Morgunblaðið - 28.04.2010, Side 36

Morgunblaðið - 28.04.2010, Side 36
Tumi hóf störf á Kaffitári 2006 og ári síðar fór systir hans Ingibjörg að vinna á sama stað. „Við erum mikil kaffifjölskylda og okk- ur líkar báðum vel í þessu umhverfi,“ segir hann. Tumi vann til verðlauna um síðustu helgi fyrir besta Kahlúa-drykkinn. Hann segir galdurinn að baki góðum kaffidrykk, hvort sem um er að ræða óáfengan eða áfengan drykk, liggja í hráefninu. „Maður þarf að finna hráefni sem vinnur vel með kaffinu, frekar en að nýta hráefni sem hylur kaffi- bragðið. Það þarf líka alltaf að passa að hráefnið sé fyrsta flokks og með því móti er hægt að galdra fram eitthvað sem spilar vel saman.“ Galdurinn felst í hráefninu MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 118. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Fannst sofandi við höfnina 2. Stúlkan enn á gjörgæslu 3. Dýrkeypt yfirlýsing forsetans 4. Hraun komið um 1 km frá gígnum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Karlakór Reykjavíkur heldur um þessar mundir vortónleika í Lang- holtskirkju undir yfirskriftinni Kom vornótt og syng. Nú þegar hafa tvennir tónleikar verið haldnir en í kvöld verða þeir þriðju og loka- tónleikar verða í kirkjunni á laug- ardag, 1. maí. Þetta er 84. starfsár kórsins og eru vortónleikar fastur lið- ur í kórstarfinu. Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 20 en á laugardaginn kl. 16. Hægt er að kaupa miða í forsölu á heimasíðu kórsins, www.kkor.is, en einnig verð- ur hægt að kaupa miða við inngang- inn. Miðaverð er 2.500 kr. Morgunblaðið/Kristinn Karlakór Reykjavíkur syngur vorinu söng  Ekkert verður af einleik sænska klarínettleikarans Martins Frösts með Sinfóníu- hljómsveit Ís- lands á fimmtu- dag, þar sem hann kemst ekki til landsins vegna truflana á flugsamgöngum. Fröst var kominn til Óslóar í gær en komst ekki lengra. Hann átti að leika einleik í klarínettkonsert Kalevis Ahos. Að sögn Margrétar Ragnarsdóttur, markaðs- og kynningarstjóra Sin- fóníunnar, falla tónleikarnir ekki niður en ekki lá fyrir í gær hvaða verk kæmi í staðinn. Flutningur á öðru sem er á dagskránni, forleik eftir Mússorgskíj og fjórðu sinfóníu Tsjajkovskíjs, raskast ekki. Nánari upplýsingar er að finna á vefsetri Sinfóníunnar, sinfonia.is. Öskutepptur einleikari Á fimmtudag Norðaustan 8-13 m/s og skýjað. Slydda NA-lands, en rigning með S- ströndinni. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast syðst. Á föstudag N-læg átt, 3-8 m/s og skýjað með köflum, en él með A-ströndinni og skúrir syðst. Hiti 1 til 6 stig SV-lands, en annars vægt frost. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustanátt og rigning eða slydda S- og A-lands, en annars úr- komulítið. Hiti 2 til 10 stig að deginum, hlýjast á V-landi. VEÐUR Júlíus Jónasson handknatt- leiksþjálfari þurfti ekki að hugsa sig lengi um þegar for- ráðamenn Vals óskuðu eftir því að hann tæki við karlaliði fé- lagsins. „Ég stóðst ekki freist- inguna. Ég tek við góðu búi af Óskari Bjarna Óskarssyni sem gert hefur mjög góða hluti hjá Val á þeim sjö ár- um sem hann hefur verið við stjórnvölinn,“ segir Júl- íus m.a. í viðtali við Morg- unblaðið. »1 Júlíus stóðst ekki freistinguna Bayern München leikur til úrslita í Meistaradeild Evrópu en þau fara fram í Madríd á Spáni í næsta mánuði gegn annaðhvort ríkjandi Evrópu- meisturum Barcelona eða Inter frá Mílanó. Þetta varð ljóst í gærkvöldi eftir að Bayern vann franska liðið Lyon, 3:0, í síðari leik liðanna. Bayern hefur ekki kom- ist í úrslit frá árinu 2001 þeg- ar liðið varð Evrópumeist- ari í fjórða sinn. Bayern München leikur til úrslita