Morgunblaðið - 28.04.2010, Blaðsíða 20
20 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2010
✝ Þorvaldur GarðarKristjánsson var
fæddur 10. okt. 1919
á Kirkjubóli í Val-
þjófsdal í Önund-
arfirði. Hann lést á
heimili sínu 14. apríl
sl.
Hann var sonur
hjónanna Kristjáns
Sigurðar Eyjólfs-
sonar formanns, f. 21.
nóv. 1882, d. 22. sept.
1921, og Maríu Bjarg-
eyjar Einarsdóttur, f.
4. des. 1894, d. 15.
febr. 1975, húsmóður. Systir Þor-
valdar er Kristjana Kristjánsdóttir,
f. 14. mars 1921. Þrvaldur Garðar
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri lýðveldisárið
1944 og hóf nám í lögfræði við Há-
skóla Íslands þá um haustið. Hann
lauk embættisprófi í lögfræði 1948.
Á skemmtisamkomu, þar sem hann
var að fagna lögfræðiprófi sínu,
hitti hann í fyrsta sinn tilvonandi
eiginkonu sína, Elísabetu Maríu
Kvaran, sem var þar að fagna stúd-
entsprófi. Þeirra samband rofnaði
aldrei upp frá því þar til hún lést
fyrir 4 árum. Veturinn 1948 til 1949
stundaði hann framhaldsnám í lög-
fræði við University College í
Lundúnum. Hann öðlaðist réttindi
héraðsdómslögmanns og síðar
hæstaréttarlögmanns.
Þau Þorvaldur og Elísabet gengu
í hjónaband 9. apríl 1949. Elísabet
María Kvaran var fædd 29. mars
1928 og lést 19. apríl 2006. Hún var
dóttir hjónanna Ólafs Kvaran rit-
naut þess að segja sögur af uppá-
tækjum hans og vísdómi. Þorvaldur
var fyrst kjörinn á Alþingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Vestur-
Ísafjarðarsýslu árið 1959. Hann var
alþingismaður Vestfirðinga árin
1963-1967 og 1971-1991.
Þorvaldur Garðar hafði alla tíð
mikinn áhuga á störfum og starfs-
háttum Alþingis. Hann var kjörinn
forseti efri deildar 1974 og sat þá í
fjögur ár, og kosinn á ný forseti, þá
úr stjórnarandstöðu, síðla árs 1978.
Tvö full kjörtímabil var hann vara-
forseti deildarinnar. Hinn 11. okt.
1983 var hann kjörinn forseti sam-
einaðs Alþingis og gegndi því emb-
ætti í 5 ár. Á þingmannsárum sín-
um tók Þorvaldur mikinn þátt í
alþjóðlegu samstarfi Alþingis, eink-
um á vettvangi Evrópuráðsins
1962-1987.
Þorvaldur gegndi fjölmörgum
trúnaðarstörfum. Hann var for-
maður Orators, félags laganema,
1946-1947, formaður Stúdenta-
félags Reykjavíkur 1949-1950 og
formaður Heimdallar 1954-1956.
Þá var hann formaður Landsmála-
félagsins Varðar 1956-1960. Hann
sat í húsnæðismálastjórn 1955-1957
og 1962-1970 og í stjórn Bygging-
arsjóðs verkamanna 1957-1970, í
útvarpsráði 1956-1975 og var borg-
arfulltrúi í Reykjavík 1958-1962. Þá
átti Þorvaldur sæti í flugráði á ár-
unum 1964-1967, sat í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins 1969-1971 og í
orkuráði 1975-1991, þar af formað-
ur árin 1975-1979 og 1983-1991.
Að lokinni þingmennsku 1991
starfaði Þorvaldur Garðar í forsæt-
isráðuneytinu um nokkurra ára
skeið og vann þar að ýmsum verk-
efnum.
