Morgunblaðið - 28.04.2010, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010
Á morgun, fimmtudag kl. 20, standa
ADHD samtökin fyrir fræðslufundi í
safnaðarheimili Háteigskirkju þar
sem Stefán J. Hreiðarsson barna-
læknir fjallar um stýrivirkni heilans
hjá einstaklingum með ADHD. Allir
eru velkomnir.
ADHD samtökin eru til stuðnings
börnum og fullorðnum með athygl-
isbrest, ofvirkni og skyldar rask-
anir. Um áratuga skeið hefur verið
litið á ADHD sem samansafn hegð-
unarvandamála. Sérfræðingar gera
sér þó stöðugt betur grein fyrir því
að um er að ræða flókin heilkenni í
hugrænni vinnslu heilans og þeim
fækkar stöðugt sem sjá ADHD sem
einfalt hegðunarvandamál.
Fræðslufundur um
ofvirkni og röskun
Á föstudag nk. kl. 12:30-16:45 boð-
ar menntamálaráðuneytið til menn-
ingarþings á Hótel Loftleiðum und-
ir yfirskriftinni „Menningarlandið
2010 – mótun menningarstefnu“.
Á þinginu verður kynnt greining
á núverandi menningarstefnu á
sviði lista, menningararfs, safna,
fjölmiðla og æskulýðs- og íþrótta-
mála. Tilgangur þingsins er að fá
viðbrögð við fyrirliggjandi grein-
ingu og fá fram hugmyndir sem
gætu nýst í áframhaldandi vinnu
við mótun menningarstefnu til
framtíðar. Einnig verður kynnt
sóknaráætlun stjórnvalda í menn-
ingarmálum og nýleg menning-
arneyslukönnun.
Menningarþing
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
ÞJÓÐMINJASAFN Íslands, húsa-
friðunarnefnd og Fornleifavernd rík-
isins hafa gert athugasemdir við stað-
setningu húss fyrir gistiheimili á Hofi
í Öræfum og fleiri framkvæmdir á
staðnum. Telja stofnanirnar að fram-
kvæmdin rýri gildi hinnar merku
Hofskirkju og staðarins í heild. Aðrir
landeigendur á Hofi og sóknarnefnd-
in samþykktu staðsetningu hússins
og skipulags- og byggingarnefnd
leggur til að hún verði staðfest í bæj-
arstjórn.
Eigendur gistiheimilisins Frosts
og funa eru að undirbúa byggingu
átján herbergja gistirýmis úr gáma-
einingum á landi sínu á Hofi. Húsið
verður í hlíðinni ofan við Hofskirkju
sem er friðuð en á milli hennar og
heimilisins eru gömul fjárhús. Sveit-
arfélagið ákvað að setja framkvæmd-
ina í grenndarkynningu.
Truflar ásýnd kirkjunnar
„Búið er að grafa stóran grunn fyr-
ir hótel sem við teljum að muni trufla
ásýnd til og frá gömlu torfkirkjunni,“
segir Nikulás Úlfar Másson, fram-
kvæmdastjóri húsafriðunarnefndar.
Hann telur það úr takti við okkar
tíma að rýra gildi staða sem þessa.
„Ég tel þetta heppilegasta staðinn
fyrir þetta hús, þarna ber minnst á
því,“ segir Örn Bergsson, bóndi á
Hofi. Hann verður næsti nágranni
nýja gistiheimilisins og segir að fram-
kvæmdin snerti fyrst og fremst fjöl-
skyldu sína og bróður síns. Hann tel-
ur ekki að gistiheimilið muni á
nokkurn hátt eyðileggja fyrir gömlu
kirkjunni. „Við viljum vernda svæði
kirkjunnar og sýna henni fullkominn
sóma,“ segir hann.
Torfbær rifinn án leyfis
Fornleifavernd ríkisins telur að
fornleifum hafi verið spillt þegar
grunnur hússins var grafinn án leyfis
sveitarstjórnar. Örn hafnar því, segir
að gamalt hús sem þar stóð hafi verið
fyrir þegar fjárhúsin voru byggð fyr-
ir mörgum áratugum og því þá rutt
um koll. Húsafriðunarnefnd gerir
einnig athugasemdir við að landeig-
andinn skuli hafa tekið niður gamlan
torfbæ fyrir nokkrum árum, án leyfis
nefndarinnar. Örn segir að bærinn
hafi verið að fjúka og af honum hafi
stafað hætta og því ekki annað að
gera en að taka húsið niður.
Mótmæla gistihúsi á Hofi
Stofnanir ríkisins telja að nýtt gistihús rýri gildi Hofskirkju og gera athuga-
semdir við framkvæmdir Staðsetning í sátt við nágranna og sóknarnefnd
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hofskirkja Fyrirhugað er að reisa gistiheimili í hlíðinni ofan við fjárhúsin.
Búið er að grafa grunn en beðið leyfis bæjarstjórnar fyrir framkvæmdum.
Í HNOTSKURN
»Hofskirkja var byggð á ár-unum 1883-85. Hún er
sóknarkirkja en er jafnframt
hluti af húsasafni Þjóðminja-
safnsins sem húsafriðunar-
nefnd annast.
»Áform eru uppi um aðHofskirkja verði hluti af
raðtilnefningu íslenska torf-
bæjarins á heimsminjaskrá
UNESCO.