í Madríd Frábært veður setti svip sinn á 35. Andrésar andar-skíðamótið sem lauk á laugardag á Akureyri. Um 730 keppendur víðsvegar af landinu tóku þátt og er það svipaður fjöldi og und- anfarin ár. Þóra Leifsdóttir er ein af fjölmörgum sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum fyrir Skíða- félag Akureyrar á meðan mótið fer fram. Myndasyrpa á bls. 4 Góð stemning á Andrés- ar andar-leikunum ÍÞRÓTTIR Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is ÞAÐ að þrír Íslandsmeistarar í kaffigerð og -smökkun skuli leynast í sömu fjölskyldunni verður að teljast harla óvenjulegt. Gott kaffi hefur hins vegar lengi skipað veigamikinn sess hjá Ferrer-fjölskyldunni, sem jafnvel hefur ekki vílað fyrir sér að flytja það landshornanna á milli. „Þegar við fluttum heim frá Frakklandi eftir fimm ára dvöl tókum við með okkur mikið af fair trade-kaffi. Þegar það var að verða búið uppgötvuðum við Suðurnesjakaffið hjá Sonju Grant sem þá starfaði hjá Kaffitári í Kringlunni. Við létum jafnvel senda það austur á Fáskrúðs- fjörð þar sem við bjuggum þegar við áttum ekki heimangengt,“ segir Carlos Ferrer, grunnskóla- kennari við Sunnulækjarskóla á Selfossi og stundakennari á menntasviði Háskóla Íslands, sem nú um helgina var valinn Íslandsmeistari í gerð áfengra kaffidrykkja. Löguðu kaffi frá barnsaldri Carlos, sem á þýska móður og föður frá Pú- ertó Ríkó en hefur búið á Íslandi frá átta ára aldri, byrjaði að drekka og laga kaffi fyrir fimm ára aldur. Sama má segja um son hans Tuma. „Ég var fjögurra ára þegar ég var látinn hella upp á og byrjaði síðan að drekka kaffi um sjö ára aldurinn,“ segir Tumi sem starfar á Kaffitári og var nú í febrúar kjörinn Íslandsmeistari í fagsmökkun kaffidrykkja. Þá var hann einnig verðlaunaður nú um helgina fyrir besta Kahlúa- kaffidrykkinn. Ingibjörg systir hans, sem starfar einnig á Kaffitári, var síðan krýnd Íslandsmeist- ari kaffibarþjóna í byrjun marsmánaðar. Öll þrjú munu þau taka þátt í heimsmeistara- keppni í gerð kaffidrykkja sem fram fer í Lond- on nú í júní og það er ljóst að Carlos hlakkar til. „Ætli þetta hafi nokkuð gerst áður, að minnsta kosti ekki hér á landi, að þrír úr sömu fjölskyldu taki þátt í keppninni,“ segir hann. Tumi segir kaffiáhuga föður síns hafa gengið í endurnýjun lífdaga eftir að þau systkinin gerð- ust kaffibarþjónar og Carlos samsinnir því. „Ég staðnaði í kaffidrykkju upp úr tvítugu – var van- ur að drekka sterkt og frekar beiskt kaffi. Síðan gáfu krakkarnir mér Chemex-kaffikönnu í jóla- gjöf 2008 og þar með breyttist kaffismekk- urinn,“ segir Carlos og kveðst hafa uppgötvað fleiri bragðtegundir í kjölfarið. Reynslan af matargerð hjálpar „Ég fór líka að reyna að laga kaffið eftir for- skrift meistaranna,“ bætir hann við og hafnar því að vera sérlega hugmyndaríkur við kaffi- gerðina. Hann kveðst hins vegar búa að ára- langri reynslu af matargerð og það hafi sitt að segja við kaffilögunina. „Þegar Ingibjörg byrjar að æfa fyrir keppni þá leggjumst við í heilmiklar bragðstúderingar.“ Tæknin við bragðsamsetningu hefur eflaust ekki síður skipt máli við lögun verðlauna- drykkjarins um síðustu helgi, en hann byggði Carlos m.a. á súmötrukaffi, rommlegnu mangó, appelsínum og engifer og kaldlöguðum espressó- klaka. „Þetta var ekki flókinn drykkur, en það tók samt langan tíma að laga hann og smakk- tilraunirnar áður en rétta bragðið náðist voru fjölmargar.“ Fjölskylda kaffimeistara  Góðir kaffidrykkir eru í hávegum hafðir hjá Ferrer-fjölskyldunni Kaffimeistarar Þau Ingibjörg, Carlos og Tumi kunna öll listina að laga góða kaffidrykki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.