Útför Þorvaldar Garðars Krist-
jánssonar fer fram frá Dómkirkj-
unni í dag, 28. apríl 2010, og hefst
athöfnin kl. 15.
símastjóra, f. 5. mars
1897, d. 19. nóv. 1965,
og Elísabetar Bene-
diktsdóttur, f. 15. maí
1895, d. 19. sept.
1958. Hjónavígsla El-
ísabetar og Þorvaldar
Garðars í Lundúnum
1949 fór fram eftir
siðum og reglum
ensku biskupakirkj-
unnar. Brúðkaups-
ferðin var til Parísar,
yfir sundið, þar sem
síðustu aurum náms-
mannsins var eytt á
besta veitingastað Parísar í sam-
ræmi við tilefnið. Fyrsta hjúskap-
arárið bjuggu þau í Lundúnum en
lengst af héldu þau heimili í Skerja-
firði.
Dóttir Þorvaldar Garðars og El-
ísabetar er Elísabet Ingibjörg, við-
skiptafræðingur, fædd 25. mars
1972. Sambýlismaður hennar er
Heimir Freyr Hálfdanarson,
menntaskólakennari, fæddur 21.
febrúar 1958. Sonur þeirra er
Heimir Freyr Heimisson, fæddur
17. júlí 2009. Sonur Elísabetar er
Þorvaldur Garðar Kvaran, fæddur
11. ágúst 1995.
Eftir að Þorvaldur Garðar lauk
námi var hann forstöðumaður hag-
deildar Útvegsbanka Íslands á ár-
unum 1950-1960. Hann var fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins
1961-1972 og framkvæmdastjóri
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
1972-1983. Í störfum sínum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn var Þorvaldur
mjög handgenginn Ólafi Thors og
Þorvaldur Garðar sendi mér bréf
fyrir fáeinum mánuðum og fór yfir
nokkra þætti þjóðmála, sem þá voru
einkum til umræðu, og kunni á þeim
gleggri skil en margur sem hefur
fulla vinnu við slíka umfjöllun. Kom-
inn á tíræðisaldur og jafn stefnufast-
ur og skýr og áður. Við vorum ná-
grannar í Skerjafirði og hann hafði
einnig litið við í kaffi með fleiri forn-
vinum og rætt stjórnmál að fornu og
nýju af lifandi áhuga og gjörhygli.
Hann var af gamla skólanum í
bestu merkingu þess. Yfirborðslegt
gaspur og innihaldslítið fleipur sem
svo margir úr röðum hinna talandi
stétta iðka nú var honum fjarri og
naut lítillar virðingar. Nú er sagt að
mestu skipti að Alþingi sé fjölskyldu-
vænn vinnustaður, sem lagi sig að
leikskólum, foreldrafundum og eðli-
legum frístundum. Þorvaldur Garðar
taldi Alþingi fremur lög-
gjafarstofnun en vinnustað og þeir
sem sæktust eftir að fá að láta til sín
taka þar ættu að lúta þeim lögmálum
sem löggjafarstofnunin byði upp á.
Þorvaldur var þrautreyndur þing-
maður Vestfirðinga um árabil, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks
þeirra Ólafs og Bjarna, eins og hann
orðaði það, og traustur og öflugur
Forseti Alþingis, sem gætti virðingar
þess í hvívetna og veitti engan afslátt
í slíkum efnum, hversu fast sem eftir
var leitað og hver sem átti í hlut.
Eftir að þingstörfum lauk vann
hann að minni ósk í lausamennsku í
forsætisráðuneytinu í áratug og kom
að mörgum verkefnum og skilaði
þeim með prýði. Hann saknaði og
syrgði sinn góða lífsförunaut, en naut
þess að eiga ævikvöldið heima hjá
sínu fólki til hinstu stundar.
Við Ástríður kveðjum hollan vin og
heiðursmann og hugsum af hlýju til
fólksins hans.