»Byggingar- og skipulags-nefnd hefur samþykkt
byggingu gistiheimilis á Hofi
með þeirri kvöð að trjáplöntur
verði gróðursettar svo húsið
falli sem best að umhverfinu.
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
„ÞRÁTT fyrir ítrekanir hefur stjórn-
in ekki fengið þau gögn sem við höf-
um óskað eftir. Stjórnin verður að
geta rækt sína félagslegu ábyrgð,“
segir Svavar Halldórsson sem sæti á
í stjórn Blaðamannafélags Íslands.
Hart er tekist á innan BÍ í aðdrag-
anda aðalfundar félagsins sem verð-
ur haldinn annað kvöld. Þar býður
framkvæmdastjóri félagsins, Hjálm-
ar Jónsson, sig fram gegn formann-
inum, Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur.
Tveir stjórnarmenn og aðrir tveir
úr varastjórn hafa skrifað undir árs-
reikninga félagsins en aðrir fjórir
ekki, þar á meðal formaður og vara-
formaður, og bera við að þeir hafi
ekki fengið þær upplýsingar um fjár-
reiður félagsins sem þeir óska eftir.
Þeir sem samþykkt hafa samningana
fyrir sitt leyti segja í yfirlýsingu að
ekkert í umræðu stjórnarfundar, þar
sem fjallað var um reikningana, gefi
til kynna að nokkuð væri við reikn-
inga félagsins að athuga. Enda hefðu
þeir verið yfirfarnir án athugasemda
af félagskjörnum skoðunarmönnum
reikninga og löggiltum endurskoð-
enda.
Upplýsingarnar sem stjórnin hef-
ur óskað eftir en ekki fengið segir
hann snúa meðal annars að launa-
kjörum og hlunnindum þeirra sem
starfað hafa fyrir félagið síðustu ár,
auk þess sem stjórnin óskaði eftir að
sjá þá samninga sem þar liggja að
baki og samþykktir stjórnar fyrir
greiðslum. Einnig var fram-
kvæmdastjórinn beðinn um ítarlega
greinargerð um störf sín fyrir félag-
ið. Einnig að formaður fengi lykla að
skrifstofu félagsins sem hann fékk,
en ekki þó að útidyrum.
Dapurlegt moldviðri
Hjálmar Jónsson segir ákvörðun
um að bjóða sig fram til formanns í
BÍ hafa verið tekna að vel athuguðu
máli. Aldrei hafi skipt meira máli en
nú að félagið sé heild og standi þétt
að baki sínu fólki. „Því er heldur ekki
að leyna að það hefur verið ágrein-
ingur milli mín og formannsins um
vinnubrögð. Lýðræðislegar hefðir
þarf að halda í heiðri og stórar
ákvarðanir verður að ræða og bera
undir stjórn áður en þær eru teknar.
Á því var verulegur misbrestur og
við það gerði ég alvarlegar athuga-
semdir og hef verið litinn hornauga
síðan svo vægt sé til orða tekið,“ seg-
ir Hjálmar í yfirlýsingu sem hann
sendi frá sér í gær.
Gagnrýni í sambandi við reikninga
BÍ segir Hjálmar moldviðri sem
þyrlað sé upp í tengslum við for-
mannsframboðið. Dapurlegt sé að
gripið sé til slíkra vinnubragða og
hann trúi því að þau dæmi sig sjálf.
Vilja gögn um launakjör
Deilt í BÍ Stjórnarmenn kalla eftir upplýsingum Vilja rækja félagslega
ábyrgð Moldviðri þyrlað upp, segir framkvæmdastjórinn sem er í framboði
Hjálmar
Jónsson
Svavar
Halldórsson
SJÓKAJAKRÆÐARAR Á STÍFU STJÖRNUNÁMSKEIÐI
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eins og gefur að skilja er mikil áhersla lögð á öryggismál.
Ræðarar þurfa m.a. að sýna fram á kunnáttu í siglingafræði,
skyndihjálp og að þeir kunni að bjarga sér og öðrum.
urra stjörnu leiðsögumaður og veitir alþjóðleg réttindi til að
fara með fjóra lítt vana ræðara í sjókajakróður við nokkuð
erfiðar aðstæður.
FJÖLDI kajakræðara sækir nú námskeið í sjókajakróðri sem
haldið er við höfuðborgarsvæðið af Breska kanósambandinu.
Ræðararnir búa sig undir að taka prófgráðu sem nefnist fjög-
Á þriðjudaginn sl. var haldinn fyrsti
ársfundur Á-Vaxtar, hvatafélags um
ræktun garðávaxta á Íslandi. Félag-
ið var stofnað til þess að örva áhuga
almennings á ræktun ávaxta og ann-
arra óhefðbundinna matjurta. Yfir
50 félagsmenn eru í félaginu.
Á-Vöxtur er í samstarfi við og fær
stuðning frá The Fruit Tree Plant-
ing Foundation, sem eru áhuga-
mannasamtök sem starfa um allan
heim. Næstu verkefni á stefnuskrá
Á-Vaxtar eru fræðslufundir, kynn-
isferðir og plöntun ávaxtatrjáa. Fé-
lagið leitar eftir afnotum af ónot-
uðum gróðurhúsum um allt land til
að taka þátt í verkefninu og koma á
fót öflugri ávaxtarækt í landinu.
Ávaxtarækt
Heiðursfélagar Sæmundur Guð-
mundsson og Eyrún Óskarsdóttir.