »3
Robben var hetja
Bæjara gegn Lyon
Úrslitakeppnin um Íslandsmeist-
aratitil karla í handknattleik hefst í
dag þegar Valur leikur við Akureyri
og Haukar mæta HK. Haukar þykja
sigurstranglegastir en á Akureyri er
mesta stemningin í kringum hand-
boltann. Morgunblaðið
fjallar ítarlega um það
sem framundan er í bar-
áttunni um titilinn. »4
Haukar líklegastir í upp-
hafi úrslitakeppninnar
ÍÞRÓTTIR
DIMITTERINGAR menntaskóla eru vorboðar í
huga margra og í gær mátti sjá fótboltabullur,
krónupeninga, súmóglímukappa og fleiri skraut-
legar fígúrur á lóð Menntaskólans í Reykjavík.
Eins og við var að búast vöktu útskriftarnem-
endur skólans talsverða athygli vegfarenda en
vafalaust eru flestir orðnir vanir þessum árlega
viðburði þar sem nemarnir skemmta sér saman í
síðasta sinn áður en stúdentsprófin hefjast.
GLÍMDU Á LÓÐ MENNTASKÓLANS Í REYKJAVÍK
Morgunblaðið/Ernir
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
BÆJARSTJÓRN Seltjarnarness er
einhuga í endurskoðun á katta-
samþykkt bæjarins. Færa á hana til
samræmis við samþykkt um hunda-
hald, setja á skráningarskyldu og
leggja á sambærilegt árlegt eft-
irlitsgjald. Það hefur verið tæpar
tíu þúsund krónur fyrir hvern hund
en einnig er ráðgert að hækka það.
Að sögn Þórs Sigurgeirssonar,
formanns umhverfisnefndar Sel-
tjarnarness, er verið að færa katta-
samþykktina til nútímans, en nú-
gildandi samþykkt er frá árinu
1996. Settar verða takmarkanir á
kattahald og ómerktir kettir fjar-
lægðir af starfsmönnum bæjar-
félagsins. „Það hefur verið vanda-
mál með lausagöngu katta, og
okkur þótti eðlilegast að gera þetta
með þessum hætti, þ.e. til að gæta
jafnræðis milli þessara hópa sem
halda dýr.“
Önnur stór ástæða fyrir endur-
skoðun bæjarstjórnar á samþykkt-
inni er áhrif lausagöngu katta á
fuglalífið. „Margir hafa horft upp á
kettina vasast í ungum og öðru á
varptíma, og það er erfitt að hafa
hemil á eðli dýrsins. Við vildum ekki
taka skrefið til fulls og banna það
með öllu en þessar reglur miða að
því að stemma stigu við kattahaldi.“
Vilja takmarka kattahald
Bæjarfulltrúar á
Seltjarnarnesi vilja
ársgjöld á ketti
Í HNOTSKURN
»Samþykkt var á fundi um-hverfisnefndar að senda
drög að nýrri kattasamþykkt
til heilbrigðisnefndar Kjós-
arsvæðis til umsagnar.
»Fái hún jákvæða umsögnverður hún afgreidd í bæj-
arstjórn og tekur þá gildi um
næstu áramót.