Davíð Oddsson.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson er
allur. Ég hafði talað við hann nokkr-
um dögum áður en hann dó. Hann
hafði verið glaður og reifur eins og
jafnan, fylgdist vel með og hafði
sterkar skoðanir á mönnum og mál-
efnum. Mér heyrðist ekkert farar-
snið á honum og sakna þess, að geta
ekki átt von á hressilegu rabbi við
hann framar.
Þorvaldur Garðar var í hópi þeirra,
sem mestan svip settu á alþingi sein-
ustu áratugi síðustu aldar. Í mínum
huga er vafalaust, að enginn sam-
þingsmanna minna bjó yfir jafn mik-
illi þekkingu og hann á sögu og hátt-
um alþingis. Menn báru virðingu
fyrir honum sem forseta og enginn
efaðist um úrskurði hans. Hann gerði
strangar kröfur til sjálfs sín, var
þingræðissinni í orði, verki og hátt-
semi allri. Hann skildi, að alþingi er
hornsteinn lýðræðisins, forsenda
góðra stjórnarhátta og framfara. Oft
hringdi ég til hans þann tíma sem ég
gegndi störfum forseta Alþingis.
Þorvaldur Garðar var sterkur per-
sónuleiki og gleymist ekki. Hann var
rökfastur og fljótur að átta sig, hafði
sinn sérstaka húmor og glöggt auga
fyrir hinu skoplega. Hjarta hans sló
með vestfirskum takti. Hann átti
frumkvæði að því að lán yrði tekið úr
Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins til
framkvæmda í samgöngumálum á
Vestfjörðum. Þetta var fyrsta svæð-
isbundna stórátakið í vegamálum og
voru því gerð sérstök skil á aldaraf-
mæli Ísafjarðarkaupstaðar 1966.
Umsvif Þorvalds Garðars í stjórn-
málum spanna vítt svið. Hann beitti
sér sérstaklega í atvinnu- og orku-
málum og ég minnist þess, hversu
glaður hann var, loksins þegar við
sáum fram á að lokið yrði við rafvæð-
ingu landsins.
Þorvaldur Garðar var fulltrúi Ís-
lands á þingi Evrópuráðsins um ald-
arfjórðungs skeið og um árabil einn
af varaforsetum þess. Þar var hann
öllum hnútum kunnugur eins og
vænta mátti, átti vinum að mæta og
naut mikils trausts. Okkur Íslending-
um er sómi að slíkum fulltrúa meðal
erlendra þjóða.
Þorvaldur Garðar lauk stúdents-
prófi árið 1944 og var af þeirri kyn-
slóð ungs fólks, sem leit á það sem
köllun sína, að Íslendingar væru jafn-
ingjar annarra á alþjóðlegum vett-
vangi bæði sem þjóð og einstakling-
ar. Er áhugavert að rifja upp afrek
íþróttamanna okkar og menningar-
legt framlag þjóðarinnar í því ljósi.
Þorvaldur Garðar var áhugasamur
um vestræna samvinnu og skildi
nauðsyn þess að vera þátttakandi í
varnarbandalagi lýðfrjálsra þjóða
gegn Sovétríkjunum. Það kostaði
mikil átök á sínum tíma og er sú saga
enn ekki nema hálfsögð. Í þessu felst,
að sjálfstæðishugtakið inniber nána
samvinnu við önnur ríki, en á hinn
bóginn hlýtur hver þjóð að gæta
sjálfrar sín, varðveita einkenni sín og
náttúruleg gæði landsins. Engin kyn-
slóð hefur rétt til að selja yfirráðarétt
þjóðar sinnar yfir landi sínu og lands-
ins gæðum í annarra hendur.
Ég naut þess heiðurs að Þorvaldur
Garðar bauð mér síðustu árin ásamt
nokkrum vinum sínum í skötu á Þor-
láksmessu. Þar naut ég gestrisni
þeirra hjóna, Elísabetar og hans.
Þorvaldur Garðar lék á als oddi.
Þannig hugsa ég til þeirra núna með
þakklátum huga.
Halldór Blöndal.
Kveðja
frá Sjálfstæðisflokknum
Leiðir Þorvaldar Garðars Krist-
jánssonar og Sjálfstæðisflokksins
lágu saman í áratugi en hann hóf af-
skipti af stjórnmálum fljótlega eftir
að hann lauk laganámi. Hann vildi
láta að sér kveða og vinna stefnumál-
um Sjálfstæðisflokksins og hags-
munamálum íslensku þjóðarinnar
brautargengi. Það gerði hann og dró
hvergi af sér í áratugi.
Hann var formaður Heimdallar,
félags ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík, 1954-‘56, formaður
Landsmálafélagsins Varðar 1956-‘60,
var borgarfulltrúi í Reykjavík 1958-
‘62, framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins 1961-‘72, framkvæmda-
stjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins
1972-‘83 og alþingismaður Vestfirð-
inga með hléum 1959-‘91. Þá átti Þor-
valdur Garðar sæti í miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins 1969-‘71.
Þorvaldur Garðar var áhugasamur
um umbætur á vettvangi Sjálfstæð-
isflokksins. Sem dæmi um þann
áhuga má nefna að flokkurinn var
endurskipulagður í framkvæmda-
stjóratíð hans. Markmiðið var það að
í öllum byggðum landsins væru sjálf-
stæðisfélög sem síðan mynduðu sam-
an fulltrúaráð í hverju umdæmi,
sýslu eða kaupstað en einnig væru
kjördæmisráð í öllum kjördæmum
landsins. Þetta fyrirkomulag er í
stórum dráttum enn við lýði í skipu-
lagi flokksins.
Eftir að hann lét af formlegum
störfum var Þorvaldur Garðar fastur
gestur á fundum hjá Sjálfstæðis-
flokknum og lét sig mál hans og hag
miklu varða. Hann fylgdist vel með
til hinstu stundar og lét forystumenn
gjarnan vita skoðun sína, einkum ef
Þorvaldur Garðar
Kristjánsson
Allar minningar á einum stað.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
O
R
48
70
7
01
/1
0
–– Meira fyrir lesendur
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar
Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá
árinu 2000 og til dagsins í dag.
✝
Elskulegur faðir minn, afi og langafi,
GUÐMUNDUR F. ÞÓRÐARSON,
Sóltúni 2,
Reykjavík,
lést laugardaginn 17. apríl.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 30. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en bent
er á minningarsjóð Sóltúns, hjúkrunarheimilis.
Carlotta Rósa Guðmundsdóttir,
Ragnar Jóhann Sævarsson,
Loftur Karl Magnússon,
Gabríela Ragnarsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HRAFN EINARSSON,
Vesturbrún 12,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti mánudaginn 26. apríl.
Signý Halldórsdóttir,
Katrín Hrafnsdóttir, Einar Malmberg,
Sigrún Hrafnsdóttir, Sigtryggur Baldursson,
Sólveig Hrafnsdóttir, Halldór Sölvi Hrafnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
MAGNÚS M. JÓNSSON,
Aðalgötu 5,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn
25. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Einhildur Pálmadóttir,
Þór Pálmi Magnússon, Hulda Guðmundsdóttir,
Oddný Magnúsdóttir, Þórhallur Steinarsson,
Jón Kr. Magnússon, Linda Gunnarsdóttir,
Halldóra Magnúsdóttir, Ívar Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær systir okkar,
SIGRÚN ALEXANDERSDÓTTIR,
Gnoðarvogi 38,
Reykjavík,
lést mánudaginn 19. apríl.
Hún verður jarðsungin frá Langholtskirkju
föstudaginn 30. apríl kl. 13.00.
Kristinn Reynholt Alexandersson,
Árni Alexandersson,
Heiðar Alexandersson,
Þorsteinn Jóhannsson,
Lísa Birgisdóttir, Harri Hákonarson.